„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hjálmar svarar Sigríði Dögg fullum hálsi: „Svona gerir maður einfaldlega ekki!“

Hjálmar svarar Sigríði Dögg fullum hálsi: „Svona gerir maður einfaldlega ekki!“
Hjálmar Jónsson fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri BÍ

Hjálmar Jónsson svarar for­manni Blaða­manna­fé­lags Íslands fullum fetum í aðsendri grein á Vísi og Mannlífi í dag.

Fyrr­ver­andi fram­kvæmd­ar­stjóri og for­maður Blaða­manna­fé­lags Íslands, Hjálmar Jónsson svarar núver­andi for­manni félags­ins, Sigríði Dögg Auð­uns­dóttur í aðsendri grein. Þar svarar hann grein Sigríðar Daggar sem birt­ist á heima­síðu BÍ á dög­unum en for­mað­ur­inn hefur sakað Hjálmar meðal ann­ars um slæma með­ferð á fé félags­ins. Þessu svarar Hjálmar sem og bendir á fyr­ir­hug­aðar breyt­ingar á félags­rétt­indum líf­eyr­is­þesa í Blaða­manna­fé­lag­inu.

„Þá á svo gott sem að reka úr félag­inu með því að svifta þá atkvæð­is­rétti um fjár­mál og for­ystu félags­ins, sam­kvæmt til­ögu að laga­breyt­ingu á fram­halds­að­al­fundi félags­ins. Það er eins­dæmi meðal stétt­ar­fé­laga í þessu landi. Það er til að æra óstöðugan að elta ólar við allar þær rang­færslur sem þar eru á borð bornar, en nauð­syn­legt að ítreka nokkur meg­in­at­riði, svo fólk haldi ekki að boð­skap­ur­inn úr Undra­landi eigi við rök að styðj­ast.“ Þetta segir Hjálmar í upp­hafi bréfs­ins og bætir síðan við: „Jafn­framt verð ég að óska eftir birt­ingu þess­arar greinar á almennum vett­vangi og vona að hún nái athygli þeirra sem málið varðar, því í pútíniskum heimi for­manns­ins hef ég ekki mál­frelsi og til­lögu­rétt.“

Bendir Hjálmar á að í öðrum stétt­ar­fé­lögum á Íslandi haldi félags­menn fullum rétti eftir að þeir hafa hætt störfum. „ „Þeir félags­menn, sem hætta störfum sökum ald­urs (67 ára eða eldri) eru und­an­þegnir gjald­skyldu.” Grein 5.6 í félags­lögum Grafíu (Félags bóka­gerð­ar­manna). Líf­eyr­is­þegar eru sum sé full­gildir félagar án þess að greiða gjöld, eins og verið hefur í Blaða­manna­fé­lag­inu.

„Eldra félags­fólk sem fær greiddan elli­líf­eyri og hefur verið í félag­inu í a.m.k. 5 ár sam­fellt fyrir töku eft­ir­launa telst áfram félags­fólk í VR en nýtur ekki kjör­gengis.” Grein 3 í félags­lögum VR. Eina tak­mörk­unin er fram­boð til stjórnar og stjórnar sjóða VR, en líf­eyr­is­þegar njóta félags­rétt­inda að öðru leyti.

Og grein 9c hjá Eflingu: „Félags­menn 67 ára og eldri sem hættir eru störfum halda félags­rétt­indum þó þeir greiði ekki félags­gjöld enda hafi þeir verið full­gildir félags­menn við starfs­lok”.“

Bæti Hjálmar við: „Hér er þetta svart á hvítu, meðal ann­ars hjá tveimur stærstu stétt­ar­fé­lögum lands­ins sem ná til til meira en helm­ings almenna vinnu­mark­að­ar­ins. Það eru því hrein og klár ósann­indi í grein for­manns­ins að í örfáum til­fellum njóti líf­eyr­is­þegar í stétt­ar­fé­lögum fullra félags­rétt­inda.“

Í lok grein­ar­innar segir Hjálmar að félagið hafi hingað til staðið sig vel fjár­hags­lega.

„Blaða­manna­fé­lagið hefur til þessa staðið vel fjár­hags­lega, en vit­an­lega skiptir máli hvernig haldið er á fjár­málum félags­ins.For­mað­ur­inn upp­lýsir að bók­færðar eignir félags­ins hafi numið um 750 millj­ónum króna um síð­ustu ára­mót.Mark­aðsvirðið er hins vegar mun meira vegna verð­mætra fast­eigna félags­ins. Lætur nærri að það nemi tæpum einum millj­arði króna á verð­lagi í dag.“

Telur hann loks upp nokkur dæmi um slæma með­ferð á fé núver­andi stjórnar BÍ:

„Það skiptir máli að vel sé haldið á þessum verð­mætum og að þeim sé ekki sóað í vit­leysu. Þá á ég t.d. við ráðn­ingu starfs­manna umfram þörf, van­hugs­aðar aug­lýs­inga­her­ferðir eða stofnun gagns­lausra sam­fé­lags­sjóða á kostnað grund­vall­ar­rétt­inda blaða­manna eins og réttar til greiðslu sjúkra­dag­pen­inga. Svona gerir maður ein­fald­lega ekki!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins