„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Spyr hvort stjórnin sé stikkfrí: „Ríkisstjórninni ber að stíga inn og leggja myndarlega í púkkið“

Spyr hvort stjórnin sé stikkfrí: „Ríkisstjórninni ber að stíga inn og leggja myndarlega í púkkið“

Guð­mundur Árni Stef­ans­son bæj­ar­full­trúi og vara­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar – Jafn­að­ar­flokks Íslands, spyr ein­fald­lega hvort rík­is­stjórnin sé stikk­frí í kjara­deil­unum:

„Hvernig er unnt að höggva á hnút­inn í kjara­deilu Eflingar og Samtaka atvinnu­lífs­ins? Það virð­ist langt til lands og harkan fær­ist í auk­ana með áformum atvinnu­rek­enda um verk­bann á 20 þús­und félaga verka­lýðs­fé­lags­ins. Það er olía á eld í þess­ari kjara­deilu.“

Hann bendir á að „vissu­lega er þrengra um vik um nýjar lausnir, þegar fyrir liggur að 80 þús­und launa­manna hafa þegar sam­þykkt kjara­samn­ing; fólk í Starfs­greina­sam­band­inu og Versl­un­ar­manna­fé­lag­inu. Þegar atvinnu­rek­endur eru síðan farnir að kalla eftir laga­setn­ingu á verk­fallið og kjara­deil­una, þar sem Alþingi setur lög sem banna verk­föll, þá er í óefni komið.“

Hann bætir því við að „ekki er ósenni­legt að stuðn­ingur við slíkt sé að finna í her­búðum Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks­ins, en vart verður því trúað fyr­ir­fram að Vinstri grænir taki slíkt í mál. Þar er þó litla stað­festu að finna eins og dæmin sanna.“

Guð­mundur Árni telur að „flestir hljóta að vera sam­mála því, að lægstu laun á land­inu duga engan veg­inn fyrir fram­færslu. Það er óvið­un­andi. Úr því þarf að bæta. En það er unnt að gera með fleiru en krónu­tölu­hækk­unum og breyt­ingum á launa­töxtum. Og kem ég þá að kjarna máls. Svo virð­ist sem sitj­andi rík­is­stjórn sé algjör­lega stikk­frí í þess­ari kjara­deilu og er á hlið­ar­lín­unni eins og hver annar áhorf­andi. Það er óvið­un­andi.“

Hann bendir á að „rík­is­stjórn­inni ber að stíga inn og leggja mynd­ar­lega í púkkið. Nokkrar leiðir eru færar í því efni.

Ein er sú að setja á leigu­þak eða leigu­bremsu, sem tryggir stöðu og kjör leigj­enda í land­inu. Þetta hefur jafn­að­ar­fólk kallað eftir, sem og verka­lýðs­hreyf­ingin, en rík­is­stjórn­inin skellt við skolla­eyrum. Þessi aðgerð skiptir máli. Hún kostar ekki pen­inga úr rík­is­stjóði.

Önnur leið er jákvæð inn­grip í hús­næð­is­kerfið; kerfi sem er nú um stundir venju­legum launa­manni full­kom­lega ofviða. Fleiri leiðir eru færar en póli­tískan vilja þarf til.“

Guð­mundur Árni segir að lokum að „þessi aðkoma rík­is­valds­ins myndi einnig greiða fyrir kom­andi samn­ingum við opin­bera starfs­menn og starfs­menn sveit­ar­fé­laga. Sem og bæta í nýgerða samn­inga. Það er sjálf­sögð og eðli­leg krafa til rík­is­stjórn­ar­innar að verkin verði látin tala. Það er að vísu eitt­hvað sem sjaldan sést, því sitj­andi rík­is­stjórn og for­ystu­fólk hennar virð­ist hafa þann ein­asta metnað að sitja meðan sætt er. Ágrein­ingur er um minni og stærri mál og þau eru „leyst“ með aðgerð­ar­leysi. Það virð­ist þegj­andi sam­komu­lag um að gera sem minnst. En nú er ekki í boði að vera stikk­frí.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Subway sakað um að svindla á starfsmönnum: „Áróður, árásir, hótanir, útúrsnúningur og lygar“
InnlentKjaramál

Subway sakað um að svindla á starfs­mönnum: „Áróður, árásir, hót­anir, útúr­snún­ingur og lygar“

Veit­inga­stað­ur­inn Subway er einn þeirra fimm veit­inga­staða sem ekki hafa svarað erindum Eflingar varð­andi mein­tan „gervi­kjara­samn­ing“ sem fyr­ir­tæki sömdu um við stétt­ar­fé­lagið Virðingu. Efling vill meina að Virðing sé gervi­stétt­ar­fé­lag sem Samtök fyr­ir­tækja á veit­inga­mark­aði standa fyrir. Auk Subway hafa Rok, Public House Gastropub, Hard Rock Cafe og Finnsson Bistro ekki svarað Eflingum um þeirra mál en stétt­ar­fé­lagið seg­ist í...
Virðing leyfir veitingastöðum að taka upp samtöl starfsmanna
InnlentKjaramál

Virðing leyfir veit­inga­stöðum að taka upp sam­töl starfs­manna

Hið meinta gervi­stétt­ar­fé­lag Virðing leyfir vinnu­veit­endum taka hljóð­upp­tökur upp á vinnu­stöðum sam­kvæmt ráðn­ing­ar­samn­ingi sem Heim­ildin hefur undir höndum en sá samn­ingur byggir á kjara­samn­ingi á milli Virð­ingar og SVEIT, sam­taka fyr­ir­tækja á veit­inga­mark­aði. Efling hefur sakað SVEIT um að standa fyrir stofnun stétt­ar­fé­lags­ins. Samkvæmt Per­sónu­vernd hafa ekki komið upp mál sem varða hljóð­upp­töku á starfs­mönnum á Íslandi en margir veit­inga­staðir...
VR fordæmir Virðingu: „Slík félög grafa undan réttindum“
InnlentKjaramál

VR for­dæmir Virðingu: „Slík félög grafa undan rétt­indum“

Stétt­ar­fé­lagið VR segir fram­komu SVEIT í mál­efnum er snúa að stétt­ar­fé­lag­inu Virðingu vera fyrir neðan allar hellur en stærstu stétt­ar­fé­lög lands­ins saka Virðingu um að vera gervi­stétt­ar­fé­lag sem er ætlað að draga úr rétt­indum launa­fólks. Þá er SVEIT sakað um að standa fyrir stofnun stétt­ar­fé­lags­ins. „Stjórn VR for­dæmir atlögu atvinnu­rek­enda innan SVEIT, sam­tökum fyr­ir­tækja á veit­inga­mark­aði, að rétt­indum og kjörum...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins