Í tilkynningu frá HS Orku segir að hjáveitulögnin undir hrauninu sé farin í sundur. Unnið hefur verið dag og nótt við að koma aftur heitu vatni á svæði en svo virðist sem hjáveitulögnin hafi brostið endanlega þegar aukið var við vatnsdælinguna klukkan 22:30 í gærkveldi.
Þá segir:„Staðsetningin er undir miðju hrauni, á þeim kafla þar sem það er þykkast, og því útilokað að ráðast í viðgerðir þar.“Undirbúningur að lagningu nýrrar lagnar er hafinn og er hann gerður í nánu samstarfi við almannavarnir. Þó þykir ljóst að sú framkvæmd mun taka einhverja daga. Ekki er hægt að áætla nákvæmari tímasetningar á þessari stundu.Íbúum og öðrum er bent á að fylgja
leiðbeiningum almannavarna og HS Veitna
varðandi viðbrögð í þessum erfiðu og krefjandi aðstæðum.Hér má sjá tilkynninguna í heild:


























Athugasemdir