„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Sigga varð fræg á einni nóttu: „Þetta voru alls konar kjaftasögur sem voru bara rugl“

Sigga varð fræg á einni nóttu: „Þetta voru alls konar kjaftasögur sem voru bara rugl“
Sigríður Guðna­dóttir Mynd / Kazuma Takigawa

Sigríður Guðna­dóttir, Sigga Guðna, sótti frá unga aldri sam­komur í Fíla­delfíu og síðar Kross­inum og segir að bænin sé það sterkasta í lífi sínu. Skóla­fé­lagar lögðu hana í ein­elti þar sem hún gekk í pilsum eins og aðrar stúlkur og konur sem til­heyrðu Kross­inum. Tón­listin er henni í blóð borin og með lag­inu Freedom með Jet Black Joe sem hún söng sló lagið og hún í gegn og það tók á að vera þekkt og kjafta­sög­urnar grass­er­uðu. Í dag er Sigga mikil fjöl­skyldu­kona sem vinnur sem fast­eigna­sali og nýtur þess að syngja. Hún hefur fundið sína rödd í fleiri en einum skiln­ingi.

Freedom og kjafta­sög­urnar

Hana dreymdi um að syngja og hún fór að syngja.

„Ég er búin að vera að syngja frá því ég var krakki í kirkj­unni. Ég var á sínum tíma í kristnu bandi sem hét Júda, ég söng í und­ankeppni Eurovision, í Lands­lag­inu og vann einu sinni Hemma Gunn-söngvakeppni.

Páll Rósinkranz er sonur einnar systur minnar og hann bjó hjá mér á sínum tíma í heilt ár. Við erum nær í aldri heldur en ég og mamma hans. Hann var þá í hljóm­sveit­inni Jet Black Joe og voru þeir í hljóm­sveit­inni ein­hvern tím­ann að semja inni í stofu og ég sagði í gríni að mig myndi langa til að syngja þetta lag. Svo end­aði á því að einn þeirra hringdi svo í mig og sagði að þeir ætl­uðu að láta mig syngja lagið.“

Það var lagið Freedom sem sló í gegn.

„Ég var aldrei í Jet Black Joe. Ég söng bara þetta eina lag með þeim en þegar þeir voru að spila þá kom ég fram með þeim og söng reyndar fleiri lög.“

Hún segir tón­list­ar­fer­il­inn vera svo­lítið stopulan. „Ég söng með Jet Black Joe á tíma­bili og svo stofn­aði ég mitt eigið band sem hét Rask. Það band lifði ekki lengi og upp frá því flosn­aði svo­lítið upp úr söng­konu­ferl­inum. Ég fór líka að takast á við mál. Svo hafði ég ofboðs­lega lítið sjálfs­traust á þessum tíma út af þessu máli og fleira, ég fann að ég hafði aldrei neina trú á að ég gæti náð árangri og ég ætti skilið að blómstra.

Ég skildi líka við minn fyrr­ver­andi og ein­hvern veg­inn fór allt öðru­vísi en ég hafði ætlað mér. Ég eig­in­lega lok­aði mig ein­hvern veg­inn svo­lítið af. Svo kynnt­ist ég núver­andi mann­inum mínum, eign­að­ist barn og fékk tvær stelpur með honum í kaup­bæti.“

Sigga gaf út sóló­disk árið 2010 og á þeim diski var til dæmis lagið Shame sem hún samdi sjálf og er um skömm­ina sem fylgdi henni lengi vel. „Þá var akkúrat í gangi fyrr­nefnt mál þannig að ég gat aldrei fylgt þeim diski eftir. Þá tók við rosa­leg sjálfs­vinna og alls konar dóms­mál og sjálfs­traust mitt brotn­aði algjör­lega niður á þessu tíma­bili. Ég er búin að vinna mikið í þeim málum og búin að vinna mikla sjálfs­vinnu; að kom­ast út úr þess­ari skömm og lélegu sjálfs­trausti. Ég hef verið að vinna í því síð­ast­liðin 10 ár eða svo.“

Svo var það annar diskur árið 2020. „Það var akkúrat í Covid þannig að ég gat ekki heldur fylgt honum eftir. En ég hef verið að syngja mikið eins og á Gos­loka­há­tíð­inni  í Vest­manna­eyjum og um sjó­manna­dags­helg­ina í ár. Svo hef ég verið að syngja með Skonrokk-hópnum sem er sam­an­safn af fleiri frá­bærum söngv­urum og tón­list­ar­mönnum. Og von­andi er ég að fara að gera fleiri hluti á næst­unni með meira sjálfs­traust. Ég hef sungið í alls konar veislum svo sem í brúð­kaupum og svo hef ég sungið í jarð­ar­förum. Það er ekki skráð hljóm­sveit sem ég kem fram með en það er yfir­leitt sama fólkið sem spilar með mér.“

Hvað vill Sigga segja um rödd­ina?

„Ég held ég sé fyrst og fremst rokksöng­kona. Ég er örugg­lega fín í mörgu en rokkið hefur fylgt mér og kannski út af því að ég átti svo vin­sælt lag með Jet Black Joe. Þetta lag hefur fylgt mér í gegnum tíð­ina og ég myndi segja að ég væri fyrst og fremst rokksöng­kona með „country popp-ívafi“. Ég held að það sem ein­kenni mig sé kannski kraft­ur­inn. Ég held að ég sé með þannig rödd að þú heyrir hver er að syngja þegar ég syng. Ég vona alla­vega að ég sé ekki að herma eftir öðrum. Ég held ég hafi fundið mína rödd. Það er svo auð­velt að herma eftir ein­hverri annarri góðri söng­konu. Það er svo auð­velt að fara þá leið af því að það er öruggt. En ég held að það skipti máli fyrir allar söng­konur og söngv­ara að finna sína rödd. Ég held að ein­kennin séu kraft­ur­inn og von­andi ein­lægni. Það skiptir mig alla­vega máli að vera ein­læg í því sem ég syng. Ég er kannski ekki besta söng­kona í heimi og ekki tækni­leg­asta söng­kona í heimi en þegar ég syng þá legg ég hjartað í það. “

Hún segir það hafa verið skrýtið að hafa orðið þekkt.

„Allt í einu á einni nóttu var ég orðin rosa þekkt. Lagið, Freedom, fór á vin­sælda­lista og var lengi og ég finn að jafn­vel krakkar sem voru ekki fæddir þegar þetta lag kom út þekkja það. Lagið hefur lifað mjög vel. Ég hef nú stundum grín­ast með það að ég sé mjög þekkt en það viti mjög fáir af því.

Það sem ég upp­lifði varð­andi það að vera þekkt var bæði jákvætt og nei­kvætt. Ég kynnt­ist góðu fólki í gegnum þetta en líka var ég að heyra kjafta­sögur um mig sem voru ekki sannar; Það var ekki góð til­finn­ing og sér­stak­lega þar sem ég var með brotið sjálfs­traust og þess vegna tók ég þetta rosa­lega inn á mig. Það er öðru­vísi þegar maður er sjálfsör­uggur sem ég var alls ekki á þessum tíma. Í dag er mér nokkurn veg­inn sama af því að ég er búin að vinna hell­ing í mér. Það er eng­inn sem lifir mínu lífi og eng­inn sem gengur í mínum skóm nema ég.“

Hún seg­ist til dæmis hafa heyrt kjafta­sögur um að hún væri í neyslu. „Ég pru­faði aldrei dóp. Aldrei nokkurn tím­ann. Þetta voru alls konar kjafta­sögur sem voru bara rugl.“

Hægt er að lesa allt við­talið með því að smella hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

viðtal

Hugvíkkandi efni hjálpuðu Unni í skilnaðinum við Jóa Fel: „Ég sá myrkrið fara út úr mér“
Menning

Hug­víkk­andi efni hjálp­uðu Unni í skiln­að­inum við Jóa Fel: „Ég sá myrkrið fara út úr mér“

Unnur Gunn­ars­dóttir segir að hug­víkk­andi efni hafi gjör­breytt lífi sínu. Nýjast gestur þátt­ar­ins Segðu mér á Rás 1, sem er í umsjón Sig­ur­laugar M. Jón­as­dóttur, er Unnur Helga Gunn­ars­dóttir, fyrr­ver­andi fram­kvæmd­ar­stjóri Bak­arís­ins Jóa Fel og fyrr­ver­andi eig­in­kona Jóa Fel en hún fer þar meðal ann­ars yfir skiln­að­inn og hug­víkk­andi efni sem hún segir að hafi breytt lífi sínu. Eftir tæp­lega...
Ragnar Freyr segir læknastarfið oft erfitt: „Það verður allt verra ef svefninn er ekki í lagi“
Menning

Ragnar Freyr segir lækna­starfið oft erfitt: „Það verður allt verra ef svefn­inn er ekki í lagi“

Ragnar Freyr Ingv­ars­son læknir seg­ist ganga stoltur frá verk­efni sínu sem yfir­maður göngu­deildar Covid. Ragnar, sem er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar, segir að það að vinna við að hafa líf fólks í hönd­unum geti verið erfitt. Jafnvel þó að læknar hafi gert allt sitt sé mjög erfitt að horfa upp á sjúk­linga versna af sjúk­dómum eða deyja: „Þegar...
Birkir rokkar til vinstri – Leggur mikla áherslu á föðurhlutverkið
Innlent

Birkir rokkar til vinstri – Leggur mikla áherslu á föð­ur­hlut­verkið

Í nýjasta þætti Alkasts Þvotta­húss­ins er engin annar en metal­haus­inn, vegan­inn, fem­inist­inn, sam­göngu­hjól­ar­inn og fað­ir­inn Birkir Fjalar Viðarson. Birkir er og hefur alltaf verið mikil áhuga­maður um rokktón­list og segir hann í við­tal­inu að rokkið hafi í raun haldið honum á jörð­inni í gegnum hina ýmsu öldu­dali sem lífið hefur upp á að bjóða. Hann heldur sjálfur út útvarps- og...
Kannabis mætir skorti á blóðvökva – Viðtal við sérfræðing á sviði líftækni og læknisfræði
Menning

Kannabis mætir skorti á blóð­vökva – Viðtal við sér­fræð­ing á sviði líf­tækni og lækn­is­fræði

„Árleg áætluð eft­ir­spurn eftir blóð­vökva hefur verið um 160 millj­ónir lítra en um 100 millj­ónum lítra hefur ekki mætt,“ segir Dr. Pavel Kubů, sér­fræð­ingur á sviði líf­tækni og lækn­is­fræði, en fyr­ir­tæki hans, Plasma for People, hefur þróað tækni sem gæti gjör­bylt heil­brigð­is­kerf­inu eins og við þekkjum það í dag. Kubů sem er með dokt­ors­próf í lækn­is­fræði frá Charles háskól­anum í...
Fjölskyldufaðir tekst á við stórt áfall með plötuútgáfu: „Þú stýrir ekki vindinum …“
Menning

Fjöl­skyldu­faðir tekst á við stórt áfall með plötu­út­gáfu: „Þú stýrir ekki vind­inum …“

Atli Þór Sig­urðs­son greind­ist með heila­æxli í fyrra en hann stendur nú fyrir söfnun inni á Karolina Fund svo hann geti gefið út tvær plötur með frum­sömdu efni. Atli Þór, sem verður 39 ára á þessu ári, vinnur sem for­rit­ari hjá Bláa Lóninu og hefur gert það síðan 2021. Er hann alinn upp í Breið­holt­inu en hefur búið í Graf­ar­vogi...
Íslendingar ættu að hefja afglæpavæðingu strax – Minnkar umsvif glæpahópa og bjargar mannslífum
Innlent

Íslend­ingar ættu að hefja afglæpa­væð­ingu strax – Minnkar umsvif glæpa­hópa og bjargar manns­lífum

„Þjóðir heims verða að reglu­væða vímu­efni til þess að ná aftur stjórn­inni. Vímuefni geta verið vara­söm og í vel flestum þeim löndum sem ég hef heim­sótt er auð­veld­ara fyrir börn að kaupa ólög­leg vímu­efni en áfengi og tóbak,“ segir leynilög­reglu­mað­ur­inn fyrr­ver­andi Neil Woods í við­tali við Hamp­kastið, umræðu­þátt Hamp­fé­lags­ins, en Woods hélt erindi á alþjóð­legri ráð­stefnu sem félagið stóð fyrir...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins