„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Herdís huggar starfsmenn Sýnar í skugga uppsagna: „Þetta er fjarri lagi“

Herdís huggar starfsmenn Sýnar í skugga uppsagna: „Þetta er fjarri lagi“
Herdís Dröfn Fjeld­sted, for­stjóri Sýnar.

Her­dís Dröfn Fjeld­sted, for­stjóri Sýnar, sendi starfs­mönnum fyr­ir­tæk­is­ins bréf í kjöl­far umfjöll­unar Mannlífs um fyr­ir­tækið í síð­ustu viku.

Í bréf­inu reynir for­stjór­inn að hugga starfs­menn og heldur því fram að umfjöllun Mannlífs sé röng. Í bréf­inu full­yrðir for­stjór­inn að ekki hafi komið til tals að loka frétta­stofu Stöðvar 2 og ekki standi til að breyta nöfnum á útvarps­stöðum fyr­ir­tæks­ins. Hún tekur þó fram að skoðun á vöru­merkj­unum Vodafone og Stöð 2 standi ennþá yfir.

Umfjöllun Mannlífs snérist einnig um ósætti innan fyr­ir­tæk­is­ins varð­andi stjórnun Herdísar og starfs­menn sem hún hefur ráðið í lyk­il­stöður innan þess. Talið er að upp­sagnir Evu Georgs. Ásu­dóttur og Sigrúnu Ósk Krist­jáns­dóttur teng­ist því með beinum hætti en þær voru báðar lyk­il­starfs­menn innan fyr­ir­tæks­ins og báðar með mikla reynslu. Herdís svar­aði ekki þeirri umfjöllun í bréfi sínu en þakk­aði fjöl­miðla­kon­unum fyrir vinnu­fram­lag sitt. Síðan for­stjór­inn rit­aði bréfið til starfs­manna Sýnar hefur Þóra Björg Clausen sagt upp störfum sem dag­skrár­stjóri Stöðvar 2 og er því þriðji lyk­il­starfs­maður Stöðvar 2 sem til­kynnir um upp­sögn sína á árinu.

Herdís hefur ekki viljað veita Mannlíf við­tal vegna máls­ins.

Hægt er að lesa bréf Herdísar til starfs­manna hér fyrir neðan:

Sælt kæra sam­starfs­fólk,

Í til­efni frétta­flutn­ings Mannlífs í dag vil ég koma á fram­færi leið­rétt­ingum og útskýr­ingum vegna rang­færslna sem þar koma fram. Það er mik­il­vægt fyrir mig að þið, sam­starfs­fólk mitt, hafið skýrar upp­lýs­ingar og traust á því sem er í gangi innan fyr­ir­tæk­is­ins.

Eins og þið vitið höfum við und­an­farið unnið saman að stefnu­mótun sem tók mið af sýn ykkar allra. Um 70 manns tóku beinan þátt í þess­ari vinnu fyrir hönd sinna sviða og við kynntum ykkur fyrstu drög á starfs­manna­deg­inum í nóv­em­ber. Þessi stefna byggir á metn­aði okkar til að efla Sýn sem öfl­ugt fjöl­miðla- og tækni­fyr­ir­tæki.

Ég vil leggja áherslu á að engin stefnu­breyt­ing hefur átt sér stað hvað varðar rekstur vef­miðla og útvarps. Ákvörð­unin sem tekin var í apríl á síð­asta ári um að halda þessum eignum innan fyr­ir­tæk­is­ins stendur óbreytt.

Einnig vil ég leið­rétta að engin umræða hefur átt sér stað í minni tíð um lokun frétta­stofu Stöðvar 2 eða nið­ur­fell­ingu kvöld­frétta. Slíkar hug­myndir hafa ein­fald­lega ekki komið til umræðu.

Varðandi vöru­merkin okkar þá eru þau mörg verð­mæt og vel þekkt. Hluti af stefnu­mót­un­ar­vinn­unni er skoðun og grein­ing á virði vöru­merkja í eigu Sýnar heilt yfir.

Víðtæk grein­ing hefur nú þegar verið unnin og m.a. tekin við­töl við við­skipta­vini og starfs­menn Sýnar. Svo að það sé alveg skýrt þá er alls ekki fyr­ir­hugað að hætta að nota vöru­merki útvarps- eða vef­miðla Sýnar og hérna á ég við Bylgjuna, Vísi, FM, já og áfram mætti telja. Okkur hefur til að mynda aldrei dottið Sýn 989 í hug í stað Bylgj­unnar en þetta er fjarri lagi og bara bros­legt.

Frekari skoðun á vöru­merkj­unum Vodafone og Stöð 2 er ekki lokið og því er ekki tíma­bært að ræða hvað við munum gera hvað þetta varðar. En hérna munum við hlusta á við­skipta­vini félags­ins sem eru jú hjartað í öllu sem við gerum.

Manna­breyt­ingar eru hluti af öllum breyt­inga­ferlum. Því miður höfum við þurft að kveðja tvær fram­úr­skar­andi sam­starfs­konur, Evu Georgs og Sigrúnu Ósk, sem hafa tekið ákvörðun um að láta af störfum. Mig langar að þakka þeim báðum fyrir ómet­an­legt fram­lag þeirra til félags­ins. Þær starfa áfram með okkur næstu vik­urnar, og ég óska þeim alls hins besta í fram­tíð­inni.

Framundan eru spenn­andi verk­efni sem ég hlakka til að vinna með ykkur að. Ég er sann­færð um að við höfum alla burði til að gera Sýn að einu öfl­ug­asta fyr­ir­tæki lands­ins þar sem við erum stolt af starfi okkar og okkur líður vel. Ég er alltaf til í sam­tal við ykkur ef eitt­hvað er óljóst.

Kær kveðja og góða helgi, Herdís

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins