Björn Birgisson samfélagsrýnir bendir á þá staðreynd að ef gengið yrði til alþingiskosninga í dag, næði ríkisstjórn Íslands ekki nema 15 þingsætum af 63 sem í boði eru.
Samfélagsrýnirinn og fyrrum ritstjórinn Björn Birgisson, skrifaði Facebook-færslu þar sem hann talar um niðurstöður nýjust skoðanakönnunar Maskínu, sem sýnir afhroð Sjálfstæðisflokksins í fylgi á landsvísu. Yrði kosið í dag, næði ríkisstjórnin ekki nema 15 þingmönnum inn.
„Síðasta könnun Maskínu á fylgi flokkanna er í raun býsna ótrúleg og þess vegna verður afar fróðlegt að sjá nýja Gallup könnun eftir fáeina daga.
Maskínukönnunin ætlar ríkisstjórninni aðeins 15 þingmenn!Sjallar með 9 og Framsókn með 6!
Það þýðir að 22 þingsætum væri stjórnin að tapa.“ Þannig hefst færsla Björns en í seinni helming færslunnar segir hann það ólýðræðislegt að fylgislaus ríkisstjórn „hangi við völd“ vegna útkomu kosninga þremur árum áður.
„Ef næstu kannanir verða á svipuðum nótum er þessi ríkisstjórn ekki að fara að þrauka veturinn framundan.Hún er vitaskuld dauð, en þorir ekki að horfast í augu við þá staðreynd.Að fylgislaus ríkisstjórn hangi við völd vegna kosningaúrslita fyrir þremur árum er hreint ekki lýðræðislegt.Í nútímanum er svo auðvelt að mæla fylgið með býsna áreiðanlegri nákvæmni.“


























Athugasemdir