„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Óvíst hvort KSÍ geti refsað Nikola fyrir hegðun hans: „Gætu strangt til tekið leitt til viðurlaga“

Óvíst hvort KSÍ geti refsað Nikola fyrir hegðun hans: „Gætu strangt til tekið leitt til viðurlaga“
Mögulegt er að Nikola verði ekki refsað fyrir að kasta bjór­dós á leik – myndin er sam­sett

Svo gæti verið að KSÍ hafi ekki heim­ild til að refsa Nikola Djuric fyrir hegðun hans á leik Breiðs­bliks og Víkings

Eins og Mannlíf hefur fjallað um kastaði Nikola Djuric, leik­maður Hauka, bjór­dós í átt að vell­inum úr stúkunni í leik Breiða­bliks og Víkings í sein­ustu viku. Hann var í kjöl­farið dreg­inn niður úr stúkunni af for­ráða­mönnum Víkings og neyddur til að biðja Blika afsök­unar í hálf­leik. Í sam­tali við for­ráða­menn Hauka kom á dag­inn að ljóst er að félagið lítur málið alvar­legum augum en Nikola lék með lið­inu sem láns­maður í sumar. Mannlíf hafði sam­band við KSÍ til athuga hvort Nikola gæti átt von á banni eða ein­hvers konar refs­ingu fyrir atvikið.

„Slík atvik, ef metin eru hættu­leg eða víta­verð, gætu strangt til tekið leitt til við­ur­laga fyrir við­kom­andi félag vegna fram­ferði stuðn­ings­manna liðs­ins í stúku. Einnig eru til dæmi þess, eins og þú nefnir, að til­tekin fram­koma ein­stak­lings sem gegnir sömu­leiðis hlut­verki með öðru félagi hlýtur íþrótta­leg við­ur­lög sem ein­stak­lingur, svosem leik­bann eða annað. Það er þó fátíð­ara,“ sagði Klara Bjartmarz, fram­kvæmda­stjóri KSÍ, um málið og var það sett í því sam­hengi þegar Björgvin Stef­áns­son, leik­maður KR, fékk fimm leikja bann fyrir kyn­þátta­for­dóma sem hann sýndi þegar hann lýsti leik hjá Haukum, í beinni útsend­ingu.

En telur Klara mögu­legt að Nikola verði refsað?

„Ég á erfitt með að meta hvort það sé mögu­legt eða ekki í þessu til­viki. Ég myndi telja að brot þurfi að telj­ast alvar­legt og að refsi­heim­ild þurfi að vera mjög skýr.“

„Að meg­in­reglu úrskurðar aga- og úrskurð­ar­nefndin um atvik sem fram koma í atvika­skýrslum dóm­ara og/eða eft­ir­lits­manna. Ég veit ekki hvað fram kemur í skýrslu eft­ir­lits­manns á leiknum eða hvort sú skýrsla hafi þegar borist til aga- og úrskurð­ar­nefndar,“ sagði Klara þegar hún var spurð hvort að Víkingur gæti átt von á sekt fyrir það að stuðn­ings­menn þeirra kveiktu á blysum en fram­kvæmda­stjóri félags­ins sagði í við­tali við Mannlíf að hann ætti von á að félagið fengi sekt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins