„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Undrast nýjustu skattlagninguna – Nægir fjármunir til í varasjóði

Undrast nýjustu skattlagninguna – Nægir fjármunir til í varasjóði
Eyjólfur Ármanns­son

Þing­maður Flokks fólks­ins vekur athygli á því að til sé vara­sjóður til að bregð­ast við ófyr­ir­sjá­an­legum útgjöldum, þar á meðal vegna eldsum­brota á Reykja­nesskaga. Hins vegar hafi tals­verðar upp­hæðir í sjóðnum verið not­aðar í leið­toga­fund Evr­ópu­ráðs­ins í Hörpu á dög­unum og vegna hæl­is­leit­enda.

Á dög­unum sam­þykkti Alþingi frum­varp Katrínar Jak­obs­dóttur um vernd mik­il­vægra inn­viða á Reykja­nesskaga en þar er gert ráð fyrir að lagt sé til árlegt gjald á allar hús­eignir sem nemur 0,08‰ af bruna­bóta­mati, sam­kvæmt lögum um bruna­trygg­ingar. Með þess­ari leið verður hægt að fjár­magna fram­kvæmdir til mann­virkja til að verja inn­viði.

Eyjólfur Ármanns­son, þing­maður Flokks fólks­ins var í við­tali á Útvarpi Sögu þar sem hann benti á að til er sér­stakur vara­sjóður til að bregð­ast við ófyr­ir­sjá­an­legum útgjöldum en í frum­varpi til fjár­auka­laga 2023 er talað um að tæpir 3,8 millj­arðar séu eftir í sjóðnum „til að bregð­ast við óvæntum og óhjá­kvæmi­legum útgjöldum, s.s. vegna
jarð­hrær­inga og mögu­legra eldsum­brota á Reykja­nesi fyrir lok þessa árs ef til þess kæmi.“

Þá segir einnig í frum­varpi til laga um opin­ber fjár­mál, til skýr­inga um 24. gr. þeirra laga eft­ir­far­andi: „Til­gangur óskiptrar fjár­heim­ildar hefur m.a. verið að mæta hækk­unum launa og verð­lags ásamt ófyr­ir­séðum útgjöldum, þ.m.t. geng­is­bótum vegna veik­ari stöðu gjald­mið­ils­ins en gert var ráð fyrir í for­sendum fjár­laga, útgjöldum vegna eld­gosa og nátt­úru­ham­fara auk útgjalda vegna kjara­samn­inga.“

„Það að þessi vara­sjóður skuli ekki vera not­aður í þetta þykir mér alveg furðu­legt en á þessu ári voru settir í þennan vara­sjóð 34 og hálfur millj­arður og það er reyndar búið að nota megnið af því en í frum­varp­inu um fjár­auka­lög kemur fram að í sjóðnum sé núna 3,8 millj­arðar,“ segir Eyjólfur í við­tal­inu.

Eyjólfur lagði fram breyt­inga­til­lögu ásamt Halldóru Mogensen úr Pírötum, Bergþóri Ólasyni frá Mið­flokknum og Sigmari Guð­munds­syni í Viðreisn, þess efnis að skatt­ur­inn sem nefn­ist for­varn­ar­gjald yrði felldur út úr frum­varp­inu og að hinn svo­kall­aði vara­sjóður yrði nýttur eins og gert er ráð fyrir í fjár­lögum til að bregð­ast við óvæntum og ófyr­ir­séðum fjár­út­látum. Var hún felld.

Kemur fram í við­tal­inu að 19,5 millj­arðar úr sjóðnum hafi farið í launa­hækk­anir, rík­is­á­byrgð vergna stuðn­ings­lána sem eru um það bil 200 millj­ónir og 25 millj­ónir í sam­hæf­ing­arteymi vegna stöðu um mót­töku flótta­fólks, svo dæmi séu tekin. Þá var not­aður 1,5 millj­arður fyrir leið­toga­fund Evr­ópu­ráðs­ins í Hörpu. Að auki fóru 237 millj­ónir úr sjóðnum vegna riðu í Miðfirði og emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra fékk 198 millj­ónir vegna eld­gosa og snjó­flóða. Veð­ur­stofa Íslands, vegna eld­gosa og Seyð­is­fjörður, vegna upp­setn­ingu mæla, fengu 55 millj­ónir úr sjóðnum. Og eftir eru um 3,8 millj­arðar króna. Samkvæmt frum­varpi Katrínar er áætl­aður kostn­aður við upp­bygg­ingu varn­ar­garðs við Svarts­engi 2,3 millj­arðar króna auk 20 pró­senta óvissu sem gert er ráð fyrir að minnki þegar frek­ari upp­lýs­ingar liggja fyrir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Náttúruhamfarir

Búast má við stórum skjálfta í Brennisteinsfjöllum: „Auðvitað ekki langt frá höfuðborgarsvæðinu“
Innlent

Búast má við stórum skjálfta í Brenni­steins­fjöllum: „Auðvitað ekki langt frá höf­uð­borg­ar­svæð­inu“

Nátt­úru­vá­r­sér­fræð­ingur hjá Veð­ur­stofu Íslands segir við­búið að stór skjálfti verði í Brenni­steins­fjöllum en jarð­skjálfti af stærð­inni 2,8 varð þar klukkan níu í morgun. Skjálft­inn fannst víða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Elísabet Pálma­dóttir, nátt­úru­vá­r­sér­fræð­ingur hjá Veð­ur­stofu Íslands hvetur fólk til þess að kynna sér leið­bein­ingar um varnir og við­brögð vegna jarð­skjálfta þar sem við­búið sé að stór skjálfti verði í Brenni­steins­fjöllum fyrr en...
Eitt prósent líkur á að loftsteinn lendi á jörðinni 2032: „Kannski er best að slökkva á fréttunum“
InnlentNáttúruhamfarir

Eitt pró­sent líkur á að loft­steinn lendi á jörð­inni 2032: „Kannski er best að slökkva á frétt­unum“

„Ef sagan kennir okkur eitt­hvað þá kennir hún okkur að það ger­ist alltaf eitt­hvað óvænt og stórt. Lítum á nokkur dæmi. Hver hefði trúað því að við færum að tala um inn­rás og Grænland í sömu andrá? Hver hefði trúað því að við færum í alvör­unni að tala um hætt­una á yfir­töku gervi­greindar á mann­kyn­inu? Eða hætt­una á að Golfstraum­ur­inn...
Sérfræðingar bíða átekta: „Staðan við Svartsengi er nú í raun þannig að beðið er eftir eldgosi“
InnlentNáttúruhamfarir

Sér­fræð­ingar bíða átekta: „Staðan við Svarts­engi er nú í raun þannig að beðið er eftir eld­gosi“

Eld­fjalla- og nátt­úru­vá­hópur Suð­ur­lands á Facebook segja að nú sé staðan þannig við Svarts­engi að beðið sé eftir eld­gosi. Í færslu hjá hópnum segir: „Staðan við Svarts­engi er nú í raun þannig að beðið er eftir eld­gosi. Frá lokum síð­asta eld­goss hefur því verið spáð að líkur á öðru eld­gosi myndu vaxa veru­lega í kringum mán­aða­mót jan­úar/febr­úar.“ Með færsl­unni birtir...
Ósáttur við orð Magnúsar um brottflutta Grindvíkinga: „Allur hetjuskapur hverfur með viðhorfi hans“
InnlentNáttúruhamfarir

Ósáttur við orð Magnúsar um brott­flutta Grind­vík­inga: „Allur hetju­skapur hverfur með við­horfi hans“

Grind­vík­ing­ur­inn Björn Birg­is­son er allt annað en sáttur við sam­borg­ara sinn, Magnús Gunn­ars­son sem kallar bæj­ar­stjóra Grinda­víkur og þá bæj­ar­búa sem fluttu úr bænum vegna tíðra eld­gosa, lufsur, í nýrri Facebook-færslu. „Lufsur! Elsku­legur sam­borg­ari í Grinda­vík til margra ára, Magnús Gunn­ars­son, var að end­ur­birta mynd­band með sér­stakri úttekt og umsögn um bæj­ar­stjóra Grinda­víkur og þá sam­borg­ara sína sem fluttu burtu...
Hringvegurinn lokaður á tveimur stöðum vegna snjóflóða – Óvissustig á Fagradal
Landið

Hring­veg­ur­inn lok­aður á tveimur stöðum vegna snjó­flóða – Óvissu­stig á Fagradal

Hring­veg­ur­inn er nú lok­aður á tveimur stöðum á Aust­fjörðum, vegna snjó­flóða. Um er að ræða ann­ars vegar á milli Breið­dals­víkur og Stöðv­ar­fjarðar og hins vegar Djúpa­vogs og Hafnar í Horna­firði. Fram kemur á vef Vega­gerð­ar­innar að snjó­flóðin hafi fallið upp úr klukkan 17:00 í dag en ólík­legt er að mokað verði í kvöld. Flóðið í Færi­valla­skriðum milli Breið­dals­víkur og Stöðv­ar­fjarðar...
Samhæfingarstöð Almannavarna virkjuð vegna snjóflóðahættu á Austfjörðum – Rýmingarsvæðið stækkað
InnlentNáttúruhamfarir

Sam­hæf­ing­ar­stöð Almanna­varna virkjuð vegna snjó­flóða­hættu á Aust­fjörðum – Rým­ing­ar­svæðið stækkað

Virkjuð hefur verið sam­hæf­ing­ar­stöð Almanna­varna á Lauga­vegi, vegna snjó­flóða­hættu og rým­inga á Aust­fjörðum. Samkvæmt upp­lýs­inga­full­trá Almanna­varna sem RÚV ræddi við, hefur sam­hæf­ing­ar­stöð Almanna­varna verið virkjuð vegna umfangs aðgerða Almanna­varna vegna snjó­flóða­hættu og rým­inga í Nes­kaups­stað og á Eski­firði. Bæðir rým­ingum hefur nú verið lokið en í Nes­kaups­stað er um að ræða eitt íbúa­hverfi þar sem um 140 manns búa, en...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins