„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Drífa Snædal: „Ég óttast að ríkissáttasemjari hafi ekki hugsað þetta til enda“

Drífa Snædal: „Ég óttast að ríkissáttasemjari hafi ekki hugsað þetta til enda“
Drífa Snædal.

Drífa Snædal fyrr­ver­andi for­seti ASÍ segir í Facebook-færslu á síðu sinni að „með ákvörðun sinni að leggja fram miðl­un­ar­til­lögu er rík­is­sátta­semj­ari heldur betur að teygja á heim­ildum sínum. Það er véfengj­an­legt að hann hafi þessar heim­ildir án sam­ráðs við deilu­að­ila en heim­ildir Eflingar til að semja fyrir sitt fólk og und­ir­búa verk­falls­að­gerðir eru óvé­fengdar. Sama hvað fólki kann að finn­ast um fram­göngu samn­inga­nefndar Eflingar.“

Aðal­steinn Leifsson rík­is­sátta­semj­ari.

Bætir við:

„Með þessu er rík­is­sátta­semj­ari að nýta til hins ýtrasta sínar vald­heim­ildir og jafn­vel aðeins umfram það og þetta er stór­hættu­legt for­dæmi fyrir deilur á hinum íslenska vinnu­mark­aði. Þegar einu sinni er búið að taka svona ákvörðun er hætt við að hún verði tekin aftur og aftur og aftur. Það er nán­ast ómögu­legt fyrir félags­menn að fella slíka miðl­un­ar­til­lögu, það þarf tölu­vert meiri kosn­inga­þátt­töku til að fella til­lög­una en náðst hefur hingað til í almennum atkvæða­greiðslum. Ef þetta er það sem koma skal á íslenskum vinnu­mark­aði er verið að draga úr mögu­leikum og heim­ildum ein­stakra stétt­ar­fé­laga til að ráða sínum málum sjálf og beita því eina vopni sem launa­fólk býr yfir – að leggja niður störf. Ég ótt­ast að rík­is­sátta­semj­ari hafi ekki hugsað þetta til enda.“

Hún segir einnig að „hætt er við að deilan fari í enn meiri hnút og traust til emb­ættis rík­is­sátta­semj­ara minnki hjá launa­fólki á Íslandi. Það er hins vegar mín skoðun að félagar í Eflingu hefðu átt að fá að greiða atkvæði um það til­boð sem lá á borð­inu en það á að ger­ast á félags­legum grunni en ekki með vald­boði rík­is­sátta­semj­ara.“

Drífa nefnir að end­ingu að „með þeirri stöðu sem nú er komin er hætt við að launa­fólk upp­lifi einmitt það, vald­boð að ofan í stað félags­legra lausna innan síns félags.

Það er ljóst að stjórn­völd og atvinnu­rek­endur hafa látið sig dreyma um auknar vald­heim­ildir rík­is­sátta­semj­ara en það hefur verið í and­stöðu við verka­lýðs­hreyf­ing­una. Að rík­is­sátta­semj­ari taki sér þetta vald núna verður varla til að efla sam­tal um bætt vinnu­brögð í samn­inga­gerð og getur haft alvar­legar afleið­ingar á sam­skipti á vinnu­mark­aði til lengri tíma.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Subway sakað um að svindla á starfsmönnum: „Áróður, árásir, hótanir, útúrsnúningur og lygar“
InnlentKjaramál

Subway sakað um að svindla á starfs­mönnum: „Áróður, árásir, hót­anir, útúr­snún­ingur og lygar“

Veit­inga­stað­ur­inn Subway er einn þeirra fimm veit­inga­staða sem ekki hafa svarað erindum Eflingar varð­andi mein­tan „gervi­kjara­samn­ing“ sem fyr­ir­tæki sömdu um við stétt­ar­fé­lagið Virðingu. Efling vill meina að Virðing sé gervi­stétt­ar­fé­lag sem Samtök fyr­ir­tækja á veit­inga­mark­aði standa fyrir. Auk Subway hafa Rok, Public House Gastropub, Hard Rock Cafe og Finnsson Bistro ekki svarað Eflingum um þeirra mál en stétt­ar­fé­lagið seg­ist í...
Virðing leyfir veitingastöðum að taka upp samtöl starfsmanna
InnlentKjaramál

Virðing leyfir veit­inga­stöðum að taka upp sam­töl starfs­manna

Hið meinta gervi­stétt­ar­fé­lag Virðing leyfir vinnu­veit­endum taka hljóð­upp­tökur upp á vinnu­stöðum sam­kvæmt ráðn­ing­ar­samn­ingi sem Heim­ildin hefur undir höndum en sá samn­ingur byggir á kjara­samn­ingi á milli Virð­ingar og SVEIT, sam­taka fyr­ir­tækja á veit­inga­mark­aði. Efling hefur sakað SVEIT um að standa fyrir stofnun stétt­ar­fé­lags­ins. Samkvæmt Per­sónu­vernd hafa ekki komið upp mál sem varða hljóð­upp­töku á starfs­mönnum á Íslandi en margir veit­inga­staðir...
VR fordæmir Virðingu: „Slík félög grafa undan réttindum“
InnlentKjaramál

VR for­dæmir Virðingu: „Slík félög grafa undan rétt­indum“

Stétt­ar­fé­lagið VR segir fram­komu SVEIT í mál­efnum er snúa að stétt­ar­fé­lag­inu Virðingu vera fyrir neðan allar hellur en stærstu stétt­ar­fé­lög lands­ins saka Virðingu um að vera gervi­stétt­ar­fé­lag sem er ætlað að draga úr rétt­indum launa­fólks. Þá er SVEIT sakað um að standa fyrir stofnun stétt­ar­fé­lags­ins. „Stjórn VR for­dæmir atlögu atvinnu­rek­enda innan SVEIT, sam­tökum fyr­ir­tækja á veit­inga­mark­aði, að rétt­indum og kjörum...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins