Hræsni er Birni Birgissyni hugleikin í nýrri Facebook-færslu.
Samfélagsrýnirinn málsnjalli, Björn Birgisson spyr í nýjustu færslu sinni, hvað megi og hvað megi ekki og hver sé dómarinn og á þá við í pólitíkinni. Nefnir hann nokkur dæmi úr raunveruleikanum:
„Yfirgengileg hræsni í pólitíkinni.
Hvað má og hvað má ekki og hver á að gerast dómarinn?**********Mega stjórnmálamenn fela peninga í skattaskjólum í útlöndum?Mega stjórnmálamenn skipa reynslulausa vini og vinkonur í góðar stöður í kerfinu, til dæmis sendiherrastöður?Er eðlilegt að dýralæknir sé skipaður vegamálastjóri vegna gamalla kynna?Mega þingmenn sem verða sér til háborinnar skammar, blindfullir á vinnutíma, halda þingmennsku áfram?Mega þingmenn sem hafa í ölæði nýtt niður bæði fatlaðar og ófatlaðar konur og farið um þær verulega ófögrum orðum sitja á þingi?Mega þingmenn sitja eins og ekkert hafi í skorist þrátt fyrir að vera með gjaldþrota hala upp á 130 milljarða?Mega þingmenn, sem augljóslega gerðust innherjasvikarar þegar spilaborg bankanna hrundi haustið 2008, sitja á sama þingi og setti lög um innherjasvik á sínum tíma?
Hvernig er mannorð margra þingmanna, skoðað með smásjá og með aðstoð fólks sem almennt er talið vera siðlaust sjálft?“
Að lokum segir Björn að hræsnin sé víða:
„Hvernig var mannorð sumra þingmanna sem vildu kæra Geir Haarde fyrir landráð, en vildu sleppa flokkssystkinum sínum við þau örlög?Hræsnin.Hún er víða.Dæmin eru svo miklu fleiri.“

























Athugasemdir