„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Fannst elsta mynd Íslandssögunnar á Stöðvarfirði í morgun?

Fannst elsta mynd Íslandssögunnar á Stöðvarfirði í morgun?
Hin glæsi­lega mynd. Athugið, þessir nettu fingur sem halda á stein­inum er í eigu Björg­vins Vals Guð­munds­sonar.

Rissuð mynd af vík­inga­skipi fannst í steini inni í vegg eldri skál­ans á Stöð í Stöðv­ar­firði í morgun. Er hugs­an­lega um að ræða elstu mynd Íslands­sög­unnar.

Dr. Bjarni Faust Ein­ars­son hefur und­an­farin ár stjórnað forn­leifa­upp­greftri á Stöð í Stöðv­ar­firði fyrir austan en þar er að finna mann­vist­ar­leyfar en Bjarni telur eldri skál­ann vera eitt elsta hús sem fund­ist hefur á Íslandi, það hafi verið uppi fyrir árið 870. Í morgun fannst mynd af vík­inga­skipi, rissuð í rauðan sand­stein. En er þá um að ræða elstu mynd Íslands­sög­unnar?

„Já, ef ég hef eitt­hvað fyrir mér í því að eldri skál­inn sé eitt af elstu húsum á Íslandi, fyrir 870, þá er þetta elsta mynd sem þekkt er á Íslandi. Og eina myndin sem ég þekki til hér. Þetta eru svona rissur af vík­inga­skipum undir fullum seglum, þetta er bara vel þekkt fyr­ir­bæri á norð­ur­löndum. Þetta er á skipum, í kirkjum, í tré og þetta er á steinum, á beinum og svo fram­vegis,“ sagði Bjarni aug­ljós­lega spenntur og bætti við: „Og note bene, hann fannst inni í veggnum. Hvorki á gólfi eða fyrir utan húsið, heldur inni í veggnum.“

En hvernig stendur á því?

„Það er af því að það er þriðji fasi á svæð­inu, sem við höfum ekki alveg náð utan um. Það er eitt­hvað að ger­ast á svæð­inu áður en stóri skál­inn er byggður.“

En ertu með ein­hverja kenn­ingu um hvað það gæti verið?

„Ekki eitt­hvað sem ég þori að láta frá mér. Að sjálf­sögðu, ég þarf að grafa meira en það eru að koma í ljós ýmsar vís­bend­ingar um þriðja fasa.“

En hvað sést nákvæm­lega á mynd­inni?

„Þú sérð stefn­inn á skip­inu og seglin með taumunum niður úr, alveg eins og það á að vera. Meira að segja stýrið á hlið­inni ef þú vilt.“

Aðspurður að því hvernig hafi gengið í sumar að grafa svar­aði Bjarni: „Mjög vel. Enda blíðan því­lík. Ég hef aldrei lent í öðru eins. En ég kvarta ekki, haf­andi fengið snjó og frost og regn. Þetta er æðis­legt en þetta er full heitt fyrir minn smekk en öðrum finnst þetta mjög ljúft.“

Bjarni áætlar að ljúka greftri þetta sum­arið þann 30. júní en ekki hafa feng­ist hærri styrkir til að grafa á svæð­inu en dugar fyrir einum mán­uði á ári. Finnst Bjarna það ekki súrt?

„No comment.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fornleifar

Dagur Kristjáns Eldjárns haldinn hátíðlegur á morgun – Skrautbúningur eiginkonunnar til sýnis
Menning

Dagur Krist­jáns Eldjárns hald­inn hátíð­legur á morgun – Skraut­bún­ingur eig­in­kon­unnar til sýnis

Til heið­urs Krist­jáns Eldjárns á fæð­ing­ar­degi hans á morgun 6. Desember mun Félag forn­leifa­fræð­inga og Þjóð­minja­safnið standa fyrir hátíð­ar­dag­skrá. Börn Krist­jáns munu afhenda skaut­bún­ing móður sinnar, Halldóru Eldjárn. Bún­ing­ur­inn verður upp­settur á gínu meðan á við­burð­inum stendur. Dag­skráin hefst kl. 12 í fyr­ir­lestr­ar­sal Þjóð­minja­safns­ins. Harpa Þórs­dóttir Þjóð­minja­vörður ávarpar gesti og Guðrún Hildur Ros­enkjær og Ragn­heiður Trausta­dóttir flytja erindi. Af yðar...
Sárasótt endanlega staðfest á Skriðuklaustri – Elsta dæmi um sjúkdóminn á Íslandi
Landið

Sárasótt end­an­lega stað­fest á Skriðuklaustri – Elsta dæmi um sjúk­dóm­inn á Íslandi

All­nokkrir sjúk­lingar á Skriðuklaustri á 16. öld þjáð­ust af sára­sótt. Þetta hefur nú verið stað­fest með nýjum grein­ingum á beina­grindum sem grafnar voru upp á árunum 2002 til 2012. Kenn­ingar um það að þó nokkrir sjúk­lingar á Skriðuklaustri í Fljóts­dals, hafi þjáðst af sára­sótt höfðu áður verið viðr­aðar eftir venju­bundnar manna­beina­grein­ingar frá klaustr­inu en voru þær nið­ur­stöður dregnar í efa...
Ótrúlega skýr mynd af fyrstu íbúum Seyðisfjarðar: „Við sjáum aldrei slíkt frá þessum tíma“
Landið

Ótrúlega skýr mynd af fyrstu íbúum Seyð­is­fjarðar: „Við sjáum aldrei slíkt frá þessum tíma“

Ótrúlega heil­legar húsa­rústir hafa komið í ljós í upp­greftri í bæj­ar­hóli land­náms­bæj­ar­ins Fjarðar í Seyð­is­firði. Þýðir það að í upp­greftrinum sem er nú lokið þetta sum­arið, er að finna heim­ildir um síð­ari hluta land­náms og upp­haf mið­alda á Íslandi. „Við töldum bæj­ar­hól­inn vera nokkuð þekkta stærð en hann varð tölu­vert stærri og umfangs­meiri en við héldum, ekki 30 metra langur...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins