„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Júlíana Dögg var kölluð api fyrir framan hóp af fólki: „Hver stal þér?“

Júlíana Dögg var kölluð api fyrir framan hóp af fólki: „Hver stal þér?“
Júlíana Dögg upp­lifði van­mætti, sorg og reiði í síð­ustu viku – Mynd: Facebook

Háskóla­nem­inn Júlíana Dögg Önnu­dóttir Chipa greinir á sam­fé­lags­miðl­inum Facebook frá kyn­þátta­hatri sem hún varð fyrir í síð­ustu viku. Und­an­farnar vikur og mán­uði hefur umræða um kyn­þátta­hatur auk­ist á Íslandi og telja sumir að ástandið hafi ekki verið jafn slæmt fyrir minni­hluta­hópa á Íslandi í mörg ár.

„Síð­ast­liðin vika hefur verið skrítin, full af von­brigðum, van­mætti, sorg og reiði. Ég varð fyrir ras­isma tvisvar sinnum á 5 dögum. Í fyrra skiptið var ég kölluð api fyrir framan hóp af fólki og í seinna skiptið var ég spurð hvaðan ég fékk húð­lit­inn minn, ég segi að hann komi frá Mósambík og þá fæ spurn­ing­una “hver stal þér?”.“ skrifar Júlíana um málið.

„Ég ætla ekki að fara dýpra í þessi atvik en ég finn mig knúna til þess að opna þessa umræðu.

Ég skil ekki hvernig fólk í fyrsta lagi hugsar svona og í öðru lagi að það láti svona út úr sér. Hvernig má það vera að árið 2024 sé verið að kalla mig apa og ég spurð hver stal mér og hvernig ég komst til Íslands?“ spyr hún.

„Sorg­legur sann­leik­ur­inn er sá að þessi tvö atvik höfðu ekk­ert rosa­lega mikil áhrif á mig per­sónu­lega vegna þess að ég er svo vön þessu, pælið í því að ég er orðin svo vön því að verða fyrir ras­isma að þetta hefur varla áhrif á mig? En það sem hafði mest áhrif á mig og er ein stærsta ástæða þess að ég vil opna þessa umræðu er að Adeline Brynja og Ayon Rúnar litlu frændsystk­ini Agnars eru mixed race eins og ég og ég vil ekki að þau verði fyrir ras­isma á neinn hátt, það brýtur í mér hjartað að hugsa til þess að þau geta orðið fyrir áreiti fyrir það eitt að vera með dekkri húð en mörg, ég vil ekki að þau verði vön því að verða fyrir ras­isma eins og ég. Þau eiga að geta gengið í skóla, stundað íþróttir og aðrar tóm­stundir, farið út í búð, farið í sund, skemmt sér og lifað líf­inu án þess að verða fyrir ras­isma. Til­finn­ing­arnar sem ég lýsti í byrjun blossuðu upp þegar ég hugs­aði til þeirra,“ heldur Júlíana áfram en orð hennar end­ur­spegla að miklu leyti orð Brynju Dan Gunn­ars­dóttur, þing­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins, sem krafð­ist aðgerða gegn kyn­þátta­hatri á Íslandi á Alþingi fyrr í mán­uð­inum og þá sagði Atli Harð­ars­son pró­fessor að kyn­þátta­hatur á Íslandi væri sýni­legt.

„Þau eiga allt lífið eftir og ég vona að sam­fé­lagið leyfi þeim að vera þau sjálf og gefi þeim tæki­færi til þess að blómstra.

Ég var líka einu sinni bara lítil stelpa með dekkri húð en fólkið í kringum mig og það tekur á að þurfa að heyra það liggur við dag­lega að ég sé öðru­vísi. Ég hef byggt mér skjöld og reyni að leyfa þessu ekki að hafa áhrif á mig en ég vil ekki að það sé það sem þarf til þess að kom­ast af í sam­fé­lag­inu okkar. Ég bið ykkur að líta inn á við og hugsa ykkur tvisvar og jafn­vel þrisvar um áður en þið segið eitt­hvað sem við­kemur húð­lit fólks eða upp­runa. Við erum öll mann­eskjur og eigum skilið að komið sé fram við okkur öll af virð­ingu,“ skrifar Júlíana svo að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kynþáttahatur

Segir tímaspursmál hvenær skotárás verði hér á landi: „Trommað upp af siðlausu stjórnmálafólki“
Innlent

Segir tíma­spurs­mál hvenær skotárás verði hér á landi: „Trommað upp af sið­lausu stjórn­mála­fólki“

Rickard Anderson, mað­ur­inn sem tal­inn er hafa myrt 10 manns í skotárásinni í Örebro er sagður hafa stjórn­ast af hatri gegn flótta­fólki en hluti hinna myrtu komu frá Sýrlandi. Gunnar Smári Egilsson seigr það aðeins tíma­spurs­mál hvenær álíka ódæði verði framið hér. Sænskir fjöl­miðlar hafa birt mynd­skeið sem nem­andi við Ris­bergska-skól­ann í Örebro tók á meðan hann faldi sig inni...
Nýnasisti dæmdur í lífstíðarfangelsi: „Sársaukinn er óbærilegur og heldur mér vakandi allar nætur“
Heimur

Nýnas­isti dæmdur í lífs­tíð­ar­fang­elsi: „Sárs­auk­inn er óbæri­legur og heldur mér vak­andi allar nætur“

Callum Ulysses Parslow, sem hefur verið dæmdur í lífs­tíð­ar­fang­elsi fyrir að stinga inn­flytj­anda, reyndi að birta færslu á sam­fé­lags­miðlum rétt eftir árás­ina þar sem hann ætl­aði að skrifa „ég rétt í þessu að gera skyldu mína gagn­vart Englandi“ en færslan náði ekki í gegn. Reiður og svekktur Nýnas­isti sem lét húð­flúra und­ir­skrift Hitlers á hand­legg­inn á sér, hefur verið dæmdur...
Íslenskir nýnasistar lokka „stráka sem eru í sigtinu“ í dulkóðaða netspjallhópa
Afhjúpun

Íslenskir nýnas­istar lokka „stráka sem eru í sigt­inu“ í dulkóð­aða net­spjall­hópa

Meðlimir Norð­ur­vígis reyna að fela slóð sína á net­inu. Yngsti virki þátt­tak­and­inn er 17 ára, en hat­urs­orð­ræða er kynnt ung­mennum með gríni á net­inu. Aðild­ar­um­sóknir fara með tölvu­pósti til dæmds ofbeld­is­manns sem leiðir nýnas­ista á Norð­ur­lönd­unum. Norrænir nýnas­istar dvöldu í þrjá daga í skíða­skála í Blá­fjöllum fyrr í mán­uð­inum.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins