Björn Birgisson gagnrýnir fimm mínútna reglu Almannavarna og vill að Grindvíkingar fái 15 mínútur til að sækja verðmæti sín.
Samfélagsrýnirinn orðhagi frá Grindavík, Björn Birgisson, gagnrýnir í færslu á Facebook, þann knappa tíma sem Grindvíkingar fá til að sækja verðmæti sín í bænum. „Fólk kemur jafnvel langt að, bíður klukkustundum saman í bílaröð, kemst svo eftir dúk og disk að heimili sínu – nánast til að geta ekki gert neitt!“ skrifar Björn og segir að 15 mínútur væri betri tími.
Segist hann vera afar þakklátur fyrir það starfs sem unnir er í Grindavík við hættulega aðstæður og kallar fólk sem við það starfar, „fornfúsar hetjur.“ Tekur hann fram í lokin að hann nefni þetta á Facebook sem skoðun sína en vilji ekki rökræða hana né réttlæta frekar.
Hér er færslan í heild sinni:
„Vil ekki vera neikvæður og gagnrýninn á það sem verið er að gera í þessum aðstæðum, aðstæðum sem geta svo hæglega orðið miklu hættulegri með mjög skömmum fyrirvara.
En samt.Að mínu mati er þessi 5 mínútna regla virkilega vond regla.Fólk kemur jafnvel langt að, bíður klukkustundum saman í bílaröð, kemst svo eftir dúk og disk að heimili sínu – nánast til að geta ekki gert neitt!15 mínútur væru miklu nær lagi. Höfum í huga að svona heimsókn í eigin híbýli – hugsanlega í síðasta sinn – fylgir mikið álag við þessar aðstæður og þá líða 5 mínútur á leifturhraða og hugurinn leitar út og suður í troðfullum minningabankanum.Er afar þakklátur fyrir allt það starf sem unnið er við hættulegar aðstæður í Grindavík og lít á það fólk sem vinnur við þessar aðstæður sem fórnfúsar hetjur.Nefni þetta hér sem mína skoðun og ætla ekki að rökræða hana neitt eða réttlæta hana.“


























Athugasemdir