„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Kokkur ársins: Mér finnst einfaldleikinn fallegastur

Kokkur ársins: Mér finnst einfaldleikinn fallegastur

Sindri Guð­brandur Sig­urðs­son, mat­reiðslu­meist­ari og liðs­stjóri íslenska kokka­lands­liðs­ins, var í vor val­inn Kokkur árs­ins 2023 og voru verð­launin meðal ann­ars þátt­töku­réttur í Nordic Chef of the Year 2024 fyrir Íslands hönd. „Matur getur verið ein­stak­lega fal­legur. Mér finnst ein­fald­leik­inn fal­leg­astur og er sjálfur ekki hrif­inn af of miklum litum, heldur hrífst helst af nátt­úru­legum mat sem er stíl­hreinn. Mesta áskor­un­inn er að láta mat­inn líta vel út og vera í leið­inni bragð­góðan og best ef hægt er að koma fólki á óvart. Ef maður gerir ein­falda hlut­inn vel kemur það manni mjög langt.“

Sindri Guð­brandur Sig­urðs­son mat­reiðslu­meist­ari fædd­ist í Reykja­vík en flutti út á land tveggja ára gam­all; fyrst á Hólmavík, svo Súðavík og áður en hann byrj­aði í 1. bekk grunn­skóla flutti fjöl­skyldan til Ólafs­víkur þar sem þau bjuggu til árs­ins 2013 en þá flutti fjöl­skyldan í Kópavog.

„Ég á einn eldri bróður og annan yngri og við vorum alltaf saman að gera eitt­hvað mis­gáfu­legt. Það var gaman að alast upp úti á landi. Við vorum mikið úti að leika okkur og það var nóg hægt að bralla. Ég hef aldei sótt í að spila tölvu­leiki eða þess háttar og stundum er gert grín að því hvað ég hef séð fáar bíó­myndir. Ég man samt sterk­lega eftir því hvað mér fannst gaman að horfa á mat­reiðslu­þætti með mömmu og ætli áhug­inn hafi ekki lúm­skt kviknað þá. Mér fannst líka gaman að hjálpa til við að elda og baka og var snemma orð­inn lið­tækur í bakstri. Ég hef alltaf verið mjög aktívur og hafði ekk­ert sér­stak­lega gaman af því að hanga bara heima. Ég var alltaf að gera eitt­hvað.“

Sindri segir að það sé mikil íþrótta­menn­ing í Ólafsvík og að hann hafi stundað allar íþrótt­irnar sem þar voru í boði, en aðal­lega fót­bolta. „Ég ætl­aði mér alltaf að ná langt í fót­bolta og lagði mig mikið fram og var ungur þegar ég fékk samn­ing hjá Víking Ólafsvík. Um 16 ára ald­ur­inn fannst mér ólík­legt að ég færi að sigra heim­inn í bolt­anum og ákvað að setja mér annað mark­mið. Þó ég eigi marga góða vini í brans­anum eign­að­ist ég flesta af mínum bestu vinum í fót­bolt­anum og mér finnst mjög gaman að hitta þá þegar ég á frí og tala um eitt­hvað annað en mat.“

Eins og skósólar

Sindri seg­ist halda að margir sem enda sem kokkar þekki eitt­hvað til veit­inga­geirans, hafi kannski unnið hjá for­eldrum eða öðrum fjöl­skyldu­með­limum og þannig kynnst fag­inu. „Ég kom mér ein­hvern veg­inn í þetta fyrir til­viljun en það sem heill­aði mig í byrjun var erill­inn sem fylgir því að vinna í eld­húsi. Svo varð mat­reiðslan að mínu aðal­á­huga­máli og í dag er ég þakk­látur fyrir það hvað ég hef gaman af vinn­unni minni. Svo finnst mér mikið sport að geta keppt í fag­inu því þar fæ ég útrás fyrir keppn­is­skapið sem fylgdi fót­bolt­anum.“

Hann er spurður hver hafi verið upp­á­halds­mat­ur­inn þegar hann var strákur.

„Ég man ekki eftir neinu sér­stöku sem var í meira upp­á­haldi en annað en við bræður ólumst upp við að það var eld­aður matur á mat­ar­tímum og ef maður borð­aði ekki það sem var í mat­inn mátti maður fá sér ávexti. Það var ekki í boði að vaða í skápana þegar manni hent­aði. Ef ég á að giska á eitt­hvað þá var grjóna­grautur og pizza eitt­hvað sem mér fannst alltaf gott að fá í mat­inn. Mamma var dug­leg að elda úr ódýru hrá­efni eins og lamba­hjörtum og hún bjó til slátur og lifr­ar­pylsu en ég var ekk­ert sér­stak­lega hrif­inn af því. Ég man ekki eftir því að hafa smakkað nauta­steik þegar ég var barn og það er góð saga sem ég gleymi aldrei af því þegar mamma ætl­aði að elda nauta­lund í fyrsta sinn. Ég veit að mamma fyr­ir­gefur mér þó ég segi hana hér því í dag hlær hún jafn­mikið af henni og ég.

Ég fór á fót­bolta­æf­ingu og hlakk­aði mikið til að koma heim og smakka nauta­lund í fyrsta sinn. Þegar ég kom heim bólaði ekk­ert á neinni nauta­steik en mér varð litið á pott sem kraum­aði í á elda­vél­ar­hell­unni. Þar ofan í mall­aði nauta­lundin. Þá hafði mamma bara skellt henni í pott eins og hverju öðru súpu­kjöti og soðið. Það er best að ég taki það fram að hún er ansi flink að elda í dag.“

Svo fór Sindri sjálfur að elda.

„Við systk­inin máttum yfir­leitt aðstoða í eld­hús­inu ef við vildum en ég man að ég var oft að prófa að elda eitt­hvað sjálfur þegar ég var einn heima eftir skóla. Ætli ég hafði ekki verið í 6. bekk þegar ég fór að prófa mig áfram í eld­hús­inu upp á eigin spýtur. Ég man eftir að hafa eldað kjúklinga­bringur sem oft end­uðu eins og skó­sólar og pakkanúðlur sauð ég í vatni, sigtaði þær frá, bætti svo krydd­inu við og hellti mjólk út á. Í minn­ing­unni var þetta ljóm­andi gott en í dag er ég ekki viss um að þetta sé neitt spes. Kannski ég prófi þetta aftur við tæki­færi. Ég var líka dug­legur að baka og bak­aði oft pönnu­kökur. Ég sé það á myndum að þær voru mjög þykkar og mögu­lega voru mamma og pabbi að skrökva að mér þegar þau sögðu þær vera góðar. Ég var oft að bralla eitt­hvað í eld­hús­inu en ekk­ert af viti fyrr en ég var orð­inn ung­lingur. Þá bað mamma mig stundum um að elda eða baka með litlu systrum mínum.“

Adrenalínið á fullu

Að loknum grunn­skóla fór Sindri í fram­halds­skóla í Grund­ar­firði. „Þar voru opin rými og engin bekkir sem hent­aði mér alls ekki og ég tók bara rút­una í skól­ann og þótt­ist vera að læra. Það komst fljótt upp um mig og þá var ákveðið að ég myndi finna mér eitt­hvað annað og betra að gera. Á þeim tíma­punkti ákvað ég að fara til Reykja­víkur og læra kokk­inn. Mér fannst það spenn­andi kostur þó ég þekkti ekki neinn kokk og hafði aldrei komið nálægt veit­inga­stað áður; nema til að borða. Ég skráði mig í grunn­nám í Mennta­skól­anum í Kópavogi og flutti til vinar míns sem bjó rétt hjá skól­anum. Ég hélt áfram að æfa fót­bolta með HK til að byrja með því á þeim tíma­punkti lá metn­að­ur­inn enn í bolt­anum. Að grunn­námi loknu kom að því að finna náms­samn­ing og mamma sá aug­lýst á net­inu að það væri verið að leita að nemum á veit­inga­stað Perlunnar. Hún hringdi þangað og græj­aði náms­samn­ing fyrir mig án þess að ég vissi.

Ég var byrj­aður að vinna dag­inn eftir að skól­anum lauk. Það var mikið sjokk að koma inn í svona umhverfi. Vinnu­dag­ur­inn var langur, það var mikið sem gekk á, hröð keyrsla, mikil læti og adren­el­ínið á fullu. Sum­artörnin var í fullum gangi, brjálað að gera og ég varð að læra hratt. Í einn til tvo mán­uði hringdi ég reglu­lega í mömmu með tárin í aug­unum og vildi hætta. Hún bann­aði mér það, hvatti mig áfram og bauðst til að hringja í yfir­menn­ina og tala við þá um ómann­eskju­legt námsum­hverfi; hún er kenn­ari. Ég harð­bann­aði henni að gera það og beit á jaxl­inn. Mamma sagði mér svo seinna meir að hún hefði grátið eftir sím­tölin því henni fannst svo erfitt að ýta mér svona áfram, vit­andi að mér liði illa. Ég á henni mikið að þakka í dag. Þetta var ekki auð­veldur tími. Það er alls ekki fyrir alla að vera lær­lingur í eld­húsi. Ég hef séð haug­inn allan af krökkum byrja á samn­ingi eftir grunn­skóla og ætla að læra kokk­inn en hætta svo strax. Það er ekki bara vinnan í eld­hús­inu, heldur er þetta lífstíll sem hentar ekki öllum. Ég þurfti til dæmis að fórna fót­bolt­anum þegar ég byrj­aði á samn­ingi þar sem æfing­arnar og vakt­irnar fóru ekki saman og það reynd­ist mér erfitt til að byrja með. Þegar leið á samn­ing­inn varð þetta skemmti­legra með hverjum deg­inum. Því meira sem maður lærði og því betur sem maður náði tökum á starf­inu því skemmti­legra varð það. Eftir fyrsta árið var ég orð­inn alveg djúpt sokk­inn í starfið og hef verið með mat og mat­ar­gerð á heil­anum síðan.“

Sindri lauk meistara­gráðu árið 2021 og er því með rétt­indi til að kenna mat­reiðslu og taka nema á samn­ing. „Það er eitt­hvað sem ég hafði ekki séð fyrir mér að ég myndi gera en kærasta mín, sem er kenn­ari, hvatti mig áfram til þess að klára námið og ég sé ekki eftir því í dag því það nýt­ist mér mjög vel.“

Á náms­tím­anum nýtti Sindri sum­ar­fríið sitt til að læra meira og árið 2015 lærði hann á Michelin-stað í Frakk­landi. „Ég fór einnig til Kaup­manna­hafnar og lærði á stað sem hét Spontan og það var svaka skóli. Þar var yfir­kokkur sem heitir Cristian Gadient en hann var yngsti kokkur á Norð­ur­löndum til að fá Michelin-stjörnu 20 ára gam­all ef ég man rétt.“

Vann mest á Ion

Sindri byrj­aði á námm­sam­ingi árið 2013 í Perlunni og var mat­reiðslu­nemi þar til loka árs­ins 2016 þegar hann útskrif­að­ist með sveins­próf. „Í skól­anum kynnt­ist ég góð­vini mínum Rúnari Pierre sem er í dag yfir­kokkur á Michelin-staðnum Óx og hann kom mér í sam­band við Þráin Frey, eig­anda Óx, sem þá var að vinna að opnun veit­inga­stað­ar­ins Sumac. Ég réð mig þar inn en á meðan ég beið eftir að stað­ur­inn opn­aði fékk ég vinnu á Ion Adventure-hót­el­inu á Nesja­völlum sem Þráinn rak á þeim tíma. Þegar kom að opnun Sumac bauðst mér að vera vakt­stjóri á Ion og ég tók því og færði mig því aldrei yfir á Sumac. Ég vann mest­megnis á Ion til árs­ins 2022 en vann tvö sumur í Veiði­hús­inu í Langá ásamt því að hafa starfað stutta stund á veit­inga­stað­unum Le Kock. Ég var yfir­kokkur á Ion 2018-2022 en þaðan fór ég í að vinna að opnun veit­inga­stað­ar­ins Héðinn Kitchen & Bar. Þar var ég vakt­stóri undir Sig­ur­jóni Braga en tók svo við sem yfir­kokkur í rúmt ár meðan hann tók þátt í keppn­inni Bocuse d‘Or sem er stærsta ein­stak­lings­mat­reiðslu­keppni í heimi. Við Sigurjón Bragi opn­uðum síðan fyrr á þessu ári veislu­þjón­ust­una „Flóra“.

Í kokkalandsliðinu

Sindri seg­ist snemma hafa byrjað að keppa í mat­reiðslu­keppnum sem hafi verið gott upp á reynsl­una að gera.

„Þó að ég hafi ekki lent í úrslitum í mínum fyrstu keppnum ákvað ég að gef­ast ekki upp því mér þykir hrika­lega gaman að taka þátt í mat­reiðslu­keppnum en það krefst mik­ils und­ir­bún­ings og æfingar. Ég keppti á Íslands­móti iðn- og verk­greina árið 2019, sem er keppni fyrir kokka eða nema undir 23 ára aldri, og vann þá keppni. Sama ár vann ég keppni um eft­ir­rétt árs­ins. Ég komst inn í kokka­lands­liðið árið 2019 ásamt því að eign­ast strák­inn minn, Eron Frosta, svo það má segja að þetta ár hafi verið eril­samt. Með kokka­lands­lið­inu keppti ég svo á Ólymp­íu­leik­unum árið 2020 þar sem við lentum í 3. sæti og er besti árangur Íslands á slíku stór­móti. Árið 2022 fór ég fyrir Íslands hönd á Norð­ur­landa­mótið í Herning í Danmörku þar sem keppt var um tit­il­inn besti kokkur norð­ur­land­anna. Ég lenti í 2. sæti þar sem ég er virki­lega stoltur af. Sama ár, 2022, keppti ég sem fyr­ir­liði með kokka­lands­lið­inu á heims­meist­ara­móti. Þar end­uðum við í 6. sæti. Það voru ákveðin von­brigði en í svona keppnum munar oft grát­lega litlu á milli liða en það er partur af þessu. Eftir heims­meist­ara­mótið ákvað ég að leggja aðeins kokka­lands­liðið til hliðar í bili en keppti svo árið 2023 í Kokkur árs­ins þar sem ég tók 1. sæti á móti frá­bærum kokkum.“

Aftur að kokka­lands­lið­inu. „Sigurjón Bragi Geirsson þjálf­ari tók mig inn í ungt lið. Kokka­lands­liðið byrjar á æfinga­ferli sem mér þykir hafa verið mjög lær­dóms­ríkt. Þar fer mest­megnið af frí­tíma við­kom­andi í æfingar ásamt því að vinna með. Þetta er ákveðin skuld­bind­ing en ótrú­lega skemmti­legur félags­skapur því allir eru að vinna saman að því að und­ir­búa og þróa gæða­rétti fyrir keppnir.“

Svo voru það Ólymp­íu­leik­arnir 2020 þar sem keppt var í tveimur greinum. „Það var þriggja rétta mat­seð­ill fyrir 110 manns þar sem und­ir­bún­ingur var sex klukku­stundir og gerðum við for­rétt úr bleikju, gúrku og svart­rót, aðal­rétt úr lamba­fil­let og eft­ir­rétt úr súkkulaði og kirsu­berjum. Þar sá ég um for­rétt­inn og er gaman að segja frá því en ég og sá sem var með mér í þessu verk­efni fengum okkur húð­flúr af gúrku­bolla sem við fram­reiddum í keppn­inni.“

Sindri talar um ,,Chefs table“. „Það er í raun sjö rétta mál­tíð fyrir 12 manns og sam­anstendur af sex teg­undum af pinna­mat. Það eru ákveðnar reglur sem liðið þarf að fylgja nákvæm­lega eins og til dæmis þarf hver biti í ,,chefs table“ að vera 15-20 g og tveir af þeim þurfa að vera heitir pinnar. Einnig þurftum við að gera fiski­fat með þremur teg­undum af köldum fiski­stykkjum og með­læti, borið fram á fati. Það var einnig skylda að gera græn­met­is­rétt, aðal­rétt, eft­ir­rétt og ,,petit four“ eða þrjár gerðir af konfekti sem þurfti að vera 10-15 g.“

Hann segir að tíma­bilið með lands­lið­inu hafi verið ótrú­lega lær­dóms­ríkt en á sama tíma krefj­andi. „Þar lærir maður vinnu­brögð upp á 10 og það hefur nýst mér vel bæði í eld­húsi og í keppnum í dag. Það sem telur stigin í svona keppnum er auð­vitað góður matur, útlit og síðan skipta vinnu­brögð, hrein­læti og sam­vinna líka miklu máli. Það má segja að allt hafi smollið saman hjá okkur á Ólymp­íu­leik­unum þar sem við end­uðum í 3. sæti sem er æðis­legur árangur.

Ég tók svo annað tíma­bil sem fyr­ir­liði kokka­lands­liðs­ins 2021-2022. Þá kepptum við á heims­meist­ara­mót­inu í Lúx­em­borg þar sem við ætl­uðum að byggja ofan á fyrri árangur og má segja að margt hafi gengið vel því við end­uðum með þriðja hæsta skorið fyrir þriggja rétta seð­il­inn sem er líka hæsta skor sem lands­liðið hefur fengið á stór­móti. Það gekk aftur á móti ekki jafn vel í ,,chefs table“ sem varð til þess að við end­uðum í 6. sæti.

Í mat­reiðslu­keppnum byrja allir með 100 stig svo það er í raun um mínusa­keppni að ræða. Ef maður fær 90 stig og yfir fær maður gull­frammi­stöðu, 80-90 stig er silfur frammi­staða. Og svo koll af kolli.“

Flóra

Eins og þegar hefur komið fram opn­aði Sindri og Sigurjón Bragi veislu­þjón­ustu sem heitir Flóra. „Við erum eins og er að vinna í að opna heima­síð­una okkar en þar er allt að smella en hún er www.floraveitingar.is ef fólk les þetta eftir að hún hefur farið í loftið. Þar verður hægt að sjá úrvalið okkar af smá­réttum fyrir veislur, annað fram­boð af mat og ýmsar upp­lýs­ingar hvað er í boði hjá okkur.

Veislu­þjón­usta er mjög fjöl­breytt starf og er skemmti­leg til­breyt­ing að vera að vinna fyrir sjálfan sig. Við erum að taka að okkur alls konar verk­efni, stór og smá, en við leggjum aðal­á­herslu á veislur eins og er. Við leggjum mikið upp úr að vinna með fólk­inu sem er að fara að halda veisl­urnar og óskum þess. Við tökum að okkur veislur við öll til­efni, allt frá stórum veislum á við brúð­kaup, árs­há­tíðir, ferm­ingar, útskriftir og afmæli en einnig smærri veislur ásamt því að elda heima hjá fólki. Við höfum líka verið að sinna mat­væla­fram­leiðslu fyrir veit­inga­staði. Að opna fyr­ir­tæki með vini sínum og fá stuðn­ing frá fjöl­skyldu er ómet­an­legt og erum við spenntir fyrir kom­andi tímum fyrir fyr­ir­tækið okkar.“

Bragðið er leiðbeinandinn

Sindri er spurður á hvað hann leggi almennt áher­eslu á í mat­reiðslu.

„Ég hef lagt mikla áherslu á keppn­is­mat­reiðslu síð­ustu ár og kannski er ástæðan fyrir því að mér hefur gengið vel sú að ég geri mat sem mér finnst góður og það vill svo heppi­lega til að öðrum hefur líkað vel við hann. Ég hugsa alltaf fyrst um bragðið áður en ég hugsa útlitið en það smellur yfir­leitt vel saman að lokum.

Við þá nema sem ég hef verið með og hafa sýnt því áhuga að keppa í mat­reiðslu hef ég alltaf sagt að það sé mikil vinna og að maður þurfi að vera til­bú­inn til að nota frí­tím­ann sinn til að æfa sig. Maður þarf líka að hafa góðan grunn áður en maður tekur það skref. Ég var 22 ára þegar ég vann fyrstu keppn­ina sem er frekar seint miðað við marga í dag.

Þegar maður er að læra á veit­inga­stað þá fylgir maður upp­skriftum og það þarf að vera stöð­ug­leiki á matnum. Stöð­ug­leika fær maður með því að vera með góða upp­skrift en þó að fimm manns fari eftir sömu upp­skrift­inni þá verður útkoman ekki endi­lega alltaf sú sama. Það mik­il­væg­asta í eld­hús­inu er að smakka mat­inn. Bragðið er leið­bein­and­inn og það tekur tíma að læra bragð­gæði. Þegar maður er sextán ára og nýr í fag­inu veit maður ekk­ert endi­lega hvernig gott getur orðið ennþá betra. Þegar það lærist þá er maður kom­inn með góðan grunn.“

Sindri seg­ist í dag búa til sínar eigin upp­skriftir og þar leggur hann mesta áherslu á að mat­ur­inn bragð­ist vel og að hrá­efnin séu fyrsta flokks. „Það gildir svo annað þegar maður er kom­inn á til dæmis Michelin-stað þar sem allt þarf að vera staðlað og þá þarf maður að kunna að fylgja nákvæmum leið­bein­ingum. Ég fylgi helst upp­skriftum þegar ég geri eft­ir­rétti, enda tengi ég vel við það sem kokk­ur­inn Marco Pierre White sagði um mat­reiðslu: „Cooking is a philosophy, it’s not a recipe. Unless it’s pastry, then it’s chemistry.“ („Elda­mennska er ekki upp­skrift. Elda­mennska er heim­speki. Nema ef um bakstur er að ræða. Þá er hún efna­fræði.“)

Kokkar sem elda vel eru þeir sem hafa kennt sér sjálfir en það ger­ist með því að spyrja spurn­inga og prófa sig áfram. Þú kennir engum að elda; þú getur ein­ungis sýnt hvernig á að gera. Það er undir mann­eskj­unni sjálfri komið hvort hún vill kenna sér sjálf. Upp­skriftir eru ein­ungis leið­bein­ingar.“

Kokkur ársins

Sindri segir að það hafi verið mik­ill heiður að vinna tit­il­inn Kokkur árs­ins fyrr á þessu ári og að sigur í þeirri keppni hafi verið lang­tíma­mark­mið hjá sér. „Ég reyndi fyrst við tit­il­inn þegar ég var 19 ára og það gekk eins og í hryll­ings­mynd. Nei, ég segi svona; en það gekk ekki vel. Ég ákvað að sækja mér meiri reynslu og keppti á fullu þar til mér fannst ég vera til­bú­inn. Ég hef í raun­inni aldrei verið jafn­ró­legur fyrir keppni og í þess­ari. Það var ekki vegna þess að ég væri sig­ur­viss heldur hef ég náð ákveðnum þroska sem felst í því að vera ekki hræddur við að tapa og það hjálpar manni tví­mæla­laust í svona keppni.

Í Kokki árs­ins er for­keppni og aðal­keppni. Fyrir for­keppn­inni er gefið út hrá­efni sem allir þurfa að nota. Kepp­endur senda inn upp­skift og mynd af matnum og kom­ast tíu upp­skriftir áfram í for­keppn­ina. Þar mætir maður svo með mat­inn og keppir við hina kepp­end­urna. Úr for­keppn­inni kom­ast svo fimm áfram í úrslit. Þá mætir maður kvöldið fyrir keppni og fær að sjá hrá­efnið sem maður þarf að elda þriggja rétta mál­tíð úr næsta dag. Maður hefur ein­ungis klukku­tíma til að ákveða sig og skrifa niður þriggja rétta mat­seðil og skila honum inn ef ég man rétt og þarf svo að standa og falla með honum dag­inn eftir þegar úrslita­keppnin fer fram.

Í keppn­inni í ár voru hrá­efni sem ég hafði aldrei eldað sjálfur. Í for­rétt var skylda að nota akur­hænu, akur­hænu­egg og íslenskt blóð­berg. Í aðal­rétt þurfti að nota sól­kola og ígul­ker og í eft­ir­rétt voru það tvær gerðir af Omnom-súkkulaði og birki­líkjör. Ég hafði hvorki eldað akur­hænu né opnað ígul­ker áður en sem betur fer heppn­að­ist það vel. Ég er virki­lega stoltur af að hafa kom­ast í hóp þeirra frá­bæru kokka sem hafa unnið þessa keppni.“

Tískan

Kokkur árs­ins 2023 og liðs­stjóri íslenska kokka­lands­liðs­ins er spurður hvað það gefi honum að elda góðan mat.

„Það sem gefur mér mest við það að elda er að sjá fólk ánægt. Matur veitir flestum ánægju og gleði. Ég fæ líka mikið út úr því að reyna á sköp­un­ar­hæfn­ina og finna út hvað fólki finnst gott. Fólk er með mis­mun­andi mat­ar­smekk og þarf maður að vera góður að lesa í hvernig mat fólk­inu sem þú eldar fyrir mun líka vel við. Það virkar ekki það sama á alla og það fylgir því sælu­til­finn­ing að hitta naglann á höf­uðið og ná að gleðja bragð­lauka ann­arra.“

Þegar hefur komið fram að Sindri býr til eigin upp­skriftir. „Ég hef mjög gaman af því að þróa rétti en flestar hug­myndir sem ég fæ koma ann­að­hvort þegar ég borða á veit­inga­stöðum eða þegar ég pæli í hrá­efnum sem eru árs­tíða­bundin. Ég hef þróað rétti í gegnum árin sem ég sit fastur á og nota mikið þegar ég geri mat­seðil eða elda í veislum. Ég er mjög hrif­inn af fiski og vöðvum af kjöti sem eru minna not­aðir eins og til dæmis nautak­inn, lamba­mjöðm og svína­síðu. Í græn­met­is­flokknum er íslenskt brokkolí í miklu upp­á­haldi þar sem stilk­ur­inn er mjór og langur og besti part­ur­inn að mínu mati. Ég vinn líka mikið með sveppi sem eru aðgengi­legir allan árs­ins hring á Íslandi. Þar hefur úrvalið auk­ist og gæðin eru að verða meiri sem er skemmti­legt.“

Hvernig heimur er þetta – að vinna við mat­reiðslu og á veit­inga­stöðum?

„Það má segja að vinna í þessum bransa veit­inga­geira sé skrýt­inn lífstíll en hann venst með tím­anum. Þú vinnur við það að þjón­usta aðra sem eru í fríi og það getur verið krefj­andi. Mín upp­á­halds­frí hafa verið mánu­dagar og þriðju­dagur efir vinnu­helgi þegar aðrir eru að vinna og ég þá í raun­inni í mínu „helg­ar­fríi“. Það kerfi fannst mér á tíma­bili þægi­leg­ast og skemmti­leg­ast en það kall­ast 2-2-3. Þá vinnur þú mánu­dag og þriðju­dag, föstu­dag, laug­ar­dag og sunnu­dag aðra vik­una og svo ein­ungis mið­viku­dag og fimmtu­dag hina vik­una. Þannig vinnur maður 15 daga í mán­uði en 12 klukku­stunda vaktir á dag eða meira. Það var samt ákveðin fórn að vinna svona vaktir því maður tekur sér ekki auð­veld­lega frí frá sinni vakt og missir þá stundum af mik­il­vægum fjöl­skyldu­við­burðum og vina­hitt­ingum. Svona vakta­kerfi er þó á und­an­haldi þar sem það er bæði dýrt að vera með tvær vaktir sem vinna hvor á móti annarri og það getur haft áhrif á stöð­ug­leika á veit­inga­stöðum. Ég hef svo sem unnið allar teg­undir af vöktum í eld­húsi og skiptir vinnu­tím­inn mig ekki öllu á meðan ég hef gaman af þessu. Eftir að ég opn­aði veislu­þjón­ust­una líður mér nán­ast eins og ég sé ekki að vinna þó ég sé að alla daga. Mér finnst alltaf gaman í vinn­unni og það er munur að vinna fyrir sjálfan sig.“

Hvað með tísku í þessum heimi?

„Tíska tengd mat gengur yfir­leitt í hringi. Það er mikil þróun í keppn­is­mat­reiðslu sem dæmi og á tæknin þar hlut að máli. Það eru komnir 3D-prent­arar sem geta búið til hvaða form sem er og jafn­vel 3D-skannar þar sem hægt að skanna eitt­hvað og prenta út. Ég sjálfur per­sónu­lega er ekki mikið að missa mig í þess­ari þróun en maður þarf hins vegar að getað gripið í þetta þegar það á við.

Frönsk mat­reiðsla er til dæmis eitt­hvað sem mun lík­lega aldrei detta úr tísku og heldur ekki nýnor­ræn mat­reiðsla sem snýst um að nota hrá­efni úr nærum­hverfi og nýta allt hrá­efnið. Norð­ur­löndin eru mjög sterk hvað varðar bæði veit­inga­staði og keppn­is­mat­reiðslu. Ég tel að margir kokkar úti í heimi sæk­ist í að vinna á Norð­ur­lönd­unum til að getað komið með nýungar í heima­landið.“

Matur getur verið eins og lista­verk – hvað varðar bæði bragð og útlit.

„Matur getur verið ein­stak­lega fal­legur. Mér finnst ein­fald­leik­inn fal­leg­astur og er sjálfur ekki hrif­inn af of miklum litum, heldur hrífst helst af nátt­úru­legum mat sem er stíl­hreinn. Mesta áskor­un­inn er að láta mat­inn líta vel út og vera í leið­inni bragð­góðan og best ef hægt er að koma fólki á óvart. Ef maður gerir ein­falda hlut­inn vel kemur það manni mjög langt. “

Hvað er fram undan?

„Fram undan hjá mér er að halda áfram að vinna í fyr­ir­tæk­inu okkar, Flóru, og stækka það enn meira. Það er mikið að gera hjá okkur og við sjáum fyr­ir­tækið vaxa á hverjum degi. Ég stefni líka á að keppa í keppni sem ég má ekki alveg upp­lýsa um eins og er en það er keppni sem hefur verið mark­mið hjá mér að fara í síðan ég fór til Frakk­lands að læra árið 2015 og ég er mjög spenntur fyrir.“

Sindri er spurður hver sé upp­á­halds­mat­ur­inn í dag.

„Ég fæ æði fyrir ein­verju reglu­lega og breyt­ist það ört. En upp­á­halds­mat­ur­inn minn hér á Íslandi er á veit­inga­staðnum Sumac sem ég fer alloft á og eins mat­ur­inn á OTO sem er nýr staður við Hverf­is­götu sem vinur minn, Sigurður Laufdal, opn­aði nýlega.

Upp­á­halds­heim­il­is­mat­ur­inn hjá mér er pasta sem kærasta mín, María Dögg, gerir. Ég elska í raun­inni að borða mat sem ég elda ekki sjálfur þegar ég er í fríi og er þá ánægður með flest en ef ég elda heima er það yfir­leitt eitt­hvað sem ég hendi á grillið. Ég hef mikla ástríðu fyrir mat sem eld­aður er á kola­grilli.“

Þá deilir Sindri upp­skriftum með les­endum en þær má nálg­ast í nýju tölu­blaði Víns og matar, bæði hér á vefnum og í frídreif­ingu í versl­unum Bónus.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forsíðuviðtal

Liðsheildin skiptir miklu máli til að ná árangri
Mannlífið

Liðs­heildin skiptir miklu máli til að ná árangri

For­síðu­við­tal í nýút­komnu tölu­blaði Víns og matar er við Snædísi, þjálf­ara íslenska kokka­lands­liðs­ins. Snædís Xyza Mae Ocampo mat­reiðslu­maður er þjálf­ari íslenska kokka­lands­liðs­ins sem Klúbbur mat­reiðslu­meist­ara heldur utan um og rekur. Hún setti markið strax hátt áður en hún hóf mat­reiðslu­námið. Snædís er yfir­mat­reiðslu­maður á veit­inga­staðnum Silfru á ION Adventure Hotel á Nesja­völlum. Upp­á­halds­mat­ur­inn er steiktur fiskur í raspi með kart­öflum...
Guðrún Katrín og Sæmundur komu að syni sínum látnum: „Ég hef aldrei séð neinn svona veikan“
Innlentforsíðuviðtal

Guðrún Katrín og Sæmundur komu að syni sínum látnum: „Ég hef aldrei séð neinn svona veikan“

Hjónin Guðrún Katrín Sandholt og Sæmundur Steindór Magn­ús­son upp­lifðu verstu martröð flestra for­eldra þegar sonur þeirra, Magnús Andri, lést í febr­úar síð­ast­liðnum aðeins 19 ára gam­all. Hann glímdi við fíkni­sjúk­dóm og þráði að ná bata en með­ferð­ar­úr­ræði eru fá og biðlistar langir. For­eldrar Magnúsar gerðu allt sem í þeirra valdi stóð til þess að fá aðstoð fyrir son sinn. Þau...
Vilja að örlög sonar síns opni augu almennings: „Magnús kemur frá afskaplega venjulegu heimili“
Innlentforsíðuviðtal

Vilja að örlög sonar síns opni augu almenn­ings: „Magnús kemur frá afskap­lega venju­legu heim­ili“

„Það eru auð­vitað for­dómar í sam­fé­lag­inu. Það væru ekki svona mörg ung­menni að fara úr þessum sjúk­dómi án þess að það veki neina eft­ir­tekt eða við­brögð hjá land­lækn­is­emb­ætt­inu ef að það væru ekki for­dómar gagn­vart þessum sjúk­dómi. Heil­brigð­is­ráð­herra talar um þá sem eru með fíkni­sjúk­dóm sem fólk á mis­jöfnum stað. Það sýnir hvaða augum hann lítur þennan mála­flokk.“ Hjónin vilja...
Fíknisaga Magnúsar hófst á kannabisneyslu: „Síðustu þrír mánuðirnir í hans lífi voru honum erfiðir“
Innlentforsíðuviðtal

Fíkni­saga Magnúsar hófst á kanna­bis­neyslu: „Síðustu þrír mán­uð­irnir í hans lífi voru honum erf­iðir“

Magnús Andri byrj­aði í kanna­bis­neyslu, en líkt og margir aðrir taldi hann efnið ekki vera skað­legt. Sjúk­dóm­ur­inn þró­að­ist hratt, Magnús leidd­ist út í neyslu ópíóíða. Mánuði áður en hann lést var hann kom­inn með vilj­ann til þess að takast á við vanda­málið, en hjálp­ina var erfitt að fá. „Maður sá breyt­ingar á honum. Hann var mjög opin­skár við mig um...
Dísella missti röddina sama dag og hún fór í mikilvægt inntökupróf: „Það kom ekki píp út úr mér“
Innlentforsíðuviðtal

Dísella missti rödd­ina sama dag og hún fór í mik­il­vægt inn­töku­próf: „Það kom ekki píp út úr mér“

Dísella Lár­us­dóttir hefur í mörg ár starfað hjá Metropolit­anóp­eru­hús­inu í New York og fékk í vor ásamt Grammy-verð­laun ásamt sam­starfs­fólki fyrir upp­setn­ingu Metropolitan-óper­unnar á verki Philips Glass, Akhnaten. Dísella hefur þó mest verið heima frá því að Covid-far­ald­ur­inn skall á og hér býr fjöl­skyldan. Í við­tali við Reyni Trausta­son talar hún meðal ann­ars um tón­list­ina, verð­launin, ráð­legg­ing­inum sem hún vildi...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður