„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Gunnar Smári er sammála Agnesi: „Held að við mættum alveg ræða meira um hann blessaðan“

Gunnar Smári er sammála Agnesi: „Held að við mættum alveg ræða meira um hann blessaðan“
Gunnar Smári Egilsson.

Gunnar Smári segir ekk­ert skrítið að bisk­upinn vilji tala meira um Guð.

Sós­í­alista­for­kólf­ur­inn Gunnar Smári Egilsson skrif­aði afar djúpa hug­vekju á Facebook-vegg sinn í dag. Þar fer hann á dýpt­ina yfir Guð og heim­inn í dag, sam­fé­lagið og for­feðra­dýrkun svo eitt­vað sé nefnt.

Hér má sjá hug­vekj­una í heild sinni:

„Þurfum við að tala um Guð?

Ég myndi aldrei orða það svo að það væri þöggun um Guð í sam­fé­lag­inu, en ég held að við mættum alveg ræða meira um hann bless­aðan og það sem honum til­heyrir. Þegar ég var settur yfir ung­linga­blaðið Fókus á síð­ustu öld, harð­full­orð­inn mað­ur­inn, benti ég ungum blaða­mönnum á gamla ráð­legg­ingu sem mér var ein­hvern tím­ann sagt að Árni Þór­ar­ins­son hefði gefið óreyndu fólki á leið í við­töl, að spyrja fólk um kyn­líf, áfengi og trú­ar­brögð. Það brást sjaldan að það voru svörin um trú sem voru áhuga­verð­ustu kafl­arnir í við­töl­unum. Þar var helst eitt­hvað óvænt, nýtt og sér­stakt, eitt­hvað sem við­mæl­and­anum fannst mik­il­vægt. Ef ég man rétt suðum við þetta niður og buðum upp á örvið­töl þar sem aðeins var spurt um þetta þrennt.Ég er ekki heit­trú­aður en mér hefur alltaf fund­ist ég þurfa að skilja á ein­hvern hátt frá­sagnir af sam­vistum manns­ins við guð sinn, að í þeim væri stærsti hlut­inn af því sem mann­skepnan hefði hugsað um stöðu sína í heim­inum. Sem er nátt­úr­lega ill­við­ráð­an­leg spurn­ing sem best er að svara með sögum, lík­ingum eða söng. Um hvað við séum eig­in­lega að gera hér, til­hvers sé ætl­ast af okkur og hvernig við getum fundið innri frið og sátt, þakk­læti fyrir það við höfum en við­haldið líka von um meira rétt­læti, mannúð og frið á þessu heim­ili sem við eigum saman.Og ég hef notað Guð eins og hvert annað áhald, til að flytja til egóið svo það þurfi ekki að vera miðja alls. Ég kann ekki betri aðferð til þess. Það fylgir til­vist okkar að vera miðja heims­ins. Það er úr okkur sjálfum sem við sjáum allt og skynjum. Og þá skiljum heim­inn eðli­lega með okkur í miðj­unni. Sem er nátt­úr­lega klikkað sjón­ar­horn og skekkt. Til að varna þessu, eða alla vega vega upp á móti, er snjallt að koma sér upp Guði hið innra svo við þurfum ekki sjálf að sitja þarna í miðj­unni og heimskast af upp­hafn­ingu og ofmetnu mik­il­vægi.For­feðra­dýrkun er líka snjallt áhald til að minna okkur á að flest sem við eigum og njótum var búið til og við­haldið af öðru fólki, gengnu fólki. Það dregur bit úr egóinu að minna sig á slíkt. En það er líka menn­ing­ar­leg við­halds- og vernd­ar­stefna. Minnir okkur á að fara vel með það sem er, að okkar hlut­verk sé að koma sköp­un­ar­verki geng­inna kyn­slóða (nú, eða guðs) til skila til næstu kyn­slóðar ekki í lak­ara standi en við erfðum það.Við lifum enda­lok sög­unnar eins og Fukuyama benti á, þótt hann hafi kannski mis­skilið sýn sína. Þegar Guð hafði legið dauður um langa hríð reis upp tími upp­blá­s­innar ein­stak­lings­hyggju þar sem egóið var í hásæt­inu og miðj­unni og sam­fé­lagið leys­ist upp og varð að engu öðru en safn­haug af ein­stak­lingum, mik­il­feng­legum og alvöldum, og þá hvarf sagan. Enda hefur mann­eskja sem ekk­ert sér nema sjálfa sig ekk­ert að gera við sögu, sam­fé­lag eða Guð. Hver hugsun hennar eða löngun er upp­haf alls, hið heila mark­mið að elta þetta.Við lifum mikla upp­lausn­ar­tíma. Þess vegna er stöð­ug­leik­inn sölu­vara. Það er hunda­blístur til þeirra sem vilja verja stöðu sína. Hin fátæku og for­smáðu biðja ekki um stöð­ug­leika. Og stöð­ug­leik­inn sem er seldur er í reynd áfram­hald­andi nið­ur­brot þess sam­fé­lags sem byggð­ist upp af kröfum skipu­lagðra alþýðu­hreyf­inga á síð­ustu öld, bæði inn­viða, grunn­kerfa og þeirrar lýð­ræðis­virkni sem gat fleytt kröfum hinna eigna­lausu og fátæku áfram.Og til að halda áfram nið­ur­brot­inu þurfa þau sem auðg­ast á því og draga til sín völdin að halda aftur af umræðu um sam­fé­lag og sögu. Og um guð, ef guð er móteitur gegn upp­blás­inni ein­stak­lings­hyggju. Og besta leiðin til að ræða eitt­hvað alls ekki er að sveipa það helgiljóma svo það hefj­ist upp yfir okkur öll, að sagan, sam­fé­lagið og guð séu ekki eld­hús­á­höld til að beita gegn vanda heldur eitt­hvað ósegj­and­legt, óum­ræð­an­legt og óend­an­lega inn­an­tómt í upp­hafn­ingu sinni. Eins og við erum orðin sjálf.Við erum þar. Stand­andi frammi fyrir vanda sem er í grunn­inn and­legur. Þegar við höfum misst sjónar af stöðu okkar í heim­inum og sög­unni, ábyrgð okkar á sam­fé­lag­inu og til hvers við getum notað góðan guð. Og þá er akkúrat ekk­ert skrítið við að biskup telji að það myndi bæta sam­fé­lag okkar ef við æfðum okkur að tala um guð og and­leg mál. Sú sem er kristin eða iðkar aðra trú hlýtur að telja það bestu leið­ina til að lækna hin and­legu mein.Svo er annað fólk öðru­vísi saman sett, með rök­vísi sem botn í sinni sál á meðan aðrir eru byggðir upp frá félags­legum tengslum og til­finn­ingum. En það er æði stór hópur sem funkerar ekki nema finna ein­hvern and­legan þráð. Það má ekki bara sjá af and­legri iðkun heldur hvernig allt hneig­ist til að taka á sig mynd trúar og trú­ar­bragða. Það á ekki síst við um vís­indi og skipu­lagða þekk­ing­ar­söfnun, sem gera kröfu um heil­ag­leika og óskeik­ul­leika, búa til sínar eigin heil­agra manna sögur og ritúöl og vilja for­dæma þau sem ekki falla fram og til­biðja þau.Og það sama á við um hug­mynda­stefnur í sam­tím­anum, hvort sem það er femín­ismi eða nýfrjáls­hyggja, sós­í­al­ismi eða íhalds­semi. Trú­ar­iðkun hefur verið svo afger­andi far­vegir í gegnum ald­irnar að allt sem við gerum og hugsum tekur á ein­hvern hátt mið af því. Hillur með fæðu­bót­ar­efnum út í kjör­búð eru sem alt­ari þar sem hægt er að sækja sér end­ur­nýjun og losna undan synd, ekki með lík­ama Krists heldur því sem hefur tekið yfir hlut­verk hans.En hvað um það. Þessi með and­lega botn­inn í sinni sál telur að besta leiðin til að bæta heim­inn, til að finna merk­ingu í upp­lausn­inni, sé að tala um Guð. En hún lifir í sam­fé­lagi sem hrópar niður slíkar upp­á­stungur, eins og svo sem flest annað. Við erum föst í deilu um dag­skrá og fund­ar­stjórn for­seta, um hvað megi tala um og hvað ekki. Komumst aldrei að því að ræða neitt sem er áhuga­vert.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Trúmál

Krossinn er fokinn af kirkjunni og Þjóðkirkjan áhyggjulaus
Landið

Krossinn er fok­inn af kirkj­unni og Þjóð­kirkjan áhyggju­laus

Eitt elsta guðs­hús lands­ins, kirkjan á Stað í Reyk­hóla­hreppi, hefur misst kross­inn og stendur koll­ótt á hlað­inu á kirkju­staðnum. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs hefur þetta verið svona um hríð og hafa stjórn­endur Þjóð­kirkj­unnar ekki áhyggjur af ástand­inu. Ekkert hefur verið gert í því að koma kross­inum aftur upp. Viðhald kirkj­unnar er reyndar á ábyrgð Þjóð­minja­safns Íslands þar sem hún er á...
Hneykslast á orðum Agnesar: „Má ég kannski biðja um svoleiðis þöggun?“
InnlentTrúmál

Hneyksl­ast á orðum Agnesar: „Má ég kannski biðja um svo­leiðis þöggun?“

Orð Agnesar Sig­urð­ar­dóttur bisk­ups um þöggun sem væri „í gangi varð­andi Guð krist­inna manna,“ sem hún lét falla í jóla­hug­vekju sinni, hefur fallið í nokkuð grýtt­ann far­veg hjá mörgum. Illugi Jök­uls­son er einn þeirra sem hefur hneiksl­ast á þeim orðum bisk­ups­ins. Fjöl­miðla­mað­ur­inn Illugi Jök­uls­son skrif­aði færslu í dag þar sem hann hnýtti í bisk­upinn: „Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir hefur að vísu...
Kalla eftir því að ofbeldið sem hefur viðgengist hætti og að ríkið stígi inn í
InnlentTrúmál

Kalla eftir því að ofbeldið sem hefur við­geng­ist hætti og að ríkið stígi inn í

Flest höfum við heyrt lygi­legar sögur af sér­trú­ar­söfn­uðum, enda hafa gjörðir þeirra og örlög oft ratað í heims­press­una og ekki síst popp­kúlt­ur­inn um allan heim. Í Kompás þætti Stöðvar 2 í gær­kvöldi var tekið við­tal við nokkra fyrr­ver­endi með­limi sér­trú­ar­söfn­uð­ar­ins Votta Jehóva. Í þætti gær­kvölds­ins var rætt við fólk sem var útskúfað úr söfn­uði Votta Jehóva og hefur ekki fengið...
Segja frá ofbeldi innan sértrúarsafnaða: „Þjónaðu leiðtogunum eins og þeir séu Guð’’
Innlent

Segja frá ofbeldi innan sér­trú­ar­safn­aða: „Þjónaðu leið­tog­unum eins og þeir séu Guð’’

„Ung­linga­leið­tog­inn í kirkj­unni tók mig í gólfið, kné­setti mig og stóð ofan á mag­anum á mér til að reka út djöfl­ana sem áttu að gera mig sam­kyn­hneigða,’’ segir Steinunn Anna Radha í við­tali við Kompás en fjallað var um málið á Vísi. Kompás hefur kafað ofan í hug­takið trú­arof­beldi og skyggnst inn í líf þeirra sem hafa verið í sér­trú­ar­söfn­uðum....
Ninna sóknarprestur biður þig að yfirgefa ekki Þjóðkirkjuna: „Þú refsar sókninni þinni“
InnlentTrúmál

Ninna sókn­ar­prestur biður þig að yfir­gefa ekki Þjóð­kirkj­una: „Þú refsar sókn­inni þinni“

Ninna Sif Svav­ars­dóttir, sókn­ar­prestur og for­maður Presta­fé­lags Íslands, biður lands­menn um að segja sig ekki úr Þjóð­kirkj­unni þó þeir séu ósáttir við yfir­stjórn kirkj­unnar. Það bitni nefni­lega aðeins beint á sókn­unum að segja sig úr söfnuðnum.Ástæða fyrir færslu­skrifum Ninnu á Facebook er sú að í dag rennur út sá frestur að skrá sig í eða úr trú­fé­lögum. Það er því...
Gunnar í Krossinum sér aðeins eina leið til að sigra kórónaveiruna: Guð hefur ekki lokið verki sínu
Innlent

Gunnar í Kross­inum sér aðeins eina leið til að sigra kór­óna­veiruna: Guð hefur ekki lokið verki sínu

Gunnar Þor­steins­son, sem oft­ast er kenndur við Krossinn, segir aðeins eina leið færa til að sigra kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn. Að gera iðrun frammi fyrir Guði og biðja hann um fyr­ir­gefn­ingu og mis­kunn. Gunnar segir að leitað hafi verið til hans linnu­laust und­an­farið eftir svörum við þeim Covid-tímum sem þjóðin er að upp­lifa. „Ótti og uggur er í mörgum og er ekki að...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins