„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Leyniupptökur ljóstra upp um vinagreiða og hrossakaup : „Allir aðrir verða brjálaðir yfir þessu“

Leyniupptökur ljóstra upp um vinagreiða og hrossakaup : „Allir aðrir verða brjálaðir yfir þessu“
Jón Gunn­ars­son þing­maður

Gunnar Bergmann, sonur og við­skipta­fé­lagi Jóns Gunn­ars­sonar þing­manns, stað­hæfir í leyni­legum upp­tökum manns sem þótt­ist vera erlendur fjár­festir, að Jón hafi sam­þykkt beiðni Bjarna Bene­dikts­sonar um að taka fimmta sæti á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins, gegn því að hann kæm­ist í aðstöðu til að veita Hvali hf veið­leyfi og tryggja þannig vini sínum, Krist­jáni Lofts­syni leyfið. Þetta kemur fram í nýrri frétt Heim­ild­ar­innar.

Rannsókn alþjóðlegra samtaka

Sonur Jóns Gunn­ars­sonar, Gunnar Bergmann, fyrr­ver­andi for­maður Félags hrefnu­veiði­manna, lýsir á upp­töku áfor­fum föður síns og Bjarna Bene­dikts­sonar um að veita Krist­jáni Lofts­syni, for­stjóra og aðal­eig­anda Hvals hf., hvað­veiði­leyfi við Ísland. Við getum aldrei talað um að hann sé að gera það fyrir vin sinn,“ segir hann meðal ann­ars í upp­tök­unum sem Heim­ildin hefur undir höndum.

Að sögn Heim­ild­ar­innar er upp­takan afrakstur rann­sóknar ónefndra alþjóð­legra sam­taka, rann­sókn þeirra hefðu verið þaul­skipu­lögð, tíma­frek og dýr. Kemur fram í frétt­inni að upp­tök­urnar hafi borist blaða­mönnum mið­ils­ins úr ólíkum áttum á fimmtu­dag­inn. Hafi í kjöl­farið verið leitað við­bragða frá fegð­unum Jóni og Gunnari.

Fyrir fáeinum dögum var Jón Gunn­ars­son gerður að sér­stökum erind­reka Bjarna Bene­dikts­sonar í mat­væla­ráðu­neyt­inu, sama dag og Jón ákvað að þiggja fimmta sætið á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann hafði þá tapað fyrir vara­for­manni flokks­ins í bar­áttu um annað sætið á list­anum. Ekki hefur Jón umboð til a veita hval­veiði­leyfið en sam­kvæmt Bjarna var ætl­unin sú að Jón myndi vinna að fram­gangi mála og hjálpa honum við ákvarð­ana­töku.

Vinagreiði og arfleifð

Fram kemur í upp­tök­unum, sem teknar voru að syni Jóns óvit­andi, lýsir hann sam­komu­lagi þeirra Bjarna og Jóns og hvað reki föður hans áfram. Er því meðal ann­ars lýst í smá­at­riðum hvernig leyfið skuli veitt. Kemur fram að Jón geti ekki skrifað upp á það, í ljósi þess að hann er ekki ráð­herra og Bjarni getur það ekki heldur, vegna tengsla fjöl­skyldu hans við Hval hf. Planið er að séð verði til þess að annar ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins und­ir­riti leyfið.

Samkvæmt Heim­ild­inni heyr­ist Gunnar Bergmann, sonur og við­skipta­fé­lagi Jóns, útlista fyrir öðrum manni að for­sæt­is­ráð­herr­ann hafi gengið á eftir Jóni um að taka sæti á list­anum. „Á end­anum sagði hann, „allt í lagi, ég er til­bú­inn að taka fimmta sætið. En þú verður þá að gera eitt­hvað fyrir mig“,“ heyr­ist Gunnar segja. „Af því að ég veit að hann er að fara að hætta. Þannig að okkur er eig­in­lega sama um allt annað núna. […] Þetta væri ansi góð arf­leifð að skilja eftir sig.“

Tekur Gunnar aukreitis fram að faðir hans þurfi ekki að kvíða því að hætta á þingi og nefnir sér­stak­lega að hann geti jafn­vel tekið sér stjórn­un­ar­stöðu í Hval hf., ef hann hefur áhuga á því.

Heim­ildin segir í frétt sinni að mynd­bands­upp­tök­urnar sem barst blaða­mönn­unum við­ist hafa verið teknar upp á tveimur fundum Gunnars með manni sem þótt­ist vera erlendur fjár­festir sem hefði áhuga á millj­arða við­skipta­tæki­færum hér á landi. Barst þar talið að stjór­mála­teng­ingum Gunnars í gegnum föður sinn og þaðan að hval­veiðum og vin­áttu föður hans og Krist­jáns Lofts­sonar. Segir í frétt­inni að mark­mið þeirra sem stóðu að blekk­ing­ar­leiknum, hafi verið að kanna póli­tísk tengsl Krist­jáns Lofts­sonar, sér­stak­lega hvernig þau tengsl hanns við þing­menn og ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hafi áhrif á ákvarð­ana­töku íslenskra stjórn­valda, sér­stak­lega Jóns Gunn­ars­sonar, núver­andi þing­manns og fyrrum ráð­herra, auk Bjarna Bene­dikts­sonar.

Jón hefur lengi verið tengdur hval­veiðum, bæði sem for­svars­maður félaga­sam­taka sem börð­ust fyr­ir­hval­veiðum og í gegnum son sinn, Gunnar, sem lengi rak útgerð hval­veiði­báts. Fjöl­skylda Bjarna Bene­dikts­sonar teng­ist Hvali hf. en föð­ur­bræður hans hafa verið hlut­hafar og gegnt stjórn­ar­for­mennsku í fyr­ir­tæk­inu.

„Ókei ef ég tek fimmta sætið“

Fram kemur í frétt Heim­ild­ar­innar að við­brögð Jóns Gunn­ars­sonar við nið­ur­stöðu kjör­dæma­ráðs Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi hafi valdið miklum titr­ingi innan flokks­ins, sam­kvæmt því sem Gunnar segir í upp­tök­unum. Segir hann að faðir sinn hafi ekki viljað taka sæti á list­anum, úr því að hann hafi tapað öðru sæt­inu og ætlað sér að hætta. Bjarni hafi hins vegar gengið á eftir Jóni að taka sæti til að forð­ast meiri vand­ræði og hugs­an­legan klofn­ing.

Jón hafi að lokum sam­þykkt að taka fimmta sætið gegn því að Bjarni tryggði honum stöðu í mat­væla­ráðu­neyt­inu, þar sem hann ætl­aði sér að afgreiða vina­greiða sem og reyna að end­ur­heimta tapað fylgi.

„En eina sætið sem var eftir var fimmta sætið. Svo hann sagði „ókei“ og tók sér nokkra daga. Á end­anum sagði hann: „Allt í lagi, ég er til­bú­inn að taka fimmta sætið. En þú verður þá að gera eitt­hvað fyrir mig. Ég þarf ein­hverja stöðu.“ Faðir minn sagði við hann [Bjarna Bene­dikts­son]: „Ókei ef ég tek fimmta sætið þá verð ég þinn maður í þessu.““

Gunnar heyr­ist svo útskýra stöðu Jóns. 

„Ekki sem ráð­herra heldur sem hans maður þar sem hann vissi mikið um þessi mál. Og líka vegna þess að við erum í þeirri stöðu núna að ekk­ert hval­veiði­fyr­ir­tæki hefur leyfi til að veiða hvali því að Vinstri grænir höfðu þetta ráðu­neyti og þeir bara eyðilögðu það. Fyrsta sem hann [Jón] gerði var að fara inn og segja að hann ætl­aði…,“ heyr­ist Gunnar segja áður en falski fjár­festir­inn skýtur inn í: „Að sjá um þetta?“

„Já,“ svarar Gunnar.

„Og for­sæt­is­ráð­herr­ann sam­þykkti, geri ég ráð fyrir?“ spyr þá falski fjár­festir­inn.

„Já, hann gerði það. Þannig að núna starfar hann í rík­is­stjórn faðir minn… og gerir allt brjálað.“

Brjálaði vinstriflokkar

Í sam­tal­inu segir Gunnar að vinstri­flokk­arnir á land­inu séu brjál­aði vegna skip­unar Jóns. „En vinstri­flokk­arnir, þeir eru bara, þeir eru brjál­aðir yfir því að Jón ætlar að vera hlið­hollur hval­veið­unum eða veita þeim leyfi til næstu fimm ára. Og hann mun gera það,“ segir hann.

Spyr þá hinn falski fjár­festir beint út í mark­mið föður Gunnars:

„Þú ert sem sagt að segja, ef ég skil þetta rétt, að hann hafi tekið að sér þetta starf af því að það gerir honum í raun kleift að gefa út leyfin fyrir kosn­ingar.“

„Já,“ svarar Gunnar og hélt áfram. „Og margt fleira. Svo mun hann koma sér í frétt­irnar, í fjöl­miðla og fara af fullum krafti í að gera hluti sem hann veit að Vinstri grænum og… mun ekki líka við og setja sig harka­lega á móti. Hann trúir því að það muni aðeins hjálpa okkar flokki að bæta við sig.“

„Já, en við getum aldrei talað um að hann sé að gera það fyrir vin sinn,“ segir Gunnar enn­fremur.

Hinn falski fjár­festir sagði þá Gunnari að hafa ekki áhyggjur af því, hann myndi þaga yfir þessu en spurði svo:

„En okkar á milli?“

Svarar Gunnar því þá ekki beint en sagði þó:

„Honum mun takast það. Þó að það verði hans síð­asta verk í stjórn­málum þá mun hann ná því.“

Þá heyr­ist Gunnar einnig skýra út fyrir hinum falska fjár­festi, að tvær aðrar umsóknir liggi fyrir í mat­væla­ráðu­neyt­inu frá fyr­ir­tækjum sem hyggja á hrefnu­veiðar og að ætl­unin sé að tryggja öllum þremur umsækj­end­unum veiði­leyfi

„Já. Fyrir kosn­ing­arnar,“ heyr­ist Gunnar segja, og ítrekar að hann sé viss um að það tak­ist. „En afleið­ing­arnar verða ein­hverjar… við vitum það ekki. En ég held ekki að það skaði flokk­inn okkar. Allir aðrir verða brjál­aðir yfir þessu. En margir sem hafa yfir­gefið flokk­inn okkar munu snúa til baka.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Spilling

Dulin mein íslensks stjórnkerfis
Skoðun

Aðsend grein

Dulin mein íslensks stjórn­kerfis

Spilling Íslenskrar stjórn­sýslu Íslenskt stjórn­kerfi hefur lengi verið gagn­rýnt fyrir alvar­lega spill­ingu og frænd­hygli sem hefur markað djúp spor í sam­fé­lagið. Nýlegar rann­sóknir sýna að Ísland hefur fallið niður á spill­ing­ar­vísi­tölu Transparency International, þar sem landið situr nú í 19. sæti, verst allra Norð­ur­landa. Þetta lýsir best hvað ísland er mikið spill­ing­ar­bæli auð­valds­ins, hags­muna­tengsl og hroki hafa grafið undan trausti...
Segir hræsnina í íslenskum stjórnmálum yfirgengilega: „Hún er víða“
InnlentSpilling

Segir hræsn­ina í íslenskum stjórn­málum yfir­gengi­lega: „Hún er víða“

Hræsni er Birni Birg­is­syni hug­leikin í nýrri Facebook-færslu. Sam­fé­lags­rýn­ir­inn mál­snjalli, Björn Birg­is­son spyr í nýj­ustu færslu sinni, hvað megi og hvað megi ekki og hver sé dóm­ar­inn og á þá við í póli­tík­inni. Nefnir hann nokkur dæmi úr raun­veru­leik­anum: „Yfir­gengi­leg hræsni í póli­tík­inni. Hvað má og hvað má ekki og hver á að ger­ast dóm­ar­inn?****Mega stjórn­mála­menn fela pen­inga í skatta­skjólum...
Þorsteinn ver vinnubrögð Heimildarinnar: „Langsótt að tala um aðför að lýðræðinu“
InnlentSpilling

Þor­steinn ver vinnu­brögð Heim­ild­ar­innar: „Langsótt að tala um aðför að lýð­ræð­inu“

Þor­steinn Pálsson, fyrrum for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­sæt­is­ráð­herra Íslands, er ekki hrif­inn vörn Jón Gunn­ars­sonar þegar upp komst um að sonur hans hafði verið tek­inn upp í leyni að lýsa hvernig faðir sinn myndi tryggja að hval­veiðar myndu hefj­ast inn skamms. „Mat­væla­ráð­herra í starfs­stjórn skip­aði Jón Gunn­ars­son alþing­is­mann og fyrrum ráð­herra í stöðu póli­tísks aðstoð­ar­manns. Talsmenn ann­arra flokka hafa ekki dregið...
Uppljóstrun: Bjarni bað um útilokun Jóns sama dag og upptakan fór í dreifingu
Innlent

Upp­ljóstrun: Bjarni bað um úti­lokun Jóns sama dag og upp­takan fór í dreif­ingu

Bjarni Bene­dikts­son til­kynnti ráðu­neyt­is­stjóra í mat­væla­ráðu­neyt­inu að Jón Gunn­ars­son ætti ekki að koma nálægt útgáfu eða vinnu við hval­veiði­leyfa, sama dag og leyni­upp­tökur fóru í dreif­ingu, þar sem sonur Jóns segir frá sam­komu­lagi milli Jóns og Bjarna varð­andi útgáfu hval­veiði­leyfa. Bjarni hafnar því að hafa gert slíkt sam­komu­lag. Sjálfur sagði Jón, sem er nýskip­aður aðstoð­ar­maður Bjarna í mat­væla­ráðu­neyt­inu, við fjöl­miðla...
Segir hlerunina enga frétt: „Sjálfstæðisflokkurinn er spilltur. Og Bjarni Benediktsson gerspilltur“
InnlentSpilling

Segir hler­un­ina enga frétt: „Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er spilltur. Og Bjarni Bene­dikts­son ger­spilltur“

Gunnar Smári Egilsson segir aðal­frétt vik­unnar, hler­un­ar­mál Jóns Gunn­ars­sonar, ekki hafa verið nein frétt, því allir viti að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er spilltur. Í færslu sem Sós­í­alista­for­ing­inn Gunnar Smári Egilsson skrif­aði á Facebook í gær nefnir hann annað spill­ing­ar­mál sem teng­ist Bjarna Bene­dikts­syni for­sæt­is­ráð­herra. Minnir hann á Klaust­urs­málið þarsem Gunnar Bragi Sveins­son sagði frá lof­orði Bjarna um sendi­herra­stöðu gegn því að hann...
Össur rífur Sjálfstæðisflokkinn í sig: „Þegar menn standa í skít upp að hálsi …“
InnlentSpilling

Össur rífur Sjálf­stæð­is­flokk­inn í sig: „Þegar menn standa í skít upp að hálsi …“

Össur Skarp­héð­ins­son rífur Sjálf­stæð­is­flokk­inn í sig í nýrri Facebook-færslu þar sem hann tekur fyrir hler­un­ar­mál Jóns Gunn­ars­sonar. Líf­fræð­ing­ur­inn og fyrrum ráð­herra Sam­fylk­ing­ar­innar, Össur Skarp­héð­ins­son skrif­aði í dag harð­orða Facebook-færslu þar sem hann talar um „súr­r­eal­isma í boði Sjálf­stæð­is­flokks­ins“: „Súr­r­eal­ismi í boði Sjálf­stæð­is­flokks­ins Súr­r­eal­ískt er að sjá að þegar ísra­elskir leyni­þjón­ustu­menn fletta ofanaf hrossa­kaupum og spill­ingu innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins þá bregst sá...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins