„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Sigríður dýralæknir „algjörlega ósammála“ MAST: „Þarna eru dýr sem þjást“

Sigríður dýralæknir „algjörlega ósammála“ MAST: „Þarna eru dýr sem þjást“
Ær með nýfætt lamb sem hún bar úti. Mynd: Steinunn Árnadóttir

Sigríður Inga Sig­ur­jóns­dóttir, dýra­læknir er „algjör­lega ósam­mála“ setts yfir­dýra­læknis hjá Mat­væla­stofnun, sem segir ástandið á kind­unum í Þver­ár­hlíð sé ýkt.

Þor­valdur H. Þórð­ar­son, settur yfir­dýra­læknir hjá MAST sagði í fréttum í gær að stofn­unin hafi farið fram á að gerðar verði tals­verðar umbætur á sauð­fjár­bú­skapi bónda­bæj­ar­ins Höfða í Borg­ar­firði en hann telji ástandið ekki eins slæmt og fólk hefur haldið fram. Segir hann það ýkt.

Steinunn Árna­dóttir, sem hefur haft sig hvað mest í frammi í mál­inu, fór ásamt dýra­lækn­inum Sigríði Ingu Sig­ur­jóns­dóttur í Þver­ár­hlíð og skoð­uðu aðstæður kind­anna og voru báðar sam­mála um að ástandið sé grafal­var­legt.

„Ég mátti til að skoða aðstæður í Þver­ár­hlíð eftir að hafa hlustað á settan yfir­dýra­lækni í hádeg­is­fréttum Bylgj­unnar,“ segir Steinunn í Facebook-færslu frá því í gær­kvöldi. Og heldur áfram: „Kom þetta meðal ann­ars fram hjá settum yfir­dýra­lækni:

„Við teljum að við séum að sinna skyldum okkar að fullu“„Ástandið ekki eins slæmt og menn vilja vera láta“„Fé sem sýna skalla­merki eru ekki merki um veik­indi“

„Ekki mikið um van­höld eða hor á fé“.“

En Steinunn tók þó eftir nokkrum breyt­ingum á ferð sinni um svæðið:

„Breyt­ingar sem ég sá að eitt kar var komið nýtt og rann þar alveg ,,heil­næmt vatn“ (sjá af heima­síðu Mast)Búið er að merkja ein­hver lömb.

En mynd­irnar tala sínu máli sem endra nær. Ég hafði dýra­lækni með mér í för og var hún í miklu upp­námi að sjá þessar aðstæður.“

Þá segir Steinunn að hópur af kindum sé kom­inn á næstu bæi og jarðir og að nágrann­arnir hafi ekki undan að keyra þeim til heim.

„Kind­urnar eru komnar í hópum á næstu bæi og jarðir. Nágrannar hafa ekki undan að keyra heim eða til­segja umkomu­laust, illa hirt fé úr þess­ari Hryll­ings­sögu.

Nýfætt lamb í veg­kant­inum með móður sinni. Ekkert fóður nálægt. Lítið lamb án móður jarm­aði án afláts. Eig­and­inn var beð­inn af dýra­lækn­inum að sinna þessu lambi. Það bar ekki árangur. Þrjátíu hrafnar voru nokkuð glaðir í svifi yfir kræs­ingar. Það má kannski segja að Hryll­ings­búið sé alveg sér­stak­lega hrafn­vænt.“

Kind sem yfir­dýra­læknir MAST segir í lagi með.

Að lokum segir Steinunn að kind­urnar frá bænum séu ekki 300 eins og eig­and­inn sagði í fréttum Bylgj­unnar, heldur mun fleiri.

„Ég var beðin sér­stak­lega að það kæmi fram að fórn­ar­lömbin í þess­ari Hryll­ings­sögu eru ekki 300 eins og eig­and­inn laug til um í fréttum Bylgj­unnar. Talan er ca 760 stk. Það er þetta með lyg­ina!“

Ljótt að sjá.

Sigríður Inga Sig­ur­jóns­dóttir, dýra­lækn­ir­inn sem fór með Stein­unni í Þver­ár­hlíð í gær, skrif­aði einnig Facebook-færslu þar sem hún seg­ist „Algjör­lega ósam­mála“ setts yfir­dýra­læknis hjá MAST, um að ástandið sé ýkt:

„Í dag sá ég ömur­lega búskap­ar­hætti, þar sem dýr þjást. Skýtið að settur yfir­dýra­læknir finn­ist þetta ástand ýkt. Ég er algjör­lega ósam­mála honum. Þarna eru dýr sem þjást. Eins ömur­legt og það hljómar. Lítið lamb ný fætt. Blautt. 2. gráðu loft hiti. Þrjátíu hrafnar sveim­andi yfir umkomu­lausu dýr­unum. Sigríður Inga Sig­ur­jóns­dóttir, dýra­læknir.“

Mannlíf ræddi við Sigríði Ingu og spurði hana nánar út í færsl­una. Sigríður stendur við færsl­una og segir: „Það er búið að vera að bera úti. Í gær var eitt lítið lamb þarna, nýfætt og ennþá blautt og það voru um fimm gráður en útaf vind­kæl­ing­unni var um tveggja gráður hiti. Og svo var annað lamb þarna sem hafði orðið við­skila við móður sína og það þarf auð­vitað að finna út úr því en það var eng­inn að gera það. Og þetta lamb bara jarm­aði þarna og á þriðja tug hrafna vafr­andi þarna yfir. Það var eitt lokað af í girð­ingu og eng­inn að hugsa um þetta lamb. Mér finnst þetta mjög sorg­legt.“

Umkomu­laust lamb.

Þá nefndi Sigríður annað dæmi: „Ég tók sér­stak­lega eftir einu. Það var kind þarna sem var með tvö lömb, sem litu vel út en hún var bara á fullu að bíta gras því það er svo lítið gras komið og hún hafði varla undan að éta því það er svo lítið sem hún fær í einu. En ég get svo sem ekk­ert vitað hvernig hold­ar­farið á henni var en þetta eru mjög óvenju­legar aðstæður.“

Mannlíf spurði Sigríði nánar út í orð yfir­dýra­lækn­is­ins sem sagði ástandið ýkt af fólki. „Ég er ekki sam­mála því að það sé allt í lagi. Ég er ekki sam­mála því, vænt­an­lega. Og ef þeir eru með eitt­hvað í ferli þá geta þeir bara verið með það en ég get ekki séð að ein­hver sé að fylgj­ast með þessu. Hvernig get­urðu fylgst með ám úti um allar trissur í burði? Allir mínir bændur eru með kind­urnar í húsi og þegar þær eru búnar að bera og það er komið gott veður, þá fara þær út og allt í fínu lagi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dýravelferð

Leðurblakan gæti hafa verið smituð af hundaæði eða SARS – Senda sýni til Svíþjóðar
Innlent

Leð­ur­blakan gæti hafa verið smituð af hunda­æði eða SARS – Senda sýni til Sví­þjóðar

Sýni úr leð­ur­blök­unni sem fannst í Hlíðunum í Reykja­vík á þriðju­dag­inn verður sent til Sví­þjóðar til grein­ingar í næstu viku. Athuga á hvort blakan hafi verið smituð af hunda­æði eða SARS-veiru, áður en frek­ari rann­sóknir á henni fara fram. RÚV segir frá því að sýni úr leð­ur­blök­unni sem var nöppuð í Hlíðunum í Reykja­vík á þriðju­dag­inn og aflífuð, verði sent...
Anna er orðin kisupía: „Það þykir öllum ofurvænt um Knúsu“
Menning

Anna er orðin kisu­pía: „Það þykir öllum ofur­vænt um Knúsu“

Anna Krist­jáns­dóttir fræðir vini og aðdá­endur sína allt um upp­á­halds dýrið sitt, kött­inn Knúsu, sem lent hefur í ýmsu á sinni löngu ævi. Í nýjust dag­bók­ar­færslu sinni birtir Anna Krist­jáns­dóttir ljós­myndir af kett­inum Knúsu og segir frá raunum hennar. Tilefnið er það að Anna er nú orðin kisu­pía. „Þá er komið að því. Inga er farin til Íslands í stutta...
Ágúst Ólafur vill stöðva refaveiðar: „Friðum íslenska landnemann!“
Innlentdýravelferð

Ágúst Ólafur vill stöðva refa­veiðar: „Friðum íslenska land­nem­ann!“

„Villta dýra­lífið er svo fábreytt á Íslandi að þegar við teljum teg­und­irnar sjö upp þá teljum við mýsnar og rott­urnar tvisvar (húsa­mús, haga­mús, brún­rotta og svartrotta). Eini raun­veru­legi land­nemi Íslands er hins vegar heim­skauta­ref­ur­inn sem er ein­stakur hér á landi. Þrátt fyrir það erum við að drepa um 7.000 refi á hverju ári í stofni sem er litlu stærri en...
Kom að lambi sjúga spena dauðrar móður sinnar: „Ég fékk að heyra að ég væri „djöfuls viðbjóður“.“
Innlentdýravelferð

Kom að lambi sjúga spena dauðrar móður sinnar: „Ég fékk að heyra að ég væri „djöf­uls við­bjóður“.“

Steinunn Árna­dóttir kom að lambi sjúga spena dauðrar móður sinnar í Þver­ár­hlíð. Bar­áttu­konan og org­el­leik­ar­inn Steinunn Árna­dóttir lýsti ansi nöt­ur­legum aðstæðum í Þver­ár­hlíð­inni í Borg­ar­firði en hún hefur verið afar ötul við að benda á hræði­legt ástand á kindum af bænum Höfða í Borg­ar­nesi. Margar þeirra ganga lausar um allra tryssur í Þver­ár­hlíð­inni og bera lömb undir vök­ulum augum rán­dýra....
Segir sögusagnir um ánægðju með lagareldisfrumvarpið ósannar: „Þetta má aldrei verða að lögum!“
Innlent

Segir sögu­sagnir um ánægðju með lagar­eld­is­frum­varpið ósannar: „Þetta má aldrei verða að lögum!“

Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir segir orðróm í gangi um að nátt­úru- og land­vernd­ar­sam­tök séu ánægð með breyt­ingar sem gerðar hafi verið á lagar­eld­is­frum­varp­inu, ósannan. Hvetur hún Íslend­inga til að skrifa nafn sitt á und­ir­skrift­ar­lista gegn frum­varp­inu. „Tæplega 7000 manns hafa skrifað undir og nú verður fólk að spíta í lóf­ana og skrifa undir og deila eins og mest það má. Und­ir­skrifta­lista...
„Þrátt fyrir augljós brot eigenda hefur Mast ekki varið velferð umræddra dýra“ – NÝJAR MYNDIR
Innlentdýravelferð

„Þrátt fyrir aug­ljós brot eig­enda hefur Mast ekki varið vel­ferð umræddra dýra“ – NÝJAR MYNDIR

Ástandið á ágang­skind­unum frá Höfða í Borg­ar­firði hefur ekki batnað, ef marka má ljós­myndir sem Mannlíf tók í gær. Kindur, hreyfi­haml­aðar vegna marg­faldra reifa, halda til í tún­inu. Dæmi voru um haltar og veikar kindur. Talsvert var einnig um fé utan girð­inga Steinunn Árna­dóttir, org­el­leik­ari og bar­áttu­kona, hefur verið afar dug­leg við að vekja athygli á skelfi­legu ástandi kinda af...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins