„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Kristján Berg opnar sig um fangelsisvistina: „Ég þreif þar oft blóð af veggjum“

Kristján Berg opnar sig um fangelsisvistina: „Ég þreif þar oft blóð af veggjum“
Kristján Berg

Kristján Berg Ásgeirs­son, eða Fiski­kóng­ur­inn eins og hann er gjarnan kall­aður og eig­andi Heitra potta, hefur verið þekkt­asti fisk­sali á Íslandi um ára­bil en hann hefur selt Íslend­ingum fisk í yfir þrjá­tíu ár. Frum­legar aug­lýs­ingar hans hafa gjarna vakið athygli og þá hefur hann oftar en ekki ratað í fjöl­miðla vegna hinna ýmissa mála. Kristján Berg er nokkuð hisp­urs­laus á sam­fé­lags­miðl­unum og veigrar sér ekki við því að tjá hug sinn og hefur stundum verið gagn­rýndur í kjöl­farið.

Fortíð Fiski­kóngs­ins hefur lengi verið á milli tann­anna á fólki en árið 1996 var Kristján dæmdur ásamt þremur öðrum mönnum til tveggja og hálfs árs fang­els­is­vistar vegna inn­flutn­ing og sölu á alsælu­töflum. Færri vita að Fiski­kóng­ur­inn missti aleig­una í Hruninu 2008. Í nýjasta við­tali Reynis Trausta­sonar í hlað­varps­þætt­inum Sjóarinn, ræðir Kristján Berg á opin­skáan hátt um for­tíð­ina, deilur við fyrrum sam­starfs­fé­laga sinn, Hrunið og fleira.

Reynir spyr Kristján Berg hvernig hann hafi tek­ist á við fang­els­is­vist­ina, eftir að hann hlaut dóm fyrir fíkni­efna­inn­flutn­ing og sölu árið 1997 en hann sat inni í ár.

Kristján Berg segir það að vera ekki í neyslu, hafi hjálpað sér að kom­ast í gegnum þá erf­ið­leika þegar hann sat inni fyrir fíkni­efna­inn­flutn­ing og sölu á alsælu­töflum. „Númer eitt, tvö og þrjú, að vera ekki í neyslu. Ég skráði mig strax í skóla og kláraði þar stúd­ent­inn. Ég tók að mér að skúra allt fang­elsið. Ég þreif þar oft blóð af veggjum, þegar menn voru að mót­mæla og skáru sig á púls og skrif­uðu á alla vegg­ina. Það var dauðs­fall þarna inni,“ sagði Kristján um það sem hann hafð­ist við á meðan hann tók út fang­els­is­dóm sinn. Og hélt áfram: „Ég æfði rosa­lega vel, lyft­ingar og það var spil­aður fót­bolti úti. Og ég fékk mikið af heim­sóknum. Þannig að það var eig­in­lega bara hjá mér að hafa sem mest að gera og reyna að kynn­ast strák­unum og læra af þeim. Það var oft rosa­lega gaman að tala við þá, sög­urnar af því rugli sem var búið að ger­ast. Það er stór­kost­legt að hafa fengið tæki­færi á að tala við alla þessa stráka. Og spila fót­bolta með þeim. Það var alveg geggjað. Og svo komu lög­fræð­ing­arnir og við spil­uðum við þá og svo komu lögg­urnar og við spil­uðum við þá. Þessi tími var bara lær­dóms­ríkur en erf­iður.“

Aðspurður segir Kristján Berg hafa verið með 175 krónur á tím­ann fyrir að þrífa fang­elsið. „En tíma­kaupið skipti ekki máli. Ég reyndi að vera sem minnst inni í klefa. Ég bland­aði geði við alla fanga­verð­ina en ég held ég sé búinn að selja fimm eða sex fanga­vörðum pott,“ sagði Kristján og skellti upp úr. „Og það versla margir við mig fisk og ég ber þeim bara góða sög­una.“

Reynir spyr hvort það hafi aldrei verið erfitt fyrir Fiski­kóng­inn að ræða um fang­els­is­dóm­inn.

„Nei, ef maður hugsar þetta smá rök­rétt þá sko. Þú ert að fara til sál­fræð­ings. Ég fer til sál­fræð­ings einu sinni í mán­uði, hef alltaf gert það. Hvað ertu að gera hjá sál­fræð­ingi? Þú ert að segja eitt­hvað sem þér líður illa með. Eitthvað sem liggur þér á brjósti. Ef það er verið að spyrja þig að ein­hverju, eins og þú ert að gera núna, þá er besta sál­fræði­með­ferðin að tala. Og losa um þetta frá sjálfum þér. Og það hef ég sagt, ef ein­hver vill tala við mig, spyrja mig hvernig þetta var, var þetta svona eða hinsegin? Þá er ég til­bú­inn að setja niður og tala og skýra mín mál. Gróu­sög­urnar eru kannski verstar. En ég er búinn að ýta þeim alveg frá mér.“

Hægt er að hlusta á allt við­talið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Sjóarinn

Jóhannes í Skáleyjum átti ekki í vandræðum með kvenfólkið: „Guð sendi mér þrjár konur“ EINKAVIÐTAL
InnlentSjóarinn

Jóhannes í Skál­eyjum átti ekki í vand­ræðum með kven­fólkið: „Guð sendi mér þrjár konur“ EINKAVIÐTAL

Jóhannes Gíslason er nýjasti gestur Reynis Trausta­sonar í Sjó­ar­anum. Jóhannes var lengi bóndi í Skál­eyjum í Breiða­firði ásamt Eysteini bróður sínum. Áður bjó hann í Flatey. Hann segir frá Eyja­líf­inu þar sem eini sam­göngu­mát­inn var sjó­leið­ina. Hann segir frá dag­legu lífi á eyj­unni. Jóhannes gift­ist einni konu á ævinni og átti með henni nokkur börn. Samtals gaf þó Guð honum...
Unnar Gísli heldur alltaf í trúna: „Þú ert trúlaus stuttan tíma í sjónum“
Innlent

Unnar Gísli heldur alltaf í trúna: „Þú ert trú­laus stuttan tíma í sjónum“

Júníus Meyvant er tón­list­ar­maður sem flestir þekkja. Færri vita að hann heitir Unnar Gísli Sig­ur­munds­son og er bor­inn og barn­fæddur í Vest­manna­eyjum. Hann á að baki stuttan en magn­aðan sjó­manns­feril á tog­ar­anum Breka VE. Seinna lærði hann á gítar og hefur nú náð frægð víða um heim. Frægðin stígur honum ekki til höf­uðs. Hann býr ásamt eig­in­konu og börnum í...
Fyrsta sjóferð Unnars Gísla misheppnaðist illa: „Það er bara reykur út um allt“
Innlent

Fyrsta sjó­ferð Unnars Gísla mis­heppn­að­ist illa: „Það er bara reykur út um allt“

Júníus Meyvant er tón­list­ar­maður sem flestir þekkja. Færri vita að hann heitir Unnar Gísli Sig­ur­munds­son og er bor­inn og barn­fæddur í Vest­manna­eyjum. Hann á að baki stuttan en magn­aðan sjó­manns­feril á tog­ar­anum Breka VE. Seinna lærði hann á gítar og hefur nú náð frægð víða um heim. Frægðin stígur honum ekki til höf­uðs. Hann býr ásamt eig­in­konu og börnum í...
Steinunn og Egill innsigluðu sambandið á siglingu: „Ákváðum að nú væri tími til að byrja saman“
InnlentSjóarinn

Steinunn og Egill inn­sigl­uðu sam­bandið á sigl­ingu: „Ákváðum að nú væri tími til að byrja saman“

Steinunn Ein­ars­dóttir er nýjasti gestur Reynis Trausta­sonar í hlað­varps­þætt­inum Sjóarinn. Steinunn var sjó­maður um ára­bil á báti for­eldra sinna. Steinunn hætti á sjó eftir að hún eign­að­ist seinni son sin, árið 2015, eftir að hafa verið á sjó í 12 ár. Hún segir Reyni frá því hvernig hún og eig­in­maður hennar, skip­stjór­inn Egill Ólafsson, inn­sigl­uðu sam­band sitt. „Hann er skip­stjóra­mennt­aður...
Kristján missti allt í Hruninu: „Þegar maður vaknaði var allt farið“
InnlentSjóarinn

Kristján missti allt í Hruninu: „Þegar maður vakn­aði var allt farið“

Kristján Berg Ásgeirs­son, eða Fiski­kóng­ur­inn eins og hann er gjarnan kall­aður og eig­andi Heitra potta, hefur verið þekkt­asti fisk­sali á Íslandi um ára­bil en hann hefur selt Íslend­ingum fisk í yfir þrjá­tíu ár. Frum­legar aug­lýs­ingar hans hafa gjarna vakið athygli og þá hefur hann oftar en ekki ratað í fjöl­miðla vegna hinna ýmissa mála. Kristján Berg er nokkuð hisp­urs­laus á...
Segir aðstæðurnar þegar Dísarfellið fórst erfiðar: „Vorum orðnir ansi tæpir með eldsneyti“
Innlent

Segir aðstæð­urnar þegar Dís­ar­fellið fórst erf­iðar: „Vorum orðnir ansi tæpir með elds­neyti“

Benóný Ásgríms­son vann um ára­bil sem sjó­maður, meðal ann­ars hjá Land­helg­is­gæsl­unni, og síðar sem þyrlu­flug­maður á hennar vegum. Hann talar í við­tali við Reyni Trausta­son meðal ann­ars um rétt­sýn­ina og gimbrina sem hann eign­að­ist á ung­lings árunum, síð­ustu orðin í tal­stöð­inni frá skip­verja á sökkvandi tog­ara og hann talar um þorska­stríðið og segir að þótt bresku tog­ara­sjó­menn­irnir hafi ekki alltaf...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins