Brynjar Níelsson hæðist að Gísla Marteini í færslu á Facebook, fyrir að tala fyrir bíllausan lífsstíl.
Aðstoðamaður dómsmálaráðherra og fyrrum alþingismaðurinn Brynjar Níelsson skrifar oft færslur á Facebook sem bæði gleðja og stuða, eftir því hvar lesandinn mælist á áttavitanum. Í nýlegri færslu hefur Brynjar „fræga fólkið“ að háði og spotti fyrir að „agnúast útí einkabílinn“ en þar á hann að öllum líkindum við Gísla Martein Baldursson sjónvarpsmann, sem hefur verið óþreytandi í gagrýni sinni á bílnotkun landans.
Færslan vakti gríðarlega lukku en hátt í 900 manns „lækaði“ hana og ríflega 180 athugasemdir voru skrifaðar við hana. Færsluna má lesa í heild sinni hér fyrir neðan:
„Fræga fólkið, sem býr miðsvæðis í borginni með alla þjónustu í kringum sig og þarf aldrei að fara lengra en upp í Efstaleiti, agnúast stöðugt úti einkabílinn. Það er orðið svo viðkvæmt að það nær ekki andanum ef bíll keyrir framhjá eða einhver leysir vind nálægt því.
Fræga fólkið er auðvitað upptekið af sjálfu sér og kemur því reglulega á framfæri að það sé gáfaðra, frjálslyndara og meira frelsisþenkjandi en aðrir þegar það gerir hlé á því að tala illa um aðra og hlæja að því um leið, helst í beinni útsendingu. En fræga fólkið veit ekki að einkabíllinn er mesta frelsismál alþýðu manna frá upphafi. Alveg eins og niðurgreiddur leikskóli var í raun mesta jafnréttismál allra tíma. En hvað varðar það um annað fólk?“


























Athugasemdir