„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Verkfallsboðun samþykkt hjá starfsfólki Íslandshótela: „Hefst vinnustöðvun að óbreyttu 7. febrúar“

Verkfallsboðun samþykkt hjá starfsfólki Íslandshótela: „Hefst vinnustöðvun að óbreyttu 7. febrúar“
Samn­inga­nefnd Eflingar fagnar.

Starfs­fólk Íslands­hót­ela hefur sam­þykkt boðun um verk­falls­að­gerðir, en raf­ræn atkvæða­greiðsla sem hófst um hádegið síð­ast­lið­inn þriðju­dag var að ljúka nú fyrir örskammri stundu síðan.

Hafi samn­ingar ekki náðst fyrir þá mun verk­fall hefj­ast í næstu viku.

Í frétta­til­kynn­ingu sem Efling sendi frá sér rétt áðan kemur fram að nefndin fagni hug­rekki verka­fólks á Íslands­hót­elum; sam­þykki næstu lotu verk­falls­boð­ana:

Sólveig Anna Jóns­dóttir.

„Efl­ing­ar­fé­lagar hjá Íslands­hót­elum hafa með afger­andi meiri­hluta sam­þykkt ótíma­bundna vinnu­stöðvun á öllum hót­elum keðj­unnar í Reykja­vík. Var boð­unin sam­þykkt með 124 atkvæðum gegn 58 mót­at­kvæðum og 7 sem ósk­uðu að taka ekki afstöðu.

Af þeim sem greiddu atkvæði voru því 65 pró­sent sem sam­þykktu boð­un­ina. Samtals kusu 189 af þeim 287 sem voru á kjör­skrá og var kjör­sókn því 66 pró­sent pró­sent sem er mun meira en sést hefur í verk­falls­kosn­ingum félags­ins á síð­ustu árum.

Hefst vinnu­stöðvun að óbreyttu þriðju­dag­inn 7. febr­úar.

Stjórn­endur Íslands­hót­ela beittu starfs­fólk miklum þrýst­ingi og ólög­mætum hót­unum um tekju­missi tækju þau afstöðu með verk­falli. Er það skýrt brot á ákvæðum laga um stétt­ar­fé­lög og vinnu­deilur. Var allt starfs­fólk skikkað á sér­staka fundi þar sem stjórn­endur ræddu um kjara­deilu Eflingar við SA á vill­andi og ein­hliða hátt, og komu hót­unum sínum í þá veru óspart á fram­færi.

Bárust félag­inu margar kvart­anir frá félags­fólki vegna þessa.

Aðal­steinn Leifsson rík­is­sátta­semj­ari.

Rík­is­sátta­semj­ari sam­þykkti sér­staka miðl­un­ar­til­lögu sem tíma­sett var til að koma í veg fyrir að félags­fólk Eflingar hjá Íslands­hót­elum fengi að nýta sér rétt sinn til verk­falls.

Hann end­ur­tók jafn­framt hót­anir atvinnu­rek­enda um tekju­missi.

Guð­mundur Ingi og Katrín Jak­obs­dóttir.

Tveir ráð­herrar Vinstri grænna í rík­is­stjórn, Guð­mundur Ingi Guð­brands­son félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra og Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra, vissu af miðl­un­ar­til­lögu rík­is­sátta­semj­ara áður en hún var kynnt samn­inga­nefnd Eflingar.

Ráð­herr­arnir stigu fram opin­ber­lega til stuðn­ings við miðl­un­ar­til­lög­una þrátt fyrir háværa gagn­rýni allra heild­ar­sam­taka launa­fólks á hana.“

Kemur fram að verk­falls­boð­unin tekur til starfs­stöðva Íslands­hót­ela á félags­svæði Eflingar, en þar um að ræða félags­fólk sem sinnir þrifum á her­bergjum sem og í sam­eig­in­legum rýmum, við fram­reiðslu veit­inga, störfum í eld­húsi, þvotti og fleira.

Hótel Íslands­hót­ela á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eru nokkur; Hótel Saga í Lækj­ar­götu, Grand Hótel við Kringlu­mýr­ar­braut­ina, Hótel Centrum, Foss­hótel við Þór­unn­ar­tún, einnig Foss­hótel við Bar­óns­stíg og við Lind við Rauð­ar­ár­stíg; líka hótel Rauðará.

Ljóst er því að mikil harka er að fær­ast í kjara­deilur Eflingar, sem virð­ist ekki ætla að gefa tommu eftir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Subway sakað um að svindla á starfsmönnum: „Áróður, árásir, hótanir, útúrsnúningur og lygar“
InnlentKjaramál

Subway sakað um að svindla á starfs­mönnum: „Áróður, árásir, hót­anir, útúr­snún­ingur og lygar“

Veit­inga­stað­ur­inn Subway er einn þeirra fimm veit­inga­staða sem ekki hafa svarað erindum Eflingar varð­andi mein­tan „gervi­kjara­samn­ing“ sem fyr­ir­tæki sömdu um við stétt­ar­fé­lagið Virðingu. Efling vill meina að Virðing sé gervi­stétt­ar­fé­lag sem Samtök fyr­ir­tækja á veit­inga­mark­aði standa fyrir. Auk Subway hafa Rok, Public House Gastropub, Hard Rock Cafe og Finnsson Bistro ekki svarað Eflingum um þeirra mál en stétt­ar­fé­lagið seg­ist í...
Virðing leyfir veitingastöðum að taka upp samtöl starfsmanna
InnlentKjaramál

Virðing leyfir veit­inga­stöðum að taka upp sam­töl starfs­manna

Hið meinta gervi­stétt­ar­fé­lag Virðing leyfir vinnu­veit­endum taka hljóð­upp­tökur upp á vinnu­stöðum sam­kvæmt ráðn­ing­ar­samn­ingi sem Heim­ildin hefur undir höndum en sá samn­ingur byggir á kjara­samn­ingi á milli Virð­ingar og SVEIT, sam­taka fyr­ir­tækja á veit­inga­mark­aði. Efling hefur sakað SVEIT um að standa fyrir stofnun stétt­ar­fé­lags­ins. Samkvæmt Per­sónu­vernd hafa ekki komið upp mál sem varða hljóð­upp­töku á starfs­mönnum á Íslandi en margir veit­inga­staðir...
VR fordæmir Virðingu: „Slík félög grafa undan réttindum“
InnlentKjaramál

VR for­dæmir Virðingu: „Slík félög grafa undan rétt­indum“

Stétt­ar­fé­lagið VR segir fram­komu SVEIT í mál­efnum er snúa að stétt­ar­fé­lag­inu Virðingu vera fyrir neðan allar hellur en stærstu stétt­ar­fé­lög lands­ins saka Virðingu um að vera gervi­stétt­ar­fé­lag sem er ætlað að draga úr rétt­indum launa­fólks. Þá er SVEIT sakað um að standa fyrir stofnun stétt­ar­fé­lags­ins. „Stjórn VR for­dæmir atlögu atvinnu­rek­enda innan SVEIT, sam­tökum fyr­ir­tækja á veit­inga­mark­aði, að rétt­indum og kjörum...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins