„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Áskorun Blaðamannafélags Íslands til stjórnmálaflokka fyrir Alþingiskosningar 2024 – MYNDBAND

Áskorun Blaðamannafélags Íslands til stjórnmálaflokka fyrir Alþingiskosningar 2024 – MYNDBAND
Alþing­is­húsið. Mynd: Sikeri

Blaða­manna­fé­lag Íslands (BÍ) skorar á stjórn­mála­flokka í aðdrag­anda alþing­is­kosn­inga 2024 að þeir beiti sér fyrir því að skapa umhverfi og aðstæður hér á landi þannig að öfl­ugir, sjálf­stæðir og frjálsir fjöl­miðlar fái hér þrif­ist í þágu almenn­ings og lýð­ræðis.

Í áskor­unni segir m.a: „Fjöl­breytt, frjálst og öfl­ugt fjöl­miðlaum­hverfi er grund­völlur lýð­ræð­is­legrar umræðu og sam­fé­lags. Aukin skautun í opin­berri umræðu og upp­lýs­inga­óreiða gerir það að verkum að aldrei hefur verið meiri þörf fyrir vand­aða blaða­mennsku. Á tímum sem algórit­mar sam­fé­lags­miðla sýna kannski bara eina hlið raun­veru­leik­ans, gervi­greind rýfur mörkin milli þess raun­veru­lega og óraun­veru­lega, erlend glæpa­sam­tök reyna að hafa áhrif á lýð­ræð­is­legar kosn­ingar víða um heim og grafa undan sam­fé­lags­lega mik­il­vægum stofn­unum, hafa hefð­bundnir fjöl­miðlar verið að veikj­ast. Traustir frétta­miðlar sem ástunda fag­leg vinnu­brögð eru mik­il­væg­asta vörnin gegn þessum hættum.“

Formenn allra stjórn­mála­flokka tóku við áskor­un­inni form­lega, að und­an­skil­inni Ingu Sæland, for­manni Flokks fólks­ins, sem gaf ekki kost á við­tali.

Grundvöllur lýðræðislegrar umræðu

Fjöl­breytt, frjálst og öfl­ugt fjöl­miðlaum­hverfi er grund­völlur lýð­ræð­is­legrar umræðu og sam­fé­lags. Aukin skautun í opin­berri umræðu og upp­lýs­inga­óreiða gerir það að verkum að aldrei hefur verið meiri þörf fyrir vand­aða blaða­mennsku. Á tímum sem algórit­mar sam­fé­lags­miðla sýna kannski bara eina hlið raun­veru­leik­ans, gervi­greind rýfur mörkin milli þess raun­veru­lega og óraun­veru­lega, erlend glæpa­sam­tök reyna að hafa áhrif á lýð­ræð­is­legar kosn­ingar víða um heim og grafa undan sam­fé­lags­lega mik­il­vægum stofn­unum, hafa hefð­bundnir fjöl­miðlar verið að veikj­ast. Traustir frétta­miðlar sem ástunda fag­leg vinnu­brögð eru mik­il­væg­asta vörnin gegn þessum hættum.

Rekstr­ar­um­hverfi fjöl­miðla á Íslandi hefur veikst mjög á und­an­förnum árum, en þeirri þróun þarf að snúa við. Ástæðan er fyrst og fremst stór­felldar breyt­ingar á fjöl­miðla­mark­aði með til­komu erlendra efn­isveitna, sam­fé­lags­miðla og tæknirisa á borð við Facebook og Google sem soga til sín æ stærri hluta af aug­lýs­ingafé.

Þá hefur sam­keppn­is­staða íslenskra fjöl­miðla gagn­vart þeim erlendu veikst auk þess sem færri eru til­búnir til að greiða fyrir fréttir eða frétta­tengt efni vegna auk­ins fram­boðs af fríu frétta­efni á net­inu.

Staða fjöl­miðla á Íslandi er ekki einka­mál fjöl­miðl­anna sjálfra heldur varðar sam­fé­lagið allt. Öflugir fjöl­miðlar eru for­senda þess að hægt sé að veita stjórn­völdum og stór­fyr­ir­tækjum nauð­syn­legt aðhald. Þá styrkja þeir einnig íslenska tungu og menn­ing­ar­arf. Sú stað­reynd, að Ísland hefur færst niður á lista Blaða­manna án landamæra (RSF) ár eftir ár er áhyggju­efni, ekki síst í ljósi þess að hinar Norð­ur­landa­þjóð­irnar raða sér í efstu sæti list­ans. Það ætti að vera mark­mið hvers lýð­ræð­is­sam­fé­lags að gera það sem í þeirra valdi stendur til að tryggja öfl­uga, frjálsa og sjálf­stæða fjöl­miðla­starf­semi í land­inu. Því skorar BÍ á þá flokka sem bjóða fram í kom­andi alþing­is­kosn­ingum að taka upp neð­an­greindar til­lögur að nauð­syn­legum breyt­ingum sem félagið telur styrkja stöðu fjöl­miðla á Íslandi.

Að auki skorar BÍ á stjórn­mála­flokka að hafa í huga sam­fé­lags­lega ábyrgð sína og mik­il­vægi fjöl­miðla fyrir lýð­ræð­is­lega umræðu á Íslandi þegar ákvörðun er tekin um birt­ingu aug­lýs­inga, ekki síst í aðdrag­anda kosn­inga. BÍ mun óska eftir sund­ur­liðun á því hve miklu fjár­magni var varið til erlendra miðla ann­ars vegar og íslenskra hins vegar að kosn­ingum loknum.

Tíu til­lögur BÍ til efl­ingar blaða­mennsku:

  1. Aukinn opin­ber stuðn­ingur til einka­rek­inna miðla

Efna­hags­legar for­sendur fyrir rekstri fjöl­miðla þurfa að vera fyrir hendi til þess að þeir geti sinnt hlut­verki sínu sem helsti far­vegur tján­ing­ar­frelsis og aðhalds í land­inu. Laga­setn­ing um opin­beran stuðn­ing til einka­rek­inna miðla var mik­il­vægt skref í að við­ur­kenna mik­il­vægi fjöl­miðla fyrir virkni lýð­ræðis í land­inu og það aðhald sem þeir veita. BÍ fagnar því að frá­far­andi rík­is­stjórn hafi ákveðið að fylgja for­dæmi hinna Norð­ur­land­anna sem hafa um langt skeið styrkt einka­rekna fjöl­miðla með ýmsum hætti. Nauð­syn­legt er að auka það fé sem veitt er til einka­rek­inna fjöl­miðla til sam­ræmis við hlut­fallið á hinum Norð­ur­lönd­unum, end­ur­skoða úthlut­un­ar­reglur svo stuðn­ing­ur­inn nýt­ist sem best og gera úrræðið var­an­legt svo fjöl­miðlum sé tryggður fyr­ir­sjá­an­leiki í rekstri.

2. RÚV af auglýsingamarkaði

Lagt er til að taka RÚV af aug­lýs­inga­mark­aði sem BÍ telur nauð­syn­legt skref í átt til hag­felld­ara rekstr­ar­um­hverfis fyrir einka­rekna fjöl­miðla. BÍ leggur þó höf­uð­á­herslu á að RÚV verði ekki tekið af aug­lýs­inga­mark­aði nema rekstur stofn­un­ar­innar verði tryggður með auknum fjár­veit­ingum úr rík­is­sjóði sem vega á móti tekju­tapi. Þá er nauð­syn­legt að tryggja fjár­veit­ingu til RÚV til lengri tíma, til að mynda 8-10 ára í senn, og setja ákvæði inn í þjón­ustu­samn­ing þess efnis. Enn fremur þarf að tryggja sjálf­stæði frétta­stofu RÚV innan stofn­un­ar­innar, til að mynda með því að girða fyrir að starf­semi frétta­stofu RÚV verði skorin niður, fari svo að fjár­veit­ingar til stofn­un­ar­innar verði skertar.

3. Sérstakur stuðningur við samfélagslega mikilvæga blaðamennsku

BÍ hefur stofnað til sér­staks sam­fé­lags­sjóðs til efl­ingar sam­fé­lags­lega mik­il­vægrar blaða­mennsku, Glætuna. Sjóð­ur­inn á sér alþjóð­legar fyr­ir­myndir en til­gangur hans er að efla blaða­mennsku með því að veita blaða­mönnum styrki til að vinna að verk­efnum sem krefj­ast tíma og úthalds – sem er sú blaða­mennska sem hefur átt hvað mest undir högg að sækja –  sem veitir aðhald, setur í sam­hengi og skýrir. BÍ mun styrkja sjóð­inn um til­tekna upp­hæð árlega en til að hann verði nægi­lega burð­ugur til að upp­fylla hlut­verk sitt er nauð­syn­legt að komi til opin­bert fjár­magn.

4. Nýsköpunarstyrkur fyrir fjölmiðla

Mik­il­vægt er að stuðla að því að fjöl­miðlar geti þró­ast í takt við breytt sam­keppn­isum­hverfi, tækninýj­ungar og breyttar neyslu­venjur. Með til­komu gervi­greindar skap­ast óend­an­leg tæki­færi fyrir blaða­menn og fjöl­miðla í vinnslu upp­lýs­inga og miðlun þeirra. Umbylt­ingin er þó ekki ein­föld og síður en svo ókeypis en sökum þess hve íslenska mál­um­hverfið er lítið eru íslenskir fjöl­miðlar ekki í stöðu til að keppa við erlenda miðla þegar kemur að því að þróa og nýta ný verk­færi sem gervi­greindin býður upp á. Því er mik­il­vægt að ríkið stígi inn í með nýsköp­un­ar­styrki fyrir fjöl­miðla og stuðli að því að þeir geti nýtt nýja tækni til jafns við erlenda keppi­nauta.

5. Hagfelldara skattaumhverfi fyrir fjölmiðla

Meðal þeirra aðgerða sem beitt er ann­ars staðar á Norð­ur­löndum, og víðar í heim­inum, til styrktar einka­reknum fjöl­miðlum eru ýmis konar skatta­af­slættir. Meðal þess sem grípa mætti til hér á landi er að afnema virð­is­auka­skatt áskrifta hjá öllum teg­undum frétta­miðla. Þá gefur hin alvar­lega staða í rekstr­ar­um­hverfi fjöl­miðla til­efni til þess að fjöl­miðlum sé veitt und­an­þága frá greiðslu trygg­inga­gjalds.

6. Lagaleg vernd og réttindi blaðamanna tryggð

Mikil og brýn þörf er að ráð­ast sem fyrst í aðgerðir til að tryggja laga­lega vernd og rétt­indi blaða­manna við störf. Tryggja þarf með lögum að blaða­menn fái flýti­með­ferð í málum þar sem þeir eru til rann­sóknar svo auka megi vernd blaða­manna gegn til­hæfu­lausum mál­sóknum eða rann­sóknum. Auka þarf fræðslu um hlut­verk, stöðu og rétt­indi blaða­manna í dóms­kerf­inu, svo lög­reglan og dóm­arar séu með­vit­aðir um mik­il­vægi blaða­manna í lýð­ræð­is­sam­fé­lögum.

7. Aðgengi að upplýsingum og vettvangi

Frjálst og auð­velt aðgengi að opin­berum gögnum og öðrum upp­lýs­ingum stjórn­valda er grund­vall­ar­þáttur í lýð­ræð­is­sam­fé­lagi og til að styrkja tján­ing­ar­frelsi. Ísland á að vera í far­ar­broddi í upp­lýs­inga­rétti á heims­vísu. Því er mik­il­vægt  að útvíkka gild­is­svið upp­lýs­inga­laga og end­ur­skoða und­an­þágu­á­kvæði til að tryggja að almanna­hags­munir séu hafðir í for­grunni. Jafn­framt er nauð­syn­legt að auka máls­hraða og stuðn­ing við stofn­anir við fram­kvæmd lag­anna. Þá þarf að festa í lög hlut­verk blaða­manna í almanna­varna­á­standi til að tryggja að blaða­menn geti sinnt upp­lýs­inga­hlut­verki sínu í þágu almenn­ings, enda ríkir um það sam­hugur milli ríkis og BÍ, skv. sam­komu­lagi frá 4. apríl sl. sem var svohljóð­andi:

Blaða­menn gegna veiga­miklu eft­ir­lits- og upp­lýs­inga­hlut­verki og ríkar ástæður þarf til að tak­marka tján­ing­ar­frelsi þeirra. Á grund­velli laga um almanna­varnir hafa stjórn­völd til­teknar vald­heim­ildir til þess að bregð­ast við með skjótum og mark­vissum hætti þegar hættu­á­stand kemur upp, s.s. að tak­marka aðgengi að til­teknum svæðum. Þær tak­mark­anir sem stjórn­völd kunna að þurfa að setja blaða­mönnum í hættu­á­standi skulu að jafn­aði ekki vera meiri en settar eru öðrum við­bragðs­að­ilum af örygg­is­sjón­ar­miðum og skulu enn­fremur taka mið af sér­tækum rétt­indum blaða­manna og hlut­verki fjöl­miðla.

8. Fjölmiðlastefna stjórnvalda

Stefnu­mótun í mála­flokki fjöl­miðla er grund­völlur árang­urs. Ráðherra menn­ingar- og við­skipta­mála lagði fram drög að til­lögu til þings­á­lykt­unar um fjöl­miðla­stefnu og aðgerða­á­ætlun í mál­efnum fjöl­miðla til 2030 þar sem kemur fram að  „meg­in­mark­mið stjórn­valda á sviði fjöl­miðl­unar sé að við­halda og efla lýð­ræð­is­lega umræðu og lýð­ræð­is­þátt­töku hér á landi með því að auka fjöl­breytni, gagn­sæi og fjöl­ræði í fjöl­miðlum og stefnt að því að skapa starfs­um­hverfi sem stuðlar að öfl­ugri fjöl­miðlun í almanna­þágu með virkri þátt­töku ólíkra og fjöl­breyttra fjöl­miðla um allt land.“ BÍ gerði ýmsar til­lögur til úrbóta á stefnu stjórn­valda í umsögn sinni um málið en mik­il­vægt er að fjöl­miðla­stefna sé unnin áfram í næstu rík­is­stjórn og kom­ist til umræðu og sam­þykktar á Alþingi sem fyrst.

9. Greiðslur erlendra tæknirisa til fjölmiðla

Sívax­andi hlut­deild erlendra tæknirisa í aug­lýs­inga­mark­aði á Íslandi er veru­legt áhyggju­efni. Nauð­syn­legt er að skatt­leggja tekjur erlendra fyr­ir­tækja af íslenskum aug­lýs­ingum og áskriftum og jafna þannig sam­keppn­is­stöðu íslenskra fjöl­miðla gagn­vart þeim. Þá eru einnig for­dæmi fyrir því að erlendir tæknirisar greiði höf­unda­rétt­ar­greiðslur fyrir dreif­ingu á rit­stýrðu efni. Tekjur af slíkri skatt­lagn­ingu ættu að renna óskert til stuðn­ings íslenskra fjöl­miðla.

10. Kaup hins opinbera á auglýsingum

Það ber vott um skiln­ings­leysi á mik­il­vægi íslenskra fjöl­miðla fyrir lýð­ræð­is­lega umræðu að stjórn­mála­flokkar og opin­berar stofn­anir og rík­is­fyr­ir­tæki skuli verja æ hærra hlut­falli aug­lýs­inga­fjár­magns til birt­ingar aug­lýs­inga á erlendum miðlum. BÍ skorar á stjórn­mála­flokk­ana og stjórn­völd að setja skil­yrð­is­lausar tak­mark­anir á aug­lýs­ingum frá hinu opin­bera í erlendum miðlum. Það skýtur mjög skökku við að ríkið sé að styrkja frétta­miðla með beinum hætti í formi styrkja og skattaí­viln­ana vegna þess að erlendir tæknirisar hafa sogað til sín stóran hluta alls aug­lýs­inga­fjár – á meðan ríkið er sjálft að kaupa aug­lýs­ingar hjá umræddum tæknirisum. Það er full­kom­lega óeðli­legt að stjórn­völd séu að verja fjár­munum í aug­lýs­ingar hjá fyr­ir­tækjum sem greiða enga skatta hér á landi, né leggja neitt af mörkum til sam­fé­lags­ins.

Formenn flokka spurðir um mikilvægi blaðamennsku

Blaða­mennska er ekki aðeins sam­fé­lags­lega mik­il­væg heldur lífs­nauð­syn­leg fyrir lýð­ræðið. Fjöl­miðlar eru mik­il­væg­ari en nokkru sinni og þurfa að hafa bol­magn til að geta fjallað með óháðum hætti um stór og mik­il­væg mál­efni og veitt aðhald. Alls staðar þar sem vegið er að fjöl­miðlum er lýð­ræði skert og lífs­gæði dvína. Þetta kemur fram í við­tölum við for­menn stjórn­mála­flokk­anna sem Blaða­manna­fé­lag Íslands (BÍ) tók við þá þegar for­maður og fram­kvæmda­stjóri félags­ins afhentu þeim áskorun stjórnar um að for­menn­irnir og stjórn­mála­flokk­arnir beiti sér fyrir því að að skapa umhverfi og aðstæður hér á landi þannig að öfl­ugir, sjálf­stæðir og frjálsir fjöl­miðlar fái hér þrif­ist í þágu almenn­ings og lýð­ræðis.

Formenn flokk­anna voru spurðir þriggja spurn­inga:

  • Af hverju er blaða­mennska sam­fé­lags­lega mik­il­væg að þínu mati?

  • Hvernig munt þú og þinn flokkur beita þér fyrir því að efla blaða­mennsku og styrkja stoðir íslenskra fjöl­miðla?

  • Munt þú beita þér fyrir því að atriðin sem þú nefnir verði hluti af mál­efna­samn­ingi kom­ist þú í þær aðstæður að mynda rík­is­stjórn?

    Hér má sjá brot úr svörum for­mann­anna:

Í dag birtir BÍ sam­an­tekt á svörum for­manna við fyrstu spurn­ing­unni, á morgun sam­an­tekt á svörum við annarri spurn­ing­unni og á næstu dögum verða við­töl við for­menn­ina birt í heild sinni á vef félags­ins, press.is, og á sam­fé­lags­miðlum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fréttatilkynning

Tilkynning frá Hinseginfélagi FG: „Fordómar mega ekki eiga sér vísan stað í íslensku samfélagi“
Innlent

Til­kynn­ing frá Hinseg­in­fé­lagi FG: „Fordómar mega ekki eiga sér vísan stað í íslensku sam­fé­lagi“

Hinseg­in­fé­lag Fjöbrauta­skól­ans í Garðabæ var rétt í þessu að gefa frá sér frétta­til­kynn­ingu um bloggskrif Páls Vil­hjálms­sonar. Áréttar félagið í til­kynn­ing­unni að það að vera „hinsegin, trans eða eitt­hvað annað fellur undir sjálf­sögð og eðli­leg mann­rétt­indi.“ Þá falli rétt­ur­inn til tján­ingar á kyn­vit­und, kyn­hlut­verkum og kyn­hneigð, einnig undir sömu rétt­indi. Þau sem varið hafa skrif Páls um hinsegin mál­efni hafa...
Gulur september hefst í dag – Auka á meðvitund fólks um mikilvægi geðræktar og sjálfsvígsforvarna
Innlent

Gulur sept­em­ber hefst í dag – Auka á með­vit­und fólks um mik­il­vægi geð­ræktar og sjálfs­vígs­for­varna

Opn­un­ar­við­burður um sam­vinnu­verk­efni um geð­rækt og sjálfs­vígs­for­varnir verður hald­inn í Kringl­unni í dag klukkan 14:00. Gulur sept­em­ber er sam­vinnu­verk­efni stofn­ana og félaga­sam­taka sem vinna saman að geð­rækt og sjálfs­vígs­for­vörnum. Sjá líka á gul­ursept­em­ber.is Það er von und­ir­bún­ings­hóps­ins að gulur sept­em­ber, auki með­vit­und fólks um mik­il­vægi geð­ræktar og sjálfs­vígs­for­varna, sé til merkis um kær­leika, aðgát og umhyggju. Slag­orðin; „Er allt í...
Draga á úr dvöl flóttafólks í Reykjanesbæ – Aðgerðaráætlun Vinnumálastofnunar og bæjaryfirvalda
Innlentfréttatilkynning

Draga á úr dvöl flótta­fólks í Reykja­nesbæ – Aðgerð­ar­á­ætlun Vinnu­mála­stofn­unar og bæj­ar­yf­ir­valda

Aðgerða­á­ætlun vegna dvalar umsækj­enda um alþjóð­lega vernd í Reykja­nesbæ á vegum Vinnu­mála­stofn­unar Vinnu­mála­stofnun og Reykja­nes­bær hafa unnið aðgerða­á­ætlun vegna dvalar umsækj­enda um alþjóð­lega vernd í sveit­ar­fé­lag­inu á vegum Vinnu­mála­stofn­unar. Áætlunin sam­anstendur af 16 aðgerðum sem fela meðal ann­ars í sér margs konar tóm­stunda­úr­ræði fyrir fólk á öllum aldri og opnun virkni­m­ið­stöðvar undir heit­inu Klúbb­ur­inn. Mið­stöðin verður í hús­næði sem áður...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins