„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Blaðamenn hröktust frá Sigríði til Rithöfundasambandsins: Árás á eldri blaðamenn og þá sem veikjast

Blaðamenn hröktust frá Sigríði til Rithöfundasambandsins: Árás á eldri blaðamenn og þá sem veikjast

Blaða­menn sem um langt ára­bil mættu til skrafs og ráða­gerða á föstu­dags­morgnum í höf­uð­stöðvar Blaða­manna­fé­lags Íslands hafa fundið sig óvel­komna þar og leit­uðu skjóls með fundi sína í hús­næði Rit­höf­unda­sam­bands Íslands. Þetta er vegna meintrar óvildar Sigríðar Daggar Auð­uns­dóttir for­manns félags­ins og ann­arra stjórn­ar­manna, sem þess utan hefur lagt fram til­lögu um þær laga­breyt­ingar að afnema atkvæð­is­rétt eldri blaða­manna. Þá er búið að skerða rétt­indi þeirra sem þurfa aðstoð frá sjúkra­sjóði félags­ins. Hjálmar Jónsson, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Blaða­manna­fé­lags­ins, bendir á aðför­ina að eldri blaða­mönnum í grein sem hann skrif­aði. Hann hefur for­dæmt meint skatt­svik Sigríðar Daggar opin­ber­lega og telur hana leiða félagið í hefnd­ar­leið­angri.

„Kjarni máls­ins er auð­vitað sá að það á að svifta þennan hóp áhrifum innan Blaða­manna­fé­lags­ins vegna þess að þorri hans er sömu skoð­unar og und­ir­rit­aður. Það er að það sé ófært að for­ystu­maður félags­ins svari ekki fyrir ásak­anir um skatta­laga­brot sem komið hafa fram á opin­berum vett­vangi og stígi til hliðar.  Í þeim efnum hefur for­maður félags­ins því miður tekið eigin hags­muni fram yfir hags­muni félags­ins,“ skrifar Hjálmar.

Hann segir að öll stétt­ar­fé­lög sem hann þekki til leggja metnað sinn í að halda góðu sam­bandi við eldri félags­menn sína sem látið hafa af störfum. Það hafi Blaða­manna­fé­lagið líka gert lengst af.

„Vikulega yfir vetr­ar­mán­uð­ina hitt­ust eldri félags­menn í hús­næði félags­ins og fengu sér kaffi og vín­ar­brauð og spjöll­uðu um lands­ins gagn og nauð­synjar. Þetta gerðu þeir í yfir 20 ár eða allt frá því að DV varð fyrst gjald­þrota árið 2003.  Mér var raunar gefið að sök, í frægri sam­an­tekt KPMG, að hafa í heim­ild­ar­leysi 800 sinnum á 20 árum vaknað klukkan sjö á morgn­ana á föstu­dögum til að fara í bak­arí og Hagkaup til að kaupa inn fyrir þessa fundi. Af þessu vissu allir og oft voru stjórn­ar­fundir félags­ins á sama tíma og stjórn­ar­menn nutu þá veit­inga og spjöll­uðu við eldri félaga. Allt eins og það átti að vera og stórfurðu­legt að tína svona nokkuð til,“ skrifar hann.

Blaða­manna­fé­lagið logar í deilum vegna fram­göngu stjórnar og for­manns. Ekki er aðeins deilt um meinta aðför að Hjálmari og eldri blaða­mönnum. Núver­andi stjórn félags­ins er einnig sökuð um að traðka á rétt­indum þeirra sem glíma við veik­indi og þurfa hjálp frá sjúkra­sjóði. Hjálmar telur að þar sé um alvar­legt mál að ræða sem varði afkomu þeirra félaga sem lakast standi, hafa sjúkra­dag­pen­ingar verið skertir veru­lega. Breyt­ing­arnar hafi verið gerðar fyr­ir­vara­laust og aft­ur­virkt.

„Stétt­ar­fé­lag sem stendur ekki vörð um afkomu þeirra sem lakast standa stendur ekki undir nafni.  Ekkert í fjár­hags­stöðu Blaða­manna­fé­lags­ins rétt­lætir að ráð­ast með þessum hætti á kjör þeirra sem þurfa á sjúkra­dag­pen­ingum að halda vegna langvar­andi veik­inda,“ skrifar Hjálmar.

Þessu til við­bótar hefur stjórn Blaða­manna­fé­lags Íslands boðað að eldri blaða­menn verði sviptir atkvæð­is­rétti hjá félag­inu en fái að halda aðild og til­lögu­rétti.

Fram­halds­að­al­fundur Blaða­manna­fé­lags­ins verður hald­inn 6. sept­em­ber næst­kom­andi. Fríða Björns­dóttir, elsti núlif­andi blaða­maður lands­ins, sagð­ist í við­tali við Mannlíf von­ast til þess að van­traust verði þar borið upp á Sigríði Dögg Auð­uns­dóttur, for­mann stjórnar.

Eft­ir­far­andi sitja í stjórn Blaða­manna­fé­lags Íslands og bera ábyrgð á því sem ger­ist í félag­inu: Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir, for­maður. Lovísa Arn­ar­dóttir (Stöð2/Vísir.is/Bylgjan), vara­for­maður. Bára Huld Beck, sjálf­stætt starf­andi, rit­ari
Stígur Helgason (RÚV), gjald­keri. Kristín Ólafs­dóttir (Stöð2/Vísir.is/Bylgjan). Skúli Hall­dórs­son (mbl.is). Sólrún Lilja Ragn­ars­dóttir (mbl.is).

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins