„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Sömdu leikrit undir sprengjuregni Rússa: „Sársaukinn er stöðugur“

Sömdu leikrit undir sprengjuregni Rússa: „Sársaukinn er stöðugur“
Úr leik­rit­inu Sírenu­bókin Mynd: Aðsend

Úkra­ínskur leik­hópur sýnir afar sterkt leik­rit á Fringe Festival lista­há­tíð­inni sem nú stendur yfir í Reykja­vík. Leik­ritið varð til undir sprengjuregni Rúss­lands­hers.

Kring­um­stæður leik­hóps­ins breytt­ust á einu auga­bragði þegar Rúss­lands­her hóf inn­rás í Úkraínu en skyndi­lega breytt­ist leik­hús þeirra í loft­varn­ar­byrgi en þar varð leik­ritið The Book of Sirens til.

Mannlíf ræddi við eina úr leik­hópnum, hana Anabell Sotelo Ramires.

Anabell

– Hvað kom til að leik­ritið að veru­leika?

„Leik­ritið Sírenu­bókin (e. The Book of Sirens) varð til í mars 2022 á meðan leik­húsið okkar sem er stað­sett í kjall­ara breytt­ist í loft­varn­ar­byrgi fyrir leik­hóp­inn okkar og nágrann­ana. Við dvöldum þar í 45 daga í mars og sinntum ýmsum sjálf­boða­störfum að degi til og unnum að leik­rit­inu á næt­urnar.

Úr leik­rit­inu

Við byrj­uðum að semja þetta verk í lok ann­arrar viku og ég held að aðal ástæðan fyrir því hafi verið þörf okkar til að end­ur­heimta sjálfs­virð­ingu okkar og ná okkur í auka kraft, með þeim aðferðum sem við kunnum. Með því að gera það sem við gerum vel. Það var okkar leið til að melta veru­leik­ann, atburð­ina sem voru að ger­ast. Og eru ger­ast enn. Að fjar­lægj­ast þá og líta á hlut­ina frá öðru sjón­ar­horni. Það hjálp­aði okkur að standa óbug­andi frammi fyrir ótt­anum.“

Anabell hélt áfram:

„Við vorum ekki viss þá hvort leik­ritið myndi ein­hvern tím­ann verið frum­flutt en þegar það gerð­ist að lokum gerðum við okkur grein fyrir því hversu mik­il­vægt leik­ritið var. Það var bæði skjal­fest­ing og vitn­is­burður um mátt list­ar­innar til að byggja brýr og vísa leið­ina til als­herjar sam­kenndar. Ég segi als­herjar því í sýn­ing­unni minn­umst við ekk­ert á stríðið sem Rússland hóf gegn Úkraínu. Við tölum um seinni heims­styrj­öld­ina og hinar mjög svo kald­hæðnu og sorg­legu hlið­stæður sem við tókum eftir á fyrstu vikum inn­rás­ar­innar í hegðun beggja ríkj­anna í þessum tveimur stríðum.“

Hluti leik­hóps­ins

En um hvað er leik­ritið nákvæm­lega?

„Ég tala um sam­kennd því leik­ritið segir sögu lít­illar stelpu sem lifir af vegna þess að hún lærir að lesa. Það er mjög mik­il­vægt fyrir okkur að segja per­sónu­lega sögu sem and­stæðu við kald­rana­legar tölur sem birt­ast í blöðum. Við viljum gefa þessum tölum and­lit og end­ur­heimta nöfn þeirra sem er verið að fela bak við heitið fórn­ar­lömb.“

Leik­hóp­ur­inn hefur sýnt leik­ritið í nokkrum löndum og verið tekið afar vel. Þau munu meira  að segja sýna leik­ritið í Úkraínu.

„Við höfum flutt leik­ritið í litlum bæjum á Spáni og í Þýska­landi og tókum þátt í Fringe lista­há­tíð­inni í Prag. Við munum flytja leik­ritið einu sinni eftir tvo til þrjá mán­uði í Úkraínu.“

En hvernig er að stíga á svið og leika leik­rit sem fjallar óbeint um eitt­hvað sem enn er í gangi í heima­land­inu?

„Það er frekar súr­r­eal­ísk reynsla vegna allra hörm­ungar- og grimmd­ar­verka sem eru framin á degi hverjum. Og verst af öllu er það að þessu öllu er ekki nærri því lokið. Sárs­auk­inn er stöð­ugur. Þegar ég stíg á sviðið er það samt ekki mark­mið mitt sem leik­ari að end­ur­upp­lifa þján­ing­arnar mínar og ég erum ekki heldur að sækj­ast eftir and­legri lækn­ingu með því að láta heyra í mér og vera heyrð. Leik­ritið er miklu meira en það. Og þess vegna er það mjög ábyrgt fyrir mig að halda jafn­vægi á milli þess sem truflar mig í raun og veru og þess sem er skáld­skapur til að gera leik­ritið að list­formi en ekki yfir­lýs­ingu um skap mitt. Samt frekar súr­r­eal­ískt.“

Leik­ritið verður sýnt klukkan 12 að hádegi í Mengi á morgun, laug­ar­dag. Hægt er að panta miða hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kúltúrinn

Lilja mærir Magga Eiríks í hástert: „Ég fyllist enn á ný lotningu“
MenningKúltúrinn

Lilja mærir Magga Eiríks í hástert: „Ég fyllist enn á ný lotn­ingu“

Lilja Dögg Alfreðs­dóttir mærir tón­list­ar­goð­sögn­ina Magnús Eiríks­son í nýrri færslu en hún afhenti honum Þakk­ar­orðu íslenskrar tón­listar í byrjun des­em­ber. Rík­is­út­varpið sýndi í gær frá athöfn sem fram fór í Hörpu 1. des­em­ber síð­ast­lið­inn en þar var Magnúsi Eiríks­syni veitt Þakk­ar­orða íslenskrar tón­listar. Lilja Dögg Alfreðs­dóttir, fyrr­ver­andi ráð­herra afhenti Magnúsi orð­una en hún skrif­aði síðan færslu í gær þar sem...
„Hinn lifandi Nostradamus“ með sjö óhugnanlegar spár fyrir árið 2025 – Geimverur og gervigreind
Menning

„Hinn lif­andi Nostradamus“ með sjö óhugn­an­legar spár fyrir árið 2025 – Geim­verur og gervi­greind

Bras­il­íu­mað­ur­inn Athos Salomé, sem New York Post opin­ber­aði á þessu ári að hefði spáð rétt fyrir um fjóra spá­dóma, hefur nú opin­berað spá sína um það sem gæti gerst á næsta ári. Maður sem kall­aður er „Hinn lif­andi Nostradamus“, þökk sé hæfi­leikum hans til að spá fyrir um fram­tíð­ar­við­burði, hefur gert sjö óhugn­an­legar spár fyrir kom­andi ár. Bras­il­íu­mað­ur­inn Athos Salomé,...
Labbi er dauðleiður á hátíðardagskrá RÚV: „Þessar eldgömlu döbbuðu jóla og hátíðarsjónvarpsmyndir“
MenningKúltúrinn

Labbi er dauð­leiður á hátíð­ar­dag­skrá RÚV: „Þessar eld­gömlu döbbuðu jóla og hátíð­ar­sjón­varps­myndir“

Goð­sögnin Labbi í Mánum er dauð­leiður á síend­ur­sýndum jóla­myndum Rík­is­út­varps­ins. Útvarps­mað­ur­inn Ólafur Páll Gunn­ars­son er honum ósam­mála. Ólafur Þór­ar­ins­son eða Labbi í Mánum eins og hann er yfir­leitt kall­aður, skrif­aði Facebook-færslu í gær þar sem hann jós úr skálum pirr­ings­ins vegna sjón­varps­efn­is­ins sem RÚV bíður upp á um jóla­há­tíð­ina. Í færsl­unni veltir Labbi því fyrir sér hvort ein­hver horfi á...
Sverrir Guðjónsson kemur fram með Voces Thules í dag: „Nú syng ég aðeins einu sinni á ári“
Menning

Sverrir Guð­jóns­son kemur fram með Voces Thules í dag: „Nú syng ég aðeins einu sinni á ári“

Söng­hóp­ur­inn Voces Thules flytur aft­an­söng, Vesper I úr Þor­láks­tíðum, klukkan 17-18 í dag, Þor­láks­messu, í Krists­kirkju kon­ungs í Landa­koti. „Enginn aðgangs­eyrir er á aft­an­söng­inn og gestir og gang­andi eru vel­komin að njóta hins forna kyrrð­ar­söngs klaustr­anna í umvefj­andi hljóm­burði Krists­kirkju í Landa­koti,“ segir Sverrir Guð­jóns­son, einn söngv­ara Voces Thules. Að sögn Sverris er tíða­söngur í gregor­íönskum stíl nokk­urs konar kyrrð­ar­söngur,...
Hundar velja sér jólaleikfang – MYNDBAND
Menning

Hundar velja sér jóla­leik­fang – MYNDBAND

Það eru ekki bara við mann­fólkið sem fær jóla­gjafir um hátíð­ina sem nú gengur senn í garð. Instagram-síðan Upworthy birtir jákvæð og upp­líf­gangi mynd­skeið á sam­fé­lags­miðl­inum sem gott er að kíkja á í dimmasta skamm­deg­inu, jafn­vel þó að dag­ur­inn sé nú loks far­inn að lengj­ast. Í nýjasta mynd­bandi sínu má sjá hóp hunda velja sér jóla­leik­fang af fjöl­mörgum leik­föngum sem...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Menning

Menning

Hundurinn hans Dwayne Johnson dó í nótt: „Ég hef verið dofinn yfir þessum missi“

Menning

The Highwaymen heiðraðir í Hörpu: „Fullt af tímalausum smellum og anda kántrítónlistar“

Menning

DJ Khaled og 6ix9ine fengu báðir óhugnanlegar líkkistur sendar heim til sín: „RIP Drake“

Menning

Friðrik Dór hugsar um lygar

Menning

Myrkvi gefur út þriðju breiðskífu sína – Vonast til þess að slá vopnin úr höndum tímans

Menning

Bubbi og Frikki Dór styðja fórnarlömb þjóðarmorðsins á Gaza