„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Helstu vonbrigði Viktors: „Að Selma hafi verið rænd sigrinum í Evrósjón“

Helstu vonbrigði Viktors: „Að Selma hafi verið rænd sigrinum í Evrósjón“
Viktor Trausta­son Mynd: Viktor Traustason – Wikipedia

Ólafur Ragnar Grímsson er upp­á­halds for­seti Viktors Trausta­sonar, for­seta­fram­bjóð­anda. Helsta fyr­ir­mynd hans er kvik­mynda­k­arakter og hann borðar þorra­mat en bara þegar hann er í boði. Þá vill hann breikka þjóð­veg­inn og heldur upp á ljóðið Slysa­skot í Palest­ínu.

Uppáhaldsstaður á Íslandi?

Kólus­botnar.

Á forseti að sitja lengur en tvö kjörtímabil?

Í stjórn­ar­skrá er engin krafa um það að for­seti sitji lengur en kjör­tíma­bilið eftir að hann er kjör­inn. Einnig er það ekki ákvörðun sem for­seti sjálfur getur tekið heldur þarf hann ávallt umboð frá kjós­endum.

Hvaða breytingar viltu sjá á stjórnskipan Íslands?

Fyrst, þrí­skipt­ingu rík­is­valds­ins, þar sem ráð­herrar eru ekki að sinna þing­mennsku. Næst, mál­skots­rétt sem er ekki byggður á geð­þótta einnar mann­eskju, svo að þjóðin geti stöðvað þing­menn þegar starf þeirra sam­ræm­ist ekki vilja þjóð­ar­innar. Að lokum, að öll atkvæði í kosn­ingum fái vægi þannig að þing­menn geti ekki lengur myndað meiri­hluta á þingi án þess að hafa einnig hlotið umboð frá meiri­hluta kjós­enda.

Hver er þinn uppáhaldsforseti?

Ólafur Ragnar. Hann skaut máli til þjóð­ar­innar, veitti ráð­herrum lausn og skip­aði ráð­herra sem ekki voru þing­menn.

Finnst þér að gera eigi kröfu um fleiri fjölda með­mæl­enda fram­bjóð­enda til emb­ættis for­seta Íslands?

Ég veit það ekki. Ég hef aldrei séð grein­ingu á mögu­legum áhrifum þess. Ég hef ekki heldur séð grein­ingu frá því þessi fjöldi var upp­runa­lega ákveð­inn. Ég er ekki heldur með það á hreinu hver til­gang­ur­inn með þessum fjölda er, en það er ekki sjálf­gefið að þessi tala sé í föstu hlut­falli við fólks­fjölda.

Hver er þín helsta fyrirmynd í lífinu?

Dr. Alan Grant. Hann er vís­inda­maður sem vinnur með hönd­unum og berst við risa­eðlur á meðan hann bjargar börnum.

Hver er uppáhaldstónlist þín?

Flakka á milli diskó­fönks, hopp­skopps, kön­trý og vagg og veltu.

Hefurðu neytt ólöglegra fíkniefna?

Ég hef gert alls kyns hluti en ég sé ekki ástæðu til þess að fara út í smá­at­riði. Verum fyr­ir­mynd.

Gerði Ólafur Ragnar Grímsson rétt með því að beita neitunarvaldinu á sínum tíma?

Nið­ur­staða þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu stað­festi það tví­mæla­laust.

Hver var stærsta stundin í lífi þínu?

Síðustu tvær vikur hafa verið mjög lengi að líða.

Hver eru mestu vonbrigðin?

Að Selma hafi verið rænd sigrinum í Evrósjón.

Fallegasta ljóðið?

Hótel Jörð og Slysa­skot í Palest­ínu hafa alltaf verið í upp­á­haldi.

Besta skáldsagan?

Veröld Soffíu eftir Jostein Gaarder hafði mikil áhrif á mig sem barn.

Hvað er það besta við Ísland?

Ef að maður keyrir beint nógu lengi endar maður aftur á sama stað.

Kanntu á þvottavél?

Ég kann á nokkrar slíkar.

Ef þú ættir eina ósk, Íslendingum til hagsbóta, hver væri hún?

Breiðari hring­veg.

Að þínu mati, hvert er helsta hlutverk forseta Íslands?

Forseti þarf að skipa ráð­herra, skrifa undir lög og stefna saman Alþingi.

Borðarðu þorramat?

Þegar hann er í boði.

Ertu róm­an­tísk/ur?

Já, en ég reyni samt að tak­marka mig ekki við eina bók­mennta­stefnu.

Í stuttu máli; hvers vegna ætti að kjósa þig til embættis forseta Íslands?

Það sem ég hef fram á að bjóða eru skýr og ein­föld stefnu­mál sem stuðla að þverpóli­tískri sátt og póli­tískum stöð­ug­leika.

Mannlíf lagði spurn­inga­lista fyrir for­seta­fram­bjóð­endur, svo þjóðin fái að kynn­ast þeim betur. Munu svör þeirra fram­bjóð­end­anna sem ekki hafa verið nú þegar verið birt, birt­ast á næstu vikum, svari þau á annað borð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forsetaframboð

Arnar Þór skuldar starfsmönnum forsetaframboðsins laun: „Ég vil fá skýringar á því hvað þetta var“
Innlentforsetaframboð

Arnar Þór skuldar starfs­mönnum for­seta­fram­boðs­ins laun: „Ég vil fá skýr­ingar á því hvað þetta var“

Arnar Þór Jónsson, hæsta­rétt­ar­lög­maður og stofn­andi Lýð­ræð­is­flokks­ins hefur enn ekki greitt laun nokk­urra aðila sem störf­uðu við for­seta­fram­boð hans á þessu ári. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs skuldar Arnar Þór Jónsson laun nokk­urra ein­stak­linga sem unnu við for­seta­fram­boð hans fyrr á árinu. Um er að ræða umtals­verðar upp­hæðir sam­kvæmt heim­ild­unum en Arnar Þór segir í sam­tali við Mannlíf eiga aðeins eftir að...
Ástþór þögull um fjármögnun á framboði Ásdísar: „Ég er langflottasti forsetinn“
Innlentforsetaframboð

Ástþór þög­ull um fjár­mögnun á fram­boði Ásdísar: „Ég er lang­flott­asti for­set­inn“

Ástþór Magn­ús­son, sexfaldur fram­bjóð­andi til for­seta Íslands, vill ekki upp­lýsa strax hvort hann muni fjár­magna vænt­an­leg for­seta­fram­boð Ásdísar Ránar Gunn­ars­dóttur en hún lýsti því yfir kosn­inga­vöku sinni fyrr á þessu ári. „Ég er offisjalí búin að taka að mér frið­ar­málin, þannig að þið megið búast við mér á 4-8 ára fresti næstu 30 árin,“ sagði for­seta­fram­bjóð­and­inn og fyr­ir­sætan einnig. „Ég...
Katrín Jakobsdóttir játar ósigur fyrir Höllu Tómasdóttur: „Ég óska henni bara til hamingju“
Innlentforsetaframboð

Katrín Jak­obs­dóttir játar ósigur fyrir Höllu Tóm­as­dóttur: „Ég óska henni bara til ham­ingju“

Halla Tóm­as­dóttir verður næsti for­seti Íslands í ágúst í sumar þegar Guðni Th. Jóhann­es­son lætur af emb­ætti. Halla hafði fengið um 31,5 pró­sent atkvæða þegar 128 þús­und atkvæði höfðu verið talin í morgun. Katrín Jak­obs­dóttir, frá­far­andi for­sæt­is­ráð­herra, var í öðru sæti með 25,9 prósmnet greiddra atkvæða. Halla Hrund Loga­dóttir var í þriðja sæti með 15,7 pró­sent atkvæða. Víst er að...
Eiginkonan ver Arnar Þór: „Furða mig á hve orðljótar samræður hér eru“
Innlentforsetaframboð

Eig­in­konan ver Arnar Þór: „Furða mig á hve orð­ljótar sam­ræður hér eru“

Eig­in­kona Arnars Þórs Jóns­sonar for­seta­fram­bjóð­anda ver eig­in­mann sinn í Mæðratips-hópnum á Facebook. Í dag birti Hrafn­hildur Sig­urð­ar­dóttir, eig­in­kona Arnars Þórs Jóns­sonar for­seta­fram­bjóð­anda, færslu inni á Mæðratips þar sem hún tekur upp hansk­ann fyrir eig­in­mann sinn og furðar sig á orð­ljótri sam­ræður í Facebook-hópnum. „Ég er knúin til að skrifa hér inn nokkrar línur eftir að hafa lesið fjöl­margar færslur þar...
Halla Hrund fagnar 10 ára brúðkaupsafmæli: „Kristján er frábær dansfélagi í gegnum lífið“
Menning

Halla Hrund fagnar 10 ára brúð­kaups­af­mæli: „Kristján er frá­bær dans­fé­lagi í gegnum lífið“

Halla Hrund Loga­dóttir og Kristján Freyr Krist­jáns­son fagna 10 ára brúð­kaups­af­mæli sínu í dag. For­seta­fram­bjóð­and­inn Halla Hrund Loga­dóttir skrif­aði rétt í þessu fal­lega Facebook-færslu þar sem hún segir frá 10 ára brúð­kaups­af­mæli hennar og eig­in­manns hennar, Krist­jáns Freys Krist­jáns­sonar. Í færsl­unni segir hún meðal ann­ars að lífið sé „ekki alltaf salsa eða tangó“ heldur stundum „trega­fullur vals“. Halla Hrund og...
Frægir fylgjendur forsetaframbjóðenda – Hver kýs hvern?
Menning

Frægir fylgj­endur for­seta­fram­bjóð­enda – Hver kýs hvern?

Mannlíf tók saman hvaða þjóð­þekktu ein­stak­lingar styðja hvaða for­seta­fram­bjóð­anda, nú þegar stutt er í kosn­ingar. Fjöl­margir hafa síð­ustu vikur verið dug­legir að láta í ljós stuðn­ing sinn við hina og þessa for­seta­fram­bjóð­endur en kosn­ingin fer fram á laug­ar­dag­inn. Bæði hefur sót­svartur almúg­inn tjáð sig á Facebook og öðrum miðlum, og látið í ljós ánægju sína og sam­þykkti við þann for­seta­fram­bjóð­anda...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Menning

Menning

Hundurinn hans Dwayne Johnson dó í nótt: „Ég hef verið dofinn yfir þessum missi“

Menning

The Highwaymen heiðraðir í Hörpu: „Fullt af tímalausum smellum og anda kántrítónlistar“

Menning

DJ Khaled og 6ix9ine fengu báðir óhugnanlegar líkkistur sendar heim til sín: „RIP Drake“

Menning

Friðrik Dór hugsar um lygar

Menning

Myrkvi gefur út þriðju breiðskífu sína – Vonast til þess að slá vopnin úr höndum tímans

Menning

Bubbi og Frikki Dór styðja fórnarlömb þjóðarmorðsins á Gaza