„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Erna Björk og Einar: „Við horfðum á hvort annað og það var eitthvað sem gerðist“

Erna Björk og Einar: „Við horfðum á hvort annað og það var eitthvað sem gerðist“
Erna Björk Svav­ars­dóttir

Erna Björk Svav­ars­dóttir er gift stýri­manni á frysti­tog­ara og hefur hún þekkt líf sjó­manns­kon­unnar frá því þau kynnt­ust og hvernig það er að sakna. Erna Björk talar meðal ann­ars um áhrif fjar­veru fjöl­skyldu­föð­ur­ins á fjöl­skyld­una, hvers þau og hann fara á mis og hvað það er gaman þegar hann kemur í land. Hún talar líka um lífs­hásk­ann sem eig­in­mað­ur­inn lenti í á sínum tíma ásamt skips­fé­lögum sínum.

Erna Björk Svav­ars­dóttir var rúm­lega tví­tug og ein­stæð móðir þegar hún sagði við vin­konu sína að það myndi henta sér vel að kynn­ast sjó­manni utan af landi sem ætti helst engin börn eða í mesta lagi eitt. „Ég var orðin voða þreytt á þessum karl­mönnum í Reykja­vík. Svo kynnt­ist ég sjó­manni utan af landi sem átti eitt barn,“ segir Erna Björk sem er gift þriggja barna móðir og á hún eitt stjúp­barn og tvö barna­börn. Hún fór nefni­lega í apríl árið 1996 niður í miðbæ Reykja­víkur að kvöldi til með vin­konu sinni sem bjó úti á landi og var nýkomin í bæinn. Þá hitti hún ást­ina í lífi sínu, stýri­mann­inn Einar Ármann­son sem er frá Nes­kaup­stað og sem átti þá eitt barn. Þau sáu hvort annað á skemmti­stað en hún tekur fram að hún hafi ekki verið í maka­leit.

„Við horfðum á hvort annað og það var eitt­hvað sem gerð­ist. Ég leit undan og vin­kona mín sagði að hann horfði enn á mig en ég sagði að það skipti engu máli; kvöldið sner­ist um hana. Við sett­umst niður og hann horfði ennþá. Hann kom síðan að borð­inu og spurði hvað ég héti. Ég sagði: „Heyrðu, það eru engir karl­menn vel­komnir við þetta borð.“ Hún hlær. „Þá sagði hann: „Einar heiti ég. Hvað heitir þú?“ Ég sagði honum það og hann spurði þá hvað við ætl­uðum að vera þarna lengi og ég sagði að við yrðum þarna í um 15 mín­útur og ætl­uðum að drekka úr glös­unum sem við vorum með. Hann sagði þá: „Sjáumst eftir 14 mín­útur.“

Einar mætti aftur að borð­inu um 14 mín­útum síðar og síðan var ekki aftur snúið.

Einar bjó í Nes­kaup­stað og fór hann austur en kom aftur suður helg­ina á eftir til að hitta Ernu Björk.

Hún fór svo fljót­lega austur og hitti þar for­eldra hans. Á leið­inni suður í maí spurði Einar Ernu Björk hvort þau ættu ekki að trú­lofa sig og hún var til í það. Þau óku beint niður á Laugaveg þegar þau voru komin til borg­ar­innar og voru komin í skrat­gripa­verslun nokkrum mín­útum fyrir sex þar sem þau völdu trú­lof­un­ar­hringa.

Erna Björk og Einar trú­lof­uðu sig 11. maí. Þau giftu sig svo í jan­úar 1997 og eign­uð­ust tví­bura­dætur sínar í nóv­em­ber sama ár.

Ein með veik börn

Einar hefur verið sjó­maður frá því á ung­lings­ár­unum en hann er stýri­maður að mennt og er nú annar stýri­maður á frysti­tog­ara.

Túrarnir geta verið frá 28 dögum upp í 40 daga. „Oftast hefur þetta verið um mán­uður en svo hefur kerfið verið mis­jafnt. Fyrst fór hann í þrjá túra og var í fríi í einn. Svo breytt­ist það í tvo túra og frí í einn og núna er það einn og einn.

Sumum finnst sjó­manns­konu­lífið vera æðis­legt og sjá fyrir sér sjó­menn á brjál­æð­is­legum launum. Málið er að sjó­manns­konur eru bæði hús­móð­irin og hús­bónd­inn; maður er þetta tvennt 24/7. Alltaf. Þegar við Einar byrj­uðum saman þá pönt­uðum við sím­tal hjá Loft­skeyta­stöð­inni til að hann gæti hringt í mig og svo þurftum við að tala þannig saman að fólk skildi okkur ekki vegna þess að aðrar áhafnir heyrðu hvað við vorum að segja. Ef það var eitt­hvað leynd­ar­mál í gangi sem eng­inn mátti vita um þá þurfti maður að tala undir rós eins og til dæmis þegar ég kom úr fyrsta són­arnum, sem Einar missti auð­vitað af, þá var ég að reyna að segja honum svo eng­inn skildi okkur að ég væri ófrísk að tví­burum en ekki einu barni.“

Það var oft erfitt að vera ein heima vikum saman með þrjú börn á meðan Einar var á sjónum og segir Erna Björk að það hafi verið sér­stak­lega erfitt þegar börnin voru veik og nefnir hún að dæt­urnar hafi verið „eyrna­börn“ og að hún hafi alltaf verið með annan fót­inn hjá eyrna­lækni. „Við fluttum suður vegna veik­inda þeirra,“ segir hún en fjöl­skyldan bjó um tíma í Nes­kaup­stað. „Mamma og pabbi komu sterkt til hjálpar eftir að við fluttum suður. Ég fékk bara sjö daga á ári sem „veik­inda­dag barna“ og þegar Einar kom heim og börnin voru veik þá var ég svo glöð að geta mætt í vinnu og hann var heima hjá þeim. En það var ekki oft sem það gerð­ist. Það var svo­lítið erfitt að vera ein allan sól­ar­hring­inn með veik börn. Og maður svaf lítið þannig að það tók svo­lítið á. Það sem mér fannst erf­ið­ast í þessu sjó­manns­lífi var að sjá um allt ein eins og í veik­indum þegar um var að ræða svona langvar­andi veik­indi.“

Þessi söknuður

Erna Björk talar um sökn­uð­inn.

„Það er rosa­lega erfitt að kveðja hann. Þetta er vont en það venst en það venst samt hægt. Það sama er að segja um hann þegar hann er að fara frá okkur.“

Hún talar um til­finn­ing­una þegar það stytt­ist í að Einar fari á sjó­inn og svo spenn­ing­inn sem hún finnur fyrir þegar það stytt­ist í að hann komi í land. „Svo vand­ist það þegar hann var far­inn á sjó­inn en það var samt alltaf þessi sökn­uður. Einar hefur talað um að hann verði örari og við­þols­laus áður en hann fer á sjó­inn; þegar hann er búinn að vera í góðu fríi með okkur fjöl­skyld­unni er alltaf erfitt að fara frà okkur. Við erum búin að koma upp góðri rút­inu hjá okkur sem hann tekur þátt í sem fjöl­skyldu­faðir og er alltaf leið­in­legt að kveðja það. En við ræddum oft um þetta en svo er hann alltaf jafn­spenntur þegar hann er að koma í land eins og ég er. Það er alltaf gaman.“

Hvað með áhrif sjó­mennsk­unnar á sam­bandið?

„Ég held að það sé kannski gott að vissu leyti en ekki að vera fjar­ver­andi svona lengi. Þetta er ekki fyrir allar konur og margar konur geta þetta ekki og hafa menn hætt á sjónum. Ég veit ekki hvað það er en ég var til­búin í þetta verk­efni og við elskum hvort annað. Ég held að það sé alltaf gott að sakna ein­hvers; alveg eins og þegar farið er í ferða­lag þá er alltaf gott að koma heim. Það skiptir máli að halda sam­skipt­unum við mak­ann þegar hann er fjar­ver­andi, upp­lýsa hann og treysta hvort öðru. Ég er vön að segja honum frá ef ég er að fara eitt­hvert eða að fara að gera eitt­hvað. Það er þessi skiln­ingur okkar á milli og vænt­ingar til hvors ann­ars og traustið skiptir máli. Ég vil koma fram við hann eins og ég myndi vilja að hann kæmi fram við mig ef ég væri stödd ein­hvers staðar úti á hafi; að hann viti hvað ég sé að gera í landi hvort sem það teng­ist börn­unum eða hvort ég var að hitta fólk eða fara í úti­legur. Ég hef upp­lýst hann hvað við séum að gera og hverjir biðji að heilsa. Hann fær að upp­lifa ýmis­legt í gegnum mig.“

Missir af ýmsu

Einar hefur sem sjó­maður misst af ýmsu sem teng­ist fjöl­skyld­unni og nefnir Erna Björk að hann hafi til dæmis misst af því þegar dætur þeirra byrj­uðu að skríða. „Þegar hann kom í land þegar krakk­arnir voru yngri þá þurfti ég oft að upp­lýsa hann um það nýjasta svo sem nýjar reglur.“

Svo voru dag­arnir oft þaul­skipu­lagðir þegar Einar var í landi og stundum voru þeir ekki nema þrír til fjórir. „Þetta var stundum eins og jólin og krakk­arnir voru alveg að gleypa hann þannig að maður rétt hitti hann á kvöldin af því að þau voru að kaf­færa hann. Þau sökn­uðu nátt­úr­lega pabba síns.

Svo vorum við að reyna að eiga kvöld­stund til að vera út af fyrir okkur. Það var minna mál þegar krakk­arnir voru litlir og farnir snemma upp í rúm að sofa og þá gátum við átt gæða­stund fyrir okkur. En við fengum líka mikla hjálp hjá mömmu og pabba og fengu krakk­arnir stundum að gista hjá þeim og þá fórum við stundum út að borða eða heim­sóttum vini eða vorum bara heima og njóta saman. Og svo var pró­gramm í gangi þangað til hann fór aftur á sjó­inn.“

Einar er oft á sjónum á tylli­dögum og á afmæl­is­dögum. „Þegar hann er í landi á þeim dögum þá er rosa­lega gaman. Hann hefur alltaf komið heim fyrir jólin. Þegar hann var á tog­ara frá Nes­kaup­stað þá komu þeir heim á hádegi á Þor­láks­messu og voru farnir á mið­nætti á annan í jólum. Þeir komu svo heim á hádegi á gaml­árs­dag og voru farnir á mið­nætti aðfara­nótt 2. jan­úar. Við fluttum svo suður 1998 og þá fór hann að vinna hjá Granda og þá var komið í land í hádeg­inu á Þor­láks­messu og þeir fóru ekki á sjó­inn fyrr en 2. jan­úar. Þannig að við fengum að vera saman á milli jóla og nýárs. Það var rosa­leg breyt­ing. Það var æðis­legt. Svo vitum við alltaf að þeir eru nátt­úr­lega heima um sjó­manna­dags­helg­ina og það er mjög gott að vita af því.“

Erna Björk segir að Einar sakni þess að vera ekki með fjöl­skyld­unni á ákveðnum stundum og þegar eitt­hvað er í gangi hvort sem það eru fjöl­skyldu­boð, afmæli eða ýmsir hitt­ingar. „Þegar hann kemur í land þá höfum við haldið boð til dæmis ef ein­hver hefur átt afmæli þegar hann var á sjónum. Önnur dóttir okkar útskrif­ast í sumar úr skóla og hann verður ekki heima og eðli­lega finnst honum það vera mjög leið­in­legt.“

Hún segir að sjó­mennskan sé jú ekki fjöl­skyldu­væn. „Fyr­ir­tækin eru ekk­ert dug­leg að koma með túraplan; þeir hafa stundum komið með sex mán­uði fram í tím­ann þannig að við eigum stundum erfitt með að skipu­leggja okkur svo sem ef skipu­leggja á fjöl­skyldu­ferð að ári. Ef við gerum það þá veit hann bara að hann þarf þá að leggja inn fyrir auka­túr í fríi og það getur verið bras.“

Þetta er púslu­spil.

„Þetta er rosa­legt púslu­spil og hefur alltaf verið og getur verið þreyt­andi. Ég er rosa­lega dug­leg að „múltítaska“; að púsla saman hinu og þessu í fjöl­skyld­unni.“

Mamma, mamma, mamma

Aftur að börn­unum sem eru orðin full­orðin. Hvernig hafa þau upp­lifað þessa miklu fjar­veru föður síns?

„Það var eðli­lega alltaf svo gaman þegar pabbi kom heim. Svo var ég nátt­úr­lega aðal­upp­aland­inn og stundum „grýlan“ eins og maður segir af því að ég var með regl­urnar. Þau sökn­uðu nátt­úr­lega pabba síns og þegar hann kom heim þá fann maður alveg hvað þau sóttu í hann eins og ég tal­aði um. Ég var hins vegar alltaf eins og höfuð fjöl­skyld­unnar og hef alltaf haldið utan um allt. Þau voru alltaf vön að leita til mín og ég sagði þeim oft að spyrja pabba sinn um ýmis­legt af því að þau gleymdu því; það var alltaf „mamma, mamma, mamma“. Einar er meira pabb­inn sem kom heim og þá var alltaf skemmti­legt. Svo þegar börnin urðu eldri leit­uðu þau til hans til dæmis í sam­bandi við námið. Þegar þau urðu eldri fóru þau líka að hringja stundum í hann ef eitt­hvað var. En það var einmitt þetta; þau sökn­uðu hans en fundu að ég var þeirra stoð og stytta og leit­uðu oft­ast til mín. Vaninn var að leita til mín en eins og ég sagði þurfti stundum að benda þeim á að biðja pabba sinn um ýmis­legt eða biðja hann um að skutla þeim þegar hann var í landi. Þau fött­uðu þetta eftir á. Þeim finnst hann vera skemmti­legi pabb­inn sem kemur heim en þeim finnst eins og ábyrgðin sé meira hjá mér.“

Í lífsháska

Erna Björk hefur oft verið hrædd um Einar og nefnir hún atburð árið 2011 þegar litlu mun­aði að tog­ar­inn sigldi á bjarg.

„Það var brjálað veður og var ég í náms­ferð með vinn­unni minni þegar þetta gerð­ist. Það var hætta á að skipið myndi sigla á bjarg. Land­helg­is­gæslan var að reyna að hjálpa þeim og kasta vír til þeirra sem end­aði á því að Snorri Sturlu­son náði að kasta vírnum og draga togar­ann. Það var ekki vitað hvort þeir myndu lifa af. Þetta var svaka­legt og það kom í fréttum að það hafi munað litlu. Það var á sein­ustu metr­unum sem Snorra Sturlu­syni tókst að kasta vírnum til þeirra. Þetta var lífs­háski. Maður er þakk­látur fyrir að það gerð­ist ekk­ert.“

Hún segir að þegar veður er vont og Einar er á sjónum þá sofi hún illa. „Maður er alltaf hræddur. Núna getum við hins vegar sent skila­boð til hvors ann­ars og þá líður manni betur.“

Erna Björk er spurð hvað hún hafi lært af því að vera sjó­manns­kona.

„Ég hef lært heilan hell­ing. Ég hef lært að sjá um ótrú­lega marga hluti, verða mjög sjálf­stæð og koma í veg fyrir mis­skiln­ing í sam­skiptum okkar og að halda fjöl­skyldu­líf­inu gang­andi. Ég hef lært að vera með yfir­sýn og skipu­leggja; maður þarf að vera mjög skipu­lagður og ég er mjög skipu­lögð. Ég hef líka lært hvað er gott að vera ein, hvað það er gott að sakna og að vera ham­ingju­söm þegar maður er með alla hjá sér og að vera þakk­lát fyrir það.“

Hvað er hafið í augum Ernu Bjarkar?

„Ég er pínu hrædd við hafið en mér finnst það vera fal­legt.“

Greinin birt­ist í nýjasta tölu­blaði Mannlífs sem má lesa í heild sinni hér. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

viðtal

Hugvíkkandi efni hjálpuðu Unni í skilnaðinum við Jóa Fel: „Ég sá myrkrið fara út úr mér“
Menning

Hug­víkk­andi efni hjálp­uðu Unni í skiln­að­inum við Jóa Fel: „Ég sá myrkrið fara út úr mér“

Unnur Gunn­ars­dóttir segir að hug­víkk­andi efni hafi gjör­breytt lífi sínu. Nýjast gestur þátt­ar­ins Segðu mér á Rás 1, sem er í umsjón Sig­ur­laugar M. Jón­as­dóttur, er Unnur Helga Gunn­ars­dóttir, fyrr­ver­andi fram­kvæmd­ar­stjóri Bak­arís­ins Jóa Fel og fyrr­ver­andi eig­in­kona Jóa Fel en hún fer þar meðal ann­ars yfir skiln­að­inn og hug­víkk­andi efni sem hún segir að hafi breytt lífi sínu. Eftir tæp­lega...
Ragnar Freyr segir læknastarfið oft erfitt: „Það verður allt verra ef svefninn er ekki í lagi“
Menning

Ragnar Freyr segir lækna­starfið oft erfitt: „Það verður allt verra ef svefn­inn er ekki í lagi“

Ragnar Freyr Ingv­ars­son læknir seg­ist ganga stoltur frá verk­efni sínu sem yfir­maður göngu­deildar Covid. Ragnar, sem er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar, segir að það að vinna við að hafa líf fólks í hönd­unum geti verið erfitt. Jafnvel þó að læknar hafi gert allt sitt sé mjög erfitt að horfa upp á sjúk­linga versna af sjúk­dómum eða deyja: „Þegar...
Birkir rokkar til vinstri – Leggur mikla áherslu á föðurhlutverkið
Innlent

Birkir rokkar til vinstri – Leggur mikla áherslu á föð­ur­hlut­verkið

Í nýjasta þætti Alkasts Þvotta­húss­ins er engin annar en metal­haus­inn, vegan­inn, fem­inist­inn, sam­göngu­hjól­ar­inn og fað­ir­inn Birkir Fjalar Viðarson. Birkir er og hefur alltaf verið mikil áhuga­maður um rokktón­list og segir hann í við­tal­inu að rokkið hafi í raun haldið honum á jörð­inni í gegnum hina ýmsu öldu­dali sem lífið hefur upp á að bjóða. Hann heldur sjálfur út útvarps- og...
Kannabis mætir skorti á blóðvökva – Viðtal við sérfræðing á sviði líftækni og læknisfræði
Menning

Kannabis mætir skorti á blóð­vökva – Viðtal við sér­fræð­ing á sviði líf­tækni og lækn­is­fræði

„Árleg áætluð eft­ir­spurn eftir blóð­vökva hefur verið um 160 millj­ónir lítra en um 100 millj­ónum lítra hefur ekki mætt,“ segir Dr. Pavel Kubů, sér­fræð­ingur á sviði líf­tækni og lækn­is­fræði, en fyr­ir­tæki hans, Plasma for People, hefur þróað tækni sem gæti gjör­bylt heil­brigð­is­kerf­inu eins og við þekkjum það í dag. Kubů sem er með dokt­ors­próf í lækn­is­fræði frá Charles háskól­anum í...
Fjölskyldufaðir tekst á við stórt áfall með plötuútgáfu: „Þú stýrir ekki vindinum …“
Menning

Fjöl­skyldu­faðir tekst á við stórt áfall með plötu­út­gáfu: „Þú stýrir ekki vind­inum …“

Atli Þór Sig­urðs­son greind­ist með heila­æxli í fyrra en hann stendur nú fyrir söfnun inni á Karolina Fund svo hann geti gefið út tvær plötur með frum­sömdu efni. Atli Þór, sem verður 39 ára á þessu ári, vinnur sem for­rit­ari hjá Bláa Lóninu og hefur gert það síðan 2021. Er hann alinn upp í Breið­holt­inu en hefur búið í Graf­ar­vogi...
Íslendingar ættu að hefja afglæpavæðingu strax – Minnkar umsvif glæpahópa og bjargar mannslífum
Innlent

Íslend­ingar ættu að hefja afglæpa­væð­ingu strax – Minnkar umsvif glæpa­hópa og bjargar manns­lífum

„Þjóðir heims verða að reglu­væða vímu­efni til þess að ná aftur stjórn­inni. Vímuefni geta verið vara­söm og í vel flestum þeim löndum sem ég hef heim­sótt er auð­veld­ara fyrir börn að kaupa ólög­leg vímu­efni en áfengi og tóbak,“ segir leynilög­reglu­mað­ur­inn fyrr­ver­andi Neil Woods í við­tali við Hamp­kastið, umræðu­þátt Hamp­fé­lags­ins, en Woods hélt erindi á alþjóð­legri ráð­stefnu sem félagið stóð fyrir...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins