„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Guðbjörg gagnrýnir fréttastofu RÚV harðlega: „Ekkert að frétta frá fæðingarlandi frelsarans“

Guðbjörg gagnrýnir fréttastofu RÚV harðlega: „Ekkert að frétta frá fæðingarlandi frelsarans“
Hung­ursneyð ríkir nú á Gaza.

Guðbjörg Ása Jóns Huldu­dóttir gagn­rýnir frétta­stofu RÚV harð­lega fyrir að fjalla ekk­ert um raunir Palest­ínu­manna á sjálfan fæð­ing­ar­dag frels­ar­ans, sem fædd­ist einmitt í Palest­ínu.

Neminn Guðbjörg Ása Jóns Huldu­dóttir, sem hefur verið í fram­varða­sveit mót­mæl­anna gegn þjóð­ar­morð­inu í Palest­ínu síð­ast­liðið árið á Íslandi, skrif­aði sterka færslu á Facebook í gær. Þar gagn­rýnir hún frétta­stofu RÚV harka­lega fyrir að fjalla ekki um þær hörm­ungar sem enn dynja á Palest­ínu­mönnum vegna áfram­hald­andi árása Ísra­els­hers á sjúkra­hús, skóla, tjald­búðir og fleiri mann­virki sem kostað hafa tugi manns­lífa síð­ustu daga. Þá hafa minnst þrjú unga­börn frosið í held þar síð­ustu daga og hund­ruðir þús­unda eru að deyja úr hungri á Gaza. Guðbjörg Ása rit­aði:

„Jóla­dagur, 25 des­em­ber. Samkvæmt okkar nútíma­menn­ingu hald­inn hátíð­legur vegna fæð­ingar frels­ar­ans. Allt í góðu með það. Við fengum langa frétt á RÚV – Fréttir um fólk sem er annt um að brenna af sér mat í World Class, ferða­menn sem eru veð­ur­tepptir og frétt af gömlu húsi á Seyð­is­firði. Áhuga­verð frétt, en kannski ekki akút á jóla­dag. Erlend stríðs­frétt frá Úkraínu: Rússar ráð­ast á orku­inn­viði og Úkra­ínu­menn á ákveðnu svæði missa raf­magn í 4 klst. á dag. Ekkert að frétta frá fæð­ing­ar­landi frels­ar­ans, frá Betlehem eða raf­magns­leysi á helfar­ar­svæð­inu. Eða, þ.e.a.s. RÚV finnst það ekki koma Íslend­ingum við því raunar er ýmis­legt að frétta.“

Segir Guðbjörg Ása að annað árið í röð séu engin jól haldin í Betlehem.

„Annað árið í röð eru ekki haldin jól í fæð­ing­ar­borg frels­ar­ans, Betlehem. Páfinn er brjál­aður.Land­ránsný­lendan Ísr hefur sprengt kirkjur í Palest­ínu og Líbanon.30+ myrt í dag, jóla­dag, á Gaza-strönd­inni af þið vitið hverjum.Skólar, tjald­búðir og heim­ili sprengd, af þið vitið hverjum.Áfram­hald­andi ber­serks­gangur og brott­nám Hell-hers­ins á fólki á Vestur bakk­anum.Um 1000 krist­inna manna sem leitað hafa skjóls í grísku rétt­trún­að­ar­kirkj­unni í Gaza-borg verða fyrir áfram­hald­andi árásum.

Fyrir utan allt annað fólk á Gaza strönd­inni sem til­heyrir trú sem við­ur­kennir Jesú Krist sem spá­mann.“

Að lokum minn­ist Guðbjörg Ása á útvarps­leik­rit sem byggir á sannri frá­sögn Palest­ínu­manns sem dvelur hér á landi en hann missti öll fjögur börn sín og eig­in­konu í einni spreng­ingu Ísra­els­hers á heim­ili þeirra í fyrra.

„Þegar man hefur hlustað á aðra eins frá­sögn eins og þá af lífi Ahmed í útvarp­inu í dag getur man ekki orðið annað en brjáluð yfir þessu við­bjóðs­lega vest­ræna for­rétt­inda­frétta­vali.

Hlekkur á sögu Ahmeds er í athuga­semd

.

Gleðileg jól. Eða eitt­hvað.“

Í sam­tali við Mannlíf vildi Guðbjörg Ása taka fram að henni hafi verið bent á að frétt frá Palest­ínu hafi verið sýnd á RÚV á aðfanga­dag en stendur að öðru leyti við gagn­rýni sína, enda hafi RÚV ekki staðið sig nægi­lega vel í frétta­flutn­ingi af þjóð­ar­morð­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins