„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Suðurnesjabær ósáttur við komu hælisleitenda: „Engir innviðir til að taka á móti þessum fjölda“

Suðurnesjabær ósáttur við komu hælisleitenda: „Engir innviðir til að taka á móti þessum fjölda“
Suð­ur­nesja­bær Mynd: visitreykjanes.is

Bæjarráð Suð­ur­nesja­bæjar er ósátt við að Vinnu­mála­stofnun ætli sér að senda 120 hæl­is­leit­endur í bæinn og segja inn­við­ina ekki til staðar til að taka á móti þessum fjölda.

Á bæj­ar­ráðs­fundi þann 30. ágúst síð­ast­lið­inn, ítrek­aði bæj­ar­ráð Suð­ur­nesja­bæjar bókun sína frá því fyrr um sum­arið, þar sem lýst var miklum áhyggjum yfir „þessum ein­hliða áformum rík­is­ins og lýsir von­brigðum með að afstaða sveit­ar­fé­lags­ins virð­ist ekki hafa nein áhrif í því sam­bandi,“ og átti þá við þau áform Vinnu­mála­stofn­unar að senda 120 hæl­is­leit­endur í Suð­ur­nesjabæ. Í bók­un­inni kemur fram að inn­viðir bæj­ar­ins ráði illa við slíkan fjölda, sér­stak­lega í ljósi þess að bæj­ar­fé­lagið ann­ast það verk­efni að veita for­ráða­lausum börnum sem hingað koma um Kefla­vík­ur­flug­völl, skjól og þjón­ustu, „sem felur í sér mikla áskorun sér­stak­lega fyrir félags­þjón­ustu og barna­vernd.“

„Sveit­ar­fé­lagið hefur í raun ekk­ert vopn í hönd­unum eða ekk­ert um þetta að segja,“ sagði Anton Kristinn Ant­ons­son, for­maður bæj­ar­ráðs, í sam­tali við Mannlíf. „Vegna þess að þetta er ríkið að semja beint til einka­að­ila, sveit­ar­fé­lagið á ekki húsið.“ Húsið sem hýsa á hæl­is­leit­end­urna heitir Garð­vangur en þar er starf­rækt dagdvöl eldri borg­ara.

„Við höfum bent á að það eru engir inn­viðir til að taka á móti þessum fjölda,“ sagði Anton og hélt áfram: „Út af því að við erum með gríð­ar­lega stórt og umfangs­mikið verk­efni í hönd­unum sem snýr að vega­lausum börnum.“ Ástæðan segir Anton vera þá að vegna þess að Flugstöð Leifs Eiríks­sonar er á landi Suð­ur­nesja­bæjar, falli öll börn sem koma for­eldra­laus til lands­ins um flug­völl­inn, undir barna­vernd bæj­ar­ins. „Það er á þeim for­sendum sem við erum and­víg þessum áformum Vinnu­mála­stofn­unar um að koma með þessa umsækj­endur um alþjóð­lega vernd, út af því að við höfum ekki inni­viði.“

Anton bætti einnig við að í hús­næð­inu sem ætlað er að hýsa hæl­is­leit­end­urna, sé einnig dagdvöl aldr­aðra til húsa. „Dagdvöl aldr­aðra er í sama húsi en það er á vegum rík­is­ins og kostað af því.  En við lýstum auð­vitað yfir áhyggjum af því líka.“

Hér má sjá bókun bæj­ar­ráðs­ins:

Sam­skipti við Vinnu­mála­stofnun varð­andi áform um búsetu umsækj­enda um alþjóð­lega vernd í Suð­ur­nesjabæ. Guðrún B Sig­urð­ar­dóttir sviðs­stjóri fjöl­skyldu­sviðs sat fund­inn undir þessum dag­skrár­lið.

Í ljósi þess að Vinnu­mála­stofnun hefur til­kynnt að unnið sé að því að koma upp búsetu fyrir umsækj­endur um alþjóð­lega vernd í Suð­ur­nesjabæ, ítrekar bæj­ar­ráð bókun bæj­ar­ráðs frá 12. júlí 2023 sem komið var á fram­færi við ráð­herra og fleiri aðila í stjórn­kerf­inu. Þar koma m.a. fram áhyggjur bæj­ar­ráðs af því að með þessu muni verða miklar áskor­anir gagn­vart innviðum sveit­ar­fé­lags­ins og að sú þjón­usta sem sveit­ar­fé­lagið heldur úti fyrir íbú­ana muni ekki standa undir því að fá fjölda umsækj­enda um alþjóð­lega vernd til búsetu í sveit­ar­fé­lag­inu. Þá benti bæj­ar­ráð á að Suð­ur­nesja­bær ann­ast það verk­efni að veita fylgd­ar­lausum börnum skjól og þjón­ustu, sem felur í sér mikla áskorun sér­stak­lega fyrir félags­þjón­ustu og barna­vernd. Bæjarráð ítrekar áhyggjur af þessum ein­hliða áformum rík­is­ins og lýsir von­brigðum með að afstaða sveit­ar­fé­lags­ins virð­ist ekki hafa nein áhrif í því sam­bandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Brottvísun Emmu litlu frestað fram yfir aðgerð
Innlenthælisleitendur

Brott­vísun Emmu litlu frestað fram yfir aðgerð

Búið er að fresta brott­vísun Emmu litlu, þriggja ára stúlku frá Venes­ú­ela, fram yfir mjaðmalið­hlaups­að­gerðar. Vísir segir frá mál­inu. Fjöl­skylda Emmu fékk upp­runa­lega synjun um dval­ar­leyfi frá kæru­nefnd útlend­inga­mála í nóv­em­ber en þau koma frá Venes­ú­ela. Lögmaður fjöl­skyld­unnar, Jón Sig­urðs­son, sótti þá um leyfi frá Útlend­inga­stofnun svo að fjöl­skyldan fengi dval­ar­leyfi á land­inu þar til Emma kæm­ist í bráð­nauð­syn­lega skurð­að­gerð....
Stjórn Solaris fordæmir fyrirhugaða brottvísun á Emmu og skorar á ráðherra að beita sér
Innlenthælisleitendur

Stjórn Solaris for­dæmir fyr­ir­hug­aða brott­vísun á Emmu og skorar á ráð­herra að beita sér

Solaris, hjálp­ar­sam­tök fyrir hæl­is­leit­endur og flótta­fólk á Íslandi for­dæmir brott­vísun á Emmu, þriggja ára stúlku frá Venes­ú­ela, sem á að ganga í gegn á morgun. Í yfir­lýs­ingu frá sam­tök­unum er sagt frá Emmu, en hún er þriggja ára stúlka frá Venes­ú­ela sem kom til Íslands í leit að alþjóð­legri vernd sum­arið 2023 ásamt ungum for­eldrum sínum. Skömmu eftir kom­una til...
Svarar „viðurstyggilegu“ myndbandi um innflytjendur: „Tölfræðin er augljós uppspuni frá rótum“
Innlenthælisleitendur

Svarar „við­ur­styggi­legu“ mynd­bandi um inn­flytj­endur: „Töl­fræðin er aug­ljós upp­spuni frá rótum“

Pétur Eggerz Pét­urs­son, aðgerð­ar­sinni, tón­list­ar­maður og tækni­stjóri svar­aði áróð­urs­mynd­bandi sem birt­ist á TikTok með gervi­greind­ar­mynd­skeiði sem sýnir Snorra Másson fara yfir raun­veru­legar tölur um hæl­is­leit­endur og inn­flytj­endur á Íslandi. Setur Pétur myllu­merkið #mið­flokk­ur­inn við færslu sína sem hann birti á Instagram. Í mynd­bandi sem birt­ist á TikTok í fyrra­dag er farið yfir ýmsar tölur varð­andi hæl­is­leit­endur á Íslandi en Pétur...
Fordæma orð lögreglustjóra á Suðurnesjum: „Glæpavæðir börn á flótta“
Innlenthælisleitendur

Fordæma orð lög­reglu­stjóra á Suð­ur­nesjum: „Glæpa­væðir börn á flótta“

Stjórn sam­tak­anna Solaris sendi frá sér frétta­til­kynn­ingu þar sem orð Úlfars Lúð­víks­sonar, lög­reglu­stjóra á Suð­ur­nesjum, um hæl­is­leit­endur, eru for­dæmd. Í frétta­til­kynn­ing­unni svarar stjórn Solaris orðum Úlfars Lúð­víks­sonar sem hann lét falla í við­tali á Morg­un­blað­inu í fyrra­dag en þar ræddi hann um hæl­is­leit­endur og sagði menn mis­nota útlend­inga­lögin og sitt­hvað fleira sem Solaris er ósam­mála. Segir í frétta­til­kynn­ing­unni að orð­ræða...
Boða til mótmæla gegn útlendingahatri stjórnmálaflokkanna: „Hvenær er nóg komið? Nægur rasismi?“
Innlent

Boða til mót­mæla gegn útlend­inga­hatri stjórn­mála­flokk­anna: „Hvenær er nóg komið? Nægur ras­ismi?“

Samtökin No Borders Iceland boða til mót­mæla­göngu gegn ras­isma og útlend­inga­hatri stjórn­mála­flokk­anna. Gangan verður 23 nóv­em­ber klukkan 14:00 og gengið verður frá Lækj­ar­torgi að utan­rík­is­ráðu­neyt­inu og endað verður á lög­reglu­stöð­inni við Hlemm. Laug­ar­dag­inn 23. nóv­em­ber klukkan 14:00 mun fólk mæta og mót­mæla kyn­þátta­hatri og útlend­inga­andúð stjórn­mála­flokk­anna í garð fólks á flótta. Komið verður saman á Lækj­ar­torgi, þaðan verður gengið að...
Karen leitar að útlendingavandamálinu: „Hefur knúið áfram hagvöxt og efnahagslega þróun landsins“
Innlenthælisleitendur

Karen leitar að útlend­inga­vanda­mál­inu: „Hefur knúið áfram hag­vöxt og efna­hags­lega þróun lands­ins“

Karen Kjart­ans­dóttir stjórn­enda­ráð­gjafi bendir á tölu­legar stað­reyndir þegar kemur að meintu „útlend­inga­vanda­máli“ sem flokkar á borð við Mið­flokk­inn, Sjálf­stæð­is­flokk­inn og Sam­fylk­ing­una hafa talað um í aðdrag­anda þing­kosn­inga. Bendir Karen, sem að und­an­förnu hefur verið dug­leg að taka upp hansk­ann fyrir hæl­is­leit­endur og inn­flytj­endur hér á landi, á að atvinnu­þátt­taka erlendra rík­is­borg­ara á Íslandi, sé hærri en hjá inn­fæddum Íslend­ingum. „Hvert...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins