„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Pabbi Dags reiður

Pabbi Dags reiður
Kristrún Frosta­dóttir.

Dagur B. Egg­erts­son, for­maður borg­ar­ráðs og fram­bjóð­andi Sam­fylk­ingar, hefur upp­skorið bæði aðhlátur og grát eftir að Kristrún Frosta­dóttir, for­maður Sam­fylk­ingar, tók af skarið um að hann væri ekki ráð­herra­efni flokks­ins og fólki væri vel­komið að stroka hann út.

Ættmenni Dags hafa snú­ist honum til varnar. Fyrst var það bróðir hans, Gauti Egg­erts­son, sem skildi minnst í því að stór hluti Sam­fylk­ingar vildi ekki Dag í fram­boð. Í gær steig síðan faðir hans, Eggert Gunn­ars­son dýra­læknir fram og hædd­ist að Kristrúnu for­manni og öðrum odd­vitum flokks­ins.

„Kristrún hef­ur látið að því liggja að komi til þess að Sam­fylk­ing­in myndi rík­is­stjórn verði Dag­ur B. Eggerts­son ekki ráð­herra­efni enda sé hann hann feta sig á nýj­um slóðum. Fyr­ir í fleti séu leið­tog­ar flokks­ins í hinum ýmsu kjör­dæm­um. Og hverj­ir eru svo þess­ir snill­ing­ar,“ spyr Eggert í færslu á Facebook og reiði hans leynir sér ekki.

Hann telur svo upp ráð­herra­efni Sam­fylk­ingar, vænt­an­lega til að sýna fram á hve heimsku­legt það sé að hafna syn­inum hug­um­prúða.

„Fyr­ir utan hana sjálfa eru það: Jó­hann Páll Jó­hanns­son, alþing­ismaður til þriggja ára; Arna Lára Jóns­dótt­ir, bæj­ar­stjóri Ísa­fjarð­ar­bæj­ar og rit­ari Sam­fylk­ing­ar­inn­ar; Logi Ein­ars­son, alþing­ismaður og frv. for­maður; Víðir Reyn­is­son, yf­ir­lög­reglu­þjónn; Alma Möller, land­lækn­ir …,“ skrifar Eggert og tíundar svo kosti son­ar­ins og yfir­burð­a­r­eynslu. Mogginn hefur síðan end­u­r­ómað færslu Eggerts og veitt Degi stuðn­ing á erf­iðum tímum. Spurt er um ein­lægni. Flestur hafa fagnað frum­kvæði Kristrúnar og þeim fasta­tökum í að end­ur­nýja flokk­inn sem aðgerð hennar lýsir.

Dagur hefur sjálfur tekið höfn­unni vel opin­ber­lega. Hann sagði á RÚV að hann hefði sjálfur óskað eftir öðru sæti á list­anum og þar með minni ábyrgð. Fullyrt er innan Sam­fylk­ingar að hann hafi upp­haf­lega sóst eftir því að verða odd­viti í öðru Reykja­vík­ur­kjör­dæmanna en því hafi verið hafnað af Kristrúnu og upp­still­inga­nefnd. Það er því í besta falli hálf­sann­leikur að hann hafi sjálfur óskað eftir auka­hlut­verki …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

orðrómur

Veruleikaflótti Hildar
Slúðurorðrómur

Veru­leikaflótti Hildar

Það getur verið gríð­ar­lega mik­il­vægt fyrir fólk, sér­stak­lega í stjórn­málum, að sýna bjart­sýni. Slíkt getur verið gott vega­nesti í að fá annað fólk með sér í lið. Hins vegar er stutt á milli bjart­sýni og rang­hug­mynda, sér­stak­lega í stjórn­málum. Hlust­endur Bylgj­unnar fengu að kynn­ast því þegar Hildur Björns­dóttir, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík, lét þau orð falla að hún hefði í...
Sálarlaus Stefán Máni
Slúðurorðrómur

Sál­ar­laus Stefán Máni

Þá er Heiða Björg Hilm­is­dóttir orðin borg­ar­stjóri Reykja­víkur en til­kynnt var um það á frétta­manna­fundi sem „Kryddp­í­urnar“ héldu í gær, einmitt á afmæl­is­degi Heiðu. Á fund­inum voru ræddar áherslur þessa nýja meiri­hluta og er nokkra áhuga­verða hluti þar að finna og má kannski helst nefna þá stór­kost­legu ákvörðun að leggja niður hin gagns­lausu íbúa­ráð hverfa Reykja­víkur sem hafa lítið gert...
Samsæriskenning Stefáns Einars
Slúðurorðrómur

Sam­sær­is­kenn­ing Stefáns Einars

Það er margt hægt að segja um Stefán Einar Stef­áns­son, fjöl­miðla­mann Morg­un­blaðs­ins, en hann hefur fengið mikla athygli á und­an­förnum mán­uðum fyrir þátt­inn Spursmál sem er sýndur á vef­síðu Morg­un­blaðs­ins. Sitt sýn­ist hverjum um gæði þátt­ar­ins en greini­legt er að hann hefur vakið lukku hjá mörgum hægri mönnum á land­inu. Ábyrgð Stefáns er mikil enda er trú­verð­ug­leiki fjöl­miðla­manna gíf­ur­lega mik­il­vægur,...
Guðrún slapp frá súrmatnum
Slúðurorðrómur

Guðrún slapp frá súr­matnum

Eins og greint var frá í Mannlífi kom upp mat­ar­eitrun á þorra­blóti Jök­ul­dæl­inga í Brú­ar­ás­skóla fyrir austan þar sem Guðrún Haf­steins­dóttir, alþing­is­maður og fram­bjóð­andi til for­mennsku í Sjálf­stæð­is­flokknum, var stödd. Mannlíf hefur ítrekað reynt að ná sam­bandi við Guðrúnu til að fá upp­lýs­ingar um ástand hennar. Hún hefur í engu svarað og var uppi ótti um að óværan hefði lagst...
Pirraður Júlí Heiðar
Slúðurorðrómur

Pirraður Júlí Heiðar

Mikil spenna ríkir meðal Íslend­inga vegna Eurovision og kemur í ljós á laug­ar­dag­inn hvaða flytj­endur taka þátt í keppn­inni fyrir hönd Íslands. Ef marka má hlust­anir á Spotify og athygli á sam­fé­lags­miðlum þá stefnir í að VÆB bræð­urnir Matthías Davíð og Hálfdán Helgi Matth­í­assynir sigri auð­veld­lega. Vin­sældir þeirra meðal almenn­ings virð­ast vera tals­vert meiri en ann­arra kepp­enda. Hafa vin­sældir þeirra...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Slúður

Slúður

Samsæriskenning Stefáns Einars

Slúður

Guðrún slapp frá súrmatnum