„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Helga Þórisdóttir: „Staðfesta mín hefur farið fyrir brjóstið á valdamiklu fólki á æðstu stöðum“

Helga Þórisdóttir: „Staðfesta mín hefur farið fyrir brjóstið á valdamiklu fólki á æðstu stöðum“
Helga Þór­is­dóttir. Mynd: helgathorisdottir.is

Helga Þór­is­dóttir for­seta­fram­bjóð­andi er á því að þjóðin ráði hversu lengi for­seti sitji í emb­ætti. Segist hún vilja setja þjóð­ina sjálfa á stall, verði hún kosin. Þá finnst henni lifrapylsa með edik­blöndu besti þorra­mat­ur­inn.

Helga svar­aði spurn­inga­lista Mannlífs en hér má sjá svörin:

Uppáhaldsstaður á Íslandi?

Við  hlið­ina á mann­inum mínum 🙂

Á forseti að sitja lengur en tvö kjörtímabil?

Þjóðin getur kosið nýjan for­seta á fjög­urra ára fresti. Það er ekki for­set­ans að ákveða hvað hann situr lengi.

Hvaða breytingar viltu sjá á stjórnskipan Íslands?

Ég sé enga brýna þörf fyrir breyt­ingar á stjórn­skipan Íslands.

Hver er þinn uppáhaldsforseti?

Vigdís Finn­boga­dóttir.

Finnst þér að gera eigi kröfu um fleiri fjölda með­mæl­enda fram­bjóð­enda til emb­ættis for­seta Íslands?

Mér finnst það ekki.

Hver er þín helsta fyrirmynd í lífinu?

Vigdís Finn­boga­dóttir, Iris Apfel og Ruth Baderg­ins­burg.

Hver er uppáhaldstónlist þín?

Suðræn sveifla. Svo finnst mér voða­lega gott að hlusta á það sem Gull-Bylgjan spilar fyrir mig.

Hefurðu neytt ólöglegra fíkniefna?

Nei.

Gerði Ólafur Ragnar Grímsson rétt með því að beita neitunarvaldinu á sínum tíma?

Já.

Hver var stærsta stundin í lífi þínu?

Fæðing barn­anna okkar hjóna – allra þriggja.

Hver eru mestu vonbrigðin?

Ég hef verið það heppin að það eru engin stór­kost­leg von­brigði sem sitja í mér.

Fallegasta ljóðið?

Hótel jörð. Tómas Guð­munds­son.

Besta skáldsagan?

Aðventa, Gunnars Gunn­ars­sonar.

Hvað er það besta við Ísland?

Náttúran og ferska loftið.

Kanntu á þvottavél?

Já.

Ef þú ættir eina ósk, Íslendingum til hagsbóta, hver væri hún?

Að við vinnum saman að betra sam­fé­lagi.

Að þínu mati, hvert er helsta hlutverk forseta Íslands?

Að vera þjónn þjóð­ar­innar. Setja sjálfan sig ekki á stall. Vera í lif­andi sam­bandi við fólkið í land­inu og láta hags­muni almenn­ings, áhyggjur og vænt­ingar vera sitt leið­ar­ljós.

Borðarðu þorramat?

Já. Best finnst mér lifrapylsa með edik­blöndu.

Ertu rómantísk/ur?

Já ég er róm­an­tísk. Það gerir lífið betra.

Í stuttu máli; hvers vegna ætti að kjósa þig til embættis forseta Íslands?

Ég hef síð­ustu átta ár í starfi for­stjóra Per­sónu­verndar varið frið­helgi einka­lífs okkar allra. Ég hef varið það fyrir stór­fyr­ir­tækjum, sem ásæl­ast við­kvæmar upp­lýs­ingar um heilsu­far ykkar, fjár­mála­stofn­unum sem vilja dreifa upp­lýs­ingum um fjár­hags­stöðu ykkar og mennta­stofn­unum sem vilja safna upp­lýs­ingum um börnin ykkar í gegnum smá­forrit í kennslu­stof­unum. Þessi stað­festa mín hefur farið fyrir brjóstið á valda­miklu fólki á æðstu stöðum. Þannig hef ég meira að segja verið gagn­rýnd af ráð­herrum rík­is­stjórn­ar­innar fyrir það eitt að fara að lögum.Ef ein­hver er að hugsa um for­set­ann sem mik­il­vægan örygg­is­ventil þá á erindi mitt ekki að vefj­ast fyrir neinum.Sem for­seti verð ég ekki sam­nefn­ari þjóð­ar­innar heldur þjónn hennar. Ég mun ekki setja sjálfa mig á stall heldur þjóð­ina.Þess vegna verð ég í lif­andi sam­bandi fólkið í land­inu. Hags­munir almenn­ings, áhyggjur, öryggi og vænt­ingar verða mitt leið­ar­ljós.

Mannlíf lagði spurn­inga­lista fyrir þeim fram­bjóð­endur sem náð hafa lág­marks­fjölda með­mæla, svo þjóðin fái að kynn­ast þeim betur. Munu svör fram­bjóð­end­anna vera birt á næstu vikum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2024

Arnar Þór skuldar starfsmönnum forsetaframboðsins laun: „Ég vil fá skýringar á því hvað þetta var“
InnlentForsetakosningar 2024

Arnar Þór skuldar starfs­mönnum for­seta­fram­boðs­ins laun: „Ég vil fá skýr­ingar á því hvað þetta var“

Arnar Þór Jónsson, hæsta­rétt­ar­lög­maður og stofn­andi Lýð­ræð­is­flokks­ins hefur enn ekki greitt laun nokk­urra aðila sem störf­uðu við for­seta­fram­boð hans á þessu ári. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs skuldar Arnar Þór Jónsson laun nokk­urra ein­stak­linga sem unnu við for­seta­fram­boð hans fyrr á árinu. Um er að ræða umtals­verðar upp­hæðir sam­kvæmt heim­ild­unum en Arnar Þór segir í sam­tali við Mannlíf eiga aðeins eftir að...
Ástþór þögull um fjármögnun á framboði Ásdísar: „Ég er langflottasti forsetinn“
InnlentForsetakosningar 2024

Ástþór þög­ull um fjár­mögnun á fram­boði Ásdísar: „Ég er lang­flott­asti for­set­inn“

Ástþór Magn­ús­son, sexfaldur fram­bjóð­andi til for­seta Íslands, vill ekki upp­lýsa strax hvort hann muni fjár­magna vænt­an­leg for­seta­fram­boð Ásdísar Ránar Gunn­ars­dóttur en hún lýsti því yfir kosn­inga­vöku sinni fyrr á þessu ári. „Ég er offisjalí búin að taka að mér frið­ar­málin, þannig að þið megið búast við mér á 4-8 ára fresti næstu 30 árin,“ sagði for­seta­fram­bjóð­and­inn og fyr­ir­sætan einnig. „Ég...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins