„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Solaris ítrekar áskorun sína til stjórnvalda: „Börn frá Palestínu búa við yfirvofandi brottvísun“

Solaris ítrekar áskorun sína til stjórnvalda: „Börn frá Palestínu búa við yfirvofandi brottvísun“

Hjálp­ar­sam­tökin Solaris ítrekar áskorun sína til stjórn­valda um vernd og fjöl­skyldu­sam­ein­ingu fyrir flótta­fólk frá Palest­ínu.

Solaris – hjálp­ar­sam­tök fyrir hæl­is­leit­endur og flótta­fólk á Íslandi sendu frá sér frétta­til­kynn­ingu í gær þar sem sam­tökin ítrekar þá áskorun sína að stjórn­völd beiti sér fyrir því að vernda og sam­eina fjöl­skyldur flótta­fólks frá Palest­ínu. „Þessa dag­ana ber­ast Solaris reglu­lega fregnir af því að flótta­fólk frá Palest­ínu sem sótt hefur um alþjóð­lega vernd á Íslandi sé neitað um vernd hér á landi. Þá eru íslensk stjórn­völd einnig að brott­vísa palest­ínsku flótta­fólki úr landi og hafa verið að gera síð­ustu daga og vikur. Börn og full­orðnir frá Palest­ínu búa við yfir­vof­andi brott­vísun.“ Þannig byrjar frétta­til­kynn­ingin. Þá er bent á í til­kynn­ing­unni að flótta­fólk frá Palest­ínu hafi verið svipt allri grunn­s­þjón­ustu í íslensku sam­fé­lagi sam­væmt „8. mgr. 33 gr. laga nr. 80/2016 um útlend­inga. Þeir ein­stak­lingar hafa verið sviptir hús­næði, fram­færslu, heil­brigð­is­þjón­ustu og í raun öllum leiðum til þess að upp­fylla grunn­þarfir mann­eskj­unnar.“

Þá ítrekar Solaris þá áskorun sína til rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur „frá 20. nóv­em­ber 2023 og hvetur íslensk stjórn­völd til þess að grípa til mark­vissra aðgerða og veita öllum þeim umsækj­endum um alþjóð­lega vernd sem koma frá Palest­ínu og eru stödd hér á landi vernd án tafar og stöðva allar brott­vís­anir á palest­ínsku flótta­fólki frá Íslandi. Þar að auki eru stjórn­völd hvött til þess að liðka fyrir frek­ari fjöl­skyldu­sam­ein­ingu Palest­ínu­fólks með því að rýmka regl­urnar og beita sér fyrir því að koma þeim ein­stak­lingum sem hafa fengið sam­þykkta fjöl­skyldu­sam­ein­ingu frá Gaza og til Íslands strax. Áður en það verður of seint.“

Hér fyrir neðan má lesa frétta­til­kynn­ing­una í heild sinni:

Solaris ítrekar áskorun sína til stjórn­valda um vernd og fjöl­skyldu­sam­ein­ingu fyrir flótta­fólk frá Palest­ínu

Þessa dag­ana ber­ast Solaris reglu­lega fregnir af því að flótta­fólk frá Palest­ínu sem sótt hefur um alþjóð­lega vernd á Íslandi sé neitað um vernd hér á landi. Þá eru íslensk stjórn­völd einnig að brott­vísa palest­ínsku flótta­fólki úr landi og hafa verið að gera síð­ustu daga og vikur. Börn og full­orðnir frá Palest­ínu búa við yfir­vof­andi brott­vísun.

Þar að auki er í íslensku sam­fé­lagi flótta­fólk frá Palest­ínu sem hefur verið svipt allri grunn­þjón­ustu skv. 8. mgr. 33 gr. laga nr. 80/2016 um útlend­inga. Þeir ein­stak­lingar hafa verið sviptir hús­næði, fram­færslu, heil­brigð­is­þjón­ustu og í raun öllum leiðum til þess að upp­fylla grunn­þarfir mann­eskj­unnar. 

Á Íslandi er einnig hópur af Palest­ínu­fólki sem hefur fengið sam­þykkta fjöl­skyldu­sam­ein­ingu fyrir fjöl­skyldu­með­limi á Gaza. Í krafti slíkrar fjöl­skyldu­sam­ein­ingar hafa um 100 ein­stak­lingar fengið dval­ar­leyfi á Íslandi á síð­ustu vikum og mán­uðum. Þau eru hins vegar öll enn á Gaza. Þá bíða fleiri ein­stak­lingar svara um slíka fjöl­skyldu­sam­ein­ingu og enn aðrir hafa fengið neitum um að fá fjöl­skyldu­með­limi til sín frá Gaza því ein­stak­ling­arnir falla ekki undir þröngar reglur um fjöl­skyldu­sam­ein­ingu. 

Það er afar dap­ur­legur vitn­is­burður um rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur að staða Palest­ínu­fólks á Íslandi sem hingað hefur komi í leit að skjóli og vernd fyrir sig og fjöl­skyldu sína sé með þeim hætti sem hér er lýst á sama tíma og kerf­is­bundnar þjóð­ern­is­hreins­anir standa yfir á palest­ínsku þjóð­inni á Gaza og á Vest­ur­bakk­anum og ísra­elsk stjórn­völd standa fyrir skipu­lagðri eyði­legg­ingu á palest­ínsku land­svæði í þeim til­gangi að taka það yfir. Um er að ræða enn einn áfell­is­dóm­inn yfir rík­is­stjórn­inni þegar kemur að mál­efnum fólks á flótta og algjört sinnu­leysi gagn­vart því þjóð­ar­morði sem nú stendur yfir. 

Stjórn Solaris ítrekar áskorun sína frá 20. nóv­em­ber 2023 og hvetur íslensk stjórn­völd til þess að grípa til mark­vissra aðgerða og veita öllum þeim umsækj­endum um alþjóð­lega vernd sem koma frá Palest­ínu og eru stödd hér á landi vernd án tafar og stöðva allar brott­vís­anir á palest­ínsku flótta­fólki frá Íslandi. Þar að auki eru stjórn­völd hvött til þess að liðka fyrir frek­ari fjöl­skyldu­sam­ein­ingu Palest­ínu­fólks með því að rýmka regl­urnar og beita sér fyrir því að koma þeim ein­stak­lingum sem hafa fengið sam­þykkta fjöl­skyldu­sam­ein­ingu frá Gaza og til Íslands strax. Áður en það verður of seint. 

Íslensk stjórn­völd hafa áður sýnt að hægt sé að grípa til sér­stakra aðgerða til þess að flýta afgreiðslu umsókna um alþjóð­lega vernd og fjöl­skyldu­sam­ein­ingu og eru hvött til þess að gera hið sama nú fyrir palest­ínsku þjóð­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Brottvísun Emmu litlu frestað fram yfir aðgerð
Innlenthælisleitendur

Brott­vísun Emmu litlu frestað fram yfir aðgerð

Búið er að fresta brott­vísun Emmu litlu, þriggja ára stúlku frá Venes­ú­ela, fram yfir mjaðmalið­hlaups­að­gerðar. Vísir segir frá mál­inu. Fjöl­skylda Emmu fékk upp­runa­lega synjun um dval­ar­leyfi frá kæru­nefnd útlend­inga­mála í nóv­em­ber en þau koma frá Venes­ú­ela. Lögmaður fjöl­skyld­unnar, Jón Sig­urðs­son, sótti þá um leyfi frá Útlend­inga­stofnun svo að fjöl­skyldan fengi dval­ar­leyfi á land­inu þar til Emma kæm­ist í bráð­nauð­syn­lega skurð­að­gerð....
Stjórn Solaris fordæmir fyrirhugaða brottvísun á Emmu og skorar á ráðherra að beita sér
Innlenthælisleitendur

Stjórn Solaris for­dæmir fyr­ir­hug­aða brott­vísun á Emmu og skorar á ráð­herra að beita sér

Solaris, hjálp­ar­sam­tök fyrir hæl­is­leit­endur og flótta­fólk á Íslandi for­dæmir brott­vísun á Emmu, þriggja ára stúlku frá Venes­ú­ela, sem á að ganga í gegn á morgun. Í yfir­lýs­ingu frá sam­tök­unum er sagt frá Emmu, en hún er þriggja ára stúlka frá Venes­ú­ela sem kom til Íslands í leit að alþjóð­legri vernd sum­arið 2023 ásamt ungum for­eldrum sínum. Skömmu eftir kom­una til...
Svarar „viðurstyggilegu“ myndbandi um innflytjendur: „Tölfræðin er augljós uppspuni frá rótum“
Innlenthælisleitendur

Svarar „við­ur­styggi­legu“ mynd­bandi um inn­flytj­endur: „Töl­fræðin er aug­ljós upp­spuni frá rótum“

Pétur Eggerz Pét­urs­son, aðgerð­ar­sinni, tón­list­ar­maður og tækni­stjóri svar­aði áróð­urs­mynd­bandi sem birt­ist á TikTok með gervi­greind­ar­mynd­skeiði sem sýnir Snorra Másson fara yfir raun­veru­legar tölur um hæl­is­leit­endur og inn­flytj­endur á Íslandi. Setur Pétur myllu­merkið #mið­flokk­ur­inn við færslu sína sem hann birti á Instagram. Í mynd­bandi sem birt­ist á TikTok í fyrra­dag er farið yfir ýmsar tölur varð­andi hæl­is­leit­endur á Íslandi en Pétur...
Fordæma orð lögreglustjóra á Suðurnesjum: „Glæpavæðir börn á flótta“
Innlenthælisleitendur

Fordæma orð lög­reglu­stjóra á Suð­ur­nesjum: „Glæpa­væðir börn á flótta“

Stjórn sam­tak­anna Solaris sendi frá sér frétta­til­kynn­ingu þar sem orð Úlfars Lúð­víks­sonar, lög­reglu­stjóra á Suð­ur­nesjum, um hæl­is­leit­endur, eru for­dæmd. Í frétta­til­kynn­ing­unni svarar stjórn Solaris orðum Úlfars Lúð­víks­sonar sem hann lét falla í við­tali á Morg­un­blað­inu í fyrra­dag en þar ræddi hann um hæl­is­leit­endur og sagði menn mis­nota útlend­inga­lögin og sitt­hvað fleira sem Solaris er ósam­mála. Segir í frétta­til­kynn­ing­unni að orð­ræða...
Boða til mótmæla gegn útlendingahatri stjórnmálaflokkanna: „Hvenær er nóg komið? Nægur rasismi?“
Innlent

Boða til mót­mæla gegn útlend­inga­hatri stjórn­mála­flokk­anna: „Hvenær er nóg komið? Nægur ras­ismi?“

Samtökin No Borders Iceland boða til mót­mæla­göngu gegn ras­isma og útlend­inga­hatri stjórn­mála­flokk­anna. Gangan verður 23 nóv­em­ber klukkan 14:00 og gengið verður frá Lækj­ar­torgi að utan­rík­is­ráðu­neyt­inu og endað verður á lög­reglu­stöð­inni við Hlemm. Laug­ar­dag­inn 23. nóv­em­ber klukkan 14:00 mun fólk mæta og mót­mæla kyn­þátta­hatri og útlend­inga­andúð stjórn­mála­flokk­anna í garð fólks á flótta. Komið verður saman á Lækj­ar­torgi, þaðan verður gengið að...
Karen leitar að útlendingavandamálinu: „Hefur knúið áfram hagvöxt og efnahagslega þróun landsins“
Innlenthælisleitendur

Karen leitar að útlend­inga­vanda­mál­inu: „Hefur knúið áfram hag­vöxt og efna­hags­lega þróun lands­ins“

Karen Kjart­ans­dóttir stjórn­enda­ráð­gjafi bendir á tölu­legar stað­reyndir þegar kemur að meintu „útlend­inga­vanda­máli“ sem flokkar á borð við Mið­flokk­inn, Sjálf­stæð­is­flokk­inn og Sam­fylk­ing­una hafa talað um í aðdrag­anda þing­kosn­inga. Bendir Karen, sem að und­an­förnu hefur verið dug­leg að taka upp hansk­ann fyrir hæl­is­leit­endur og inn­flytj­endur hér á landi, á að atvinnu­þátt­taka erlendra rík­is­borg­ara á Íslandi, sé hærri en hjá inn­fæddum Íslend­ingum. „Hvert...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins