„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Segir Morgunblaðið endurbirta „hommafíbískt blogg“ Páls: „Síðasta fíflið er enn ekki fætt“

Segir Morgunblaðið endurbirta „hommafíbískt blogg“ Páls: „Síðasta fíflið er enn ekki fætt“
Páll Vil­hjálms­son er afar umdeildur blogg­ari

Gunnar Smári Egilsson segir Morg­un­blaðið hafa end­ur­birt „homma­fíbískt blogg“ Páls Vil­hjálms­sonar í Stak­steinum og dreift á nán­ast öll heim­ili lands­ins.

Í nýjum pistli á Facebook segir Gunnar Smári Egilsson, for­maður Sós­í­alista­flokks Íslands, að bakslag í mann­rétt­inda­málum sé ekki „almennt vanda­mál í sam­fé­lag­inu.“ Samkvæmt Gunnari Smára er virð­ing fyrir rétt­indum fólks þvert á móti að vaxa. „Við það herp­ist hins vegar andóf þeirra fáu sem eru and­snúnir því að allir njóti virð­ingar og við­ur­kenn­ingar, fólk sem vill vernda mann­hatur fyrri tíma. Það væri ekki vanda­mál nema fyrir það að þessi fáu njóta stuðn­ings auð­ugra og valda­mik­illa afla sem vilja nota hatur þeirra til að sundra fólki, skapa ótta og draga úr öryggi í sam­fé­lag­inu.“

Þá segir sós­í­alista­for­ing­inn það ekki vanda­mál í sjálfu sér að „til sé fólk sem er sýkt af ras­isma, homma­fó­bíu eða múslima­hatri. Það er til karlar haldnir kven­fyr­ir­litn­ingu og líka konur sem ýta undir karl­ana sem flagga henni. Það er ekki svo að eng­inn sigur sé unn­inn fyrr en síð­asti for­dóma­fulli bján­inn gefst upp og skiptir um skoðun. Við getum vel byggt upp gott sam­fé­lag þótt innan þess séu fífl og fábjánar. Ef svo væri ekki, ættum við strax að gef­ast upp. Síðasta fíflið er enn ekki fætt.“

Vanda­málið segir Gunnar Smári vera annað. „Vanda­málið eru þau öfl sem nýta völd sín og fé til að breiða út hatur og hafa smitað það inn í grund­vall­ar­stofn­anir sam­fé­lags­ins. Ras­ist­inn sem hringir inn á Útvarp Sögu er ekki sam­fé­lags­leg vanda­mál heldur per­sónu­legt. Það er hins vegar sam­fé­lags vanda­mál og mein að Útlend­inga­stofnun og lög, stefna og fram­kvæmd stjórn­valda gagn­vart erlendu fólki er sterk­lega lituð ras­isma. Í öðrum kerfum er ras­isma við­haldið með því að láta sem hann sé ekki til. Þetta á við um skóla­kerfið, vinnu­mark­að­inn og hús­næð­is­kerfið. Það er brýnt að lag­færa þetta. Miklu brýnna en að elta uppi inn­hringj­and­ann á Útvarpi Sögu eða kján­ann á Facebook.“

Gunnar Smári segir einnig að bakslagið í mál­efnum hins­eign fólks „birt­ist í sann­fær­ingu fólks, sem haldið er for­dæmum og fyr­ir­litn­ingu, fyrir því að það hafi hljóm­grunn í sam­fé­lag­inu.“ Segir hann að það geti gerst er „upp rís umræða um sam­fé­lags­breyt­ingar sem ekki hafa verið ræddar nóg eða kynntar. Það er í sjálfu sér ekki vanda­mál. Umræðan sjálf er lausnin. Þegar henni vindur fram munu öld­urnar lægja. Óvissan sem er elds­neyti ótt­ans mun klár­ast.“Sós­í­alist­inn bendir svo á end­ur­birt­ingu Morg­un­blað­ins á blogg­færslu Páls Vil­hjálms­sonar fram­halds­skóla­kenn­ara. „Það er hins vegar vanda­mál þegar sterk öfl í sam­fé­lag­inu nýta afl sitt til að magna upp hat­rið. Morg­un­blað­inu er haldið úti af auð­ug­asta fólki Íslands til að verja sína hags­muni og stýra sam­fé­lags­um­ræð­unni í takt við skoð­anir sínar. Sem allar snú­ast um að auka völd og áhrif hinna fáu ríku en draga úr völdum almenn­ings og áhrifum þeirra sem berj­ast fyrir almanna­hag. Eins og þetta sé ekki nóg þá hefur stjórn­mála­flokkur hinna ríku, Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, komið því svo fyrir að rík­is­valdið styrkir Moggann með almannafé. Og í fjár­laga­frum­varp­inu sést að ráða­gerðir eru uppi um að auka enn þennan stuðn­ing almenn­ings við áróð­urs­mál­gagn hinna fáu. Í dag sást hvernig hin fáu ríku fara með þetta fé. Morg­un­blaðið end­ur­birti homma­fó­bískt blogg Páls Vil­hjálms­sonar í Stak­steinum og dreifði því ókeypis á svo til hvert heim­ili á land­inu. Til­gang­ur­inn er að útbreiða mann­hatur hinna ríku og valda­miklu, sem alla tíð hafa barist gegn rétt­indum fjöld­ans, viljað vernda sér­rétt­indi sín með því að sussa á hvern þann sem berst fyrir jöfn­uði, auknum rétt­indum og jafnri virð­ingu allra. Sérstaka hinna ríku byggir á veikri stöðu allra ann­arra.“

Í loka­orðum sínum segir Gunnar Smári að fólk sem vilji berj­ast gegn bakslag­inu ætti að „beina spjótum sínum að óvin­inum.“ En hver er óvin­ur­inn að mati hans? „Hann er ekki fávit­inn, sem básúnar van­þekk­ingu sína, heldur skipu­lagður und­ir­róður hinna ríku og völdugu sem telja sig geta haldið völdum með því að fóðra heimsk­una, grimmd­ina og hat­rið í sam­fé­lag­inu.“

Færsluna má lesa í heild sinni hér fyrir neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hinsegin málefni

Samtökin ’78 hafa kært fimm einstaklinga frá 2023: „Við látum reyna á þau lög sem eru í landinu“
Innlent

Samtökin ’78 hafa kært fimm ein­stak­linga frá 2023: „Við látum reyna á þau lög sem eru í land­inu“

Mikið hefur verið fjallað um mál­efni trans fólks á Íslandi á und­an­förnum árum og hefur umræðan að miklu leyti snú­ist um bakslag sem sumir telja hafa mynd­ast í bar­áttu trans fólks. Hluti af þessu bakslagi er orð­ræða ein­stak­linga sem eru lítið hrifnir af til­vist trans fólks og hafa nokkrir þekktir ein­stak­lingar, þar á meðal fram­bjóð­endur til Alþingis, tjáð sig á...
Karen spyr SUS-liða: „Ætli þeir séu glaðir yfir því að búið sé að banna pride fánann?“
Innlenthinsegin málefni

Karen spyr SUS-liða: „Ætli þeir séu glaðir yfir því að búið sé að banna pride fán­ann?“

Karen Kjart­ans­dóttir segir ung­liða Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafa „hrúg­ast til Banda­ríkj­anna“ til að fylgj­ast með Trump og spyr hvort þeir séu glaðir með bann pride-fán­ans þar í landi. Stjórn­enda­ráð­gjaf­inn Karen Kjart­ans­dóttir skrif­aði færslu á Facebook í morgun þar sem hún segir ung­liða íslensks stjórn­mála­flokks ekki hafa sparað lýs­ing­ar­orðin er þeir lýstu aðdáun sinni á Trump eftir að hafa farið til Banda­ríkj­anna til...
Lenya Rún um líkamsárásina á ráðstefnugest S78: „Gjörsamlega braut hjartað mitt“
Innlenthinsegin málefni

Lenya Rún um lík­ams­árás­ina á ráð­stefnu­gest S78: „Gjör­sam­lega braut hjartað mitt“

Lenya Rún Taha Karim segir það hafa brotið á sér hjartað að heyra að ráð­stefnu­gest­ur­inn á vegum Sam­tak­anna 78, sem varð fyrir lík­ams­árás, hafi reynt að fela regn­boga­bandið sitt undir jakk­anum sínum. Vara­þing­maður Pírata, Lenya Rún Taha Karim, skrif­aði Facebook-færslu í dag þar sem hún talar um hat­urs­orð­ræðu og beit­ingu laga gegn slíku. „Þeir sem mót­mæla hvað harð­ast beit­ingu við­ur­laga...
Tilkynning frá Hinseginfélagi FG: „Fordómar mega ekki eiga sér vísan stað í íslensku samfélagi“
Innlent

Til­kynn­ing frá Hinseg­in­fé­lagi FG: „Fordómar mega ekki eiga sér vísan stað í íslensku sam­fé­lagi“

Hinseg­in­fé­lag Fjöbrauta­skól­ans í Garðabæ var rétt í þessu að gefa frá sér frétta­til­kynn­ingu um bloggskrif Páls Vil­hjálms­sonar. Áréttar félagið í til­kynn­ing­unni að það að vera „hinsegin, trans eða eitt­hvað annað fellur undir sjálf­sögð og eðli­leg mann­rétt­indi.“ Þá falli rétt­ur­inn til tján­ingar á kyn­vit­und, kyn­hlut­verkum og kyn­hneigð, einnig undir sömu rétt­indi. Þau sem varið hafa skrif Páls um hinsegin mál­efni hafa...
Elon Musk opnar sig um deiluna við elstu dótturina: „Heldur að allir sem eru ríkir séu illir“
Heimurhinsegin málefni

Elon Musk opnar sig um deil­una við elstu dótt­ur­ina: „Heldur að allir sem eru ríkir séu illir“

Ríkasti maður heims, hinn umdeildi Elon Musk, opnar sig um deil­una á milli hans og 19 ára dóttur hans, sam­kvæmt úrdrætti The Wall Street Journal úr ævi­sögu Musk sem beðið er átekta eftir að komi út, þann 12. sept­em­ber. Úrdrátt­ur­inn, sem birt­ist í gær, fer að mestu yfir lætin í kringum yfir­töku Musk á Twitter, sem nú ber heitið X....
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins