„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ekkert bólar á auglýsingu eftir forstjóra Ríkiskaupa – Sara Lind fær enn eina framlengingu

Ekkert bólar á auglýsingu eftir forstjóra Ríkiskaupa – Sara Lind fær enn eina framlengingu
Sara Lind Guð­geirs­dóttir er hætt hjá rík­inu – Mynd: Hringbraut – skjáskot

Fjármála- og efna­hags­ráð­herra fram­lengdi setn­ingu Söru Lindar Guð­geirs­dóttur í emb­ætti tíma­bund­ins for­stjóra Rík­is­kaupa, sem rann út 29. febr­úar, til 31. mars. Er þetta í þriðja skipti sem samn­ingur hennar er fram­lengdur frá því að hún var sett sem tíma­bund­inn for­stjóri í apríl í fyrra.

Sjá einnig: Fjár­mála­ráð­herra sak­aður um spill­ingu – Reynslu­lausri Söru Lind laumað í for­stjóra­stól

Rík­is­kaup heyrir undir Fjár­mála­ráðu­neytið en lög um rík­is­starfs­menn kveður á að aug­lýsa þurfi starf laus hjá rík­is­stofn­unum en kom­ist var hjá þeim lögum með því að ráða Söru tíma­bundið í apríl 2023, en samn­ing­ur­inn náði til loka ágúst. Forveri Söru Lindar var Björgvin Gíslason en hann lét af störfum sem for­stjóri Rík­is­kaupa og réði sig sem inn­kaupa­stjóra Bónuss. Mannlíf sendi fyr­ir­spurn á upp­lýs­inga­full­trúa Rík­is­kaupa um ráðn­ing­una á sínum tíma og fékk eft­ir­far­andi svör: „For­stjóri Rík­is­kaupa óskaði eftir að láta af störfum. Í stað hans var Sara Lind Guð­bergs­dóttir, sem var stað­geng­ill for­stjóra, settur tíma­bundið for­stjóri frá 1. apríl – 31. ágúst. Gert er ráð fyrir að staðan verði aug­lýst innan tíðar. Síðan þá hefur staðan aldrei verið aug­lýst en samn­ingnum við Söru Lind fram­lengdur þrisvar sinnum.

Hér má sjá tíma­röð­ina:

1. apríl 2023 – Sara Lind Guð­geirs­dóttir ráðin tíma­bundið sem for­stjóri Rík­is­kaupa frá 1. apríl til 31. ágúst.

31. ágúst – Samn­ingur Söru Lindar fram­lengdur til 31. des­em­ber.

31. des­em­ber – Samn­ingur Söru Lindar fram­lengdur til 29. febr­úar.

29. febr­úar – Samingur Söru Lindar fram­lengdur til 31. mars.

Slæm útreið í könnun Sameykis

Rík­is­kaup kom nokkuð illa út úr könnun Sameykis um stofnun árs­ins fyrir 2023. Heild­ar­ein­kunn stofn­un­ar­innar var 4,1 en mest var hægt að fá 5. Efsta rík­is­stofn­unin var Fram­halds­skól­inn í Vest­manna­eyjum með 4,8. Rík­is­kaup var fyrir neðan miðju á heild­ar­lista stofn­anna í könn­un­inni, einu sæti fyrir neðan Lög­regl­una á Norð­ur­landi eystra. Það sem dró Rík­is­kaup helst niður voru þrír þættir, launa­kostn­aður, ímynd stofn­un­ar­innar og stjórnun. Launa­kostn­að­ur­inn fékk 3,72 í ein­kunn, ímynd stofn­un­ar­innar 3,38 og stjórnun 3,94. Hæst skor­aði sveig­an­leiki vinn­unnar með 4,81 í ein­kunn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins