„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ólgan hjá Sýn nær til eigendanna – Hluthafar sviknir um 2,5 milljarða arð eftir sölu Ljósleiðarans

Ólgan hjá Sýn nær til eigendanna – Hluthafar sviknir um 2,5 milljarða arð eftir sölu Ljósleiðarans
Herdís Dröfn Fjeld­sted, for­stjóri Sýnar.

Óánægja er í hlut­hafa­hópi Sýnar vegna þess sem þeir tala um sem svik eftir sölu á Ljós­leið­ar­ans undir lok árs­ins 2023. Verð­mið­inn var rúm­lega þrír millj­arðar króna. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs fengu hlut­hafar lof­orð um að 2,5 millarðar króna af söl­unni færi til þeirra sem arð­greiðsla.

Hermt er að Jón Skafta­son, þáver­andi stjórn­ar­for­maður hafi lýst þessu yfir. Skömmu síðar hætti hann í stjórn félags­ins og nýr maður sett­ist í stól hans. Reyndin varð sú að hlut­haf­arnair voru sviknir um greiðsl­una og millj­arð­arnir fór í rekstur Sýnar, að hluta til að mæta erf­ið­leikum.  Líf­eyr­is­sjóð­irnir sem eiga um 40 pró­senta hlut í félag­inu misstu þarna af um millj­arði króna í arð­greiðslu.

Jón hvarf

Fyrir ári síðan var Herdís Fjeld­sted ráðin sem for­stjóri félag­ins. áður hafði verið stefnt að því að skipta félag­inu upp og selja dýr­mætar ein­ingar út úr því. Jóm Skafta­son stjórn­ar­for­maður leiddi það verk­efni. Skyndi­lega hvarf Jón af sjón­ar­svið­inu. Stefn­unni var breytt og kraftur lagður í að styrkja inn­viði félags­ins sam­tímis nið­ur­skurði. Und­ar­legar ákvarð­anir á borð við þær að opna aftur fréttir Stöðavr 2 voru settar í fram­kvæmd. Gríð­ar­leg óánægja er með úrt­færslu þess undir stjórn Herdísar sem er sökuð um vina­væð­ingu og klíku­stjórnun.

Atgervisflótti

Á annan tug stjórn­enda yfir­gáfu félagið á liðnu ári og enn sér ekki fyrir end­ann á flótt­anum sem að margra mati veikir inn­viði félags­ins og rýrir verð­mæti Sýnar sem nú stendur í sjö millj­örðum króna. Það er sama verð og Jón Ásgeir Jóhann­es­son athafna­maður fékk fyrir fjöl­miðla­hlut­ann sem sam­ein­að­ist undir fjar­skipt­ar­is­anum Vodafone undir merki Sýnar.

Jón Ásgeir Jóhann­es­son græddi vel á söl­unni á sínum tíma.

Félagið er talið vera gríð­ar­lega van­metið ef litið er til eigna þess. Upp­lausn­ar­virði þess er metið allt að þrefalt mark­aðsvirði eða 21 millj­arður króna. Sem dæmu er nefnt að Bylgjan ein og sér er metin á allt að þrjá millj­arða króna. Árvakur, útgáfa Morg­un­blaðs­ins, hefur árum saman borið víurnar í útvarps­stöð­ina

Vantrúin á forstjóranum

Rekstur Sýnar er í dag tal­inn vera réttum megin við strikið og er Herdís talin hafa náð að koma

Hákon Stef­áns­son stjórn­ar­for­maður.

honum þangað með til­heyr­andi fórn­ar­kostn­aði. Talsverð óreiða og stefnu­leysi hefur verið á fyr­ir­tæk­inu, að margra mati. Það ástand á sér að sögn sögu allt frá tíð Heiðars Guð­jóns­sonar sem var for­stjóri þess með stóran eign­ar­hlut sem bak­land.

Vandinn er sú van­trú sem er á for­stjór­anum og fyr­ir­tæk­inu í núver­andi mynd á meðal fjár­festa. Þá er óánægjan meðal stjórn­enda gríð­ar­leg og setur feigð­ar­brag á rekst­ur­inn. Starfs­menn sem Mannlíf hefur rætt við hafa þrýst á aðgerðir stjórnar og hlut­hafa og vilja að Herdís verði rekin áður en í frekara óefni verði komið. Hermt er að Hákon Stef­áns­son stjórn­ar­for­maður og Herdís gangi í sama takti, hvað rekst­ur­inn varðar.

Sýn mun birta árs­hluta­upp­gjör sitt í febr­úar. Þess er beðið í nokkru ofvæni. Nið­ur­staðan gæti ráðið úrslitum varð­andi fram­tíð for­stjór­ans og stefnu félags­ins.

Herdís hefur í engu svarað írek­uðum spurn­ingum Mannlífs um álita­mál varð­andi félagið. Þá hefur stjórn­ar­for­maður Sýnar, Hákon Stef­áns­son, ekki svarað skrif­legum spurn­ingum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins