„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Jakub hefur áður lent í hremmingum: „Mjög fínn gaur en hefur ekki fengið mörg break í lífinu“

Jakub hefur áður lent í hremmingum: „Mjög fínn gaur en hefur ekki fengið mörg break í lífinu“
Jakub Polkowski fyrir framan ein­býl­is­hús hans. Mynd: Rúv – Arnór Fannar Rúnarsson

Mál Jakubs Polkowski hefur vakið mikla athygli und­an­farið en sýslu­mað­ur­inn á Suð­ur­nesjum sam­þykkti nauð­ung­ar­boð í ein­býl­is­hús hans á þrjár millj­ónir króna vegna tveggja og hálfs millj­óna króna skuldar Jakubs. En hver er Jakub?

Erfiðar heimilisaðstæður

Jakub er 23 ára pólskur inn­flytj­andi sem var virkur 13 ára ung­lingur sem hafði meðal ann­ars gaman af því að spila fót­bolta, þegar alvar­leg lækna­mis­tök urðu til þess að hann varð öryrki, bund­inn við hjóla­stól með þroska­skerð­ingu. Fyrir bæt­urnar sem hann fékk vegna mis­tak­anna stað­greiddi hann ein­býl­is­hús í Keflavík, á 44 millj­ónir króna en þar býr hann ásamt fjöl­skyldu sinni.

Samkvæmt heim­ildum Mannlífs hafa heim­il­is­að­stæður Jakubs verið erf­iðar en for­eldrar hans hafa tak­mark­aðan skiln­ing á ensku og íslensku. Jakub missti ein­býl­is­hús sitt á dög­unum vegna fast­eigna­skulda og ann­arra greiðslna sem hann hafði ekki sinnt en svo fór að sýslu­mað­ur­inn á Suð­ur­nesjum sam­þykkti þriggja millj­óna króna boð í húsið á nauð­ung­ar­upp­boði en það voru feðgarnir Kristinn Guð­munds­son og Jónas Sigurður Krist­ins­son, útgerða­menn í Sand­gerði sem keyptu húsið. Bæj­ar­stjórn Reykja­nes­bæjar fór þess á leit við feðgana að þeir seldu Jakub húsið aftur, sem þeir hafa neitað.

Keflavíkurnætur

DV sagði frá því árið 2018 að Jakub hafi farið í sam­starf með Óla Geir Jónssyni, fyrrum herra Ísland og einka­þjálf­ara, er þeir héldu saman tón­list­ar­há­t­ið­ina Kefla­vík­ur­nætur það sumar. Samkvæmt frétt DV bauð Óli Geir honum að kaupa 50 pró­sent hlut í hátíð­inni á þrjár millj­ónir króna. Í frétt­inni kom fram að svo virt­ist sem Jakub hafi verið 17 ára þegar skrifað var undir samn­ing­inn og því ólög­ráða en lög­maður Óla Geirs sagði á sínum tíma að dag­setn­ingin á samn­ingnum væri röng og að Jakub hafi verið orð­inn 18 ára. Mikið tap varð á hátíð­inni og urðu ósætti á milli þeirra Óla Geirs og Jakubs en sam­kvæmt heim­ildum Mannlífs náð­ust að lokum fullar sættir í mál­inu.

Óli Geir og Jakub

Flosnaði upp úr námi

Jakub stund­aði nám á starfs­braut í Keflavík en flosn­aði upp úr námi um 18 ára ald­ur­inn eftir að hann byrj­aði að hanga með vafasömum félags­skap, hóf að mis­nota eit­ur­lyf og selja. Svo fór að í fyrra var hann dæmdur í  skil­orðs­bundið 12 mán­aða fang­elsi til tveggja ára fyrir fíkni­efna­sölu, pen­inga­þvætti og brot á vopna­lögum. Bróðir Jakubs, Maciek skrif­aði færslu á Facebook þar sem hann tók upp hansk­ann fyrir bróður sinn vegna óvæg­innar umræðu um mál hans. Vísir sagði frá því í frétt en þar er vitnað í Maciek: „Hann byrjar að hanga með fólki sem kemur honum meira og meira inn í eit­ur­lyfja­heim­inn en þegar hann lendir í öllu ves­eni verður hann einn eftir og allir svo­kall­aðir „vinir“ hans hverfa.“

Samkvæmt heim­ildum Mannlífs er íslensku­skiln­ingur Jakubs ekki 100 pró­sent og bak­land hans nán­ast ekk­ert og því skilj­an­legt að hann hafi ekk­ert skilið í fast­eigna­gjöldum og öðrum reikn­ingum sem honum bar að greiða af hús­inu og því hafi farið svo að hann missti ein­býl­is­húsið sem hann hafði stað­greitt á sínum tíma. Heim­ild­ar­maður Mannlífs sem ekki vill koma fram undir nafni hafði þetta að segja um Jakub: „Þetta er mjög fínn gaur en hefur ekki fengið mörg break í líf­inu“.

Þegar þetta er ritað er ekki orðið ljóst hvernig mál Jakub og fjöl­skyldu endar en búið er að fresta útburði á þeim fram til ágúst en finna á félags­í­búð handa þeim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Nærmynd

„Guð hlýtur að vera mikill húmoristi“ – Nærmynd af Halldóri Bragasyni
InnlentNærmynd

„Guð hlýtur að vera mik­ill húmoristi“ – Nærmynd af Halldóri Braga­syni

Blús­goð­sögnin Halldór Bragason lét lífið er eldur kom upp á heim­ili hans við Amt­manns­stíg í Reykja­vík þann 13.ágúst síð­ast­lið­inn. Mynd: Ólafur Halldór – mun betur þekktur sem Dóri – var á meðal lyk­il­manna í blús­tón­list­ar­sen­unni á Íslandi ára­tugum saman. Til að mynda var hann heiðr­aður fyrir ell­efu árum er hann var kjör­inn heið­urs­fé­lagi Blús­há­tíðar í Reykja­vík. Dóri var á meðal...
Nærmynd af Magnúsi Kristni: „Mjög venjulegur strákur en fjörugur og uppátækjasamur“
InnlentNærmynd

Nærmynd af Magnúsi Kristni: „Mjög venju­legur strákur en fjör­ugur og upp­á­tækja­samur“

Ekkert hefur spurt til Magnúsar Kristins Magn­ús­sonar frá því að hann skil­aði sér ekki í flug frá Dóminíska lýð­veld­inu þann 10. sept­em­ber síð­ast­liðnum. En hver er Magnús Kristinn? Magnús fædd­ist árið 1987 og ólst upp í Ártúns­holt­inu í hópi systk­ina og margra vina. Að sögn Rann­veigar Karls­dóttur, systur Magnúsar, var hann „mjög venju­legur strákur en fjör­ugur og upp­á­tækja­samur“ er hann...
Nærmynd af Gylfa Þór Sigurðssyni: „Ég er trúaður“
InnlentNærmynd

Nærmynd af Gylfa Þór Sig­urðs­syni: „Ég er trú­aður“

Hafn­firð­ing­ur­inn Gylfi Þór Sig­urðs­son er einn af fremstu knatt­spyrnu­mönnum Íslands og sann­kölluð þjóð­hetja fyrir árangur sinn. Síðustu ár hafa þó verið honum erfið. Hann var sak­aður um að hafa mis­notað stúlku undir lög­aldri og var í raun settur á ís; missti samn­ing sinn hjá Everton. Sjálfur hélt Gylfi alltaf fram sak­leysi sín, og nú er hann loks­ins laus allra mála...
Háskólaneminn Vítalía Lazareva: Konan sem varð þjóðhetja á einni nóttu
InnlentNærmynd

Háskóla­nem­inn Vítalía Lazareva: Konan sem varð þjóð­hetja á einni nóttu

Vítalía Lazareva er 24 ára háskóla­nemi sem und­an­farið hefur staðið í miðj­unni á sam­fé­lags­legum stormi. Hún er förð­un­ar­fræð­ingur að mennt og starfar í apó­teki. Vítalía hefur áhuga á hvoru tveggja heilsu og lík­ams­rækt, er kröftug og í góðu formi. Heim­ild­ar­menn í kringum Vítalíu lýsa henni sem afar góð­hjart­aðri mann­eskju. Hún er sögð vilja öllum vel. Henni er lýst sem jákvæðri,...
Skipstjórinn sem gerðist skæruliði: Páll Steingrímsson lagði nafn sitt við skrif annarra
InnlentNærmynd

Skip­stjór­inn sem gerð­ist skæru­liði: Páll Stein­gríms­son lagði nafn sitt við skrif ann­arra

Varla er til það manns­barn á Íslandi í dag sem ekki hefur rekið augun í harð­vít­ugar en næsta eðli­legar opin­berar vanga­veltur eftir það offors sem kunn­ugir segja hafa ríkt í ætl­uðum áróð­urs- og harð­línu­skrifum Páls Stein­gríms­sonar, skip­stjóra hjá Samherja, und­an­farna mán­uði sem svo reynd­ust að miklu leyti rit­aðar af öðrum starfs­manni Samherja, Þorbirni Þórð­ar­syni, lög­manni og fyrr­ver­andi frétta­manni. Fæstir þekkja...
Nafn mannsins sem lést í Rauðagerði: Var íslenskur, elskaður, átti konu og barn og von á öðru
InnlentNærmynd

Nafn manns­ins sem lést í Rauða­gerði: Var íslenskur, elsk­aður, átti konu og barn og von á öðru

Aftaka var framin við Rauða­gerði um mið­nætti á laug­ar­dag. Ungur maður á fer­tugs­aldri var tek­inn af lífi á hrotta­legan og kald­rifj­aðan hátt. Hinn myrti var Íslend­ingur, Armando Beqiri, sem á ættir að rekja til Albaníu. Hann sett­ist hér að annan jóla­dag árið 2014, lærði tungu­málið, kynnt­ist konu og gift­ist, eign­að­ist barn og átti von á öðru kríli í fangið örfáum...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins