„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Húðskammar fréttafólk RÚV: „Af hverju talið þið ekki um raunveruleikann eins og hann sýnir sig?“

Húðskammar fréttafólk RÚV: „Af hverju talið þið ekki um raunveruleikann eins og hann sýnir sig?“
Gaza. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Pétur Eggerz Pét­urs­son, aðgerð­ar­sinni, tón­list­ar­maður og hreyfi­hönn­uður skorar á starfs­menn frétta­stofu Rík­is­út­varps­ins til að gera betur í umfjöllun sinni um þjóð­ar­morðið á Gaza.

„Þetta er opið ákall til allra starfs­manna frétta­stofu RÚV, að kynna sér eft­ir­far­and punkta sem ég mun fara yfir hérna,“ segir Pétur Eggerz í nýju mynd­skeiði á Instagram en hann hefur verið afar gagn­rýn­inn á frétta­flutn­ing Rík­is­út­varps­ins um það þjóða­morð sem Ísraelar eru að fremja á Palest­ínu­mönnum og það í beinni útsend­ingu. Pétur heldur áfram: „Og taka sér afstöðu og standa upp gegn þess­ari kerfi­bundnu þöggun á þjóð­ar­morð­inu í Palest­ínu, lög­reglu­of­beld­inu í Þýska­landi og á þöggun sam­fé­lags­miðl­arisanna á þessum við­fangs­efnum.“ Þarna á Pétur við það aukna ofbeldi lög­reglu í Þýska­landi á frið­sömum mót­mæl­endum and­stæð­inga þjóð­ar­morðs­ins, sem náðst hafa á mynd­skeið og farið á milli manna á inter­net­inu und­an­farið og þau skugga­bönn sem fólk hefur lent í eftir að hafa birt fregnir af ódæð­is­verkum Ísra­els­hers í Palest­ínu.

Tíminn er runninn út

Pétur heldur áfram: „Og ég vil benda á að sá tími til þess að segja að fólk hafi ekki vitað hvað var í gangi er varðar þetta mál­efni, hann er runn­inn út. Þannig að núna, verðið þið að tala saman inn­an­húss, þið verðið að bera saman bækur og nota ykkar sér­menntun til þess að fara yfir þetta mál. Í dag er í fyrsta skipti sem að RÚV fjallar um það skipu­lagða land­rán sem Ísrael hefur staðið í á norð­ur­strönd Gaza en gerir það bara eftir að land­ránið hefur átt sér stað.“

Eft­ir­leikur enn einnar árásar Ísraela á Norð­ur­strönd Gaza.

Stað­hæfir Pétur að RÚV hafi verið bent á að opin­berir aðilar innan Ísra­els­hers hafi fyrir mörgum vikum síðan, stigið fram og sagt að til­gangur verk­efn­is­ins sé að inn­lima norð­ur­strönd Gaza inn Ísra­els­ríki. Bendir Pétur á erlendar fréttir sem stað­festa þetta frá 13. októ­ber síð­ast­liðnum. „Þannig að allar aðgerðir, allar árásir á flótta­manna­búðir og spít­ala, þetta hefur allt verið partur af kerf­is­bundnu land­ráni og allar upp­lýs­ing­arnar hafa legið fyrir. Af hverju er ekki fjallað um þetta? Er það af því að blaða­menn vilja ekki fjalla um þetta? Eða er það vegna þess að rit­stjórn vill ekki tala um það? Af hverju talið þið ekki um raun­veru­leik­ann eins og hann sýnir sig?“

Lögregluofbeldið í Þýskalandi

Því næst snýr Pétur sér að lög­reglu­of­beld­inu í Þýska­landi en Amnesty International hefur kraf­ist þess að ofbeldið sem frið­samir mót­mæl­endur þjóð­ar­morðs­ins hafa verið beittir af lög­regl­unni í Þýska­landi, verði rann­sakað: „Við erum öll að sjá mynd­böndin frá Þýska­landi, þar sem að Pro-Palestine mót­mæl­endur verða fyrir hrotta­legu ofbeldi og sér­stak­lega í ljósi þeirra árása sem mót­mæl­endur á Íslandi hafa orðið fyrir, þá skiptir miklu máli að við sjáum fram­þróun mála hvað þetta varðar. Af hverju minn­ist þið ekki á það?“

Frá mót­mælum í Þýska­landi

Að lokum bendir Pétur á að sam­fé­lags­miðl­aris­inn Meta sé að beita sér gegn dreif­ingu frétta af þjóð­ar­morð­inu. „Og að lokum þá er Meta að beita sér sér­stak­lega gegn pro-Palestine mót­mæl­endum og þagga niður umræð­una um mann­rétt­inda­brot. Þið hafið aldrei fjallað um þetta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

þjóðarmorð

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“
Heimurþjóðarmorð

Segir Net­anyahu stað­ráð­inn í að ráð­ast aftur á Gaza: „Mun skapa gríð­ar­leg vanda­mál“

For­sæt­is­ráð­herra Ísraels hyggst hefja árásir á Gaza að nýju en mun lík­lega mæta mik­illi and­stöðu frá ísra­elskum almenn­ingi, að sögn Meron Rapoport, rit­stjóra ísra­elska frétta­stof­unnar Local Call. „Vænt­ingin frá fjöl­skyldum gísl­anna [sem eru eftir á Gaza] er að öllum gísl­unum verði sleppt,“ sagði hann við Al Jazeera. Hins vegar, eftir að hafa tekið upp hug­mynd Trumps um að flytja Palest­ínu­menn...
Segja herinn hafa drepið ísraelsku fjölskylduna á Gaza – Líkamsleifarnar sagðar hafa blandast saman
Heimurþjóðarmorð

Segja her­inn hafa drepið ísra­elsku fjöl­skyld­una á Gaza – Lík­ams­leif­arnar sagðar hafa bland­ast saman

Í yfir­lýs­ingu frá fjöl­miðla­skrif­stofu yfir­valda á Gaza er lítið gert úr hót­unum ísra­el­skra emb­ætt­is­manna vegna full­yrð­inga um að rangt lík hafi verið skilað til Ísraels á fimmtu­dag. Yfirvöld segja að lík­ams­leifar kven­kyns gísls hafi fund­ist í bland við leifar ann­ars fólks undir rústum bygg­ingar, sem varð fyrir lát­lausum loft­árásum Ísra­els­hers á Gaza. Segja yfir­völd að þetta sé bara vitn­is­burður um...
Undirskriftarsöfnun gegn þátttöku Íslands í Eurovision hafin – Allir flytjendur vilja keppa úti
Innlentþjóðarmorð

Und­ir­skrift­ar­söfnun gegn þátt­töku Íslands í Eurovision hafin – Allir flytj­endur vilja keppa úti

Und­ir­skrift­ar­söfnun er hafin þar sem þess er að kraf­ist að RÚV dragi Ísland úr Eurovision verði Ísrael ekki meinuð þátt­taka í Eurovision í ár. Allir kepp­endur í Söngvakeppn­inni hafa sam­þykkt að taka þátt úti í Sviss, vinni þeir. Lóa Hlín Hjálmtýs­dóttir stendur fyrir und­ir­skrift­ar­söfnun þar sem þess er kraf­ist að RÚV dragi Ísland úr Eurovision í ár, verði Ísrael ekki...
Minnst þrír Palestínumenn drepnir á Gaza – Sonur bæjarstjóra í Líbanon myrtur í drónaárás
Heimurþjóðarmorð

Minnst þrír Palest­ínu­menn drepnir á Gaza – Sonur bæj­ar­stjóra í Líbanon myrtur í dróna­árás

Að minnsta kosti þrír Palest­ínu­menn hafa verið drepnir og 11 særðir í árásum Ísra­els­hers víðs­vegar um Gaza síð­asta sól­ar­hring­inn og einn til við­bótar lést af sárum sem hann hlaut í fyrri árás Ísra­els­manna, að sögn heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins. Tvö lík til við­bótar voru einnig tekin undan rústum síð­ast­lið­inn dag, segir í yfir­lýs­ing­unni. Nú er tala myrtra á Gaza frá 7. októ­ber, komin...
Ísraelar hafa brotið 266 sinnum á vopnahléssamkomulaginu – Minnst 132 Palestínumenn drepnir
Heimurþjóðarmorð

Ísraelar hafa brotið 266 sinnum á vopna­hléssam­komu­lag­inu – Minnst 132 Palest­ínu­menn drepnir

Ísraelar hafa brotið vopna­hléssam­komu­lagið við Hamas 266 sinnum, frá því að það tók gildi. Palest­ínskir heim­ild­ar­menn innan ​​örygg­is­geirans hafa sagt Al Jazeera að þeir hafi skráð 266 brot á vopna­hléssam­komu­lag­inu síðan það tók gildi á Gaza-svæð­inu 19. jan­úar. Þessi brot hafa leitt til dauða að minnsta kosti 132 Palest­ínu­manna, þar af 26 sem lét­ust síðar af sárum sínum. Meira en...
Ísraelsher skaut fjögur skólabörn á Vesturbakkanum – MYNDSKEIÐ
Heimurþjóðarmorð

Ísra­els­her skaut fjögur skóla­börn á Vest­ur­bakk­anum – MYNDSKEIÐ

Að minnsta kosti 20 Palest­ínu­menn, þar á meðal fjögur skóla­börn, særð­ust í skotárás Ísra­els­hers í gær í árás hers­ins á Nablus og al-Bireh á hernumda Vest­ur­bakk­anum. Áhlaupin áttu sér stað síð­degis, þegar götur voru troð­fullar og nem­endur voru að búa sig undir að snúa heim úr skól­anum. Ísra­elskir sér­sveit­ar­menn réð­ust inn í Gömlu borg­ina í Nablus og umkringdu hús, studd...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins