„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Lífsreynslusaga Mannlífs – Fullkominn dagur fyrir sambandsslit: „Einmitt, já, hún er sæt“

Lífsreynslusaga Mannlífs – Fullkominn dagur fyrir sambandsslit: „Einmitt, já, hún er sæt“

„En hver á að fá múmín­boll­ana?“

Henni datt ekki neitt annað í hug til þess að segja, á þessum heita og sól­ríka júlídegi. Þau sátu hvort á sínum sól­bekknum með birt­una í and­litið og sól­gler­augu á nef­brodd­unum. Í loft­inu var dauf angan af rósarunna og fugl­arnir keppt­ust um að yfir­gnæfa hver annan með skrúð­ugum lag­línum. Tveir loðnir kettir lædd­ust um í djúp­grænu gras­inu í kring í leit að skugga.

Full­kom­inn dagur fyrir sam­bands­slit.

Hún hafði ein­hvern tíma lesið inn­senda grein í tíma­riti, um konu sem upp­lifði algjöran við­snún­ing á lífi sínu eftir ein ára­mótin. Kona sú vildi meina að þetta gamlárs­kvöld hefði verið upp­hafið að enda­lok­unum á hennar fyrra lífi.

Hún og aðrir veislu­gestir höfðu ákveðið að standa öll upp á stólum rétt fyrir mið­nætti og þegar klukkan sló tólf stukku þau öll sam­tímis niður. Þetta átti að vera tákn­rænt, þau væru að stökkva inn í nýja árið, algjör­lega óhrædd við óvissu kom­andi tíma.

Þessari konu brást hins­vegar eitt­hvað boga­listin. Þetta upp­á­tæki fór ekki betur en svo að hún datt af stólnum á mið­nætti og brot­lenti á hörðu gólf­inu með spring­andi flug­elda í eyr­unum. Það leið ekki langur tími eftir þetta gamlárs­kvöld þar til konan sú var skilin og allt líf hennar í frjálsu falli.

Sagan fékk þó far­sælan endi, eins og flestar lífs­reynslu­sögur tíma­rit­anna.

Konan vildi meina að þetta harka­lega fall inn í nýja árið hefði verið afar tákn­rænt og sett af stað breyt­ingar og atburða­rás sem hana hefði stuttu áður aldrei getað órað fyrir. Hún mælti með því að ef fólk vildi dramat­ískar breyt­ingar á lífi sínu ætti það að prófa að stökkva, nú eða detta hrein­lega, inn í nýtt ár að kvöldi 31. des­em­ber.

Nú var þessi saga, sem hún hafði lesið mörgum árum fyrr, eins og greypt inn í huga hennar. Hún hafði jú byrjað þetta árið með óvenju­legum hætti. Í fyrsta sinn hafði hún verið í öðru landi um ára­mót. Hún hafði farið án hans til frænku sinnar í Svíþjóð til þess að þreyta inn­töku­próf í háskóla þar í landi.

Inn­töku­prófið var í byrjun jan­úar, en ódýrasta far­gjaldið út var á gaml­árs­dag. Rétt fyrir mið­nætti hafði hún fengið óvenju­lega til­finn­ingu, eins og eitt­hvað væri í aðsigi. Allt hafði verið öðru­vísi. Önnur, ókunnug lykt í loft­inu. Hún gat hvorki komið angan­inni né til­finn­ing­unni í orð. Hún hafði hugsað með sér að senni­lega staf­aði hvort tveggja af sprengju­leti Svíanna, sem var Íslend­ingnum auð­vitað fram­andi. Á mið­nætti hafði hún skálað í freyði­víni og óvart brotið krist­als­glasið. Um leið og það gerð­ist fannst henni hægj­ast á öllu. Eins og hún væri að fylgj­ast með atburða­rásinni utan frá.

Eftir ára­mótin hafði hún fengið flensu, farið veik í inn­töku­prófið og gengið í sam­ræmi við það.

Þegar hún hafði komið heim höfðu þau spjallað saman tvö og hann látið hana frjáls­lega vita af því að það hefði verið reynt við hann í ára­mótap­ar­tí­inu heima á Íslandi. Hann hefði nú samt ekki tekið undir það.

„Já er það? Sýndu mér hana.“

Hann hlýddi.

Hún hafði sítt dökkt hár og fal­legt bros.

„Einmitt, já. Hún er sæt,“ hafði hún sagt ann­ars hugar. Hún hafði næstum sam­glaðst honum yfir við­reynsl­unni.

Nokkrum dögum síðar hafði snjó­bolt­inn farið að rúlla. Það var eins og kveikt hefði verið á henni í fyrsta sinn í langan tíma. Hún hafði fengið nei­kvætt svar frá skól­anum, en það skipti eig­in­lega ekki neinu máli. Hún hafði verið lif­andi. Spennt. Hátt uppi. Hún hafði stefnt hrað­byri á vegg, en hann hafði verið óum­flýj­an­legur.

Upphafið hafði verið vinnu­staða­partí nokkrum dögum eftir ára­mót. Einhvern veg­inn hafði hún endað alltof seint um kvöld, eftir fleiri drykki en hún kaus að við­ur­kenna, lokuð inni á myrkv­uðu bað­her­bergi.

Með henni.

Og þrátt fyrir að hún vissi að það væri rangt, þá höfðu allar taugar í lík­ama hennar verið á önd­verðum meiði. Hátt uppi, í ein­hverjum hvirf­il­byl spennu, óvissu og losta, höfðu varir þeirra mæst. Með skyn­færin þanin að þol­mörkum höfðu þær deilt kossum í tíma­leysi. Þráin var sekt­ar­kennd­inni yfir­sterk­ari.

Henni fannst sem hún myndi bráðna ofan í nið­ur­fallið. Syk­ur­sætt Paris Hilton ilm­vatn lá í loft­inu og hún hafði ekki gert sér grein fyrir því þá, en þetta ilm­vatn átti alltaf eftir að snúa öllu innra með henni á hvolf í hvert sinn sem hún myndi finna lykt­ina í fram­tíð­inni. Eftir þetta varð ekk­ert eins.

Það var eins og hún vakn­aði loks úr ein­hvers konar transi á þessum júlídegi á sól­bekknum. Þau sátu hlið við hlið en hún sá að þau höfðu myndað gjá á milli sín í öllum jarð­skjálft­unum mán­uð­ina á undan. Og það var ástæðu­laust fyrir þau að reyna að klóra í bakk­ann. Hún trúði því núna, á þessu augna­bliki, að það skipti máli hvernig fólk færi inn í nýtt ár. Hún ætl­aði að muna að stökkva inn í það ef hún vildi umturna lífi sínu aftur eins og hún var í þann mund að gera.

„Við skiptum þeim bara á milli okkar.“

Það vott­aði fyrir brosi á and­liti hans. Þessi nálgun hennar á þetta stóra augna­blik virt­ist ekki koma honum neitt sér­stak­lega á óvart.

„Eigum við að panta pizzu?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lífsreynslusaga Mannlífs

Hatrið var orðið svo mikið að þegar þau skildu sleit hann einnig sambandi við dóttur sína
Menning

Hatrið var orðið svo mikið að þegar þau skildu sleit hann einnig sam­bandi við dóttur sína

Ég kynnt­ist Ósk þegar dætur okkar urðu góðar vin­konur í leik­skóla. Þótt hún flytti úr hverf­inu héldu dæt­urnar áfram að vilja hitt­ast og smám saman jókst vin­átta okkar mæðr­anna. Þegar stelp­urnar voru orðnar full­orðnar og vin­átta þeirra orðin að kunn­ings­skap, vorum við Ósk enn góðar vin­konur. Hún gat verið dásam­leg en lífið fór ekki mildum höndum um hana og smám...
„Kjökrandi kjagaði ég með kúkinn minn heim“
InnlentLífsreynslusaga Mannlífs

„Kjökrandi kjag­aði ég með kúk­inn minn heim“

Sal­ern­is­að­staða á vinnu­stöðum er víða bág­borin. Glugga­laus rými í horni opinnar skrif­stofu. Þar sem hljóðin marg­fald­ast og magn­ast í dauða­þögn­inni. Lyktin á sér enga und­an­komu­leið nema að læð­ast inn í vit vinnu­fé­laga – sem lítt þurfa að geta sér til um hvaðan hún kemur. Eigin skíta­lyktin ku vera sæt en að deila henni og/eða búk­hljóð­unum forð­ast ég í lengstu lög...
Þegar ég neita mér um mat – Þá hungrar mig í meira sjálfsmat
Skoðun

Aðsend grein

Þegar ég neita mér um mat – Þá hungrar mig í meira sjálfs­mat

Að böggl­ast um með sjálfan sig í þessu lífi getur verið æði þungur burður. Lágt sjálfs­mat og brengluð sjálfsí­mynd eiga það til að skekkja. Upplifun og líðan helst ekki alltaf í hendur við raun­veru­leik­ann. Þegar ég mæti sjálfri mér fram­lágri suma morgna og bursta í mér tenn­urnar sýnir speg­il­myndin hvernig kinn­arnar á mér tútna út og augun sökkva undir þær....
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins