„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Einlægur Jón um Jógu sína: „Samband okkar byggir á trausti, vináttu og virðingu“

Einlægur Jón um Jógu sína: „Samband okkar byggir á trausti, vináttu og virðingu“
Jón Gnarr og Jóga. Mynd: Facebook

Jón Gnarr opnar sig um eig­in­konu sína, Jógu í nýrri Facebook-færslu.

For­seta­fram­bjóð­and­inn og leik­ar­inn Jón Gnarr skrif­aði langa og ein­læga Facebook-færslu þar sem hann talar um eig­in­konu sína sem hann hefur verið með í um 25 ár.

„Við hjónin höfum verið sam­ferða í líf­inu í ald­ar­fjórð­ung. Við höfum aldrei skilið en frekar reynt að leggja okkur fram um að skilja hvort annað. Ég segi oft í gríni að hún hafi séð mig einsog margir sem sjá gamlan bíl og hugsa „Þennan mætti nú gera upp“.“ Þannig hefst færsla Jóns. Síðan segir Jón frá því hvernig þau kynnt­ust og eys yfir hana lofi:

„Við kynnt­umst í gegnum sam­eig­in­lega vini. Ég hafði líka stundum leitað til hennar í erf­ið­leikum og fengið lán­aða hennar mögn­uðu leið­sögn og dóm­greind. Jóga mín er nefni­lega ofur­kona og besti leið­sögu­maður sem hægt er að hugsa sér í líf­inu enda með ein­staka lífs­reynslu. Einsog sumir þekkja laxár, hyli og grynn­ingar eða hálendi Íslands og geta vísað fólki örugga og áráng­urs­ríka leið þá fer hún með fólk í ferða­lög um víð­áttur and­ans, hjálpar fólki að hreinsa hug­ann, græða gömul sár og stilla alla strengi til­finn­ing­anna. Það er engin til­viljun að

Björk

talar um „emotional landscapes“ í lag­inu sínu Jóga, sem hún samdi til Jógu.“

Því næst fer Jón yfir það hversu illa hann hafi verið staddur í líf­inu þegar leiðir þeirra Jógu lágu saman.

„Það er mín mesta gæfa í líf­inu að leiðir okkar skildu liggja saman á sínum tíma. Ég trúði því ekki að hún sæi neitt mark­vert í mér. Ég var þá búinn að glata öllu og var einsog rekald í líf­inu; félags­lega, til­finn­inga­lega og fjár­hags­lega gjald­þrota. Sjálfs­myndin mín var brot­inn frá upp­hafi en þarna var sjálfs­traustið farið og sjálfs­virð­ingin mín dreggjar einar.En Jóga sá í gegnum þetta allt saman og sá bara kjarn­ann minn og var reiðu­búin að leggja á sig alla þá rosa­lega vinnu sem fólst í því að gera laskaðan mig upp. Hún átti bara nokkuð gott líf og þurfti ekki á neinu ves­eni að halda.“

Jón segir einnig frá köllun Jógu, sem hann segir að sé sú sama og hann hafi; „Að standa með fólki sem er veikt, hrakið og ein­mana“.

„Með hennar hjálp hef ég fengið að koma uppá hennar plan og standa þar jafn­fætis henni. Allt sem ég hef gert hef ég gert með henni. Jóga hefur haft þá köllun að standa með fólki sem er veikt, hrakið og ein­mana vegna þess að hún hefur verið þar sjálf. Og ég hef séð það sem mína æðstu köllun í þessu lífi að fá þann heiður að fá að standa þannig með henni líka, í blíðu og í stríðu. Hún fór hnar­reist og æðru­laus í gegnum erf­iða krabba­meins­með­ferð en ég þramm­aði með henni einsog fót­göngu­liði.“

Að lokum lýsir Jón sam­bandi þeirra hjóna:

„Samband okkar byggir á trausti, vin­áttu og virð­ingu. Og öllum orðum sem byrja á sam- Sam er kjör­orðið okkar. Ég er svo stoltur af henni. Sam­bandið okkar er sá klettur sem við byggjum líf okkar á. Við höfum svarið hvort öðru holl­ustu­eið um alla eilífð. Enda erum við búin að gifta okkur þrisvar, fyrst í Frí­kirkj­unni, svo í Kaþólsku kirkj­unni og svo kom ég Jógu á óvart þegar hún varð sex­tug síð­asta sumar og bað hennar og Hilmar Örn Hilm­ars­son alls­herj­ar­goði bless­aði okkur.Ég er svo þakk­látur og hlakka til að fá að ferð­ast áfram með ofur­kon­unni og ást­inni minni inní fram­tíð­ina og eilífð­ina. Enda­laust.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forsetaframboð

Arnar Þór skuldar starfsmönnum forsetaframboðsins laun: „Ég vil fá skýringar á því hvað þetta var“
Innlentforsetaframboð

Arnar Þór skuldar starfs­mönnum for­seta­fram­boðs­ins laun: „Ég vil fá skýr­ingar á því hvað þetta var“

Arnar Þór Jónsson, hæsta­rétt­ar­lög­maður og stofn­andi Lýð­ræð­is­flokks­ins hefur enn ekki greitt laun nokk­urra aðila sem störf­uðu við for­seta­fram­boð hans á þessu ári. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs skuldar Arnar Þór Jónsson laun nokk­urra ein­stak­linga sem unnu við for­seta­fram­boð hans fyrr á árinu. Um er að ræða umtals­verðar upp­hæðir sam­kvæmt heim­ild­unum en Arnar Þór segir í sam­tali við Mannlíf eiga aðeins eftir að...
Ástþór þögull um fjármögnun á framboði Ásdísar: „Ég er langflottasti forsetinn“
Innlentforsetaframboð

Ástþór þög­ull um fjár­mögnun á fram­boði Ásdísar: „Ég er lang­flott­asti for­set­inn“

Ástþór Magn­ús­son, sexfaldur fram­bjóð­andi til for­seta Íslands, vill ekki upp­lýsa strax hvort hann muni fjár­magna vænt­an­leg for­seta­fram­boð Ásdísar Ránar Gunn­ars­dóttur en hún lýsti því yfir kosn­inga­vöku sinni fyrr á þessu ári. „Ég er offisjalí búin að taka að mér frið­ar­málin, þannig að þið megið búast við mér á 4-8 ára fresti næstu 30 árin,“ sagði for­seta­fram­bjóð­and­inn og fyr­ir­sætan einnig. „Ég...
Katrín Jakobsdóttir játar ósigur fyrir Höllu Tómasdóttur: „Ég óska henni bara til hamingju“
Innlentforsetaframboð

Katrín Jak­obs­dóttir játar ósigur fyrir Höllu Tóm­as­dóttur: „Ég óska henni bara til ham­ingju“

Halla Tóm­as­dóttir verður næsti for­seti Íslands í ágúst í sumar þegar Guðni Th. Jóhann­es­son lætur af emb­ætti. Halla hafði fengið um 31,5 pró­sent atkvæða þegar 128 þús­und atkvæði höfðu verið talin í morgun. Katrín Jak­obs­dóttir, frá­far­andi for­sæt­is­ráð­herra, var í öðru sæti með 25,9 prósmnet greiddra atkvæða. Halla Hrund Loga­dóttir var í þriðja sæti með 15,7 pró­sent atkvæða. Víst er að...
Eiginkonan ver Arnar Þór: „Furða mig á hve orðljótar samræður hér eru“
Innlentforsetaframboð

Eig­in­konan ver Arnar Þór: „Furða mig á hve orð­ljótar sam­ræður hér eru“

Eig­in­kona Arnars Þórs Jóns­sonar for­seta­fram­bjóð­anda ver eig­in­mann sinn í Mæðratips-hópnum á Facebook. Í dag birti Hrafn­hildur Sig­urð­ar­dóttir, eig­in­kona Arnars Þórs Jóns­sonar for­seta­fram­bjóð­anda, færslu inni á Mæðratips þar sem hún tekur upp hansk­ann fyrir eig­in­mann sinn og furðar sig á orð­ljótri sam­ræður í Facebook-hópnum. „Ég er knúin til að skrifa hér inn nokkrar línur eftir að hafa lesið fjöl­margar færslur þar...
Halla Hrund fagnar 10 ára brúðkaupsafmæli: „Kristján er frábær dansfélagi í gegnum lífið“
Menning

Halla Hrund fagnar 10 ára brúð­kaups­af­mæli: „Kristján er frá­bær dans­fé­lagi í gegnum lífið“

Halla Hrund Loga­dóttir og Kristján Freyr Krist­jáns­son fagna 10 ára brúð­kaups­af­mæli sínu í dag. For­seta­fram­bjóð­and­inn Halla Hrund Loga­dóttir skrif­aði rétt í þessu fal­lega Facebook-færslu þar sem hún segir frá 10 ára brúð­kaups­af­mæli hennar og eig­in­manns hennar, Krist­jáns Freys Krist­jáns­sonar. Í færsl­unni segir hún meðal ann­ars að lífið sé „ekki alltaf salsa eða tangó“ heldur stundum „trega­fullur vals“. Halla Hrund og...
Frægir fylgjendur forsetaframbjóðenda – Hver kýs hvern?
Menning

Frægir fylgj­endur for­seta­fram­bjóð­enda – Hver kýs hvern?

Mannlíf tók saman hvaða þjóð­þekktu ein­stak­lingar styðja hvaða for­seta­fram­bjóð­anda, nú þegar stutt er í kosn­ingar. Fjöl­margir hafa síð­ustu vikur verið dug­legir að láta í ljós stuðn­ing sinn við hina og þessa for­seta­fram­bjóð­endur en kosn­ingin fer fram á laug­ar­dag­inn. Bæði hefur sót­svartur almúg­inn tjáð sig á Facebook og öðrum miðlum, og látið í ljós ánægju sína og sam­þykkti við þann for­seta­fram­bjóð­anda...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Menning

Menning

Hundurinn hans Dwayne Johnson dó í nótt: „Ég hef verið dofinn yfir þessum missi“

Menning

The Highwaymen heiðraðir í Hörpu: „Fullt af tímalausum smellum og anda kántrítónlistar“

Menning

DJ Khaled og 6ix9ine fengu báðir óhugnanlegar líkkistur sendar heim til sín: „RIP Drake“

Menning

Friðrik Dór hugsar um lygar

Menning

Myrkvi gefur út þriðju breiðskífu sína – Vonast til þess að slá vopnin úr höndum tímans

Menning

Bubbi og Frikki Dór styðja fórnarlömb þjóðarmorðsins á Gaza