„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Villta vestrið í áfengissölu eða er þetta framtíðin?

Villta vestrið í áfengissölu eða er þetta framtíðin?
Stefán Guð­jóns­son fjallar um áfeng­is­sölu á Íslandi í pistli sínum. Mynd/Envato elem­ents

Áður en ég byrja að skrifa um hvort vín­vef­verslun eigi að vera lög­leg eða ekki, vil ég taka skýrt fram að ég er með litla vín­vef­verslun sjálfur, og er ekki að þykj­ast vera hlut­laus.

Í þess­ari grein vil ég aftur á móti ræða um kosti og galla fyrir minni aðila eins og mig við fyr­ir­komu­lag hjá Á.T.V.R., vín­vef­verslun, og almennt frjálsa vín­sölu. Við skulum byrja með:

Á að leggja niður Á.T.V.R.?

Mitt svar er nei, það er ekki tíma­bært akkúrat núna. En Á.T.V.R. verður að aðlaga sig nútím­anum. Síðan ég kom heim frá Banda­ríkj­unum, fyrir mörgum árum, hefur Ríkið, eins og við þekkjum það, breyst gríð­ar­lega mikið. Í þá daga var bjór ekki leyfður, okkur almúg­anum var ein­fald­lega ekki treystandi. Fullyrt var að við myndum liggja full dag og nótt. Svo þegar bjór­sala var leyfð var upp­haf­lega ekki hægt að kaupa nema í kippum. Svo vildi yfir­maður Á.T.V.R. ekki leyfa áfengt gos, ég þekki það vegna þess að ég spurði Höskuld sjálfur, hann hélt því fram að það væri of líkt gosi og myndi þannig hvetja ung­linga til að drekka meira. Þetta er bara brot af því sem mátti ekki gera í gegnum árin, en sem betur fer hefur það breyst og landið er enn þá í lagi og við almúg­inn sitjum ekki að sum­bli dag og nótt.

Á.T.V.R. eins og hún er rekin í dag hefur gríð­ar­lega metn­að­ar­fullt fólk, bæði frammi í sal og á skrif­stof­unni, og þess er kraf­ist að starfs­fólkið læri mjög mikið um vín, bjór og annað sem er selt í búð­unum. Mér finnst þau eiga hrós skilið fyrir að leggja svona mikla áherslu á menntun hjá starfs­fólk­inu. Þegar vín­sölu verður breytt, get ég lofað að engin stór­verslun verður með eins vel menntað starfs­fólk og Á.T.V.R., hvorki í létt­víni, bjór né öðru. En á sama tíma, má starfs­fólk ekki halda úti sínu eigin bloggi eða vef­síðu þar sem fjallað er um vín, má ekki halda vín­nám­skeið fyrir almenn­ing og má ekki fara á vín­kynn­ingu hjá aðilum sem eru með vín í sölu hjá Á.T.V.R. nema hún sé haldin á vegum Á.T.V.R.. Það er því minni hvati fyrir starfs­fólk að mennta sig meira að mínu mati.

En Á.T.V.R. er hlut­laus að minnsta kosti, er það ekki?

Já og nei. Ég ætla að útskýra ferlið við að koma víni á reynslu­list­ann.

Fyrst þarf fyr­ir­tæki að koma með prufur af vín­inu og vöru­vottun og greiða 33.000 kr. fyrir hvert vín sem þau sækja um í reynslu­list­anum, og svo kemst vínið í sölu eftir sex til átta mán­uði. Ef vínið nær ekki lág­marks­sölu dettur það úr reynslu­list­anum og þú þarf að taka til baka óselt vín og end­ur­greiða and­virði þess sem var skilað. Talið er að 80% af víni á reynslu­list­anum nái ekki sölu­lág­mark­inu í fyrstu þremur til fjórum til­raunum, sem þýðir að umboðs­að­ili er búinn að eyða 99.000 kr. eða meira til að kom­ast inn í Á.T.V.R. með eitt vín! Ég er með sjö vín sem ég setti á reynslu­list­ann og ég reikna með að eitt til tvö þeirra kom­ist í kjarna í fyrstu til­raun EF ég er hepp­inn.

En þetta er mun auð­veld­ara fyrir stærri umboðs­að­ila, t.d. ef ég sé að það þarf að selja 50 flöskur af ákveð­inni teg­und af víni sem er í reynslu­sölu hef ég val, kaupa það sjálfur eða láta það detta út. Ég, sem lít­ill aðili, hef ekki efni á að kaupa þetta magn til baka, og sitja með það í vöru­húsi sem ég þarf að borga leigu fyrir, og með engan stað til að kynna vínin, og þarf að bíða í nokkra mán­uði í við­bót til að borga aftur 33.000 krónur svo vínið kom­ist aftur í reynslu­sölu, sem er yfir­leitt fjög­urra til átta mán­aða bið! Stórir vín­inn­flutn­ings­að­ilar lenda yfir­leitt ekki í að gera þetta aftur. Algengt er, að ef þeir sjá að það vantar herslumun upp á að vínið kom­ist í kjarn­ann, þá kaupa þeir sjálfir nóg til að halda vín­inu í kjarna. Vínið er svo end­ur­selt til Á.T.V.R. eða selt til veit­inga­húsa með vægu skamm­tímatapi. Þarna sést að á meðan vínið mitt situr og safnar ryki í vöru­húsi á meðan ég bíð eftir að kom­ast aftur í reynslu, þá geta stóru fyr­ir­tækin keypt sig inn í kjarn­ann sökum fjár­hags­stöðu. Svo er algengt að sjá vín sem var langt í frá að kom­ast í gegnum reynslu­sölu, eða er að detta út úr kjarna, boðin til veit­inga­húsa á lægra verði til að losna við lag­er­inn.

Hvernig myndi vín­vef­verslun hjálpa minni aðilum?

Fyrst skulum við vera raunsæ, ástæðan fyrir því að með­al­stórir vín­um­boðs­að­ilar eru log­andi hræddir við að heim­ila vín­vef­verslun er sú að þeir vita að þeir fá tak­markað eða jafn­vel lítið pláss á vef­síðum stóru keðj­anna. Stóru versl­an­irnar eru ann­að­hvort komnar með vín­um­boð nú þegar eins og Hagar eru með, eða eru í start­hol­unum. Með­al­stórum aðilum eða litlum aðila eins og mér verður ekki boðið að vera með, þetta er bara stað­reynd. Fyrir utan sínar eigin vörur verður að öllum lík­indum bara stærstu vín- og bjór­um­boðs­að­ilum boðið að vera með hjá stór­versl­un­unum. Hagar eru nú þegar að flytja inn og selja í Á.T.V.R tals­vert margar teg­undir af létt­víni og bjór.

Þetta eru skilj­an­legar áhyggjur fyrir marga umboðs­að­ila.
Af hverju vil ég þá leyfa vín­vef­verslun?

Mjög ein­falt, það er eini stað­ur­inn sem ég hef til að kynna vínið mitt, og satt að segja eru þó nokkrir litlir aðilar sem hafa engan annan stað til að kynna sína vöru. Í vín­vef­versl­un­inni get ég notað mína þekk­ingu og sér­stöðu til að kynna vör­una frá mér og öðrum minni aðilum sem hafa engan annan stað til kynn­inga. Ekki getum við aug­lýst í blöðum eða sjón­varpi hér­lendis þar sem lög leyfa það ekki (það er efni í grein út af fyrir sig). Ekki getum við kynnt okkar vöru í veit­inga­húsum vegna þess að um 70% af víni sem selt er í veit­inga­húsum er frá tveimur aðilum, og veit­inga­húsin eru samn­ings­bundin þeim (raun­veru­leik­inn bak við þetta væri efni í góða grein líka). Hin 30% af söl­unni er sleg­ist um og hægt er að segja að fjórir með­al­stórir aðilar eigi stærstan part af söl­unni þar.
Að vera með vín­vef­verslun gefur mér og öðrum inn­flutn­ings­að­ilum tæki­færi á að kynna og selja okkar vöru og gefur okkur tæki­færi til að standa betur jafn­fætis stærri aðilum sem eru meðal ann­ars að rúlla yfir okkur í Á.T.V.R. vegna stærðar þeirra. Að minnsta kosti höfum við loks­ins tæki­færi til að keppa við þá.

Verð ég ríkur á að vera með vín­vef­verslun?

Nei, en það gerir mér kleift að bjóða upp á gæða­vöru og kynna hana með nám­skeiða­haldi og fyr­ir­lestrum.


Höfundur þess­arar greinar er Stefán Guð­jóns­son, fram­reiðslu­meist­ari og vín­þjónn með 40 ára reynslu í veit­inga­húsum og vel þekktur fyrir vín­þekk­ingu sína á Íslandi og hefur meðal ann­ars skrifað um vín í blöðum og á vefnum. Hægt er að hafa sam­band við Stefán á net­fang­inu [email protected]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Vín og Matur

Blackbox – „Furðulega áhugavert, ég get ekki lýst því öðruvísi“
Mannlífið

Blackbox – „Furðu­lega áhuga­vert, ég get ekki lýst því öðru­vísi“

Í nýjum hlað­varps­þætti af Sósa Fylgir Með var veit­inga­stað­ur­inn Blackbox tek­inn fyrir en stað­ur­inn sér­hæfir sig í pít­sa­gerð. „Stað­ur­inn var að selja á því að það væri hægt að velja álegg sjálfur eins og er hægt á öllum pít­sa­stöðum nema þú gast horft á starfs­fólkið setja áleggið á pít­s­una eins og á Subway. Afsakið en mér finnst það glatað dæmi...
Diddú finnst erfiðast að syngja yfir ungum börnum: „Því sorgin er svo áþreifanleg“
Mannlífið

Diddú finnst erf­ið­ast að syngja yfir ungum börnum: „Því sorgin er svo áþreif­an­leg“

Söngdíva Íslands, Diddú er í for­síðu­við­tali í nýjasta blaði Víns og matar, sem Mannlíf gefur út. Hér má sjá brot úr við­tal­inu. Við gengum inn í eld­húsið, þar sem hún var búin að baka focaccia-brauð sem var snætt með burrata-osti og ansjósum, asp­aspasta með reyktum sil­ungi og fal­legu sal­ati með fíkjum. Inni í þessu litla, krútt­lega eld­húsi var allt eins...
Diddú var örugglega Ítali í fyrra lífi: „Ég er alin upp í mikilli matarást“
Mannlífið

Diddú var örugg­lega Ítali í fyrra lífi: „Ég er alin upp í mik­illi mat­ar­ást“

Söngdíva Íslands, Diddú er í for­síðu­við­tali í nýjasta blaði Víns og matar, sem Mannlíf gefur út. Hér má sjá brot úr við­tal­inu. Við gengum inn í eld­húsið, þar sem hún var búin að baka focaccia-brauð sem var snætt með burrata-osti og ansjósum, asp­aspasta með reyktum sil­ungi og fal­legu sal­ati með fíkjum. Inni í þessu litla, krútt­lega eld­húsi var allt eins...
Blómkálshrísgrjón – Ljúffengt lágkolvetnameðlæti
Mannlífið

Blóm­káls­hrís­grjón – Ljúf­fengt lág­kol­vetna­með­læti

Þegar skipt er yfir í lág­kol­vetna­matar­æði getur reynst höf­uð­verkur að finna heitt með­læti sem arf­taka. Blóm­káls­hrís­grjón eru sað­söm, lág í kol­vetnum og frá­bær leið til að auka við græn­met­is­inn­tök­una. Kart­öflur, rót­ar­græn­meti og hrís­grjón eru rík í kol­vetnum og hafa tals­verð áhrif á blóð­sykur lík­am­ans. Blóm­káls­hrís­grjón eru ein­fald­ari í eldun en venju­leg hrís­grjón. Fljót­leg­asta leiðin er að steikja þau á pönnu,...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður