„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Þrýst á stjórn og hluthafa Sýnar að reka forstjórann: „Þetta er alveg svakalega alvarlegt“

Þrýst á stjórn og hluthafa Sýnar að reka forstjórann: „Þetta er alveg svakalega alvarlegt“
Herdís Dröfn Fjeld­sted, for­stjóri Sýnar.

Óánægðir starfs­menn Sýnar þrýsta á stjórn og hlut­hafa að bregð­ast við því sem þeir kalla ófremd­ar­á­stand í fyr­ir­tæk­inu. „Þetta er alveg svaka­lega alvar­legt,“ segir einn heim­ild­ar­manna Mannlífs um stöð­una. Hann vill ekki láta nafns síns getið af ótta við að verða refsað.

Mikil óánægja er innan fyr­ir­tæk­is­ins og hafa lyk­il­menn úr hópi stjórn­enda sagt upp störfum og eru á förum eða farnir. Herdís Fjeld­sted for­stjóri er sökuð um að hafa enga stjórn á málum og ráða inn fólk sem henni er hand­gengið eða tengt. Lagt er að ráð­andi öflum í Sýn að skipta um for­stjóra og koma böndum á ástandið. Í tíð Herdísar hefur hluta­bréfa­verð fallið um hátt í 40 pró­sent og er mark­aðsvirði félags­ins talið vera um þriðj­ungur af því verði sem feng­ist ef fyr­ir­tækið yrði leyst upp.

Herdís hefur ekki svarað skrif­legum spurn­ingum eða sím­tölum Mannlífs um ástandið innan félags­ins og mögu­leg við­brögð. Hún sendi starfs­mönnjum aftur á móti tölvu­póst þar sem hún segir að rang­færslur hafi verið í umfjöllun Mannlífs í síð­ustu viku. Þar er vísað til þess að Mannlíf sagði frá því að til skoð­unar væri að sam­ræma vöru­merki fjöl­miðla félags­ins undir nafn­inu Sýn. Herdís til­greinir sér­stak­lega að útvarps­stöðv­arnar muni ekki breyta um nafn en stað­festir að vöru­merkin séu til skoð­unar. Þá segir hún að ekki hafi verið í sinni tíð rætt að loka frétta­stofu Stöðvar 2.

Ágrein­ing­ur­inn í eig­enda­hópi Stöðvar 2 lýsir sér helst í því að ráð­andi meiri­hluti hefur fylgt þeirri stefnu að halda félag­inu sam­ein­uðu og efla inn­við­ina sam­tímis því að skorið hefur verið niður í starfs­manna­haldi. Minni­hluta­eig­endur vilja aftur á móti selja að mestu fjöl­miðla­hlut­ann en halda eftir fjar­skipta­hlut­anumn, Vodafone. Snúa mætti við dæm­inu með því og þre­falda virði félags­ins. Síminn hefur verið á fremsta hlunni með að kaupa útvarps­stöðv­arnar og Vísi. Sömu hug­myndir ganga út á að loka frétta­stofu Stöðvar 2 og efla þann hluta sem snýr að afþr­ey­ingu.

Óljóst er hvað verður ofan á en víst þykir að á næst­unni sé stórra tíð­inda að vænta innan úr Sýn. Heim­ild­ar­menn Mannlífs herma að upp­sagnir muni halda áfram og fólks­flótt­inn eigi eftir að ná hámarki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins