„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Soffíu litlu er stöðugt ógnað í Helgafellsskóla: „Skólastjórnendur sem eru gjörsamlega vanhæfir“

Soffíu litlu er stöðugt ógnað í Helgafellsskóla: „Skólastjórnendur sem eru gjörsamlega vanhæfir“
Stúlkan hefur gengið í gegnum miklar raunir. Mynd: Facebookðsíða Mörtu Eiríksdóttur.

„Á meðan börnin í land­inu eru nýbyrjuð í skól­anum eftir sum­ar­frí er dóttir mín í þessum töl­uðu orðum skóla­laus,“ skrifar Marta Eiríks­dóttir, móðir sex ára stúlku, sem hún seg­ist hafa neyðst til að taka úr skól­anum vegna ofbeldis bekkj­ar­bróður Soffíu dóttur sinnar.Marta birtir langa færslu á Facebook þar sem hún lýsir ofbeldi drengs­isn í garpð dóttir sinnar. Á einum tíma­punkt birt­ist dreng­ur­inn í skól­anum með hníf. Skóla­stjórn­endur hafa lítið aðhafst og stúlkan er nið­ur­brotin og hrædd vegna ein­elt­is­ins. For­eldrar Soffíu sáu aðeins eina leið út úr hroll­vekj­unni.

Marta Eiríks­dóttir berst fyrir öryggi dóttur sinnar.

„Við Benoit tókum þá erf­iðu ákvörðun að fjar­lægja hana úr skól­anum sínum, Helga­fells­skóla fyrir 5 dögum síðan úr hræði­legum aðstæðum sem hún er búin að þurfa að þola alltof lengi. Nánar til­tekið síðan í vor,“ skrifar Marta og lýsir þvík að dóttir hennar hafi verið sam­an­lagt verið þrjár vikur frá skóla og mánuð frá frí­stund síðan ofsókn­irnar hófust.Hún segir að ofbeldið sé svo alvar­legt að barnið sé aðeins „skelin af sjálfri sér“. Barátta for­eldr­anna til að tryggja öryggi stúlkunnar í skól­anum hafi engu skilað.„Við erum búin berj­ast með kjafti og klóm við stór­gall­aðan skóla og skóla­kerfi og umfram allt skóla­stjórn­endur sem eru gjör­sam­lega van­hæfir í sínu starfi,“ skrifar Marta.Hún skrifar að for­sagan hafi verið sú að dóttir hennar og dreng­ur­inn hafi verið vinir í skól­anum. Soffíu litlu hafi fund­ist hann vera mikið einn og án vina og henni fund­ist gaman að leika við hann. Vináttan hafi síðan þró­ast með skelfi­legum hætti.„Hún fer síðan að koma heim og segja að hann sé far­inn að meiða hana í leik. Verður svoldið harka­legur og það sé sárt. Hún fer að koma heim með mar­bletti og seg­ist vera orðin hrædd við hann. Einn dag­inn kemur hún heim með stóra mar­bletti á bak­inu og segir að hann hafi meitt hana, hann sé farin að segja við hana að hann ætli að drepa hana og hún sé virki­lega hrædd,“ skrifar Marta.

Áhyggjufullur kennari

Hún seg­ist hafa sent skila­boð til móður drengs­ins og bað hana um að vinna málið með sér. Móðir drengs­ins hafi lofað að tala við son sinn. En ástandið lag­að­ist ekki.„Þetta bara áger­ist dag eftir dag, kenn­ar­inn hennar hringir í mig og segir ástandið alvar­legt og að hún hafi miklar áhyggjur af Soffíu. Hún sé uppá arm­inum hennar allan dag­inn og dauð­hrædd við dreng­inn. Hann láti hana ekki í friði og noti hvert tæki­færi til að hrella hana eða meiða. Aftur sendi ég skila­boð á móður hans og hún lofar að hann verði góður við hana,“ skrifar Marta.Lítið breytt­ist til batn­aðar og svo dundis skelf­ingin yfir. Í lok apríl fékk Marta sím­tal frá skól­anum.„Deild­ar­stjóri yngsta stigs kynnir sig og vill fá að ræða þeirra mál og biður mig að rekja aðeins sam­kipti þeirra frá okkar sjón­ar­miði sem ég geri. Hún til­kynnir mér þá ástæðu sím­hring­ing­ar­innar, dreng­ur­inn hafi mætt í skól­ann með hníf. HNÍF! Hann nær ekki að beita hnífnum en útfrá öllu sem á undan er gengið með Soffíu er gengið útfrá því að hann ætl­aði sér eitt­hvað illt. Í algjöru losti spyr ég hvað planið sé núna og fæ þá þau svör að skól­inn muni tryggja að hún sé örugg og að hann fái ekki aðgengi að henni“.Marta spurði þá hvort dreng­ur­inn fái virki­lega að mæta í skól­ann. Hún fékk það svatr að skól­inn hefði ekki heim­ild til að fjar­lægja dreng­inn úr skól­anum.„Soffía hættir að sofa, vaknar í sífellu með martraðir. Getur ekki verið ein, ekki einu sinni til að fara á sal­ernið. Treystir sér ekki út að leika af ótta við að rekast á hann. Óörugg, hrædd við allt og kvíðin“.For­eldrar Soffíu höfðu sam­band við lög­reglu og til­kynntu atvikin til barna­verndar. Stúlkan mætti í skól­ann í fram­hald­inu.„Þegar komið er í skóla­stof­una er fyrsta barnið sem ég sé hann. Soffía sturl­ast úr hræðslu og ég bakka með hana út. Kennari hennar eltir og ég spyr hvað í fjand­anum sé í gangi og kenn­ar­inn lofar að passa hana, hann sé að fara úr stof­unni og hún lofi að Soffía sé örugg. Að skilja hana eftir í skól­anum og labba út í bíl er eitt það erf­ið­asta sem ég hef gert,“ skrifar Marta.

Soffía einangruð

Martröð Soffíu hélt svo áfram. Þegar systir Soffíu sótti hana í skól­ann var barnið dauð­hrætt.„Elsta dóttir okkar átti að sækja hana þann dag og hringir í mig grát­andi þegar í skól­ann er komið. Þá afhenti kenn­ari Soffíu til systur sinnar og segir þeim að fela sig því hann sé í nálægð og biður þær um að nota annan útgang úr skól­anum. Soffía segir systur sinni að hann hafi ráð­ist á hana fyrr um dag­inn sem kenn­ar­inn hennar stað­festir sím­leiðis. Í sama sím­tali með kenn­ar­anum hennar segir hún mér einnig að henni hafi verið haldið ein­angr­aði frá honum í skól­anum, látin fara út í port að leika einni sem er úti­svæði útfrá skóla­stof­unni og að kenn­ar­inn hafi tekið það að sér að vernda hana öllum stundum frá honum. Krakk­arnir í bekknum voru einnig farin að passa hana“.

Skóla­stjórn­endur sak­aðir um að bregð­ast ekki við ein­elti.

Ævareiðir for­eldrar Soffíu sendu í fram­hald­inu póst á skól­ann og kröfð­ust svara. Þau voru boðuð á fund sem hún segir hafa  vertið ömur­legan.„Skóla­stjór­inn var gjör­sam­lega til­finn­inga­laus, köld og spurði okkur hvað við vildum að þau gerði? Það hafi ekk­ert gerst(með hnifinn) og öll börn eigi rétt á að stunda skóla. Þess ber að geta og mik­il­vægt að það komi fram að þetta er fyrsti og eini fund­ur­inn sem skóla­stjóri Helga­fells­skóla hefur setið fund útaf þessu máli. Skeyt­inga­leysi hennar er algjört,“ skrifar Marta sem í fram­hald­inu átti fundi með skóla­stjórn­endum sem hún lýsir sem skrípa­leik.„Á end­anum sendi ég póst til Mos­fells­bæjar og krefst þess að bær­inn beiti sér í þessu máli og í raun hóta öllu illu. Ég fæ sím­hring­ingu frá deild­ar­stjóra skóla­þjón­ustu og lýsi fyrir henni mál­inu. Þá fara loks­ins hjólin að snú­ast. Við fáum barna­sál­fræð­ing með okkur á alla fundi sem er búin að vera dásam­legur og mikil hjálp. Búið er til plan um að þau séu aðskilin í skól­anum, hún fái að ganga frjáls og hann fái við­eig­andi stuðn­ing. Ég mæti með henni fyrsta skóla­dag­inn aftur. Ekki er hægt að halda þessu plani í frí­stund, ein­ungis á skóla­tíma. Þetta plan gengur fram að síð­ustu vikum skól­ans en skól­inn fer síðan að vilja mjaka honum í nálægð við hana aftur, gegn okkar vilja og vit­undar“.

„Döpur og síþreytt“

Einn morg­un­inn þegar Marta fór með Soffíu í skól­ann og brotn­aði stúlkan niður og grét.  Hún vildi ekki sleppa hend­inni af móður sinni eftir að hún sá ógn­vald sinn í fjarska. Starfs­maður sem var að leysa skóla­stjór­ann af á þeim tíma kom að málum og ræddi um  það plan skóla­stjórenda að ein­angra Soffíu „eins og dýr í búri“. Marta mót­mælti þeim áformum. Þá sgir starfs­mað­ur­inn að umræðan inn­an­húss sé hversu lengi það sé hægt að halda því áfram að ein­angra dreng­inn frá öðrum.„Síðustu daga fyrir sum­ar­fri þegar við sækjum hana er hann all­tíeinu kom­inn inní sama rými og hún, næsta dag á sama borð. Enginn segir neitt og von­ast er til að við tökum ekki eftir þessu býst ég við. Haldinn er stöðu­fundur og vor­inu “lokað”. Ákveðið var að halda fund í skóla­byrjun eftir sum­ar­fri“.Í sumar tók fjöl­skyldan eftir mik­illi breyt­ingu á líðan Soffíu. Hún var ólík sjálfri sér.„Þessi lífs­glaða, káta stelpa okkar er allt í einu orðin döpur, síþreytt. Áhuga­laus um gjör­sam­lega allt. Reið, finnst erfitt að vera til. Vill ekki vera í þessum heimi. Finnst allt asna­legt, finnst hún asna­leg. Haus­verkur, illt í heil­anum. Þegar við nefnum að skól­inn fari að byrja kemur kvíði og allar til­fin­ingar magn­ast,“ skrifar Marta og lýs­irt því að þegar skól­inn hófst hafi fundur verið hald­inn til að setja tón­inn fyrir haustið. Barnið mætti í skól­ann þar sem henni líður hræði­lega.„Hún grætur þegar hún á að fara í skól­ann og springur þegar hún kemur heim. Grætur, er reið, líður illa. Þegar við sækjum hana er hún og dreng­ur­inn saman. Sitja á sama borði. Næsta dag eru þau að leika saman. Við biðjum hana að vera ekki að leika við hann. Hún seg­ist vilja það, hann sé orð­inn núna góður við hana“.Soffíu leið illa en vill sem ninnst um það tala en segir að sér sé illt all­staðar.„Við göngum á hana og loks brotnar hún alveg og segir að hún verði að leika við dreng­inn því ann­ars muni hann drepa hana eða meiða hana. Ég sendi á barna­sál­fræð­ing­inn og grát­bið hann um að hafa sam­band strax sem hann gerir. Ég segi honum frá þessu og hann seg­ist ætla að hitta hana sem hann gerir næsta dag. Hann stað­festir hennar líðan og aug­ljóst að hún se í óboð­legum aðstæðum“.Skóla­yf­ir­völd aðhöfð­ust ekki þrátt fyrir þetta. Marta segir að for­eldr­unum til skelf­ingar hafi svo komið á dag­inn að ofbeldið var byrjað aftur.„Hún brotnar saman eitt kvöldið í okkar dag­lega kodda­hjali og segir að ef hún leiki ekki við hann þá muni hann berja hana aftur.. Ég spyr hvort að hann sé búin að vera að berja hana og hún játar því. Hann biður hana um að leika, hún neitar og hann ber hana.Við sendum póst á skól­ann og segjum þeim að hún muni ekki stíga fæti inn í skól­ann aftur. Þannig er staðan,“ skrifar Marta.Færsla Mörtu í heild sinni:Af hnífa­burði og ofbeldi ung­menna í sam­fé­lag­inu.Ofbeldi þrífst í þögn­inni.Á meðan börnin í land­inu eru nýbyrjuð í skól­anum eftir sum­ar­frí er dóttir mín í þessum töl­uðu orðum skóla­laus.Við Benoit tókum þá erf­iðu ákvörðun að fjar­lægja hana úr skól­anum sínum, Helga­fells­skóla fyrir 5 dögum síðan úr hræði­legum aðstæðum sem hún er búin að þurfa að þola alltof lengi. Nánar til­tekið síðan í vor. Hún er í 2.bekk. Hún er 6 ára gömul.Hún er sam­an­lagt síðan í vor búin að vera frá skóla tæpar 3 vikur og frá frí­stund í rúman mánuð.Ástæðan er drengur í bekknum hennar sem er búin að beita hana alvar­legu ofbeldi.Svo alvar­legu að hún er skelin af sjálfri sér. Við erum búin berj­ast með kjafti og klóm við stór­gall­aðan skóla og skóla­kerfi og umfram allt skóla­stjórn­endur sem eru gjör­sam­lega van­hæfir í sínu starfi.Forsagan er sú að hún og þessi drengur voru fínir vinir í skól­anum. Henni fannst hann mikið einn og án vina og fannst gaman að leika með honum. Hún fer síðan að koma heim og segja að hann sé far­inn að meiða hana í leik. Verður svoldið harka­legur og það sé sárt. Hún fer að koma heim með mar­bletti og seg­ist vera orðin hrædd við hann. Einn dag­inn kemur hún heim með stóra mar­bletti á bak­inu og segir að hann hafi meitt hana, hann sé farin að segja við hana að hann ætli að drepa hana og hún sé virki­lega hrædd.Ég sendi skila­boð til mömmu drengs­ins og bið hana um að vinna þetta með mér svo þetta hætti og hún lofar að tala við hann. Þetta bara áger­ist dag eftir dag, kenn­ar­inn hennar hringir í mig og segir ástandið alvar­legt og að hún hafi miklar áhyggjur af Soffíu. Hún sé uppá arm­inum hennar allan dag­inn og dauð­hrædd við dreng­inn. Hann láti hana ekki í friði og noti hvert tæki­færi til að hrella hana eða meiða. Aftur sendi ég skila­boð á móður hans og hún lofar að hann verði góður við hana.Lítið breyt­ist og dag­inn fyrir 1. Maí fær ég sím­tal sem ég óska engu for­eldri að fá. Deild­ar­stjóri yngsta stigs kynnir sig og vill fá að ræða þeirra mál og biður mig að rekja aðeins sam­kipti þeirra frá okkar sjón­ar­miði sem ég geri. Hún til­kynnir mér þá ástæðu sím­hring­ing­ar­innar, dreng­ur­inn hafi mætt í skól­ann með hníf. HNÍF!Hann nær ekki að beita hnífnum en útfrá öllu sem á undan er gengið með Soffíu er gengið útfrá því að hann ætl­aði sér eitt­hvað illt.Í algjöru losti spyr ég hvað planið sé núna og fæ þá þau svör að skól­inn muni tryggja að hún sé örugg og að hann fái ekki aðgengi að henni. Ég spyr þá hvort hann fái virki­lega að mæta í skól­ann og þetta snú­ist ekki ein­ungis um öryggi hennar heldur barn­anna allra en nei. Skólinn hefur ekki heim­ild til að fjar­lægja hann úr skól­anum. Soffía hættir að sofa, vaknar í sífellu með martraðir. Getur ekki verið ein, ekki einusinni til að fara á sal­ernið. Treystir sér ekki út að leika af ótta við að rekast á hann. Óörugg, hrædd við allt og kvíðin.Við hringjum í lög­reglu, til­kynnum til barna­verndar og hún fer í skól­ann 2.Maí. Þegar komið er í skóla­stof­una er fyrsta barnið sem ég sé hann. Soffía sturl­ast úr hræðslu og ég bakka með hana út. Kennari hennar eltir og ég spyr hvað í fjand­anum sé í gangi og kenn­ar­inn lofar að passa hana, hann sé að fara úr stof­unni og hún lofi að Soffía sé örugg. Að skilja hana eftir í skól­anum og labba út í bíl er eitt það erf­ið­asta sem ég hef gert og ég vildi óska þess að ég hefði hlustað á inn­sæjið og tekið hana heim þarna.Elsta dóttir okkar átti að sækja hana þann dag og hringir í mig grát­andi þegar í skól­ann er komið. Þá afhenti kenn­ari Soffíu til systur sinnar og segir þeim að fela sig því hann sé í nálægð og biður þær um að nota annan útgang úr skól­anum. Soffía segir systur sinni að hann hafi ráð­ist á hana fyrr um dag­inn sem kenn­ar­inn hennar stað­festir sím­leiðis. Í sama sím­tali með kenn­ar­anum hennar segir hún mér einnig að henni hafi verið haldið ein­angr­aði frá honum í skól­anum, látin fara út í port að leika einni sem er úti­svæði útfrá skóla­stof­unni og að kenn­ar­inn hafi tekið það að sér að vernda hana öllum stundum frá honum. Krakk­arnir í bekknum voru einnig farin að passa hana.Eðlilega verðum við Benoit sturluð af reiði og sendum póst á skól­ann og krefj­umst svara. Við erum boðuð á fund með deild­ar­stjóra yngsta stigs og skóla­stjór­anum og ömur­legri fund hef ég ekki setið. Skóla­stjór­inn var gjör­sam­lega til­finn­inga­laus, köld og spurði okkur hvað við vildum að þau gerði? Það hafi ekk­ert gerst(með hnifinn) og öll börn eigi rétt á að stunda skóla. Þess ber að geta og mik­il­vægt að það komi fram að þetta er fyrsti og eini fund­ur­inn sem skóla­stjóri Helga­fells­skóla hefur setið fund útaf þessu máli. Skeyt­inga­leysi hennar er algjört!Úr því verður að við treystum engan vegin skól­anum til að tryggja öryggi hennar og ákveðum að halda henni heima. Upp­hefj­ast email sam­skipti á milli okkar og skóla­stjórn­enda og svo inn­an­tómir fundir sem er ekki hægt að lýsa öðru­vísi en algjörum skrípa­leik. Við upp­lifum frá hendi skól­ans að við séum bara með vesen, ætl­ast er til að við eigum bara að treysta inn­an­tómum köldum orðum um ein­hver plön sem báru hags­muni hennar engan veg­inn fyrir brjósti og þetta gengur svo­leiðis í tæpar tvær vikur. Dreng­ur­inn missir ekki einn dag úr skóla og frí­stund. Á end­anum sendi ég póst til Mos­fells­bæjar og krefst þess að bær­inn beiti sér í þessu máli og í raun hóta öllu illu. Ég fæ sím­hring­ingu frá deild­ar­stjóra skóla­þjón­ustu og lýsi fyrir henni mál­inu. Þá fara loks­ins hjólin að snú­ast.Við fáum barna­sál­fræð­ing með okkur á alla fundi sem er búin að vera dásam­legur og mikil hjálp. Búið er til plan um að þau séu aðskilin í skól­anum, hún fái að ganga frjáls og hann fái við­eig­andi stuðn­ing. Ég mæti með henni fyrsta skóla­dag­inn aftur. Ekki er hægt að halda þessu plani í frí­stund, ein­ungis á skóla­tíma. Þetta plan gengur fram að síð­ustu vikum skól­ans en skól­inn fer síðan að vilja mjaka honum í nálægð við hana aftur, gegn okkar vilja og vit­undar.Einn morg­un­inn þegar ég fer með hana í skól­ann og hún brotnar niður og grætur, vill ekki sleppa af mér hend­inni því hún sá hann í fjarska labba inn í skól­ann tekur starfs­maður sem var að leysa skóla­stjór­ann af á þeim tíma til hliðar. Upp­hefj­ast sam­ræður um frí­stund og þeirra plan var að ein­angra hana eins og dýr í búri sem ég að sjálf­sögðu mót­mæli. Þá nefnir konan að hann sé búin að vera fjar­lægður frá öllu, fær ekki að umgang­ast neinn og það sé að taka fullt af starfs­fólki frá skól­anum í þá aðgerð. Umræðan inn­an­húss sé hversu lengi það sé hægt að halda því áfram.. Hægt er að ímynda sér líðan mína eftir þessi ummæli.Hún fer að fara í frí­stund eftir að bær­inn ber aftur í borðið og krefst þess að það verði gert plan um að hún geti sótt frí­stund­ina örugg. Síðustu daga fyrir sum­ar­fri þegar við sækjum hana er hann all­tíeinu kom­inn inní sama rými og hún, næsta dag á sama borð. Enginn segir neitt og von­ast er til að við tökum ekki eftir þessu býst ég við. Haldinn er stöðu­fundur og vor­inu “lokað”. Ákveðið var að halda fund í skóla­byrjun eftir sum­ar­fri.Sumarið líður og við fjöl­skyldan tökum eftir og finnum fyrir mik­illi breyt­ingu á líðan Soffíu. Hún er ólík sjálfri sér. Þessi lífs­glaða, káta stelpa okkar er allt í einu orðin döpur, síþreytt. Áhuga­laus um gjör­sam­lega allt. Reið, finnst erfitt að vera til. Vill ekki vera í þessum heimi. Finnst allt asna­legt, finnst hún asna­leg. Haus­verkur, illt í heil­anum. Þegar við nefnum að skól­inn fari að byrja kemur kvíði og allar til­fin­ingar magn­ast.Skólinn hefst, fundur er hald­inn til að setja tón­inn fyrir haustið. Ég spyr og bið um plan. Er hann að fara að koma aftur inn í bekk­inn? Munu fyrri plön hald­ast með þau? Ekki var hægt að svara því, bíðum og sjáum til hvernig skól­inn byrjar. Ég nefni líðan Soffíu. Deild­ar­stjóri frí­stundar seg­ist taka eftir því sama. Hún sé ólík sjálfri sér. Ákveðið er að sækja um aðstoð fyrir hana í gegnum skól­ann. Dagarnir líða, ekk­ert heyr­ist. Hún grætur þegar hún á að fara í skól­ann og springur þegar hún kemur heim. Grætur, er reið, líður illa.Þegar við sækjum hana er hún og dreng­ur­inn saman. Sitja á sama borði. Næsta dag eru þau að leika saman. Við biðjum hana að vera ekki að leika við hann. Hún seg­ist vilja það, hann sé orðin núna góður við hana. Ég sendi póst og bið um að vita planið. Hún heldur áfram að gráta fyrir og eftir skóla. Við Benoit setj­umst niður með henni eftir skóla einn dag­inn og spyrjum hana hvernig henni líði. Hún verður reið, vill ekki tala um þetta, seg­ist bara líða illa, veit ekki af hverju. Henni er illt all­staðar. Við göngum á hana og loks brotnar hún alveg og segir að hún verði að leika við dreng­inn því ann­ars muni hann drepa hana eða meiða hana.Ég sendi á barna­sál­fræð­ing­inn og grát­bið hann um að hafa sam­band strax sem hann gerir. Ég segi honum frá þessu og hann seg­ist ætla að hitta hana sem hann gerir næsta dag. Hann stað­festir hennar líðan og aug­ljóst að hún se í óboð­legum aðstæðum. Ég sendi email til skól­ans enn og aftur, krefst svara. Fæ ekk­ert svar, lofað þessu, lofað hinu. Hitti deild­ar­stjóra einn morg­un­inn sem segir að það þurfi að kenna henna að setja honum mörk. Einmitt. Dagarnir líða og líða, og líða.Svo kom að því, einmitt það sem við vildum ekki að myndi ger­ast aftur. Hún brotnar saman eitt kvöldið í okkar dag­lega kodda­hjali og segir að ef hún leiki ekki við hann þá muni hann berja hana aftur.. Ég spyr hvort að hann sé búin að vera að berja hana og hún játar því. Hann biður hana um að leika, hún neitar og hann ber hana.Við sendum póst á skól­ann og segjum þeim að hún muni ekki stíga fæti inn í skól­ann aftur. Þannig er staðan.——————————————Það eru ekki til lýs­ing­ar­orð sem geta komið til skila hversu gjör­sam­lega búin og sigruð við erum. Umfram allt elsku, fal­lega, ynd­is­lega dóttir mín og einnig við fjöl­skyldan. Þetta er búið að hel­taka líf okkar. Að horfa uppá ofbeldið að hálfu drengs­ins en einnig skól­ans er búið að vera hörmu­legt. Þetta er búið að breyta dóttur minni. Breyta hennar karakter og hafa var­an­leg áhrif á hana og guð minn góður hvað ég vona að það verði ekki til fram­búðar. Það er búið að möl­brjóta á hennar mann­rétt­indum, rétt til að ganga frjáls og óáreitt í skóla og van­virð­ingin og sinnu­leysi skól­ans er gjör­sam­lega galið.Hjartað mitt og sálin mín kraumar af sorg og reiði yfir gjör­sam­lega möl­brotnu kerfi sem hefur ekki getu, burði né vilja til að grípa ein­stak­linga sem verða fyrir ofbeldi eða alvar­legu ein­elti. Bæði ger­anda og þolendur. Mér líður eins og ég eigi ekki til fleiri tár til að fella. Að horfa uppá að brotið sé á barn­inu mínu, talað sé niður til okkar, aðgerða­leysið og finnst við ekki geta gert né ekki haft neinn stað til að leita til er búið að vera skelfi­legt. Við erum búin að vera alltof þol­in­móð, sam­vinnu­þýð og nú er nóg komið.Ég er búin að marg­spyrja skóla­stjórn­endur. Eftir hverju eruð þið að bíða? Hvað er nógu alvar­legt ofbeldi af nem­anda til sam­nem­anda að þeirra mati? Er verið að bíða eftir því að hann nái að berja hana verr, rústa sál­inni hennar aðeins meira. Væri tekið alvar­legra á þessu ef þau væru eldri? Væri hljóðið öðru­vísi ef hann hefði beitt hnífnum á hana? Er verið að bíða eftir að hann drepi hana???? Ég hef engin svör fengið frekar en fyrri dag­inn.Ég hef marg­beðið skól­ann um að láta for­eldra bekkj­ar­ins vita af þessu. Nei, það má ekki tala um þetta. Það má ekki tala um ein­staka mál innan skól­ans. Það er brot á per­sónu­vernd. Við Benoit tókum það að okkur og létum for­eld­rana vita. Börnin þeirra eru búin að horfa uppá ofbeldi og líf­láts­hót­anir. Taka það að sér að vernda og passa uppá bekkj­ar­systur sína og eins og gefur að skilja er hljóðið í for­eldrum langt frá því að vera gott. Hvað býst skól­inn eig­in­lega við? Að það sé boð­legt að þagga niður ofbeld­is­mál innan bekkj­ar­ins og búast við að for­eldrar með ein­hverju viti kingji því?Þess ber að geta að það hafa ótal börn flúið þennan skóla vegna aðgerð­ar­leysis gagn­vart alvar­legu ein­elti.Að mínu mati er skóla­stjóri skól­ans og skóla­stjórn­endur gjör­sam­lega van­hæfir og ættu að sýna sóma sinn í að stíga frá borði strax.Og hér er ég, að tjá mig. Móðir sem er búin að öskra og grát­biðja um hjálp og aðgerðir til að bjarga dóttur minni. Ég mun hafa eins hátt um þetta eins og þarf til að það sé hlustað. Halda áfram að berj­ast fyrir hana eins og ég myndi gera fyrir allar dætur mínar þrjár. Ofbeldi þrífst og stækkar í þögn­inni og myrkr­inu og ég er ekki að fara að búa í sam­fé­lagi sem styður það. Fólki sem finnst ég vera óþægi­leg og að segja of mikið, þetta sé einka­mál. Það fólk má eiga sig. Það er einnig kjarni máls­ins. Umræða og skelfi­legu atburðir und­an­farna vikna eru skýrt dæmi um hversu möl­brotið sam­fé­lag við erum þegar það kemur að börn­unum okkar og að tekið sé alvar­lega á ofbeld­is­málum og ein­stak­lingum sem eru búnir að öskra á hjálp síðan þeir voru börn. Börn eins og dóttir mín og þessi elsku drengur.HVAÐ ER AÐ?? HVAÐ ÞARF TIL?? Ung stúlka er látin!! Hversu mörg börn þurfa að færa fórnir með lífi sínu til að við, full­orðna fólkið sem eigum að vernda þau, leið­beina þeim, umvefja þau með ást, kær­leika, virð­ingu VÖKNUM! For­eldrar, skóli, sam­fé­lag, ráða­menn. Hættum að stinga höfð­inu í sand­inn, hættum að ger­enda­væða sam­fé­lagið. Skjótum í kaf þá sem tala með ofbeldi og ein­stak­lingum sem beita ofbeldi og upp­hefjum þá sem vilja upp­ræta það með öllum leiðum. Það ger­ist ekk­ert nema við stöndum saman. Setjum okkur í spor þeirra sem þjást en ekki þeirra sem er slaufað með gjörðum sínum. Kennum börn­unum okkar að þó að þú sért sam­fé­lags­miðla­stjarna, tón­lista­maður eða frægur ein­stak­lingur gefur það þér ekki frípassa til að ganga um og styðja ofbeldi.Okkar heitasta ósk er einnig að þessi elsku drengur fái hjálp­ina, stuðn­ing­inn og ást­ina sem hann á skilið. Það er aug­ljós­lega þörf á því. Ekkert barn sem líður vel gengur um með hníf á sér, engu barni sem líður vel beitir ofbeldi. Þessi orð nísta í sál­ina og eru svo sönn og eiga við um öll börn í vanda! Ég ætla að biðja ykkur um að halda öllum nei­kvæðum ummælum um hann fyrir ykkur. Hann ber ekki ábyrgð á gjörðum sínum heldur full­orðna fólkið sem á að vernda hann.Hugsanir “um hvað” ef ásækja mig á hverri mín­útu sól­ar­hrings­ins, í svefni og vöku. Þessar hugs­anir eru lam­andi en ég ætla ekki að leyfa þeim að sigra. Ég er EKKI að fara að bíða eftir að eitt­hvað enn eitt hræði­legt ger­ist fyrir dóttir mína. Það dýr­mætasta sem ég á! Ég vill ekki kenna dætrum mínum að þetta sé boð­legt, að heim­ur­inn virki svona. Að þú eigir að kyngja órétt­læti og ofbeldi og sam­fé­lagið krefj­ist þess að þú hafir ekki hátt. Svo ég hef hátt og mun hafa hátt. Ég neita að taka þátt í þessu! Hingað og ekki lengra!Ofbeldi þrífst í þögn­inni!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

skólamál

Kennari segir Ísland á mjög vondum stað: „Ég hef ákveðið að láta ekki bjóða mér mikið meiri þvælu“
Innlent

Kennari segir Ísland á mjög vondum stað: „Ég hef ákveðið að láta ekki bjóða mér mikið meiri þvælu“

Gauti Eiríks­son, kenn­ari við Álfta­nes­skóla seg­ist ekki ætla að láta bjóða sér „meiri þvælu“. Kennarar eru í áfalli eftir að Sam­band ís­lenskra sveit­ar­fé­laga hafn­aði inn­an­hús­til­lögu sem rík­is­sátta­semj­ari lagði fram í kenn­ara­deil­unni. Einn þeirra, Gauti Eiríks­son, kenn­ari við Álfta­nes­skóla, birti í gær mynd­skeið á Facebook þar sem hann seg­ist ekki ætla að láta bjóða sér „meiri þvælu“. „Hvað gerir maður á...
Dómur hefur fallið – Verkfallsboðun kennara lögleg
Innlent

Dómur hefur fallið – Verk­falls­boðun kenn­ara lög­leg

Verk­falls­boðun kenn­ara er lög­leg, sam­kvæmt nið­ur­stöðu Félags­dóms. Kenn­ara­sam­band Íslands var sýknað í morgun í Félags­dómi af kröfu Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga er taldi verk­falls­boðun kenn­ara ólög­lega. Vísir segir frá mál­inu. SÍS stefndi boðun verk­falls í fjöldi skóla vegna þess að engin kröfu­gerð lág fyrir í kjara­deil­unni en for­maður Kenn­ara­sam­bands Íslands, Magnús Þór Jónsson, segir stefn­una ekki hafa áhrif á boðuð verk­föll...
Jón Gnarr tekur upp hanskann fyrir kennara: „Gætu veikindi vegna myglu skýrt þetta?“
Innlent

Jón Gnarr tekur upp hansk­ann fyrir kenn­ara: „Gætu veik­indi vegna myglu skýrt þetta?“

Jón Gnarr tekur upp hansk­ann fyrir kenn­ara og kemur með áhuga­verðan punkt varð­andi aukin veik­indi í stétt­inni. Grínist­inn og fram­bjóð­andi Við­reisnar í kom­andi Alþing­is­kosn­ingum, Jón Gnarr, skrif­aði Facebook-færslu í gær en með færsl­unni birtir hann skjá­skot af frétt mbl.is sem fjall­aði um úttekt Við­skipta­ráðs á skóla­málum. Þar kemst Við­skipta­ráð meðal ann­ars að þeirri nið­ur­stöðu a veik­inda­hlut­fall kenn­ara vera almennt mun...
Dóra Björt var lögð í einelti af kennurum: „Við megum ekki skera niður okkar fegurstu blóm“
Innlentskólamál

Dóra Björt var lögð í ein­elti af kenn­urum: „Við megum ekki skera niður okkar feg­urstu blóm“

Dóra Björt Guð­jóns­dóttir var lögð í ein­elti af kenn­urum á sínum yngri árum. Um þetta opn­aði hún í Facebook-færslu rétt í þessu. Pírata­fram­bjóð­and­inn Dóra Björt Guð­jóns­dóttir segir frá því í nýrri Facebook-færslu að hún hafi hlotið þann heiður að ávarpa ráð­stefnu ADHD-sam­tak­anna nýlega og segir frá því í leið­inni að hún sjálf sé með ADHD. „Ég hlaut þann heiður að...
Magnús Þór um úttekt Viðskiptaráðs: „Við munum þá sjá hvaða sjónarhorn þau hafa valið sér“
Innlent

Magnús Þór um úttekt Við­skipta­ráðs: „Við munum þá sjá hvaða sjón­ar­horn þau hafa valið sér“

Magnús Þór Jónsson, for­maður Kenn­ara­sam­bands Íslands ætlar að fara yfir úttekt Við­skipta­ráðs, í róleg­heit­unum og „sjá hvaða sjón­ar­horn þau hafa valið sér“. Við­skipta­ráð segir meðal ann­ars í úttekt sinni að íslenska grunn­skóla­kerfið sé dýrt í alþjóð­leg­um sam­an­b­urði, kennslu­skylda lít­il og fjöldi nem­enda á hvern kenn­ara er einn sá lægsti þekk­ist. Þá er veik­inda­hlut­fall kenn­ara sagt vera almennt mun hærra en...
Svarar ekki hvernig verkfallsskólarnir átta voru valdir: „Ég dáist að hugmyndarflugi fólks“
Innlent

Svarar ekki hvernig verk­falls­skól­arnir átta voru valdir: „Ég dáist að hug­mynd­ar­flugi fólks“

Mjöll Matth­í­as­dóttir, for­maður Félags grunn­skóla­kenn­ara kann­ast ekki við að börn fólks í samn­inga­nefnd rík­is­ins séu nem­endur í þeim átta skólum sem kosið er nú um hvort loka þurfi vegna verk­falla kenn­ara. Mannlífi barst ábend­ing þar sem full­yrt var að þeir átta skólar sem valdir hafa verið fyrir verk­föll kenn­ara og kosn­ing stendur nú yfir um, séu skólar þar sem börn...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins