„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Grímur tekur upp hanskann fyrir transfólk: „Sprettur úr sama ranni: fáfræði og hræðslu“

Grímur tekur upp hanskann fyrir transfólk: „Sprettur úr sama ranni: fáfræði og hræðslu“
Grímur Atlason

Grímur Atlason tekur upp hansk­ann fyrir trans­fólk og skýtur fast á Eld Smára Krist­ins­son í leið­inni.

Fram­kvæmda­stjóri Geð­hjálpar, Grímur Atlason, blandar sér í umræð­una sem skap­að­ist eftir að Snorri Másson skrif­aði grein þar sem hann ver tján­ing­ar­frelsi Elds Smára Krist­ins­sonar, for­manns Sam­tak­anna 22, sem Samtökin 78 hafa kært fyrir hat­urs­orð­ræðu. Jóhannes Þór Skúlason, stjórn­ar­maður Sam­tak­anna 78, skrif­aði síðan grein þar sem hann svarar Snorra. Þá rök­ræddu þau Brynjar Níelsson og Helga Vala Helga­dóttir, eig­in­kona Gríms, um málið í útvarp­inu í gær. Sem sagt, mikið hefur verið skrifað og sagt um málið og sitt sýn­ist hverjum. Grímur Atlason skrif­aði svo færslu á Facebook þar sem hann kemur með sögu­skýr­ingu og tekur dæmi úr mann­kyns­sög­unni um rang­hug­myndir sem höfðu áhrif á líf fólks á öldum áður.

„Það hefur löngum verið þannig í mann­kyns­sög­unni að fólk hefur þurft að þola það að annað fólk telji það heilagan rétt sinn að vita hvað það er að upp­lifa og hvað sé því fyrir bestu. Þannig hélt Andreas Vesalius, faðir nútíma líf­færa­fræði manns­ins, því fram um miðja 16. öld­ina að aðeins inter­sex konur hefðu sníp og almennt gætu konur ekki fengið full­næg­ingu. Skil­grein­ing feðra­veld­is­ins þess tíma var líka að limur eða gervi­limur væri for­senda kyn­lífs. Því var líka haldið fram að ef kyn­lífið átti að geta af sér dreng þá yrði karl­inn að vera ofan á ann­ars væri hætta á að barnið yrði stúlka.

Aristóteles taldi að hluti manna skorti þann hluta sál­ar­innar sem lyti að hæfi­leik­anum til að taka rök­réttar ákvarð­anir og þess vegna væru þeir þrælar. Konur hefðu hæfi­leik­ann en skorti vald til að nota hann. Þær væru því ásamt þræl­unum var­an­lega ófull­komnar. Þessi skoðun var megin skoðun langt inn á 20. öld­ina.“

Að lokum snýr Grímur sér að nútím­anum og segir birt­inga­mynd­ina sem nú megi sjá, spretti úr sama ranni en það sé fáfræði og hræðsla.

„Í dag er birt­ing­ar­myndin kannski önnur en sprettur úr sama ranni: fáfræði og hræðslu. Sumt fólk telur það heyra til mann­rétt­inda sinna að fá að básúna það yfir alþjóð að hinn og þessi sé í raun­inni ekki til. Hann geti ekki verið til vegna þess að kyn hans og eða kyn­hneigð sam­ræm­ist ekki heims­mynd við­kom­andi.“

Með færsl­unni birtir Grímur mynd af Eldi Smára og ógeð­felda færslu sem hann skrif­aði árið 2022. Myndina má sjá hér:

Hér má lesa nokkur af þeim ummælum sem Eldur er kærður fyrir:

29. ágúst 2023: „Ég meina, þessi drusla! Að nota smá­börn til að full­nægja aug­ljósum afbrigði­legum kyn­lífs­blætum í mönnum sem kall­ast b-a-r-n-a-g-i-r-n-d!“

2. apríl 2024: „Þessi „löngun“ er kyn­ferð­is­legt blæti sem kall­ast „autog­y­nephilia“ á ensku, en ég hef sjálfur íslenskað hug­takið í „kven­sjálfsí­mynd­un­ar­blæti“. Þegar karl­menn eru farnir að nota UNGABÖRN til þess að sinna kyn­ferð­is­legum per­vert­skap sínum, þá erum við kom­inn í algjöra botn­leðju. Hversu djúp er hún og hversu með­virkt er sam­fé­lagið til í að vera!?“

9. apríl 2024: „Af hverju eru Samtökin ’78 að grooma 10 ára krakka í 5.bekk? Hversu lengi ætlar fólk að vera með­virkt?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

transréttindi

Alexandra áhyggjufull vegna tilskipunar Trump: „Við hættum ekki að vera til þó við séum bönnuð“
Innlenttransréttindi

Alex­andra áhyggju­full vegna til­skip­unar Trump: „Við hættum ekki að vera til þó við séum bönnuð“

„Jæja, það er alveg orðið óum­deil­an­legt og ljóst að nýr banda­ríkja­for­seti er ekki bara kom­inn bein­línis í stríð við trans fólk og okkar rétt­indi, hann er bein­línis spenntur fyrir því að fara í hart í þeirri bar­áttu.“ Þannig hefst Facebook-færsla Alexöndru Briem sem hún birti í gær. Þar deilir hún áhyggjum sínum vegna nýrrar til­skip­unar Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta sem segir...
Ugla uggandi yfir Trump: „Ógnar bókstaflega lýðræðinu og heimsöryggi eins og það leggur sig“
Innlenttransréttindi

Ugla ugg­andi yfir Trump: „Ógnar bók­staf­lega lýð­ræð­inu og heims­ör­yggi eins og það leggur sig“

„Það sem er auð­vitað mest ógn­vekj­andi við vígslu Trump til for­seta er ekki bara það að hann ætli sér að taka öll laga­leg rétt­indi af trans fólki og helst þurrka þau út í laga­legum skiln­ingi — heldur er það sú stað­reynd að það er fólk sem kaus hann til valda, vit­andi að hann stendur á móti öllu sem teng­ist jafn­rétti...
Alexandra Briem: „Ef þú styður Trump, þá ertu andstæðingur minna réttinda“
Innlent

Alex­andra Briem: „Ef þú styður Trump, þá ertu and­stæð­ingur minna rétt­inda“

Alex­andra Briem segir að þeir sem styðji Donald Trump, verð­andi Banda­ríkja­for­seta, séu and­stæð­ingar rétt­inda hennar, en hún er er trans­kona. Fram­bjóð­andi Pírata fyrir kom­andi kosn­ingar, Alex­andra Briem skrif­aði Facebook-færslu þar sem hún birtir setn­ingu frá fram­boðs­síðu Donalds Trump, þar sem kemur fram að hann muni biðja Banda­ríkja­þing að sam­þykkja frum­varp sem kveður á um að rík­is­stjórnin við­ur­kenni aðeins tvö kyn...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins