„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

BÍ um takmörkun á aðgengi fjölmiðla að Grindavík: „Samræmist ekki tjáningarfrelsi fjölmiðla“

BÍ um takmörkun á aðgengi fjölmiðla að Grindavík: „Samræmist ekki tjáningarfrelsi fjölmiðla“
Eldgos í Grinda­vík. Ljósmynd/Lalli

Blaða­manna­fé­lag Íslands ítrekar kvörtun sína vegna tak­mörkun á aðgengi fjöl­miðla að hættu­svæði Grinda­víkur. 

Rétt í þessu sendi Blaða­manna­fé­lag Íslands frá sér frétta­til­kynn­ingu þess efnis að félagið hafi í gær sent lög­reglu­stjór­anum á Suð­ur­nesjum ítrekun á kvörtun sína vegna tak­mörk­unar á aðgengi fjöl­miðla að hættu­svæði í og umhverfis Grinda­vík.

Þar kemur fram að þann 22. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn hafi BÍ óskað eftir því við emb­ætti lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum að fyr­ir­mæli emb­ætt­is­ins til fjöl­miðla um aðgang þeirra að hættu­svæð­inu í og umhverfis Grinda­vík yrðu fram­vegis sett fram með skrif­legum hætti og birt opin­ber­lega, svo allir félags­menn félags­ins gætu kynnt sér efni þeirra fyr­ir­fram. Þá var einnig þess óskað að í slíkum fyr­ir­mælum yrði, með nægi­lega skýrum hætti, til­greint til hvaða svæðis þau tækju, hver gild­is­tími þeirra væri og hvernig aðgangi fjöl­miðla að svæð­inu skyldu nánar til­tekið háttað þann tíma. „Óvissa hafi ríkt um ákvarð­an­irnar, sem sam­ræm­ist ekki því tján­ing­ar­frelsi fjöl­miðla og almenn­ings sem tryggt er í stjórn­ar­skrá,“ segir í frétta­til­kynn­ing­unni.

Í erind­inu, sem sent var í gær, segir jafn­framt:

„Um leið og ítrekuð er sú ósk sem fram kemur í erindi félags­ins frá 22. nóv­em­ber 2023 er hér með óskað eftir því að emb­ætti lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum láti félag­inu í té eft­ir­far­andi gögn og upp­lýs­ingar:
1. Afrit af þeim ákvörð­unum sem emb­ættið kann að hafa tekið um aðgang fjöl­miðla að hættu­svæð­inu í og umhverfis Grinda­vík frá og með 11. nóv­em­ber 2023.
2. Upp­lýs­ingar um þau sjón­ar­mið sem lágu umræddum ákvörð­unum til grund­vallar að því leyti sem þær koma ekki fram í ákvörð­unum sjálfum, þ.m.t. upp­lýs­ingar um hvort við töku umræddra ákvarð­ana hafi verið tekið til­lit til þess hlut­verks sem fjöl­miðlar gegna í lýð­ræð­is­sam­fé­lagi við miðlun upp­lýs­inga til almenn­ings m.a. um nátt­úru­ham­farir og við­brögð stjórn­valda við þeim.

Þess er óskað að umbeðnar upp­lýs­ingar og gögn ber­ist und­ir­rit­uðum lög­manni f.h. Blaða­manna­fé­lags Íslands eigi síðar en 7. febr­úar nk. Tekið skal fram í því sam­bandi að for­senda þess að félagið geti gætt hags­muna félags­manna sinna og lagt mat á hvort ákvarð­anir lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum gangi á rétt þeirra er sú að fyrir liggi með skýrum hætti hvert sé efni hlut­að­eig­andi ákvarð­ana og hvaða sjón­ar­mið búi þeim að baki.“

Þá kemur í lokin fram í frétta­til­kynn­ing­unni að sam­tökin Blaða­menn án landamæra gagn­rýni einnig tak­mark­an­irnar en sam­tökin sendu frá sér yfir­lýs­ingu þar sem tak­mörk­unum blaða­manna að svæði er mót­mælt og yfir­völd hvött til þess að tak­mark­anir séu í sam­ræmi við til­efnið og séu gegn­sæjar og að ákvörðun um þær séu teknar í sam­ráði við full­trúa blaða­manna.

Hér fyrir neðan má sjá færslu sam­tak­anna á X-inu:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins