„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Kolbrún segist kveðja starfsmenn Sýnar með söknuði: „Ég læt mér ekki leiðast“

Kolbrún segist kveðja starfsmenn Sýnar með söknuði: „Ég læt mér ekki leiðast“
Kolbrún Dröfn starfar ekki lengur hjá Sýn – Mynd: Aðsend

Kolbrún Dröfn Ragn­ars­dóttir er hætt sem yfir­maður aug­lýs­inga­mála Stöðvar 2, Vísis og Bylgj­unnar en frá þessu greindi DV í gær.

Kolbrún Dröfn er því fjórða konan sem gegnir lyk­il­stöðu innan fyr­ir­tæks­ins sem hættir á árinu. Auk Kol­brúnar hafa Þóra Björg Clausen, Eva Georgs. Ásu­dóttir og Sigrún Ósk Krist­jáns­dóttir allar til­kynnt á árinu um starfs­lok sín hjá Sýn. Heim­ildir Mannlífs herma að ein­hverjar af upp­sögn­unum teng­ist óánægju starfs­manna með stjórnun Herdísar á fyr­ir­tæk­inu.

Endalaus orka

Í færslu á sam­fé­lags­miðl­inum Facebook seg­ist Kolbrún að tími sinn hjá fyr­ir­tæk­inu hafi verið ein­stakur og hún ásamt sam­starfs­fólki sínu hafi náð frá­bærum árangri.

„Sölumenn aug­lýs­inga­deildar með enda­lausa orku og hug­myndir og alltaf til í að taka slag­inn með mér og skora á mig. Birt­inga­deildin sem er vakin og sofin yfir kerf­unum alla daga. Blaða­menn aug­lýs­inga­deildar sem fóru langt út fyrir sitt starf­svið. Kynn­ing­ar­stjóri útvarps keyrði hvert verk­efnið á fætur öðru með mik­illi fag­mennsku. Sér­fræð­ingur aug­lýs­inga­deildar og gagna­snill­ing­ur­inn okkar með enda­lausa þol­in­mæði, fag­mennsku og tíma til að sinna okkur. Já hóp­ur­inn sem er tiltöllu­lega nýkom­inn í hús og mættu af krafti inn í allar þessar breyt­ingar. Allt starfs­fólk miðl­anna sem fram­leiddi efni fyrir útvarp, sjón­varp, net og hlað­vörp af því­líkri fag­mennsku. Frétta­stofan sem enda­laust dældi inn efni til að gera Vísi að stærsta vef­miðli lands­ins. Mark­aðs­deild Sýnar sem studdi við okkur í því sem við þurftum, dag­skrár­deildin og fram­leiðslan sem við unnum þétt með við það að besta hug­myndir og aug­lýs­inga­tíma. IT deildin sem vann ötul­lega að því að þróa nýjar leiðir og lausnir með okkur. Endor hóp­ur­inn alltaf til­búið að græja tölvu­málin, inn­heimtan sem nálg­að­ist öll mál af fag­mennsku, reikn­inga­gerðin, bók­haldið, mannauður og öll hin sem ég gleymi að nefna,“ skrifar Kolbrún um sam­starfs­fólk sitt.

Þá segir hún einnig að síð­asta ár hafi verið stærsta ár í aug­lýs­inga­sölu hjá félag­inu.

„Ég kveð þennan öfl­uga hóp með sökn­uði og enda­lausu þakk­læti fyrir þennan geggj­aða tíma sem var krefj­andi og lær­dóms­ríkur en fyrst og fremst virki­lega gef­andi og skemmti­legur.

Það verður gaman að sjá hvað nýju tæki­færi taka við, ég læt mér ekki leið­ast þangað til.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins