„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Liðsheildin skiptir miklu máli til að ná árangri

Liðsheildin skiptir miklu máli til að ná árangri
Ljósmynd/ Þráinn Kol­beins­son

For­síðu­við­tal í nýút­komnu tölu­blaði Víns og matar er við Snædísi, þjálf­ara íslenska kokka­lands­liðs­ins.

Snædís Xyza Mae Ocampo matreiðslumaður er þjálfari íslenska kokkalandsliðsins sem Klúbbur matreiðslumeistara heldur utan um og rekur. Hún setti markið strax hátt áður en hún hóf matreiðslunámið. Snædís er yfirmatreiðslumaður á veitingastaðnum Silfru á ION Adventure Hotel á Nesjavöllum. Uppáhaldsmaturinn er steiktur fiskur í raspi með kartöflum og remúlaði.

Snædís Xyza Mae Ocampo fædd­ist á Fil­ipps­eyjum og ólst upp á Dalvík. Hún seg­ist alltaf hafa haft áhuga á list og að vinna með hönd­unum; að skapa eitt­hvað. Hún fór að vinna sem þjónn á sushi-veit­inga­stað á Akureyri með­fram námi í textíl og vöru­hönnun við Verk­mennta­skól­ann á Akureyri og seg­ist ekki hafa fílað að vinna sem þjónn. „Mér fannst það vera erfitt og vildi frekar færa mig inn í eld­hús. Þau þjálf­uðu mig í eld­húsið og að búa til sushi. Mér fannst þetta vera ótrú­lega skemmti­legt en pældi ekk­ert í því að þetta væri eitt­hvað sem mig lang­aði til að gera.“

Tíminn leið og hug­ur­inn leit­aði suður.

„Mig lang­aði til að flytja til Reykja­víkur og hefja nám í fata­tækni í Tækni­skól­anum. Margar vin­konur mínar voru fluttar í bæinn og ég var dálítið að elta þær. Ég kláraði vetr­ar­önn­ina, flutti suður í byrjun jan­úar 2012 og gekk inn á Sushi Social og fékk vinnu í sushi-inu. Ég byrj­aði í nám­inu í Tækni­skól­anum en svo fannst mér svo ótrú­lega gaman að vinna á Sushi Social að ég var farin að skrópa í skól­ann og mæta frekar í vinn­una. Ég fann hvað mér fannst skemmti­legt að vinna í eld­húsi. Yfir­kokk­ur­inn á þeim tíma spurði mig af hverju ég færi ekki að læra kokk­inn þar sem það vant­aði fleiri kokka. Hann var alltaf að hrósa mér fyrir hvað ég væri dug­leg í vinnu. Og þarna eign­að­ist ég vini sem eru vinir mínir enn í dag. Þetta hvatti mig til að end­ur­hugsa hvað ég var að gera. Hvað ég væri að læra.“
Snædís seg­ist hafa ákveðið að taka sér árspásu frá nám­inu og fór til Fil­ipps­eyja þar sem hún hitti ætt­ingja sína og föður sinn en báðir for­eldrar hennar eru frá Fil­ipps­eyjum. Þar var hún í fimm mán­uði. Og hún íhug­aði þar hvað hún vildi gera í fram­tíð­inni.
„Ég ákvað að fara í mat­reiðslu­nám og klára það. Ég hef alltaf verið með keppn­is­skap og stefnan var að verða ein af þeim bestu. Hvernig gerði ég það? Ég var með plan. Hverjir eru bestu kokk­arnir? Og ég ákvað að kom­ast í kokka­lands­liðið. Það var mark­mið mitt alveg frá því ég fór í námið.“
Hún varð fljót­lega einn af aðstoð­ar­mönnum kokka­lands­liðs­ins og var hún einn af aðstoð­ar­mönnum þess á Ólymp­íu­leik­unum árið 2016.

Svava Jóns­dóttir tók við­talið við Snædísi sem lesa má í heild sinni hér:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forsíðuviðtal

Kokkur ársins: Mér finnst einfaldleikinn fallegastur
Mannlífið

Kokkur árs­ins: Mér finnst ein­fald­leik­inn fal­leg­astur

Sindri Guð­brandur Sig­urðs­son, mat­reiðslu­meist­ari og liðs­stjóri íslenska kokka­lands­liðs­ins, var í vor val­inn Kokkur árs­ins 2023 og voru verð­launin meðal ann­ars þátt­töku­réttur í Nordic Chef of the Year 2024 fyrir Íslands hönd. „Matur getur verið ein­stak­lega fal­legur. Mér finnst ein­fald­leik­inn fal­leg­astur og er sjálfur ekki hrif­inn af of miklum litum, heldur hrífst helst af nátt­úru­legum mat sem er stíl­hreinn. Mesta áskor­un­inn...
Guðrún Katrín og Sæmundur komu að syni sínum látnum: „Ég hef aldrei séð neinn svona veikan“
Innlentforsíðuviðtal

Guðrún Katrín og Sæmundur komu að syni sínum látnum: „Ég hef aldrei séð neinn svona veikan“

Hjónin Guðrún Katrín Sandholt og Sæmundur Steindór Magn­ús­son upp­lifðu verstu martröð flestra for­eldra þegar sonur þeirra, Magnús Andri, lést í febr­úar síð­ast­liðnum aðeins 19 ára gam­all. Hann glímdi við fíkni­sjúk­dóm og þráði að ná bata en með­ferð­ar­úr­ræði eru fá og biðlistar langir. For­eldrar Magnúsar gerðu allt sem í þeirra valdi stóð til þess að fá aðstoð fyrir son sinn. Þau...
Vilja að örlög sonar síns opni augu almennings: „Magnús kemur frá afskaplega venjulegu heimili“
Innlentforsíðuviðtal

Vilja að örlög sonar síns opni augu almenn­ings: „Magnús kemur frá afskap­lega venju­legu heim­ili“

„Það eru auð­vitað for­dómar í sam­fé­lag­inu. Það væru ekki svona mörg ung­menni að fara úr þessum sjúk­dómi án þess að það veki neina eft­ir­tekt eða við­brögð hjá land­lækn­is­emb­ætt­inu ef að það væru ekki for­dómar gagn­vart þessum sjúk­dómi. Heil­brigð­is­ráð­herra talar um þá sem eru með fíkni­sjúk­dóm sem fólk á mis­jöfnum stað. Það sýnir hvaða augum hann lítur þennan mála­flokk.“ Hjónin vilja...
Fíknisaga Magnúsar hófst á kannabisneyslu: „Síðustu þrír mánuðirnir í hans lífi voru honum erfiðir“
Innlentforsíðuviðtal

Fíkni­saga Magnúsar hófst á kanna­bis­neyslu: „Síðustu þrír mán­uð­irnir í hans lífi voru honum erf­iðir“

Magnús Andri byrj­aði í kanna­bis­neyslu, en líkt og margir aðrir taldi hann efnið ekki vera skað­legt. Sjúk­dóm­ur­inn þró­að­ist hratt, Magnús leidd­ist út í neyslu ópíóíða. Mánuði áður en hann lést var hann kom­inn með vilj­ann til þess að takast á við vanda­málið, en hjálp­ina var erfitt að fá. „Maður sá breyt­ingar á honum. Hann var mjög opin­skár við mig um...
Dísella missti röddina sama dag og hún fór í mikilvægt inntökupróf: „Það kom ekki píp út úr mér“
Innlentforsíðuviðtal

Dísella missti rödd­ina sama dag og hún fór í mik­il­vægt inn­töku­próf: „Það kom ekki píp út úr mér“

Dísella Lár­us­dóttir hefur í mörg ár starfað hjá Metropolit­anóp­eru­hús­inu í New York og fékk í vor ásamt Grammy-verð­laun ásamt sam­starfs­fólki fyrir upp­setn­ingu Metropolitan-óper­unnar á verki Philips Glass, Akhnaten. Dísella hefur þó mest verið heima frá því að Covid-far­ald­ur­inn skall á og hér býr fjöl­skyldan. Í við­tali við Reyni Trausta­son talar hún meðal ann­ars um tón­list­ina, verð­launin, ráð­legg­ing­inum sem hún vildi...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður