„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Vigfús hefur alltaf fiskað vel: „Þetta hefur reddast einhvern veginn“

Vigfús hefur alltaf fiskað vel: „Þetta hefur reddast einhvern veginn“
Vigfús í vinn­unni. Mynd: Aðsend

Vigfús Mark­ús­son skip­stjóri hefur gengið í gegnum raunir sem lifa með honum ævi­langt. Árið 1983 fórst Bakkavík ÁR í inn­sigl­ing­unni að Eyr­ar­bakka. Þrír bræður voru um borð. Vigfús komst einn af. Hann hélt samt áfram á sjónum og á að baki 50 ár, sem skip­stjóri lengst af. Ein af hans upp­á­halds­slóðum er Brjálaði hrygg­ur­inn.

Vigfús segir sögu sína í Sjó­ar­anum.

Brjálaði hryggurinn

Vigfús ólst upp alveg við hafið.

„Þetta sner­ist allt um báta á Bakkanum. Og þegar maður var peyi var maður að leika sér í fjör­unni. Fjaran var aðal­leik­sviðið hjá manni. Þá smíð­aði maður báta til að draga á eftir sér og svo voru peyjar á eftir manni sem voru hásetar.“

Vigfús fór í Stýri­manna­skól­ann í Vest­manna­eyjum. Þar voru með honum í bekk tveir menn sem lentu í sjó­slysum og sluppu líka.

Hann ætl­aði sér að verða sjó­maður. „Þetta var svona á þessum litlu stöðum; það var bara ekk­ert annað í boði,“ segir Vigfús og bætir við að hann hafi aldrei unnið í landi.

Vigfús kann vel við sig á sjónum.

Hann seg­ist fyrst hafa gengið á milli báta; þá var hann á rækju. Svo fór hann á Brynjólf ÁR og varð skip­stjóri. „Hann var ver­tíð­ar­bátur. Við vorum á netum, trolli og humar.“

Hann nefnir svo Álaborg frá Eyr­ar­bakka. „Ég var hjá þeim í 16-18 ár; þar sem ég hef stoppað hef ég yfir­leitt verið lengi. Svo fór ég af Ála­borg­inni yfir á Skarfinn og svo á Tómas Þor­valds­son. Ég var í 14 eða 15 ár hjá Þor­birn­inum. Tómas Þor­valds­son var gamli Héðinn og síðan breyttu þeir honum í línu­bát. Ég var á móti Sæmundi Hall­dórs­syni þar; þar fékk ég eld­skírn­ina á lín­unni.“

Vigfús hefur verið fisk­inn á ferl­inum.

„Þetta hefur redd­ast ein­hvern veg­inn. Ég hef aldrei pælt í því, en þetta hefur alltaf gengið upp.“

Brjálaði hrygg­ur­inn tog­aði svo­lítið í Vigfús. „Ætli það hafi ekki verið veðrið. Alltaf vit­laust veður þar.“

Og í hitti­fyrra fór hann að fara út á Dohrn-banka og segir hann veið­ina þar vera mjög góða. „Og mjög góður fiskur. Hann var allur mass­aður ein­hvern veg­inn. Stífur.“

Vigfús segir að hann hafi verið heppn­astur í veið­inni þegar hann var með Brynjólf. „Þá var ég á vík­inni – við Vík í Mýrdal – og við vorum á trolli. Það voru tvö höl á sól­ar­hring. Þá brun­aði ég í Þor­láks­höfn og land­aði og svo bara út aftur. Þetta heppn­að­ist.“

Vigfús segir að það sé óhemju­mikið af fiski við landið. Hann er spurður hvort það viti ekki allir í kerf­inu um það. „Það sem maður hefur heyrt eins og á Dohrn-bank­anum; ég held að þessi fiskur sé ekki inni í kerf­inu.“

Eru menn ekk­ert að auka kvóta í sam­ræmi við alla þessa veiði? „Nei, það er frekar á hinn veg­inn finnst manni.“

Vigfús var á Örvari SH 777 fram að ára­mótum en þá var Örvar seldur til Pat­reks­fjarðar. Og núna er hann á Rifsnesi SH 44.

Sjá þátt­inn í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Sjóarinn

Jóhannes í Skáleyjum átti ekki í vandræðum með kvenfólkið: „Guð sendi mér þrjár konur“ EINKAVIÐTAL
InnlentSjóarinn

Jóhannes í Skál­eyjum átti ekki í vand­ræðum með kven­fólkið: „Guð sendi mér þrjár konur“ EINKAVIÐTAL

Jóhannes Gíslason er nýjasti gestur Reynis Trausta­sonar í Sjó­ar­anum. Jóhannes var lengi bóndi í Skál­eyjum í Breiða­firði ásamt Eysteini bróður sínum. Áður bjó hann í Flatey. Hann segir frá Eyja­líf­inu þar sem eini sam­göngu­mát­inn var sjó­leið­ina. Hann segir frá dag­legu lífi á eyj­unni. Jóhannes gift­ist einni konu á ævinni og átti með henni nokkur börn. Samtals gaf þó Guð honum...
Unnar Gísli heldur alltaf í trúna: „Þú ert trúlaus stuttan tíma í sjónum“
Innlent

Unnar Gísli heldur alltaf í trúna: „Þú ert trú­laus stuttan tíma í sjónum“

Júníus Meyvant er tón­list­ar­maður sem flestir þekkja. Færri vita að hann heitir Unnar Gísli Sig­ur­munds­son og er bor­inn og barn­fæddur í Vest­manna­eyjum. Hann á að baki stuttan en magn­aðan sjó­manns­feril á tog­ar­anum Breka VE. Seinna lærði hann á gítar og hefur nú náð frægð víða um heim. Frægðin stígur honum ekki til höf­uðs. Hann býr ásamt eig­in­konu og börnum í...
Fyrsta sjóferð Unnars Gísla misheppnaðist illa: „Það er bara reykur út um allt“
Innlent

Fyrsta sjó­ferð Unnars Gísla mis­heppn­að­ist illa: „Það er bara reykur út um allt“

Júníus Meyvant er tón­list­ar­maður sem flestir þekkja. Færri vita að hann heitir Unnar Gísli Sig­ur­munds­son og er bor­inn og barn­fæddur í Vest­manna­eyjum. Hann á að baki stuttan en magn­aðan sjó­manns­feril á tog­ar­anum Breka VE. Seinna lærði hann á gítar og hefur nú náð frægð víða um heim. Frægðin stígur honum ekki til höf­uðs. Hann býr ásamt eig­in­konu og börnum í...
Steinunn og Egill innsigluðu sambandið á siglingu: „Ákváðum að nú væri tími til að byrja saman“
InnlentSjóarinn

Steinunn og Egill inn­sigl­uðu sam­bandið á sigl­ingu: „Ákváðum að nú væri tími til að byrja saman“

Steinunn Ein­ars­dóttir er nýjasti gestur Reynis Trausta­sonar í hlað­varps­þætt­inum Sjóarinn. Steinunn var sjó­maður um ára­bil á báti for­eldra sinna. Steinunn hætti á sjó eftir að hún eign­að­ist seinni son sin, árið 2015, eftir að hafa verið á sjó í 12 ár. Hún segir Reyni frá því hvernig hún og eig­in­maður hennar, skip­stjór­inn Egill Ólafsson, inn­sigl­uðu sam­band sitt. „Hann er skip­stjóra­mennt­aður...
Kristján missti allt í Hruninu: „Þegar maður vaknaði var allt farið“
InnlentSjóarinn

Kristján missti allt í Hruninu: „Þegar maður vakn­aði var allt farið“

Kristján Berg Ásgeirs­son, eða Fiski­kóng­ur­inn eins og hann er gjarnan kall­aður og eig­andi Heitra potta, hefur verið þekkt­asti fisk­sali á Íslandi um ára­bil en hann hefur selt Íslend­ingum fisk í yfir þrjá­tíu ár. Frum­legar aug­lýs­ingar hans hafa gjarna vakið athygli og þá hefur hann oftar en ekki ratað í fjöl­miðla vegna hinna ýmissa mála. Kristján Berg er nokkuð hisp­urs­laus á...
Kristján Berg opnar sig um fangelsisvistina: „Ég þreif þar oft blóð af veggjum“
InnlentSjóarinn

Kristján Berg opnar sig um fang­els­is­vist­ina: „Ég þreif þar oft blóð af veggjum“

Kristján Berg Ásgeirs­son, eða Fiski­kóng­ur­inn eins og hann er gjarnan kall­aður og eig­andi Heitra potta, hefur verið þekkt­asti fisk­sali á Íslandi um ára­bil en hann hefur selt Íslend­ingum fisk í yfir þrjá­tíu ár. Frum­legar aug­lýs­ingar hans hafa gjarna vakið athygli og þá hefur hann oftar en ekki ratað í fjöl­miðla vegna hinna ýmissa mála. Kristján Berg er nokkuð hisp­urs­laus á...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins