„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Sólveig Anna styður ekki hálaunakröfur kennara: „Enda erum við ómenntaða láglaunafólkið ekki fífl“

Sólveig Anna styður ekki hálaunakröfur kennara: „Enda erum við ómenntaða láglaunafólkið ekki fífl“
Sólveig Anna Jóns­dóttir. Mynd Lára Garð­ars­dóttir

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar og fram­bjóð­andi Sós­í­alista í Reykja­vík, styður ekki kröfur kenn­ara sem krefj­ast þess að fá allt að milljón krónur á mán­uði í laun og taka þannig hel­har­stökk fram úr því fólki sem stendur að baki svo­nefndum lífs­kjara­samn­ingum. Þetta kemur fram í grein hennar á Facebook þar sem hún bók­staf­lega hjólar í Þórunni Svein­bjarn­ar­dóttur, alþing­is­mann og fyrr­ver­andi for­mann BHM. Þórunn skrif­aði blaða­grein þar sem hún styður kröfur kennar­anna og þar með skæru­verk­föll þeirra sem staðið hafa vikum saman gegn fámennum hópi nem­enda.

Jöfnun launa stendur og fellur með því að aðilar vinnu­mark­að­ar­ins standi saman um hana, rétt eins og sam­komu­lag hefur verið um krónu­tölu­hækkun lægstu launa,“ skrifar Þórunn og reitir Sólveigu Önnu til reiði. Hún segir þetta vera furðu­lega stað­hæf­ingu og spyr hvort þing­konan haldi virki­lega að aðferða­fræði krónu­tölu­hækk­ana snú­ist um að aðeins lág­launa­fólkið not­ist við slíka nálgun þegar kemur að kjara­bótum, en aðrir fái pró­sentu­hækk­anir.
„Ég á reyndar mjög bágt með að trúa því að þing­konan skilji þetta ekki. Hún var árið 2019 for­maður BHM og leiddi sjálf harða bar­áttu gegn flötum krónu­tölu­hækk­unum. Eins og sagði í einni ályktun BHM undir for­ystu Þórunnar: „Aðildar félög BHM hafna alfarið flatri krónu­tölu­hækkun launa þar sem slíkt sam­rým­ist ekki kröfum félag­anna um eðli­legan fjár­hags­legan ávinn­ing háskóla­mennt­unar og getur falið í sér kjara­rýrnun.“ Barátta BHM og Þórunnar skil­aði árangri; ríkið samdi við hálauna­hópa BHM um pró­sentu­hækk­anir langt umfram flata krónu­tölu­hækkun Lífs­kjara­samn­ing­anna. Það var reyndar gert í leyni og um það kom ekk­ert fram í samn­ings­text­anum, þvert á móti var þar gefið sterk­lega til kynna að hækk­an­irnar væru þær sömu og hjá öðrum,“ skrifaer Sólveig Anna og nefnir  áróð­urs­aug­lýs­ingu þar sem að kjör Önnu ómennt­uðu og háskóla­kon­unnar Berg­lindar voru borin saman. Hún segir að BHM hafi komst að þeirri stór­kost­lega áhuga­verðu nið­ur­stöðu að ómennt­aða lág­launa­konan Anna hefði það í raun miklu betra en Berglind, sem að var þó alltaf að skila verð­mætum til sam­fé­lags­ins, ólíkt Önnu ómennt­uðu sem hafi aðal­lega verið að fá bætur frá hinu opin­bera.

það ósatt að lág­launa­fólk sé æst í krónu­tölu­hækk­anir

„Full­yrð­ing fyrrum for­manns BHM og núver­andi þing­konu Sam­fylk­ing­ar­innar um eitt­hvað sam­komu­lag um krónu­tölu­hækk­anir fyrir lág­launa­fólk sýnir ann­að­hvort algjört skiln­ings­leysi á því um hvað áherslan á krónu­hækk­anir snýst, eða er ódýrt og lélegt retórískt bragð ein­stak­ings í kosn­inga­bar­áttu, sem að allir ættu að sjá sam­stundis í gegnum. Í fyrsta lagi er það ósatt að lág­launa­fólk sé æst í krónu­tölu­hækk­anir fyrir sig á meðan að aðrir fá ríf­legar pró­sentu­hækk­anir. Enda erum við ómennt­aða lág­launa­fólkið ekki fífl,“ skrifar Sólveig Anna og áréttar að ósatt sé að ein­hver sátt hafi ríkt innan íslenskrar verka­lýðs­hreyf­ingar um nokkurn skap­aðan hlut und­an­farin ár þegar kemur að því að móta þær leiðir sem að farið er í kjara­samn­ingum. Þvert á móti hafi BHM rekið harða stétta­bar­áttu gegn verka og lág­launa­fólki árum saman sem ekki sjái fyrir end­ann á.

„En það virð­ist ein­fald­lega ætl­ast til þess að við, verka­fólkið, styðjum mögl­un­ar­laust bar­áttu mennta­fólks fyrir enn betri launum. Þrátt fyrir að þau hafi aldrei stutt okkur í einu né neinu,“ skrifar Sólveig Anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Subway sakað um að svindla á starfsmönnum: „Áróður, árásir, hótanir, útúrsnúningur og lygar“
InnlentKjaramál

Subway sakað um að svindla á starfs­mönnum: „Áróður, árásir, hót­anir, útúr­snún­ingur og lygar“

Veit­inga­stað­ur­inn Subway er einn þeirra fimm veit­inga­staða sem ekki hafa svarað erindum Eflingar varð­andi mein­tan „gervi­kjara­samn­ing“ sem fyr­ir­tæki sömdu um við stétt­ar­fé­lagið Virðingu. Efling vill meina að Virðing sé gervi­stétt­ar­fé­lag sem Samtök fyr­ir­tækja á veit­inga­mark­aði standa fyrir. Auk Subway hafa Rok, Public House Gastropub, Hard Rock Cafe og Finnsson Bistro ekki svarað Eflingum um þeirra mál en stétt­ar­fé­lagið seg­ist í...
Virðing leyfir veitingastöðum að taka upp samtöl starfsmanna
InnlentKjaramál

Virðing leyfir veit­inga­stöðum að taka upp sam­töl starfs­manna

Hið meinta gervi­stétt­ar­fé­lag Virðing leyfir vinnu­veit­endum taka hljóð­upp­tökur upp á vinnu­stöðum sam­kvæmt ráðn­ing­ar­samn­ingi sem Heim­ildin hefur undir höndum en sá samn­ingur byggir á kjara­samn­ingi á milli Virð­ingar og SVEIT, sam­taka fyr­ir­tækja á veit­inga­mark­aði. Efling hefur sakað SVEIT um að standa fyrir stofnun stétt­ar­fé­lags­ins. Samkvæmt Per­sónu­vernd hafa ekki komið upp mál sem varða hljóð­upp­töku á starfs­mönnum á Íslandi en margir veit­inga­staðir...
VR fordæmir Virðingu: „Slík félög grafa undan réttindum“
InnlentKjaramál

VR for­dæmir Virðingu: „Slík félög grafa undan rétt­indum“

Stétt­ar­fé­lagið VR segir fram­komu SVEIT í mál­efnum er snúa að stétt­ar­fé­lag­inu Virðingu vera fyrir neðan allar hellur en stærstu stétt­ar­fé­lög lands­ins saka Virðingu um að vera gervi­stétt­ar­fé­lag sem er ætlað að draga úr rétt­indum launa­fólks. Þá er SVEIT sakað um að standa fyrir stofnun stétt­ar­fé­lags­ins. „Stjórn VR for­dæmir atlögu atvinnu­rek­enda innan SVEIT, sam­tökum fyr­ir­tækja á veit­inga­mark­aði, að rétt­indum og kjörum...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins