„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Lekandi tröllríður Íslandi – Aldrei fleiri tilfelli

Lekandi tröllríður Íslandi – Aldrei fleiri tilfelli
Smokk­ur­inn er besta vörnin gegn kyn­sjúk­dómum, fyrir utan skír­lífi.

Aldrei hafa fleiri verið greindir á Íslandi með kyn­sjúk­dóm­inn lek­anda en greindust hér í fyrra. Samtals greindust 159 með þann leiða fjanda en til­fellum hefur farið fjölg­andi síð­ustu ár þó til­fell­unum hafi fækkað í Covid-19 heims­far­aldr­inum.

Frá þessu er greint í Far­sótta­f­réttum emb­ættis land­læknis. Vísir sagði frá þessu á vef sínum.

Sjötíu pró­sent til­fell­anna sem greindust í fyrra voru hjá körlum og 30 pró­sent hjá konum. Hefur kynja­hlut­falið sveifl­ast á milli ára. Síðustu fimm ár hefur ald­urs­hóp­ur­inn 25-34 ára verið sá algeng­asti í grein­ingum, fyrir utan árið 2020 er flestir voru á aldr­inum 15 til 24 ára.

„Fjölgun til­fella lek­anda á árinu 2022 hefur einnig sést í öðrum löndum Evrópu. Í Noregi varð aukn­ing til­fella hjá gagn­kyn­hneigðu yngra fólki. Sér­stakar áhyggjur eru þar í landi af aukn­ingu lek­anda­smita hjá ungum konum þar sem lek­andi getur valdið svæsnum sýk­ingum og ófrjó­semi hjá konum. Ekki hafa komið fram ákveðnar skýr­ingar á þess­ari aukn­ingu en ein af hugs­an­legum skýr­ingum sem sótt­varn­ar­stofnun Noregs (Fol­kehelseinstituttet) hefur sett fram á þess­ari fjölgun lek­anda­smita er opnun sam­fé­lags­ins á ný eftir COVID-19 heims­far­ald­ur­inn,“ segir í Far­sótta­f­réttum.

Einnig segir að vax­andi áhyggjur séu af sýkla­lyfja­ó­næmum lek­anda­bakt­er­íum.

Lekandi er kyn­sjúk­dómur sem orsakast af bakt­er­í­unni Neiss­eria gonor­roheae. Bakt­er­ían getur sest að í kyn­færum, þvag­rás, enda­þarmi eða hálsi. Hægt er að smit­ast af lek­anda við sam­farir, enda­þarms­mök og munn­mök.

Þeir sem smit­ast af lek­anda verða yfir­leitt varir við breyt­ingu á lit og lykt á útferð úr leggöngum eða þvag­rás. Einnig veldur lek­andi iðu­lega miklum sárs­auka við þvag­lát eða verk í grind­ar­holi, hjá bæði konum og körlum. Sumir sem fá lek­anda eru ein­kenna­lausir en geta engu að síður smitað aðra. Einkenni lek­anda og klamydíu eru svipuð en þó heldur meiri hjá þeim sem fá lek­anda. Einkenni sjúk­dóms­ins koma oft­ast fram á fyrstu viku eftir smit en það getur þó gerst síðar.

Til þess að lækna lek­anda eru notuð sýkla­lyf. Áður en þau eru gefin þarf að taka sýni til rækt­unar og finna rétta sýkla­lyfið. Lek­anda­bakt­er­ían getur verið af ýmsum stofnum og margir þeirra eru ónæmir gegn sumum sýkla­lyfjum.

Rétt er að taka fram að lek­andi er alvar­legur sjúk­dómur. Hann getur valdið ófrjó­semi bæði hjá konum og körlum. Eins getur hann valdið sýk­ingu og bólgu í liðum, augn­sýk­ingum og í verstu til­vikum sýk­ingu í eggja­leið­urum og kvið­ar­holi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lýðheilsa

HIV-tengdum dauðsföllum fækkar í heiminum – Hækkar í Rússlandi
HeimurLýðheilsa

HIV-tengdum dauðs­föllum fækkar í heim­inum – Hækkar í Rúss­landi

Alheim­s­tíðni HIV sjúk­dóma og dán­ar­tíðni lækk­aði frá 2010 til 2021, þar sem nýjum til­fellum fækk­aði um tæp 22 pró­sent og dauðs­föllum fækk­aði um tæp 40 pró­sent, sam­kvæmt The Lancet. Á þessu 12 ára tíma­bili dró úr útbreiðslu HIV í löndum Afríku og Suður-Asíu, og lækk­aði með­al­talið á heims­vísu. Ástandið versn­aði hins vegar í Mið- og Austur-Evrópu sem og Mið-Asíu. Rússland,...
Íbúum í Borgarnesi ráðlagt að sjóða drykkjarvatn vegna gruns um gerlamengun
Landið

Íbúum í Borg­ar­nesi ráð­lagt að sjóða drykkj­ar­vatn vegna gruns um gerla­mengun

Íbúar í Borg­ar­nesi eru hvattir til að sjóða drykkj­ar­vatn í var­úð­ar­skyni. Veitur sendu frá sér til­kynn­ingu í dag þar sem íbúum í Borg­ar­nesi er ráð­lagt að sjóða drykkj­ar­vatn í var­úð­ar­skyni en verið er að kann mögu­lega kólígerla í vatni frá Seleyri við Borg­ar­fjörð. Samkvæmt til­kynn­ing­unni fær Borg­ar­nes kalt vatn frá þreur veitum er Sel­eyr­ar­veita eina af þeim. Ekkert bendir til...
400 grunnskólanemar festust í Vík í Mýrdal – Gengu heim í dag
Menning

400 grunn­skóla­nemar fest­ust í Vík í Mýrdal – Gengu heim í dag

Um fjögur hund­ruð nem­endur í Varm­ár­skóla luku í dag hring­ferð sinni um Ísland, þegar gengið var sem svarar fjar­lægð­inni milli Víkur í Mýrdal og Mos­fells­bæjar. Megnið af hring­veg­inum var hlaupið í gær þegar nem­endur skól­ans hlupu sam­an­lagt vel yfir eitt þús­und kíló­metra vega­lengd. Hlaupið var í til­efni af evr­ópskri íþrótta­viku en að þessu sinni var ákveðið að setja það mark­mið...
Hamingjustund í Bæjarbíói á þriðjudaginn: „Einmanaleiki er eins og COVID-faraldur“
Menning

Ham­ingju­stund í Bæj­ar­bíói á þriðju­dag­inn: „Ein­mana­leiki er eins og COVID-far­aldur“

Ham­ingju­stund í Bæj­ar­bíói verður haldin á Ham­ingju­dögum í Hafn­ar­firði 17. sept­em­ber kl. 20:00. „Ein­mana­leiki er eins og COVID-far­aldur, hann breið­ist hratt út og eykst svaka­lega,“ segir Linda Bald­vins­dóttir, sam­skipta­ráð­gjafi og mark­þjálfi. Talið sé að um fimmt­ungur Íslend­inga eldri en 67 ára upp­lifi sig oft eða stundum ein­mana. Linda segir að hún finni í ráð­gjöf sinni mikið ójafn­vægi í nútíma­lífi fólks...
Alls 2020 bíða eftir þjónustu hjá Geðheilsumiðstöð barna – Tveir ráðherrar svara ekki umboðsmanni
InnlentLýðheilsa

Alls 2020 bíða eftir þjón­ustu hjá Geð­heilsu­m­ið­stöð barna – Tveir ráð­herrar svara ekki umboðs­manni

Umboðs­maður barna birtir nú í sjötta sinn upp­lýs­ingar um bið barna eftir þjón­ustu. Fram kemur í frétta­til­kynn­ingu frá umboðs­manni barna að löng bið eftir þjón­ustu við börn hafi verið við­var­andi vanda­mál til margra ára. Frá því í des­em­ber 2021 hefur umboðs­mað­ur­inn staðið fyrir reglu­legri upp­lýs­inga­öflun um þann fjölda barna sem bíður eftir þjón­ustu hjá til­teknum aðilum, með það að mark­mikið...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins