Mikill leki er kominn í heitavatnslögnina til Grindavíkur. Verið er að leita að biluninni.
Almannavarnir ríkisins voru að senda út tilkynningu þar sem fram kemur að mikill leki sé nú í heitavatnslögninni til Grindavíkur. Þar kemur fram að þrýstingur á heitavatnslögninni sé nú mjög lágur, vegna þess að mikils leka gæti bæði á stofnæðinni til Grindavíkur og í dreifkerfinu í bænum. Leit er hafin að biluninni og verður reynt að gera við hana eins fljótt og auðið er en fram kemur í tilkynningunni að réttast hafi þótt í stöðunni að grafa niður á bilunina, í stað þess að leggja nýja lögn yfir hraunið.
Almannavarnir beinir svo fyrirmælum til þeirra Grindvíkinga sem geta farið inn á heimili sín í Grindavík en tilkynninguna og fyrirmælin má lesa hér fyrir neðan:
„Mikill leki í heitavatnslögninni til Grindavíkur
Vegna mikils leka bæði á stofnæðinni til Grindavíkur og í dreifikerfinu í bænum þá er þrýstingur á heitavatnslögninni mjög lágur. Leit er hafin að biluninni og reynt verður að gera við hana sem fyrst. Réttast þótti í stöðunni að grafa niður á bilunina frekar en að leggja nýja lögn yfir hraunið.Það er mikil áskorun fyrir almannavarnakerfið að halda uppi hita í húsum í Grindavík. Til að koma vatni um hitakerfi húsanna við þær aðstæður sem uppi hafa verið síðustu vikur og mánuði, breyttu píparar á vegum Almannavarna stillingu þrýsijafnara í inntaksgrindum og lokuðu fyrir neysluvatn og hleyptu vatni af þeim til öryggis. Þetta var talið mikilvægt að gera því það er nánast ómögulegt að tryggja eðlilega vatnsnotkun, því smávægileg breyting á stillingu þrýstijafnara eða smávægileg breyting í þrýstingi í dreifikrefinu getur þýtt að annað hvort hætti rennsli um hitakerfi húsanna alveg eða þá að rennslið stóraukist.Vegna þessa er mikilvægt að húseigendur sem fara inn í húsin sín í Grindavík hafi eftirfarandi í huga:Vegna mikils leka í stofnæð og dreifikerfi er mikilvægt að breyta ekki stillingum í inntaksgrind.Í sumum íbúðum er hiti í lægri kantinum og í öðrum er hitinn mikill. Ástæðan er sú að vegna mjög lágs þrýstings í dreifikerfinu er ómögulegt að stýra rennslinu nákvæmlega. Píparar á vegum Almannavarna lokuðu fyrir neysluvatn og tæmdu neysluvatnslagnir til að draga úr líkum á tjónum ef hiti færi aftur af byggðinni. Mikilvægt er að húseigendur opni ekki aftur fyrir neysluvatnslagnirnar af þessum sökum. á vegum Almannavarna lokuðu gluggum til að draga úr kælingu húsanna og mikilvægt er að húseigendur loki gluggum aftur þegar þeir yfirgefa íbúðir.“


























Athugasemdir