„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hampfélagið stendur fyrir alþjóðlegri ráðstefnu: „Ísland er Eden fyrir kannabisræktun“

Hampfélagið stendur fyrir alþjóðlegri ráðstefnu: „Ísland er Eden fyrir kannabisræktun“
Sigurður Jóhanns­son Mynd: Aðsend

„Með okkar ódýru orku, góða vatn, kalda veðrið og lít­inn raka höfum við full­komna blöndu til að verða stór­þjóð í kanna­bis­ræktun inn­an­húss. Við þurfum bara kjarkinn í það,“ segir Sigurður Jóhanns­son, for­maður Hamp­fé­lags­ins. „Það er mik­ill áhugi á Íslandi erlendis frá og margir að skoða mögu­leik­ann á að setja upp vinnslu­stöðvar hér á landi.“ Sigurður er gestur í nýjasta þætti Hamp­kasts­ins þar sem hann kynnti alþjóð­lega ráð­stefnu Hamp­fé­lags­ins sem haldin verður 11.-12. októ­ber næst­kom­andi í Salnum í Kópavogi. Ráð­stefnan ber heitið Hampur fyrir fram­tíð­ina og flytja þar erindi heims­þekktir sér­fræð­ingar úr grein­inni.

Sigurður seg­ist trúa því að ráð­stefnan komi til með að opna augu fólks um þá mögu­leika sem í hamp­inum fel­ast og að hún sé frá­bært tæki­færi fyrir áhuga­sama að efla tengsla­net sitt í grein­inni. „Það er ótrú­legur áhugi á henni erlendis og fólk er að koma hingað hvaðanæva úr heim­inum. Við erum með fyr­ir­les­ara á heims­mæli­kvarða og erum að fá að heyra eitt­hvað nýtt. Við erum að fá að heyra allar hliðar máls því það eru ekki ein­göngu mögu­leikar fyrir bændur að nýta þessa plöntu heldur alls konar fyr­ir­tækið sem standa í iðn­aði. Við erum með fyr­ir­tæki eins og Marel sem er að gera færi­bönd fyrir alls konar fram­leiðslu. Það er fyr­ir­tæki sem gæti auð­veld­lega aðlagað sig að þess­ari grein og komið sterkir inn á mark­að­inn.“

Seinni dagur ráð­stefn­unnar verður helg­aður lyfja­hamp­inum sem hefur verið mikið í umræð­unni hér á landi und­an­farin miss­eri. Sigurður segir að íslensk stjórn­völd ættu að horfa til Dan­merkur og reynslu Dana af lyfja­hamp­inum. „Við erum búin að fylgj­ast með Dönum fara rosa­lega var­lega. Þeir byrj­uðu 2018 með fjög­urra ára verk­efni sem hefur notið gríð­ar­legrar vel­gengni. Það var fram­lengt til ann­arra fjög­urra ára og svo vænt­an­lega verður þetta ekk­ert fram­lengt aftur heldur bara sett inn í lögin.“ Hann bendir á að lyfja­hamp­ur­inn hafi fljót­lega orðið með verð­mæt­ustu útflutn­ings­vörum Dana og að erlend fjár­fest­ing hafi verið mikil. „En Danir bara rækta hamp­inn og svo er hann fluttur í vinnslu­stöðvar annað. Það sem við ættum að gera er að rækta hamp­inn hér á landi, vinna hann og selja út. Við höfum margt sem aðrar þjóðir hafa ekki og áhugi erlendis frá er mik­ill. Við erum kalt land sem þýðir að ekki þarf að eins mikla orku til að kæla fram­leiðslu­stöðv­arnar en það er orðið vanda­mál erlendis. Hér er lít­ill raki sem er einnig stórt vanda­mál ann­ars staðar. Við erum með ódýrt raf­magn og gott vatn. Við erum eins og Eden fyrir kanna­bis­ræktun inn­an­húss.”

Sigurður seg­ist vona að ráða­menn þjóð­ar­innar sjái sér fært að mæta en einnig emb­ætt­is­menn úr ráðu­neyt­unum, heil­brigð­is­starfs­menn, háskóla­fólk og for­svars­menn stór­fyr­ir­tækja. „Það eiga allir að mæta þarna sem hafa ein­hvern áhuga á að gera Ísland sjálf­bær­ara og grænna. Tak­markið er að bæta lýð­heilsu fólks með iðn­aði og nýsköpun í heil­brigð­is­kerf­inu. Það er svo önnur umræða hvort fólk vilji afglæpa­væða hin ýmsu eit­ur­lyf. Við erum ekki að tala um slíkt.”

Allar upp­lýs­ingar um ráð­stefnu Hamp­fé­lags­ins má finna á vef­svæð­inu hemp4fut­ure.is þar sem einnig er hægt að nálg­ast miða.

Þáttinn má sjá í heild sinni í spil­ar­anum hér að neðan. Hamp­kastið má ann­ars finna á öllum helstu streym­isveitum eins og Spotify. Gunnar Dan Wiium, stjórn­ar­maður í Hamp­fé­lag­inu, tók við­talið við Sigurð. Mickael Lakhlifi sá um tækni­mál og Andri Karel um frétta­skrif. Heima­síða Hamp­fé­lags­ins er hamp­felagid.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hampfélagið

Kannabis mætir skorti á blóðvökva – Viðtal við sérfræðing á sviði líftækni og læknisfræði
Menning

Kannabis mætir skorti á blóð­vökva – Viðtal við sér­fræð­ing á sviði líf­tækni og lækn­is­fræði

„Árleg áætluð eft­ir­spurn eftir blóð­vökva hefur verið um 160 millj­ónir lítra en um 100 millj­ónum lítra hefur ekki mætt,“ segir Dr. Pavel Kubů, sér­fræð­ingur á sviði líf­tækni og lækn­is­fræði, en fyr­ir­tæki hans, Plasma for People, hefur þróað tækni sem gæti gjör­bylt heil­brigð­is­kerf­inu eins og við þekkjum það í dag. Kubů sem er með dokt­ors­próf í lækn­is­fræði frá Charles háskól­anum í...
Magnús Þórsson prófessor um kannabis: „Getur gert lífið á Íslandi bjartara og betra“
InnlentHampfélagið

Magnús Þórsson pró­fessor um kanna­bis: „Getur gert lífið á Íslandi bjart­ara og betra“

Hamp­fé­lagið hélt um helg­ina mjög vel heppn­aða ráð­stefnu um iðn­aðar og lyfja hamp (e. medical kanna­bis). Félagið flutti inn 14 þunga­vigtar vís­inda og heil­brigð­is­fólk frá öllum heims­hornum sem héldu fyr­ir­lestra. Tekin voru 12 við­töl en öll voru þau á ensku fyrir utan við­talið sem birti nú hér fyrir neðan: Auð­veld­ara að rækta kanna­bis en refi „Ég hef áhuga á því...
Robert C. Clark í viðtali við Hampfélagið: „Íslendingar þurfa eigið afbrigði af kannabis“
Menning

Robert C. Clark í við­tali við Hamp­fé­lagið: „Íslend­ingar þurfa eigið afbrigði af kanna­bis“

„Í sann­leika sagt þá er þetta ekki réttur staður á jarð­kringl­unni. Þið eruð of nálægt pólnum,“ segir banda­ríski rit­höf­und­ur­inn og fræði­mað­ur­inn Robert C. Clark í nýjasta þætti HAMPKASTSINS, umræðu­þætti Hamp­fé­lags­ins, um ræktun kanna­bis­plönt­unnar á Íslandi. Robert hefur rann­sakað kanna­bis frá því snemma á átt­unda ára­tug síð­ustu aldar og fylgt eftir gríð­ar­legum breyt­ingum á lands­lag­inu þegar kemur að kanna­bis í Banda­ríkj­unum...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins