„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Þekktir fagna frelsi Julians: „Mér sýnist að núna sé Assagne í hlutverki Galíleós“

Þekktir fagna frelsi Julians: „Mér sýnist að núna sé Assagne í hlutverki Galíleós“
Julian Assange í flug­vél í Bankok fyrir stundu, á leið til Ástralíu. Mynd: Wikileaks á Facebook

Fjöl­margir gleðj­ast nú yfir því að Julian Assange, fyrrum rit­stjóri Wikileaks geti nú loks um frjálst höfuð strokið, eftir fjöl­mörg ár í fjötrum.

Julian Assange er loks­ins laus úr prís­und sinni í Bret­landi, eftir að hann neydd­ist til að játa sig sekan af ákæru sem snyr að birt­ingu trún­að­ar­gagna. Gerði hann sam­komu­lag þess efnis við banda­rísk yfir­völd gegn því að verða ekki fram­seldur. Er hann nú á leið til eig­in­konu sinnar og barna í Ástralíu, heima­landi sínu.

Hér eru nokkrir þekktir Íslend­inga sem fögn­uðu frelsun Assange í dag:

Kristinn Hrafns­son, núver­andi rit­stjóri Wikileaks og vinur Assange, hefur verið hvað harð­astur í bar­átt­unni fyrir frelsi Julians. Kristinn á afmæli í dag og fagnar því bæði einum afmæl­is­degi til við­bótar, auk lausnar Assange. Skrifaði hann eft­ir­far­andi Facebook-færslu:

sÉg er ekki mik­ill afmæliskall og gleymi gjarnan afmæl­is­deg­inum. Tölvan er að minna mig á að sá dagur er runn­inn upp í mínu tíma­belti. Hann byrjar vel. Margra ára bar­átta er að skila árangri. Þakka stuðn­ing­inn.“

Helga Vala Helga­dóttir, lög­maður og fyrrum þing­kona Sam­fylk­ing­ar­innar er afar ánægð með frelsi Julians. Kallar hún rétt­ar­höldin yfir honum „sýnd­ar­rétt­ar­höld“ en fagnar sigrinum.

„Þetta eru stór­kost­legar fréttir í morg­unsárið. Julian Assange er laus úr ramm­girtasta fang­elsi Bret­lands, hvar hann hefur mátt dúsa í 5 ár og 2 mán­uði en fyrir þann tíma var hann árum saman í stofu­fang­elsi í sendi­ráði Ekvador í Bret­landi. Ég þori ekki að fagna fyrr en sýnd­ar­rétt­ar­höldum á Norður-Marí­ana­eyj­um er lokið en sagt er að þar verði hann dæmdur í nkl 5 ár og tvo mán­uði, þann tíma sem hann hefur nú þegar setið í Belmarch fang­els­inu. En þetta er stór dagur fyrir allt bar­áttu­fólkið sem hefur staðið með honum allan tím­ann, Kristinn Hrafns­son þar á meðal en þó stærstur fyrir Stellu konu Julian og börn þeirra. Þetta er líka stór dagur fyrir fjöl­miðla um allan heim og bar­átt­una fyrir frelsi þeirra. Fylgist spennt með næstu daga.“

Illugi Jök­uls­son fjöl­miðla­maður á erfitt með að fagna nið­ur­stöðum máls­ins enda hafi Julian ekki framið neinn glæp til að játa fyrir.

„Auðvitað er grá­bölvað að Assange skuli fall­ast á að lýsa sig sekan. Það er sjálft meg­in­at­riði máls hans að hann framdi engan glæp, heldur vann þvert á móti mik­il­væga þjón­ustu við almenn­ing með því að upp­lýsa um glæpi banda­ríska her­liðs­ins í Írak. En í fyrsta lagi þekki ég ekki smá­at­riði þessa lang­vinna máls og í öðru lagi hef ég aldrei þurft að þola margra ára fanga­vist fyrir að vinna heið­ar­leg blaða­manns­störf. Svo ég segi bara: Fínt.“

Stefán Pálsson líkir nið­ur­stöðu máls­ins við það þegar Galíleó var neyddur til að draga til baka „villu­trú­ar­kenn­ingar“ sínar.

„ „Hún snýst sú samt“ – var Galíleó sagður hafa muldrað eftir að full­trúar Páfa­garðs létu hann draga til baka „villu­trú­ar­kenn­ingar“ sínar til að losna undan refs­ingu.Mér sýn­ist að núna sé Assagne í hlut­verki Galíleós og lát­inn játa sekt til að bjarga höfð­inu en Banda­ríkja­stjórn sé full­trúi páfa­valds­ins. Og það er alveg ljóst hver er hetjan í þess­ari sögu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins